Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Century Aluminum féll mest í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, féll um 4,55 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdi gengi bréfa í Færeyjabanka, sem lækkaði um 1,77 prósent og Marel Food Systems, sem lækkaði um 1,28 prósent. 19.1.2009 16:43
Bankasamningur JJB Sport kostar 1,.5 milljarð kr. aukalega Bankasamningur sá sem sportvörukeðjan JJB Sport gerði við þrjá viðskiptabanka sína í desember mun kosta keðjuna 8,3 milljón pund eða um 1,5 milljarð kr. aukalega í gjöldum. 19.1.2009 16:25
Íhaldsstjóri ráðlagði Bretum að leggja inn á Icesave Michael Spencer fjármálastjóri breska Íhaldsflokksins ráðlagði sveitarstjórnum í Bretlandi að leggja fé sitt inn á Icesave reikninga Landsbankans þar í landi og Edge hjá Kaupþingi. Jafnframt þáði hann umboðslaun frá þessum bönkum fyrir hvern viðskiptavin sem hann útvegaði þeim. 19.1.2009 15:26
Tvísaga um bankatryggingar Finna fyrir Kaupþing Fréttastofur á Norðurlöndunum og Dow Jones fréttaveitan hafa verið tvísaga í dag um hvort framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafi veitt blessun sína yfir tryggingar finnsku stjórnarinnar til handa innistæðueigendum hjá Kaupþingi í Finnlandi. 19.1.2009 15:01
Íbúðalánasjóður heldur vöxtum sínum óbreyttum Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða áfram 4,9% en 5,4% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis. 19.1.2009 14:37
Christie´s finnur fyrir kreppunni, rekur 800 starfsmenn Hið þekkta uppboðshús Christie´s finnur fyrir kreppunni eins og önnur alþjóðleg fyrirtæki og hefur nú ákveðið að reka 800 af stasrfsmönnum sínum. 19.1.2009 14:26
Pólskur banki afskrifar lán á Íslandi Það bætist stöðugt við þá flóru landa þar sem bankar og fjármálafyrirtæki þurfa að afskrifa milljónir eða milljarða vegna hruns íslenska bankakerfisins. Nú hefur BRE bankinn í Póllandi bætst í hópinn en hann er þriðji stærsti banki Póllands. 19.1.2009 13:59
Reiknar með lækkun stýrivaxta í mars Greining Glitnis reiknar með að fyrsta lækkun á stýrivöxtum Seðlabankans muni eiga sér stað í mars. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningarinnar. 19.1.2009 13:13
Ólafur Ólafsson: Græddi ekki krónu á viðskiptum Al-Thani Ólafur Ólafsson fjárfestir segir engar þóknanir, greiðslur eða hagnað hafa fallið í sinn hlut við kaup Mohammed Sheik bin Khalifa Al-Thani á 5% hlut í Kaupþingi. Í yfirlýsingu sem hann sendir frá sér vagna málsins segir hann mikilvægt að skýrsla sem Price Waterhouse Coopers hefur unnið um starfsemi Kaupþings verði birt í heild sinni þannig að allur sannleikurinn komi í ljós og staðfesti það sem hann segi. 19.1.2009 13:02
Telma þvær hendur sínar af samningnum við sheikinn Telma Halldórsdóttir stjórnarmaður í Q Iceland Finance segir að félagið hafi hvergi komið nálægt samningagerð eða kaupum á hlut sheiksins Al-Thani í Kaupþingi. 19.1.2009 12:25
Fjöldi sumarhúsa til sölu hefur þrefaldast Fjöldi sumarhúsa á söluskrá hefur þrefaldast á einu ári. Lætur nærri að 5-6% allra sumarhúsa á landinu séu nú til sölu. 19.1.2009 12:04
