Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tyrkneskt vatn flutt inn í plastflöskum „Þetta vakti forvitni mína því að ég hef aldrei skilið hvers vegna Íslendingar ættu að flytja inn vatn en mér finnst eiginlega liggja miklu beinna við að flytja það út," segir Stefán Gíslason, umhverfisfræðingur í Borgarnesi. Hann keypti nýlega hálfs lítra vatnsflösku undir merkjum Pinar frá Tyrklandi í Krónunni í Mosfellsbæ. 29.4.2009 07:30
Samdráttur í Japan Stjórnvöld í Japan hafa fært efnahagsspá sína fyrir árið úr núlli í samdrátt upp á 3,3 prósent. Fjárlagaárið þar í landi hófst um mánaðamótin. 29.4.2009 05:00
Skúli í Oz enn í símanum Skúli Mogensen, fyrrverandi forstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Oz, hefur tekið sæti í stjórn kanadíska tæknifyrirtækisins Airborne Technology Ventures ásamt því að fjárfesta í því fyrir hálfa milljón Bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 65 milljóna króna að núvirði. 29.4.2009 04:30
Greitt fyrir uppljóstrun Mary Schapiro, forstjóri bandaríska fjármálaeftirlitsins, segir ekki útilokað að greitt fyrir þær upplýsingar sem leiða til þess að efnahagsbrot verða upprætt. 29.4.2009 04:15
Segir skuldir bankanna vera þjóðinni ofviða "Hver er staða þjóðarbúsins? Er Ísland gjaldþrota?“ var yfirskrift hádegisverðarfundar félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga sem fram fór á Grand Hóteli í gær. Kjartan Guðmundsson fylgdist með umræðunum. 29.4.2009 04:15
Íslendingar vinna gegn svínaflensunni „Við erum á fullu að vinna í því að setja gáttina upp og fara að vinna gegn svínaflensunni í Mexíkó,“ segir Magnús Ingi Stefánsson, verkefnastjóri hjá TM Software, dótturfélagi Nýherja. 29.4.2009 04:15
Stjórnmálalegri óvissu verði eytt Á fundi nýrrar stjórnar Samtaka atvinnulífsins sem haldinn var í dag var áhersla lögð á að stjórnmálalegri óvissu verði eytt sem fyrst og að stefna landsins verði mótuð til framtíðar. Verulegur árangur í niðurskurði ríkisútgjalda sé forsenda þess að landið komist hratt upp úr öldudalnum, að mati stjórnarinnar. 28.4.2009 21:00
Viðsnúningur til hins verra hjá JJB Sports Mikill viðsnúningur hefur orðið til hins verra hvað varðar verð á hlutum í íþróttaverslanakeðjunni JJB Sports í dag. Eftir mikla hækkun í gær hafa hlutirnir fallið um 8% í dag að því er segir á Reuters. 28.4.2009 16:19
Aðeins hreyfing hjá Össur og Marel Aðeins urðu viðskipti með hlutabréf í Össur og Marel í kauphöllinni í dag og námu þau samtals rúmlega 100 milljónum kr. Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,7% og stendur í tæpum 218 stigum. 28.4.2009 15:35
Snekkjum sökkt eða þeim siglt í strand í kreppunni Leiðindasjón blasir nú víða við í höfnum Bandaríkjanna og meðfram ströndum landsins, einkum við Flórída. Það eru snekkjur sem sökkt hefur verið eða þeim siglt í strand af örvæntingarfullum eigendum sem eiga ekki lengur fyrir afborgunum eða rándýrum leguplássum. 28.4.2009 15:18
Ársreikningur Stoða frestast fram á sumar Uppgjör Stoða (FL Group hf.) fyrir árið 2008 mun ekki verða birt 30. apríl eins og áður hefur verið tilkynnt um. 28.4.2009 14:50
Svínaflensan gæti minnkað hagvöxt heimsins um 5% Alþjóðabankinn telur að svínaflensan gæti minnkað hagvöxt (landsframleiðslu) heimsins um 5% ef hún verður að heimsfaraldri. 28.4.2009 13:49
