Rammagerðin leitar nauðasamninga Árni Sæberg skrifar 9. júlí 2026 16:39 Stærsta verslun Rammagerðarinnar er í gamla Kirkjuhúsinu á Laugavegi. Vísir/Ívar Fannar Rammagerðin ehf., sem rekur samnefndar gjafavöruverslanir, hefur fengið heimild til að leita nauðasamninga við lánardrottna sína. Markmið nauðasamnings er að ráða bót á ógjaldfærni skuldara og þá einkum með því að lækka skuldir þannig að skuldari verði frekar fær um að standa í skilum.
Í innköllun þess efnis í Lögbirtingablaðinu, sem birt var í gær, segir að með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, uppkveðnum 2. júlí síðastliðinn, hafi Rammagerðinni verið veitt heimild til að leita nauðasamninga samkvæmt ákvæðum laga um gjaldþrotaskipti o.fl. Skorað sé á alla þá, sem telja sig eiga samningskröfur á hendur Rammagerðinni, að lýsa kröfum sínum fyrir umsjónarmanni með nauðasamningaumleitunum félagsins innan fjögurra vikna frá birtingu innköllunarinnar. Kröfulýsingar skuli sendar LLG Lögmönnum ehf. Getur bundið lánardrottna sem samþykkja ekki Með nauðasamningi samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti og fleira er átt við samning um greiðslu skulda eða eftirgjöf af skuldum sem kemst á milli skuldarans og áskilins meiri hluta lánardrottna hans og hlýtur síðan staðfestingu fyrir dómi. Nauðasamningur, sem þannig er gerður, bindur einnig aðra lánardrottna skuldarans eftir því sem nánar er mælt fyrir í lögunum. Á vef Skattsins segir að markmið nauðasamnings sé að ráða bót á ógjaldfærni skuldara og þá einkum með því að lækka skuldir þannig að skuldari verði frekar fær um að standa í skilum. Deila um leigu vakti athygli Rammagerðin rekur nokkurn fjölda gjafaverslana, meðal annars í gamla Kirkjuhúsinu á Laugavegi og í Leifsstöð. Verslun félagsins í Leifstöð rataði í fréttir nýlega vegna deilna Rammagerðarinnar og Isavia um leigu. Rammagerðin er í eigu hjónanna Helga Rúnars Óskarssonar og Bjarneyjar Harðardóttur. Þau eru einnig aðaleigendur 66° Norður.
Verslun Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira