Viðskipti innlent

Skuldatryggingarálag hæst á Íslandi meðal Evrópuþjóða

Ísland trónar á toppnum hvað skuldatryggingarálag varðar meðal Evrópuþjóða. Er álagið á ríkissjóð nú 930 punktar sem jafngildir því að 9,3% af nafnvirði þurfi að kosta til að tryggja skuldabréf í evrum á íslenska ríkið.

Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu í kjölfar fjármálaerfiðleikana á Írlandi þessa stundina. Skuldatryggingaálag á írska ríkið hefur stigið talsvert undanfarið, og í kjölfar síðustu frétta fór 5 ára álagið í 255 punkta (2,55%).

Er Írland þar í þriðja sæti hvað varðar skuldatryggingaálag þróaðra Evrópuríkja. Álag á skuldir Grikklands er heldur hærra en á Írland.

Írland er raunar gjarnan borið saman við Ísland þegar fjallað er um landið í fjármálapressunni þessa dagana. Bæði löndin eru lítil evrópsk eyríki þar sem hagvöxtur hefur verið hraður og fjármálakerfið stækkaði mikið i góðærinu framan af þessum áratug.

Írska fjármálakerfið heldur þó enn sjó enda meira en helmingi minna í hlutfalli við landsframleiðslu heimalandsins en hið íslenska var orðið undir það síðasta. Írsk stjórnvöld hafa því átt hægara um vik að koma því til hjálpar en þau íslensku sínu fjármálakerfi, auk þess sem lausafjárvandi írskra banka hefur verið mun minni en hinna íslensku vegna aðgengis þeirra að evrópska seðlabankanum sem lánveitanda til þrautavara í heimamynt.

Írsk heimili og fyrirtæki standa því ekki frammi fyrir gjaldeyriskreppu, háum vöxtum, verðbólguskoti og eiginfjárbruna af þeim sökum, ólíkt þeim íslensku.

Á móti kemur að sterk evra gagnvart bresku pundi veldur töluverðum búsifjum á Írlandi, enda er u.þ.b. þriðjungur utanríkisviðskipta landsins við Breta.

Þá er ljóst að kreppa mun að á Írlandi næsta kastið, en OECD spáði nýverið tæplega 2% samdrætti í landsframleiðslu þar í landi á árinu sem nú er nýhafið auk þess sem fasteignamarkaðurinn er þegar á hraðri niðurleið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×