SAS flýgur inn í blóðrautt sólarlag SAS skilaði lélegu uppgjöri eftir fyrsta ársfjórðung ársins en tap flugfélagsins nam rúmlega hálfum milljarði danskra kr. eða um 11,5 milljörðum kr. Samkvæmt fregnum í norrænum fjölmiðlum í morgun er tapið nokkuð í takt við væntingar sérfræðinga. 28.4.2009 13:19
Brúnin heldur að léttast á íslenskum neytendum Enn dregur úr svartsýni íslenskra neytenda samkvæmt væntingavísitölu Capacent Gallup sem birt var í morgun. Vísitalan hækkaði, annan mánuðinn í röð, sem er til vísbendingar um að brúnin er heldur farin að léttast á íslenskum neytendum eftir erfiðan vetur. 28.4.2009 12:52
Laus störf ekki verið fleiri síðan vorið 2006 Samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunar voru 620 laus störf hjá vinnumiðlunum í lok síðasta mánaðar og var það talsverð fjölgun frá febrúarlokum þegar 423 störf voru auglýst laus hjá vinnumiðlunum. Ekki hafa verið fleiri laus störf í boði síðan á maí 2006 fyrir tæpum 3 árum. 28.4.2009 12:34
Gengi krónunnar styrkist á erlendum mörkuðum Gengi krónu hefur styrkst töluvert gagnvart evru á erlendum markaði undanfarna daga og hljóða tilboð í Reuters-tilboðakerfinu nú upp á u.þ.b. 220 kr. fyrir evruna. Er gengið erlendis nú svipað og var fyrir sex vikum síðan. 28.4.2009 12:18
Mál erlendra kröfuhafa SPRON gegn ríkinu þingfest Mál erlendra kröfuhafa SPRON á hendur Íslenska ríkinu var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Kröfuhafarnir telja að tjón þeirra vegna yfirtöku ríkisins á SPRON hlaupum á tugum milljarða króna. 28.4.2009 12:07
HB Grandi á sjávarútvegssýningu í Brussel Í morgun voru sjávarútvegssýningarnar European Seafood Exposition (ESE) og Seafood Processing Europe (SPE) í Brussel í Belgíu opnaðar formlega. HB Grandi hefur tekið þátt í ESE-sýningunni frá árinu 2005 og hefur þátttakan þar verið stór liður í starfi félagsins við að taka markaðssetningu sinna afurða i eigin hendur. 28.4.2009 11:46
Svínaflensan gæti kostað Ísland um 50 milljarða Svínaflensan gæti kostað Íslendinga allt að rúmum 50 milljörðum kr. ef hún breytist í skæðan faraldur. Ef um vægan faraldur verður að ræða er kostnaðurinn í kringum 13 milljarðar kr. 28.4.2009 11:08
Deutsche Bank skilar yfir 200 milljarða hagnaði Deutsche Bank, stærsti banki Þýskalands, skilaði mjög góðu uppgjöri á fyrsta ársfjórðungi ársins. Hagnaðurinn reyndist tæplega 1,2 milljarður evra eða rúmlega 200 milljarðar kr. Á sama tímabili fyrir ári síðan var tap á rekstri bankans upp á 131 milljón evra. 28.4.2009 10:36
Marel Food Systems lækkar mest í byrjun dags Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems féll um 3,45 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgir Össur, en gengi hlutabréfa fyrirtækisins lækkaði um 1,34 prósent. 28.4.2009 10:27
Svínaflensan lokar Lego verksmiðju í Mexíkó Lego hefur gripið til aðgerða og sent 400 starfsmenn í verksmiðju sinni í Mexíkó heim til sín. Rekstur verksmiðjunnar mun liggja niðri a.m.k. fram til 4. maí n.k. 28.4.2009 10:10
Langtímalán LS jukust um 11,5 milljarða í fyrra Útborguð langtímalán 2008 hjá Lánasjóði sveitarfélaga (LS) námu 15.5 milljörðum kr. miðað við 4 milljarða kr. árið áður. Jukust lánin því um 11,5 milljarða kr. á árinu. 28.4.2009 09:51
