Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
AGS samþykkir endurskoðun Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins samþykkti fjórðu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og sjóðsins á fundi sínum í Washington í kvöld. Þar með stendur íslenskum stjórnvöldum til boða lánafyrirgreiðsla sjóðsins að fjárhæð um 19 milljarðar króna eða sem nemur 162 milljónum dollara. Síðasta endurskoðun var samþykkt þann 30. september síðastliðinn. 10.1.2011 20:40
Eignir lífeyrissjóða tæpir 1.900 milljarðar Hrein eign lífeyrissjóða í lok nóvember sl. var 1.893,5 milljarða kr. og hækkaði hún um 41,2 milljarða kr. í mánuðinum eða um 2,2%. 10.1.2011 19:25
Endurskoðun AGS traustsyfirlýsing Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins mun í kvöld afgreiða fjórðu endurskoðun efnahagsáætlunar fyrir Ísland. Efnahags- og viðskiptaráðherra segir það traustsyfirlýsingu og viðurkenningu á því að ríkisstjórnin sé á réttri leið. 10.1.2011 19:08
Hanna Björk stýrir Sparifélaginu Hanna Björk Ragnarsdóttir, viðskiptafræðingur, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Sparifélagsins. Sparifélagið hefur um nokkurt skeið unnið að undirbúningi umsóknar um viðskiptabankaleyfi í kjölfar hlutafjárútboðs sem fyrirhugað er á komandi mánuðum. Að fengnu leyfi fyrir rekstri viðskiptabanka mun starf framkvæmdastjóra Sparifélagsins breytast í starf bankastjóra. Stefnt er að því að bankinn hefji starfsemi á síðari hluta ársins. 10.1.2011 17:31
Búast við söluþrýstingi á bréf Icelandair Búast má við söluþrýstingi á hlutabréf í Icelandair á næstu dögum þar sem líklegt er að margir þeirra sem tóku þátt í hlutafjárútboði félagsins muni vilja leysa ágætan söluhagnað af þeim strax. 10.1.2011 15:28
Bankarnir hafa svigrúm til að selja gjaldeyri Afgangur af viðskiptum við útlönd er að skila sér til landsins og því hafa bankarnir svigrúm til að selja gjaldeyri fyrir krónur. Þetta sést m.a. af samningum þeim sem Seðlabankinn gerði við innlend fjármálafyrirtæki í síðasta mánuði um veruleg gjaldeyriskaup. 10.1.2011 15:12
ECB réttir Portúgal tímabundna líflínu Seðlabanki Evrópu (ECB) rétti Portúgal tímabundna líflínu í dag með því að kaupa portúgölsk ríkisskuldabréf á markaðinum í Evrópu. Þetta hefur Reuters eftir heimildum innan markaðarins. 10.1.2011 14:11
Nauðungarsölum fasteigna fjölgaði um 246 milli ára Í lok desember 2010 höfðu 453 fasteignir verið seldar nauðungarsölu hjá Sýslumanninum í Reykjavík á árinu. Þetta er meir en tvöföldun á fjölda nauðungarsalna á fasteignum miðað við sama tímabil í fyrra en þá voru þær 207 talsins í lok desember. Þeim fjölgaði því um 246 á milli ára. 10.1.2011 13:28
Hjálmar Snær er Nörd ársins Upplýsingatæknifyrirtækið Skýrr hélt nýársgleði fyrir samstarfsaðila og viðskiptavini síðastliðinn föstudag. Í aðdraganda gleðinnar var efnt til samkvæmisleiks meðal viðskiptavina fyrirtækisins og NÖRD ÁRSINS valinn. „Um 400 tilnefningar bárust frá 7 þúsund manns og 20 manns fengu fleiri en tvö atkvæði. Dómnefnd fór síðan yfir tilnefningar og valdi NÖRD ÁRSINS með hliðsjón af þeim,“ segir í tilkynningu. 10.1.2011 12:00
Endurskoðun AGS í dag, ekkert bólar á Norðurlandalánum Síðdegis í dag mun framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) taka fyrir fjórðu endurskoðun á efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda og sjóðsins. Tilkynningu um þetta er að finna á heimasíðu AGS. 10.1.2011 11:51