Bretar reyna að bjarga bankakerfinu Stjórnvöld í Bretlandi kynnu í morgun nýjar aðgerðir til bjargar bankakerfinu þar í landi. Þetta er í annað sinn sem það er gert á þremur mánuðum. Með þessu á að fá fjármálastofnanir til að lána fólki og fyrirtækjum aftur. 19.1.2009 12:01
Segir ekkert óeðlilegt við viðskipti Al-Thani Sigurður Einarsson fyrrum stjórnarformaður Kaupþings hf segir ekkert óeðlilegt við viðskipti Sheikh Mohammed bin Khalifa Al-Thani á rúmlega 5% hlut í bankanum. Mikil umræða hefur verið um kaupin síðustu daga og segist Sigurður fagna þeim rannsóknum sem nú standa yfir og snúa að bankanum. 19.1.2009 11:47
Fréttaskýring: Krónunni er ekki viðbjargandi Allar hugmyndir manna um að hægt sé að bjarga krónunni við núverandi aðstæður eru draumsýnir. Þróunin frá hruni bankanna sýnir að krónunni er ekki viðbjargandi og því fyrr sem ráðamenn gera sér grein fyrir þessu því betra. 19.1.2009 11:24
Olíuverð er komið niður í 36 dollara á tunnuna Heimsmarkaðsverð á olíu fór niður í 36 dollara á tunnuna á Asíumarkaðinum í morgun. Heldur verðið þar með áfram að lækka og hefur lækkað um 30% í þessum mánuði. 19.1.2009 10:51
Salan hjá Alfesca drógst saman um 3,4% Salan hjá Alfesca drógst saman um 3,4% á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Í heildina nam salan tæplega 250 milljónum evra eða um 42 milljörðum kr. Alfesca býst áfram við erfiðu efnahagsumhverfi eða því er segir í tilkynningu. 19.1.2009 10:43
FME framlengir banni við skortsölu Fjármálaeftirlitið (FME) hefur tilkynnt kauphöllinni um framlengingu á banni við skortsöluen bannið var sett á þann 7. október s.l.. 19.1.2009 10:35
Um 800 manns skráðir á ráðstefnu Microsoft á Íslandi Mikill áhugi var fyrir ráðstefnu sem Microsoft Íslandi heldur í dag og á morgun á Grand Hótel. Þegar lokað var fyrir skráningu sl. föstudag voru um 800 manns skráðir, sem gerir þetta að stærsta viðburði sem Microsoft Íslandi hefur haldið hér á landi. 19.1.2009 10:23
Buiter með fyrirlestur í Háskóla Íslands Willem H. Buiter, Prófessor í stjórnmálahagfræði við London School of Economics mun fyltja erindi á málstofu í efnahagsmálum í dag. Það er Hagfræðideild Hásóla Íslands sem stendur fyrir uppákomunni og hefst hún klukkan 12:00 á hádegi í Hátíðarsal skólans. 19.1.2009 10:14
Straumur hækkar mest á rólegum degi Gengi hlutabréfa í Straumi hefur hækkað um 2,24 prósent í dag og í Bakkavör um 0,52 prósent. Á sama tíma hefur gengi bréfa Marel Food Systems lækkað um 1,56 prósent. 19.1.2009 10:11
Norðmenn undirbúa sig fyrir umsókn Íslands í ESB Norska sjávarútvegsráðuneytið undirbýr sig nú fyrir væntanlegar aðildarviðræður Íslands að Evrópubandalaginu. "Við trúum því að skynsamlegt sé að vera undirbúin fyrir þetta," segir Magnor Nerheim skrifstofustjóri ráðuneytisins í samtali við Aftenposten. 19.1.2009 09:39
Líf komið í Samuraibréfin eftir að Kaupþing eyðilagði markaðinn Líf er að komast að nýju í Samuraibréfamarkaðinn eftir að Kaupþing eyðilagði hann fyrr í vetur með því að láta nokkra flokka af þeim bréfum gjaldfalla á bankann í kjölfar þess að bankinn varð gjaldþrota í haust. 19.1.2009 09:18
