Fleiri fréttir

Stjórnvöld í Bretlandi og Mön í deilu vegna Kaupþings

Stjórnvöld í Bretlandi og á eyjunni Mön eru nú komin í deilu vegna innistæðna í Kaupþingi á eyjunni. Deilan snýst um hvort tryggingar breskra stjórnvalda fyrir innistæðum í íslensku bönkunum nái yfir eyjaskeggja.

Aflaverðmætið jókst um tæpa 11 milljarða kr.

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 79,7 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins 2008 samanborið við 68,9 milljarða á sama tímabili árið 2007. Aflaverðmæti hefur aukist um 10,7 milljarða eða 15,6% á milli ára. Aflaverðmæti í október nam 9,3 milljörðum miðað við 6,1 milljarð í október 2007.

Hækkun í Asíu eftir dimma viku

Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í verði í morgun eftir fremur dapra viku. Japanska jenið veiktist töluvert gagnvart dollaranum sem skilaði sér í aukinni sölu japansks varnings í Bandaríkjunum og víðar. Þetta leiddi til hækkunar japanskra tæknifyrirtækja og bílaframleiðenda og þokaðist Nikkei-vísitalan upp um 2,1 prósent. Bréf Honda-verksmiðjanna hækkuðu einna mest eða um 7,4 prósent.

Björn Ingi hættur á Markaðnum - áfram á skjánum

Björn Ingi Hrafnsson hefur látið af störfum sem ritstjóri Markaðarins, fylgirits Fréttablaðsins. Hann mun hinsvegar halda áfram með sjónvarpsþátt sinn Markaðurinn með Birni Inga á Stöð 2. Einnig ætlar hann að láta gamlan draum rætast og stofna eigin fjölmiðil á netinu.

Eimskip semur við skuldabréfaeigendur

Eimskipafélag Íslands hefur samið við eigendur 90% að virði skuldabréfa í flokknum HFEIM081, útgefinn að verðmæti 1,6 milljarðs króna.

Straumur synti einn á móti lækkun í Kauphöll

Gengi hlutabréfa í Straumi hækkaði um 4,07 prósent í dag og er það eina hækkunin í Kauphöllinni. Á móti féll gengi bréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, um 6,64 prósent, Eimskips um 6,45 prósent og Marel Food Systems um 4,67 prósent.

Danski seðlabankinn lækkaði stýrivexti í 3%

Danski seðlabankinn (Nationalbanken) tók aðeins dýpra í árinni en evrópski seðlabankinn og lækkaði stýrivexti sína um 0,75 prósentustig niður í 3%. Minnkaði þar með munurinn á vöxtum þessara banka eins og sérfræðingar höfðu raunar gert ráð fyrir.

Íslandslán lagt fyrir sænska þingið í dag

Sænska ríkisstjórnin lagði í dag fyrir sænska þingið tillögu um að Svíar láni Íslendingum 6,5 milljarða sænskra kr. eða sem svarar til rúmlega 100 milljarða kr. á þessu ári.

Tæplega 40 félög vilja gera upp í erlendum gjaldmiðli

Samkvæmt upplýsingum frá ársreikningaskrá hafa 39 félög nýtt sér ákvæði laga um að fá að gera upp í erlendum gjaldmiðli. Hafa þau sótt um heimild ársreikningaskrár til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli vegna reikningsársins 2008.

Evrópski seðlabankinn lækkar stýrivexti

Evrópski seðlabankinn lækkaði stýrivexti um 50 punkta fyrir stundu og standa þeir nú í sléttum 2,0 prósentum. Þetta er í samræmi við væntingar. Stýrivextir á evrusvæðinu hafa ekki verið lægri síðan í jólamánuðinum 2005.

Iceland verslunarkeðjan fær ekki að greiða upp lán sín

Lánadrottnar Iceland verslunarkeðjunnar í Bretlandi hafa hafnað beiðni stjórnenda keðjunnar um að fá að greiða upp hluta af lánum sínum. Iceland, sem er að mestu í eigu Baugs, hefur gengið mun betur en keppinautum sínum í fjármálakreppunni.

Hrun íslensku bankanna gæti breytt bankalöggjöf ESB

Hrun íslenska bankakerfisins gæti leitt til þess að bankalöggjöf Evrópusambandsins verði breytt. Töluverð umræða hefur verið um málið innan ESB, einkum þá staðreynd að íslensku bönkunum var leyft að blása út í nokkrum ESB löndum án þess að hafa nægilega sterkan bakhjarl heimafyrir.

Marel Food Systems lækkar mest í byrjun dags

Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems hefur fallið um 2,27 prósent í dag. Á eftir fylgir gengi bréfa í Bakkavör, sem hefur lækkað um 1,16 prósent, og í Century Aluminum, sem hefur lækkað um 0,95 prósent.