Vodafone sektað um 200 þúsund fyrir „fríkeypis“ auglýsingar Neytendastofa hefur dæmt Vodafone til þess að greiða 200 þúsund krónur í stjórnvaldssekt fyrir að nota orðið „fríkeypis“ í auglýsingum til fyrirtækja og á auglýsingaskilti. Áður hafði fyrirtækinu verið gert að hætta að tala um „fríkeypis“ í auglýsingum sínum þar sem notkun orðsins sé brot á lögum þar sem um var að ræða þjónustu sem viðskiptavinir þurfa að greiða fyrir með annari þjónustu. 28.4.2009 09:43
Kyrrsetningu eigna Glitnis í Noregi aflétt Í síðustu viku var aflétt kyrrsetningu á eignum Glitnis í Noregi sem staðið hefur frá falli bankans í byrjun október í fyrra. Með þessari niðurstöðu fær skilanefnd bankans óskorað forræði yfir eignum hans í Noregi, sem eru að andvirði um eitt hundrað milljarðar íslenskra króna. 28.4.2009 09:32
Gjaldeyrishöftum aflétt að hluta til í sumar Seðlabankinn áformar að aflétta gjaldeyrishöftunum að hluta til í sumar. Fjallað er um málið í daglegu fréttabréfi hagfræðideildar Landsbankans og þar er vitnað til viðtals sem Reuters átti við Svein Harald Öygard seðlabankastjóra um málið í gærdag. 28.4.2009 09:28
Hlutir í JJB Sports hækka um 41% eftir samninga Hlutir í íþróttavörukeðjunni JJB Sports hækkuðu um 41% á markaðinum í London eftir að tilkynnt var að keðjan hefði náð samkomulagi við leigusala sína um breytingar á húsleigu verslana keðjunnar. Kaupþing er meðal helstu lánadrottna JJB Sports. 28.4.2009 09:04
Össur hf. eykur hagnað sinn milli ára Hagnaður Össurar hf. á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 7,6 milljónum dollara eða tæpum 10 milljörðum kr. , samanborið við 6,7 milljónir á sama tímabili árið 2008. 28.4.2009 08:39
Fjórðungi sagt upp hjá Teris Upplýsingatæknifyrirtækið Teris hefur sagt upp 34 starfsmönnum, eða um fjórðungi starfsmanna sinna. Uppsagnirnar koma niður á öllum þáttum starfseminnar og hafa sumir starfsmannanna unnið lengi hjá fyrirtækinu. Allir starfsmennirnir hafa þegar hætt störfum. 28.4.2009 04:30
Alls 259 í gjaldþrot á árinu Alls urðu 259 fyrirtæki gjaldþrota á fyrstu þremur mánuðum ársins. Það eru 48 prósentum fleiri gjaldþrot en á sama tímabili í fyrra, þegar þau voru alls 175 talsins, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands. 28.4.2009 04:15
Bakkabræður og Björgólfur fallnir af lista yfir ríkustu menn Bretlands Björgólfur Thor Björgólfsson og Bakkabræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir eru ekki lengur á lista yfir 1000 ríkustu menn Bretlands sem Sunday Times birti í gær. 27.4.2009 17:43
SPM fær greiðslustöðvun Umsókn um greiðslustöðvun Sparisjóðs Mýrarsýslu (SPM) var lögð fram hjá Héraðsdómi Vesturlands og var samþykkt í dag. Greiðslustöðvunin gildir í þrjár vikur. 27.4.2009 17:05
Breytt fyrirkomulag á útgáfu ríkisvíxla Til að svara eftirspurn markaðsaðila sem eru að byggja upp sjóði með skammtímaverðbréfum verður fyrirkomulagi ríkisvíxlaútgáfu breytt lítillega frá því sem nú er. 27.4.2009 17:00
Egla fær heimild til nauðasamninga Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í dag á beiðni Eglu hf. um heimild til þess að leita nauðasamnings við lánardrottna sína. 27.4.2009 16:58
