Viðskipti innlent

Tvísaga um bankatryggingar Finna fyrir Kaupþing

Fréttastofur á Norðurlöndunum og Dow Jones fréttaveitan hafa verið tvísaga í dag um hvort framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafi veitt blessun sína yfir tryggingar finnsku stjórnarinnar til handa innistæðueigendum hjá Kaupþingi í Finnlandi.

Fyrstu fréttir voru þær að framkvæmdastjórnin hefðu samþykkt áætlanir Finna um að tryggja innistæðurnar í Kaupþingi. Vitnað var í tilkynningu frá framkvæmdastjórninni um að ríkisábyrgð á innistæðurnar hefðu í för með sér aukinn stöðugleika í finnska bankakerfinu.

Þetta skrifuðu bæði direct og Dow Jones skömmu fyrir hádegið. Síðasta frétt um málið kom svo á vefsíðu Dagens Industri þar sem segir að framkvæmdastjórnin hefði afturkallað fyrri tilkynningu um málið og að það væri enn óafgreitt hjá stjórninni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×