Danskur sjóður skapar fullkomnar franskar kartöflur

Stærsti framleiðandi á frönskum kartöflum í heiminum, McCain, hefur fest kaup á kartöflum sem danskur landbúnaðarsjóður hefur skapað en í dönskum fjölmiðlum eru þessar kartöflur sagðar fullkomnar til framleiðslu á frönskum.

Töluverð lækkun í Asíu

Hlutabréf á Asíumörkuðum féllu í verði í morgun. Lækkaði japanska Nikkei-vísitalan um 4,4 prósent og Hang Seng í Hong Kong um 5,4 og hefur ekki verið lægri síðan í nóvember.

Fulltrúi Al-Thani: Undrast að kvittun finnist ekki

Telma Halldórsdóttir, stjórnarmaður í fjárfestingarfélaginu Q Iceland Finance, undrast frétt Ríkissjónvarpsins í kvöld þar sem fullyrt var að yfirvöld hér á landi skoði nú hvort tugmilljarða kaup fjárfesta frá Katar á hlutabréfum í Kaupþingi síðasta haust hafi verið blekking. ,,Ég skil ekki að þeir finni ekki umræddar kvittanir." Ekki var haft samband við Telmu vegna fréttar RÚV.

Bílum fækkar í Danmörku

Bílum fækkar í Danmörku í fyrsta sinn frá árinu 2001. Dönsk yfirvöld segja að skýringin sé sú að díselolía og bensín hafi hækkað mjög í verði.

Bandarískir fjárfestar halda að sér höndum

Lélegar uppgjörstölur bandarískra stórfyrirtækja og fremur svartsýnar efnahagshorfur urðu til þess að væntingar bandarískra fjárfesta fuku út í veður og vind vestanhafs í dag.

Viðskiptasamingur við Bandaríkin undirritaður

Christopher S. Wilson, stjórnandi Viðskiptaskrifstofu Bandaríkjanna fyrir Evrópu og Mið-Austurlönd err staddur hér á landi til að undirrita samstarfssamning um viðskipti og fjárfestingar milli Íslands og Bandaríkjanna. Samningurinn verður undirritaður í Ráðherrabústaðnum á morgun.

Century Aluminum féll mest á rauðum degi

Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, sem meðal annars rekur álverið á Grundartanga, féll um 9,44 prósent í dag. Þetta er mesta fallið í Kauphöllinni í dag á annars rauðum degi.

Morten Lund skuldar Straumi ekki krónu

Eins og greint var frá fyrr í dag var rekur danski viðskiptamiðillinn business.dk raunir Mortens Lund. Þar er því haldið fram að Baugur, Straumur og Glitnir hafi allir gert kröfur í þrotabú Lunds, sem er fyrrverandi eigandi Nyhedsavisen í Danmörku.

Líkir bandarískri fjármálastjórn við þá íslensku

Sagnfræðiprófessorinn Paul Kennedy líkir fjármálastjórn Bandaríkjanna við þá íslensku eða illa rekið þriðja heims ríki. Af þessum sökum telur prófessorinn öruggt að efnahagsveldi Bandaríkjanna sé dæmt til að hnigna.

Segist ekki hafa komið að málum tengdum Baugi

Tryggvi Jónsson fyrrum forstjóri Baugs og starfsmaður Landsbankans segist í yfirlýsingu sem hann sendir fjölmiðlum ekki hafa komið nálægt málum hjá bankanum sem tengjast Baugi. Yfirlýsinguna sendir hann í kjölfar frétta um störf Tryggva hjá Landsbankanum sem tengist sölu eigna Árdegis til Senu annarsvegar og þrotabús Árdegis til Haga hins vegar.

Skattbyrði hjá flestum lækkar á þessu ári

„Niðurstaðan er sú að skattbyrði meginþorra einstaklinga muni minnka á árinu og því má segja að um almenna skattalækkun sé að ræða en ekki skattahækkun,“ segir Arnald Sölva Kristjánsson hagfræðingur í grein í Vísbendingu um áhrif skattabreytinganna um áramótin.

Stjórn Glitnis mun auglýsa stöðu bankastjóra

Valur Valsson formaður stjórnar Glitnis segir að stjórnin muni á næstunni ræða um hvenær og með havða hætti staða bankastjóra bankans verði auglýst. Valur ræddi málið við fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra í dag.

ESB íhugar lögsókn gegn Rússum og Úkraníumönnum

Sautján Evrópuríki eru enn án Rússagass til húshitunar þó opnað hafi verið í gær fyrir gasflæði um leiðslur sem liggja í gegnum Úkraínu. Svo gæti farið að Evrópusambandið lögsæki ríkin tvö vegna þessa verði málið ekki leyst hið fyrsta.

Sjá næstu 50 fréttir