Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Epli 9. júlí 2026 12:27 Við hönnun nýrrar verslunar Epli var sérstök áhersla lögð á að skapa bjart, opið og aðlaðandi umhverfi. Epli hefur flutt verslun sína í Smáralind í nýtt og glæsilegt rými við hlið nýju Mathallarinnar.
Þar er lögð er rík áhersla á betri upplifun viðskiptavina, aukið aðgengi að vörum og hinn einkennandi Apple-stíl. Við hönnun verslunarinnar var sérstök áhersla lögð á að skapa bjart, opið og aðlaðandi umhverfi sem endurspeglar Apple-verslanir víða um heim. Rýmið gerir viðskiptavinum kleift að skoða vörur á þægilegan hátt, prófa nýjustu tækin og fá persónulega ráðgjöf frá starfsfólki Epli. Skipulag verslunarinnar hefur jafnframt verið endurbætt þannig að aðgengi að vöruflokkum er betra en áður. Hvort sem viðskiptavinir leita að nýjum Mac, iPhone, iPad, Apple Watch, AirPods eða fjölbreyttum fylgihlutum er nú auðveldara en áður að finna réttu vöruna. „Við vildum hanna verslun sem endurspeglar þá upplifun sem Apple stendur fyrir – bjart, einfalt og aðgengilegt umhverfi þar sem tækin fá að njóta sín,“ segir Örn Barkarson, sölustjóri Epli. Nýja verslunin gerir okkur kleift að veita enn betri þjónustu og skapa betri upplifun fyrir viðskiptavini okkar. Með flutningnum styrkir Epli enn frekar þjónustu sína á höfuðborgarsvæðinu og býður viðskiptavini velkomna í nýtt og glæsilegt verslunarrými þar sem þeir geta kynnt sér nýjustu vörur Apple, fengið faglega ráðgjöf og upplifað það sem Apple hefur upp á að bjóða í vinalegu umhverfi. Nýja verslun Epli í Smáralind er nú opin og starfsfólk Epli tekur á móti viðskiptavinum alla daga samkvæmt opnunartíma Smáralindar.
Apple Verslun Smáralind Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira