Viðskipti innlent

Fjögur fyrirtæki fá innheimtuleyfi

Fjármálaeftirlitið hefur veitt fjórum fyrirtækjum innheimtuleyfi samkvæmt innheimtulögum að því er segir í tilkynningu um málið á vefsíðu eftirlitsins.

Fyrirtækin eru Alskil hf., SPRON Factoring hf., Veitu innheimtuþjónusta ehf. og Intrum á Íslandi ehf..

Innheimtuleyfi ofangreindra aðila tekur til frum- og milliinnheimtu gjaldfallinna peningakrafna fyrir aðra samkvæmt lögum og innheimtu eigin peningakrafna sem aðili hefur keypt í þeim tilgangi að innheimta þær sjálfur í atvinnuskyni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×