Viðskipti innlent

Nauðungarsölum fasteigna fjölgaði um 246 milli ára

Í lok desember 2010 höfðu 453 fasteignir verið seldar nauðungarsölu hjá Sýslumanninum í Reykjavík á árinu. Þetta er meir en tvöföldun á fjölda nauðungarsalna á fasteignum miðað við sama tímabil í fyrra en þá voru þær 207 talsins í lok desember. Þeim fjölgaði því um 246 á milli ára.

Greint er frá málinu á vefsíðu sýslumannsins. Þar kemur fram að nauðungarsölum hefur fjölgað mikið á seinnihluta ársins. Þær voru fæstar eða 2 í maí en voru flestar eða 81 í október.

Á sama tíma og nauðungarsölum fjölgar hefur skráðum nauðungarsölumálum fækkað töluvert. Þau mál voru 1.961 talsins fram til desemberloka en voru 2.504 talsins á sama tíma í fyrra.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×