Búist við að atvinnuleysi aukist Greining Íslandsbanka býst við því að atvinnuleysi muni aukast á næstunni. Atvinnuleysi mældist 7,7% í nóvember síðastliðnum og jókst um 0,2 prósentustig frá fyrri mánuði, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Nýjar tölur verða svo birtar á föstudaginn. 10.1.2011 11:39
MP banki áfram með mestu veltuna í skuldabréfum MP banki var með mestu veltuna á skuldabréfamarkaðinum á síðasta ári. Er þetta annað árið í röð sem bankinn er í efsta sæti hvað þetta varðar. 10.1.2011 11:19
Breskt fyrirtæki tekur yfir Orkustöðina á Húsavík Breska orkufyrirtækið Global Geothermal Ltd, hefur gert samkomulag við Orkuveitu Húsavíkur (OH) um samvinnu vegna viðgerðar og enduruppbyggingar Orkustöðvar OH á Hrísmóum við Húsavík. Kaupin eru háð samþykki nefndar um erlenda fjárfestingu en ákvörðun nefndarinnar liggur ekki fyrir. 10.1.2011 11:01
Gjaldeyrisforðinn kominn í 667 milljarða Gjaldeyrisvaraforði Seðlabankans er nú kominn í 667 milljarða kr. og hefur aldrei verið stærri í sögunni. 10.1.2011 10:12
Járnblendiverksmiðjan í kínverska eigu Viðskipti með hlutabréf í norska iðnaðarrisanum Orkla voru stöðvuð um tíma í kauphöllinni í Osló í morgun. Þetta gerðist eftir að Orkla staðfesti samningaviðræður við kínverska félagið China National Bluestar um kaup þess á Elkem, þar á meðal járnblendiverksmiðju þess á Grundartanga. 10.1.2011 10:03
Veruleg aukning í jólasölu Magasin du Nord Veruleg aukning varð á jólasölu Magasin du Nord í Kaupmannahöfn í fyrra miðað við árið á undan. Breska verslunarkeðjan Debenhams rekur nú Magasin. 10.1.2011 09:37
Vöruskiptin hagstæð um 11,5 milljarða í desember Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir desember 2010 var útflutningur 47,3 milljarðar króna og innflutningur 35,8 milljarðar króna. 10.1.2011 09:01
DuPont gerir 740 milljarða tilboð í Danisco Bandaríski efnarisinn DuPont hefur gert 6,3 milljarða dollara eða rúmlega 740 milljarða kr. tilboð í danska matvælafyrirtækið Danisco. Danisco framleiðir m.a. ýmis aukaefni og ensím til matvælagerðar og segir DuPont að framleiðsla Danisco passi vel við starfsemi sína. 10.1.2011 08:55
Álverðið komið yfir 2.500 dollara á tonnið Miklar hækkanir hafa verið á heimsmarkaðsverði á áli undanfarnar vikur og er það nú komið í 2.501 dollara fyrir tonnið á málmmarkaðinum í London (LME) miðað við þriggja mánaða framvirka samninga. 10.1.2011 08:15
Rífandi gangur hjá House of Fraser Rífandi gangur var í jólaversluninni hjá bresku tískuverslunarkeðjunni House of Fraser. Salan jókst um 8,5% á síðustu fimm vikunum fyrir jólin miðað við sama tímabil árið áður. John King forstjóri keðjunnar segir að ef veðrið hefði ekki verið eins slæmt og raun bar vitni hefði mátt mæla aukninguna í tveggja stafa tölu. 10.1.2011 08:01
VBS lánaði milljarða út á loftkastalasmíði VBS fjárfestingarbanki með fulltingi Landsbankans tók þátt í kaupum á fasteignaverkefnum og lánaði milljarða króna út á mat á hugsanlegu söluandvirði fasteigna sem aldrei risu. 10.1.2011 07:00
Segir VBS hafa stundað talnaleiki Innova varð á meðal fimm umsvifamestu fyrirtækja í byggingageiranum að undangengnum samruna Stafna á milli við tvö önnur verktakafyrirtæki. Starfsmenn voru rúmlega tvö hundruð og veltan í kringum sjö milljarðar króna. Forstjóri fyrirtækisins var Engilbert Runólfsson. Hann sat inni fyrir aðild að fíkniefnainnflutningi fyrir fimmtán árum en varð stórtækur á fasteignamarkaði eftir aldamótin. 10.1.2011 06:30