Asísk hlutabréf hækka í verði Hlutabréf í Asíu hækkuðu í verði í morgun og leiddu fjármálafyrirtæki þá hækkun. Bréf japanska bílaframleiðandans Honda hækkuðu samhliða veikingu jensins þar sem rúmlega helmingur sölutekna fyrirtækisins á rót sína í Bandaríkjunum. 19.1.2009 07:33
2300 milljarða króna björgunarpakki Stjórnvöld í Danmörku hafa ákveðið að verja 100 milljörðum danskra króna til að styðja við fjármálakerfið þar. Frá þessu er greint á fréttavef Danska ríkisútvarpsins. 18.1.2009 21:26
Kaupþing tapaði 37,5 milljörðum á kaupum Al-Thani Kaup hins konungsborna Al-Thani frá Katar á tuttugu og fimm milljarða króna hlut í Kaupþingi kostuðu bankann sjálfan 37,5 milljarða. Hvorki Al-Thani né vinur hans Ólafur Ólafsson, einn stærsti hluthafi Kaupþings, sem lánaði honum tólf og hálfan milljarð fyrir kaupunum, töpuðu krónu. 18.1.2009 18:51
Forstjóri Kauphallarinnar segir tímabært að ræða einkavæðingu ríkisfyrirtækja Það er tímabært að fara að ræða það hvernig hagkerfið á að virka í framtíðinni. Íslendingar þurfa sem allra fyrst að stilla kraftana þannig að þeir ýti undir verðmætasköpun og framleiðni. Það þarf því að fara að ræða um það hvernig staðið verði að sölu á fyrirtækjum til frambúðareigenda. 18.1.2009 13:43
Hinir ábyrgu sýna almenningi löngutöng Það þarf að teikna upp nýtt hagkerfi, með nýjum leikstjórnendum og nýjum leikreglum, sagði Gylfi Magnússon, dósent í viðskiptafræði, í ræðu sinni á fundi Radda fólksins á Austurvelli í gær. 18.1.2009 10:48
Aston bílaframleiðandinn gæti lent í vanda Forsvarsmenn Aston Martin bílaframleiðandanna hafa viðurkennt að þeir geti hugsanlega ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart bönkunum á þessu ári í þeim ólgusjó sem fjármálakerfið er í. 18.1.2009 10:00
Dótturfélag Milestone rær lífróður í Bretlandi Íslenska fjárfestingafélagið Kcaj, sem er dótturfélag Milestone, gæti farið í greiðslustöðvun í vikunni ef forsvarsmönnum þess tekst ekki selja hluta af eignum eða fá nýtt hlutafé inn í félagið. 18.1.2009 09:10
Circuit City lokar hátt í 600 verslunum Raftækjaverslunarkeðjan Circuit City tilkynnti í gær að verslunin myndi loka 567 verslunum í Bandaríkjunum með þeim afleiðingum að 34 þúsund störf munu tapast. Áður höfðu eigendur fyrirtækisins gert árangurslausa tilraun til að selja það. 17.1.2009 19:47
Helmingur útskrifaðra kominn með vinnu Alls voru 193 nemendur brautskráðir frá Háskólanum í Reykjavík í morgun. Af þeim luku 37 með meistaraprófi, 124 með bakkalárprófi og 32 diplómaprófi. Flestir útskriftarnemanna eru úr viðskiptadeild eða 75, en 56 nemendur útskrifuðust með próf úr tækni- og verkfræðideild. 17.1.2009 13:17
Lýsi fékk Varðbergið Lýsi hf. hefur hlotið forvarnarverðlaunin Varðbergið. Það er Tryggingamiðstöðin sem veitir verðlaunin árlega þeim viðskiptavin sem þykir skara fram úr á sviði forvarna gegn óhöppum og slysum. 17.1.2009 11:18
Peningar Whelans fastir inni í Singer & Friedlander Eigandi breska knattspyrnuliðsins Wigan, David Whelan, er einn þeirra fjölmargra aðila sem ekki sér fram á að geta nálgast sparifé sitt sem hann lagði inn í Singer & Friedlander bankann í eigu Kaupþings í Bretlandi. 17.1.2009 11:02
