Hjálmar Snær er Nörd ársins 10. janúar 2011 12:00 Hjálmar Snær Gíslason hjá DataMarket sigri hrósandi fyrir miðju. Vinstra megin er Gestur G. Gestsson forstjóri Skýrr og hægri megin er Stefán Hrafn Hagalín forstöðumaður samskiptasviðs Skýrr.
Upplýsingatæknifyrirtækið Skýrr hélt nýársgleði fyrir samstarfsaðila og viðskiptavini síðastliðinn föstudag. Í aðdraganda gleðinnar var efnt til samkvæmisleiks meðal viðskiptavina fyrirtækisins og NÖRD ÁRSINS valinn. „Um 400 tilnefningar bárust frá 7 þúsund manns og 20 manns fengu fleiri en tvö atkvæði. Dómnefnd fór síðan yfir tilnefningar og valdi NÖRD ÁRSINS með hliðsjón af þeim," segir í tilkynningu. „Einn nörd skaraði fram úr, en þar var á ferðinni Hjálmar Snær Gíslason, stofnandi DataMarket, sem rekur samnefnt markaðssvæði fyrir tölfræði og önnur gögn. Hann fékk tvöfalt fleiri tilnefningar en næsti maður og dómnefnd var á einu máli um að það væri verðskuldað. Hjálmar Snær er því NÖRD ÁRSINS. Hann hlaut að launum veglegan farandbikar og ferð fyrir tvo til útlanda að eigin vali með einhverju af íslensku flugfélögunum," segir ennfremur. „Í Hjálmari sameinast einstakur nörd og útsjónarsamur athafnamaður og í DataMarket sannast að einlægur áhugi og ástríða fyrir viðfangsefni er mikilvægari en gróðahugsjónir. Hjálmari hefur tekist að gera hráa og þurra tölfræði athyglisverða, einfalda og spennandi með notkun upplýsingatækni. Hann hefur náð til almennings og þannig gert upplýsingatæknina sýnilega og dregið fram mikilvægi hennar," sagði meðal annars í umsögn dómnefndar. Dómnefnd skipuðu Arnheiður Guðmundsdóttir Skýrslutæknifélagi Íslands, Frosti Sigurjónsson fjárfestir, Guðjón Már Guðjónsson Medizza, Gunnar Grímsson ofurnörd, Haraldur Dean Nelson Samtökum iðnaðarins, Hilmar Veigar Pétursson CCP, Helga Waage Mobilitus, Sigrún Eva Ármannsdóttir Skýrr, Stefán Baxter VÍS og Vilhjálmur Þorsteinsson fjárfestir.Aðrir atkvæðaháir nördar voru meðal annars eftirtaldir: Ari Kristinn Jónsson HR, fyrsti háskólarektorinn sem er nörd. Benedikt Sveinsson CCP sem smíðaði risaloftnet í Grímsey fyrir radíóamatöra. Bjarni Rúnar Einarsson fyrir frumlega hugmynd af vefþjónum á öllum tölvum. Finnur Pálmi Magnússon fyrir samfélagsmiðlagrúsk og störf í þágu lýðræðis og þjóðar. Friðrik Skúlason vegna þess að allir aðrir nördar verða bara venjulegir menn þegar að hann stígur á sviðið. Gunnar Hólmsteinsson frumkvöðull hjá leitarfyrirtækinu Clara. Gunnar Karlsson yfirhönnuður hjá teiknimyndafyrirtækinu Caoz. Halldór Axelsson hjá Remake-Electric sem sýður kartöflur og opnar glugga með GSM-síma. Jónas Björgvin Antonsson frumkvöðull hjá leikjafyrirtækinu Gogogic. Jónas Sigurðsson hjá Gagnavörslunni fyrir forritaraplötu ársins. Maríus Ólafsson sem oft hefur verið nefndur faðir íslenska internetsins. Pratik Kumar hjá Arion banka fyrir að umbreyta fjarstýringu úr farsíma. Smári McCarthy fyrir uppsetningu á Fablab, nördaskap við friðargæslu í Afghanistan og þátttöku í Wikileaks-ævintýrinu. Tómas Ponzi fyrir að hafa einsamall tæklað hugbúnaðar- og vélbúnaðarverkefni fyrir Strætó. Torfi Franz Ólafsson hjá CCP fyrir að breyta baðherbergi í sýndarhverasvæði.
Mest lesið Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Níu holu golfvöllur á gamalli landnámsjörð Samstarf Fleiri fréttir Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Sjá meira