Fengu milljarða út á hús sem aldrei risu VBS fjárfestingarbanki lánaði fyrirtæki Engilberts Runólfssonar milljarða króna til ýmissa fasteignaverkefna með veði í fasteignum sem aldrei risu. 10.1.2011 06:00
Vísitala neysluverðs verði ekki notuð við verðtryggingu Talsmaður neytenda hefur lagt til við verðtryggingarnefnd sem efnahags og viðskiptaráðuneytið hefur sett á fót að önnur og raunhæfari viðmið en vísitala neysluverðs verði notuð við að reikna verðtryggingu lána. Fyrst og fremst þar sem vísitalan lýsi ekki vel rýrnun gjaldmiðilsins. 8.1.2011 13:23
Nauðungarsölum fækkar Alls voru 289 bifreiðar seldar nauðungarsölu hjá Sýslumanninum í Reykjavík í fyrra og skráðar nauðungarsölubeiðnir voru 723. Þetta er umtalsvert minna en árin tvö á undan því þá var 441 bifreið seld nauðungarsölu hjá 7.1.2011 20:07
Kristín nýr forstjóri Skipta Kristín Guðmundsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Skipta hf. Hún hefur starfað sem fjármálastjóri félagsins undanfarin átta ár og jafnframt verið staðgengill forstjóra á þeim tíma. Hún mun taka við nýju starfi frá og með deginum í dag. 7.1.2011 16:30
AGS klárar fjórðu endurskoðun á mánudag Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn mun ljúka fjórðu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands á mánudaginn kemur. Þetta kemur fram á Bloomberg fréttaveitunni og er haft eftir Franek Roszvadovski sendifulltrúi sjóðsins hér á landi. Þegar endurskoðunin hefur verið staðfest mun Íslendingum standa til boða um 160 milljónir bandaríkjadala í formi lánafyrirgreiðslu. 7.1.2011 15:04
Ríkir Íslendingar kaupa lúxusbíla „Sem betur fer er fullt af fólki sem á pening,“ segir Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota. Sala á nýjum bílum hefur farið nokkuð greitt af stað þessa fyrstu viku ársins. Alls hafa 37 bílar selst, en af þeim eru fjórtán sem geta talist lúxusbílar. Þá er átt við bíla á borð við Audi, 7.1.2011 15:00
Það verður réttað yfir Baldri - frávísunarkröfu vísað frá Frávísunarkröfu Baldurs Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, í máli sérstaks saksóknara gegn honum var vísað frá dómi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, samkvæmt frétt sem DV birtir á heimasíðu sinni. 7.1.2011 14:50
Porsche Cayenne uppseldur fram í mars Lögin sem tóku gildi um áramótin og eiga að draga úr útblæstri koltvísírings íslenska bílaflotans hafa valdið því að Porsche Cayenne jeppinn frá Bílabúð Benna hefur lækkað í verði og er nú uppseldur. 7.1.2011 12:57
Óskar eftir tilnefningum í stjórnir sparisjóða Bankasýsla ríkisins hefur óskað eftir tilnefningum í stjórnir nokkurra sparisjóða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu. 7.1.2011 10:57
Skilanefnd Landsbankans vill selja fleiri dönsk hótel Skilanefnd Landsbankans hyggst selja fleiri dönsk hótel í náninni framtíð. Þetta kemur fram í viðtali Berlinske Tidende við Pál Benediktsson talsmann skilanefndarinnar. Sem kunnugt er af fréttum er skilanefndin búin að selja Hotel D´Angleterre. 7.1.2011 10:06
Bílasala jókst um tæp 30% í fyrra Bílasala er aftur að braggast á Íslandi en hún jókst um tæp 30% í fyrra miðað við árið áður. 7.1.2011 09:44
Farþegum um Leifsstöð fjölgaði um tæp 4% í fyrra Samtals komu 742,6 þúsund farþegar til landsins um Keflavíkurflugvöll í janúar– desember 2010 borið saman við 714,5 þúsund farþega í janúar–desember 2009. 7.1.2011 09:21