Marel lækkaði mest í dag Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems endaði daginn 3,43 prósentum neðar en á föstudag og bréf Össurar 1,32 prósentum. Á móti hækkaði gengi bréfa Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, um 2,08 prósent og Bakkavarar um 0,88 prósent. 27.4.2009 16:49
Seðlabankinn veitti heimild til skortstöðu gegn krónunni Seðlabankinn veitti bönkunum heimild til skortstöðu gegn krónunni á síðasta ári. Megnið af gengishruni krónunnar á þessum tíma má skrifa á reikning Seðlabankans, og þá einkum Davíðs Oddssonar þáverandi bankastjóra bankans. 27.4.2009 16:36
Pontiac heyrir brátt sögunni til Bílategundin Pontiac heyrir brátt sögunni til en General Motors tilkynntu í dag að framleiðslu Pontiac yrði hætt fyrir árslok á næsta ári. Þetta þýðir að um 21.000 manns muni missa vinnuna. 27.4.2009 14:51
Kaupþing var þriðja stærsta gjaldþrot heimsins Þegar Kaupþing rúllaði yfir s.l. haust var þar um að ræða þriðja stærsta gjaldþrot heimsins frá árinu 1920. Jón Gunnar Jónsson bankamaður kom inn á þetta í Silfri Egils á sunnudag. Raunar fylgdi það sögunni að gjaldþrot Glitnis var hið fimmta stærsta í sögunni. 27.4.2009 13:51
Viðskiptavinir Nýja Kaupþings spara með rafrænum skjölum Viðskiptavinir Nýja Kaupþings sem eru með netbanka fá nú öll yfirlit hjá bankanum send rafrænt til sín. Þetta sparar hverjum og einum þúsundir króna árlega í sendingar- og pappírskostnað. Öll yfirlit eru geymd í netbankanum í 7 ár. 27.4.2009 12:46
Fjárþörf sveitarfélaga eykur framboð skuldabréfa Verulegur hluti nýs framboðs á verðtryggðum skuldabréfum á þessu ári mun væntanlega stafa af lánsfjárþörf sveitarfélaga. Mun þetta vega gegn minna framboði íbúðabréfa en vænst var. 27.4.2009 12:30
Stjórar Kaupþings í Bretlandi með 3 milljarða í laun Ernst & Young stjórnendur Singer & Friedlander, banka Kaupþings í Bretlandi, hafa fengið tæpar 16 milljónir punda í laun, eða um 3 milljarða kr., á þeim sex mánuðum sem þeir hafa annast málefni bankans. Ofan á þessa upphæð leggst síðan 20% virðisaukaskattur. 27.4.2009 11:13
Nær 140.000 danskar fjölskyldur eru tæknilega gjaldþrota Sökum þess hve fasteignaverð hefur lækkað mikið eru nær 140.000 danskar fjölskyldur nú tæknilega gjaldþrota. Þetta kemur fram á vefsíðunni dinepenge.dk. Þessar fjölskyldur eiga það sameiginlegt að hafa fjárfest í nýjum íbúðum/húsum þegar fasteignaverðið náði hámarki í Danmörku árin 2006 og 2007. 27.4.2009 10:47
Gengi bréfa Marel Food Systems falla í byrjun dags Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems hefur fallið um 4,27 prósent frá því viðskipti hófust í Kauphöllinni í dag. Þá hefur gengi bréfa Össurar lækkað um 0,33 prósent. 27.4.2009 10:22
Samningar um skuldir/kröfur eru forsenda efnahagsvaxtar Það er forsenda efnahagsvaxtar á Íslandi að ný stjórn semji um skuldir og kröfur erlendra aðila. Þetta kemur fram í umfjöllun á Bloomberg fréttaveitunni. Þar segir að óþolinmóðir kröfuhafar og fjárfestar krefjist þess nú að skilmálum fyrir hinni alþjóðlegu aðstoð við Ísland verði fylgt eftir. 27.4.2009 10:06
Rúmlega 19 milljarða viðsnúningur hjá Íslandssjóðum Tap fært á hlutdeildarskírteini eigenda Verðbréfa- og Fjárfestingarsjóða Íslandssjóða var 68 milljónir kr. árið 2008 samanborið við hagnað upp á 19.3 milljarða kr. árið 2007. Þarna er því um rúmlega 19 milljarða kr. viðsnúning til hins verra hjá sjóðunum. 27.4.2009 09:38