Björn Ingi lætur af störfum Björn Ingi Hrafnsson hefur látið af störfum sem ritstjóri Markaðarins, viðskiptablaðs Fréttablaðsins, en þar hefur hann starfað frá því 2. apríl í fyrra. Óli Kristján Ármannsson heldur áfram störfum sem ritstjóri Markaðarins. 17.1.2009 00:01
Hækkun á Wall Street í dag Hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum hækkuðu í dag og er ástæðan einkum rakin til hækkunar á orkufyrirtækjum eftir að ljóst varð að olía væri örlítð að hækka í verði. Einnig er talið að fjárfestar horfi björtum augum á ýmsar björgunaraðgerðir í efnahagslífinu. 16.1.2009 21:29
Eimskip lækkar mest og Century hækkar mest Nú undir lok markaðarins í kauphöllinni hefur Eimskip lækkað mest í dag eða um 10.3%. Century Aluminium hefur hækkað mest eða um 13,2%. 16.1.2009 16:12
Stjórar Glitnis á skólabekk um fjármálamarkaðinn Lögfræði- og regluvörslusvið Nýja Glitnis hefur, að beiðni bankastjóra og undir stjórn regluvarðar, sett á fót sérstaka fræðslu fyrir framkvæmdastjóra og lykilstarfsmenn bankans um laga- og regluumhverfi á fjármálamarkaði. 16.1.2009 15:00
ÍLS kaupir 20 milljarða kr. af íbúðalánum af SPRON Viðræður við Íbúðalánasjóð (ÍLS) um sölu á hluta af íbúðalánum SPRON að verðmæti 20 milljarða króna eru á lokastigi. 16.1.2009 14:17
Credit Agricole kaupir innlán Kaupþings í Belgíu Belgíski bankinn Credit Agricole hefur fest kaup á belgískum innlánsreikingum Kaupþings í Lúxemborg. Tilkynning um málið barst frá Credit Agricole um málið í dag. 16.1.2009 13:37
Bankarisi í algjörum mínus Bank of America, langstærsti banki Bandaríkjanna, tæpaði 1,8 milljörðum Bandaríkjadala, jafnvirði 230 milljarða króna, á fjórða og síðasta ársfjórðungi nýliðins árs. Þetta er fyrsta tap bankans í um átján ár. 16.1.2009 13:24
Facebook getur upplýst um skattsvik Facebook í Danmörku verður brátt notað í baráttunni gegn skattsvikum í Danmörku. Þetta kemur fram í fríblðainu MetroXpress í Kaupmannahöfn. 16.1.2009 13:18
Skuldatryggingarálag hæst á Íslandi meðal Evrópuþjóða Ísland trónar á toppnum hvað skuldatryggingarálag varðar meðal Evrópuþjóða. Er álagið á ríkissjóð nú 930 punktar sem jafngildir því að 9,3% af nafnvirði þurfi að kosta til að tryggja skuldabréf í evrum á íslenska ríkið. 16.1.2009 12:43
Íbúðaverð í höfuðborginni heldur áfram að lækka Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 1,3% á milli nóvember og desember síðastliðinn samkvæmt upplýsingum sem Fasteignskrá Íslands birti í gær. 16.1.2009 12:37
Fjögur fyrirtæki fá innheimtuleyfi Fjármálaeftirlitið hefur veitt fjórum fyrirtækjum innheimtuleyfi samkvæmt innheimtulögum að því er segir í tilkynningu um málið á vefsíðu eftirlitsins. 16.1.2009 12:13
Leyndardómur Mylluseturs afhjúpaður: Róbert stærsti hluthafinn Salt Investment, félag Róberts Wessman, verður stærsti hluthafinn í Myllusetri, nýstofnuðu útgáfufélagi Viðskiptablaðsins. Róbert staðfesti þetta í samtali við Vísi en mikil leynd hefur ríkt yfir hluthafahópnum frá því að félagið var stofnað í lok nóvember á síðasta ári. 16.1.2009 12:06