Gistinóttum fækkar um tæp 2% Gistinætur á hótelum í nóvember síðastliðnum voru 70.300 en voru 71.500 í sama mánuði árið 2009. Þetta er tæplega 2% fækkun. 7.1.2011 09:02
Borguðu þó nokkra milljarða fyrir Hotel D´Angleterre Viðskiptablaðið Börsen segir að kaupverðið sem Henning Remmen og fjölskylda borguðu skilanefnd Landsbankans fyrir Hotel D´Angleterre hlaupi á einhverjum hundruðum milljóna danskra kr. eða a.m.k. að sex til átta milljarða kr. Þetta hefur blaðið hefur heimildum úr danska hótelgeiranum. 7.1.2011 08:39
Samtök lánþega fordæma yfirlýsingu Lýsingar Samtök lánþega fordæmir þá yfirlýsingu Lýsingar hf, um að ætla ekki að fara að landslögum og telja að yfirlýsing fyrirtækisins, eftir úrskukrð áfrýjunarnefndar neytendamála beri vott um einbeittan brotavilja. 7.1.2011 07:52
Bill Gates ekki lengur ríkasti maður heimsins Bill Gates stofnandi Microsoft er ekki lengur ríkasti maður heimsins samkvæmt árlegum lista Forbes tímaritsins. 7.1.2011 07:50
FME og Seðlabankinn gera nýjan samstarfssamning Fjármálaeftirlitið (FME) og Seðlabanki Íslands hafa gert með sér nýjan samstarfssamning, sem kveður á um markvissara samstarf en eldri samningur. 7.1.2011 07:38
Óveðrið gæti kostað flugfélagið marga milljarða króna Óveðrið í Bretlandi og víðar í Evrópu í desember gæti hafa kostað British Airwyas 50 milljónir sterlingspunda. Farþegum á vegum flugfélagsins fækkaði verulega miðað við sama tíma fyrir ári, vegna snjókomu og íss. Hundruð flugferða á vegum BA var aflýst og mörgum flugvöllum í Bretlandi, Evrópu og Norður Ameríku var lokað. Farþegar á vegum flugfélagsins voru 2,1 milljón nú í desember en voru 2,4 milljónir fyrir ári. 6.1.2011 22:31
Björgólfshús til sölu Fjölnisvegur 3, húsnæði sem áður var í eigu Björgólfs Thor Björgólfssonar, hefur verið sett á sölu. Húsið er 321 fermetri að stærð og er metin á tæplega 79 milljónir króna. Eignarhaldsfélags Landsbankans, Mynni hf, á húsið en það var sett á sölu í gær. 6.1.2011 20:11
Samið um kaup á D´Angleterre Hótel D´Angleterre í Kaupmannahöfn verður selt félagi í eigu Remmen´s Stiftung von 1986, samkvæmt samkomulagi sem náðist þess efnis í dag. Hótelið er nú í eigu skilanefndar Landsbankans en nýju eigendurnir munu taka við rekstri þess þann 1. febrúar næstkomandi. 6.1.2011 18:58
Glæsibílar og flugferðir fyrir eiginkonur hjá FL Group Fyrrverandi hluthafi í FL Group segir allt á huldu í hvað þeir sex komma tveir milljarðar króna fóru sem efnahagsbrotadeild fær nú til rannsóknar vegna meintra skattalagabrota. Hann segir FL Group hafi verið spilaborg og bréf fyrirtækisins hafi verið notuð til að tæma bankana innanfrá. 6.1.2011 12:58
Íslandsbanki hættir að senda út reikningsyfirlit Íslandsbanki hefur ákveðið að hætta útsendingu reikningsyfirlita til einstaklinga í viðskiptum við bankann. Yfirlitin verða aðgengileg öllum viðskiptavinum í Netbanka, en þeir viðskiptavinir sem óska þess sérstaklega geta fengið yfirlitin prentuð út og send í pappírsformi. Er þetta gert til þess að spara kostnað auk þess sem Íslandsbanki leggur áherslu á að vera umhverfisvænn vinnustaður. 6.1.2011 12:46
Allt útlit fyrir að gjaldþrotamet hafi verið slegið í fyrra Allt útlit er nú fyrir að nýtt met verði slegið á árinu 2010 hvað varðar fjölda gjaldþrota og að fyrra met frá árinu 2009 verði slegið út. Það ár voru 910 fyrirtæki úrskurðuð gjaldþrota sem var það mesta sem sést hefur undanfarna áratugi. 6.1.2011 11:20