Fleiri fréttir Nýr stjóri í brúnni hjá Citigroup Bandaríski bankinn Citigroup hefur fengið nýjan forstjóra. Sá heitir Vikrum Pandit og tekur við Charles Prince, sem tók poka sinn í nóvember eftir að bankinn greindi frá því að hann þyrfti að afskrifa heila 17 milljarða dala, jafnvirði rúmra eitt þúsund milljarða króna, úr bókum sínum vegna tapaðra útlána. 12.12.2007 09:28 Hlutabréf lækka eftir stýrivaxtalækkun Hlutabréf féllu verulega í verði í kauphöllinni í New York efftir að Seðlabanki Bandaríkjanna tilkynnti um 0,.25% lækkun stýrivaxta í gær. Dow Jones féll um 300 stig í viðskiptum dagsins. 12.12.2007 08:04 Evrunefnd ráðherra enn í smíðum Gagnaöflun hafin vegna nefndarstarfs. Vilji er til að koma lagabreytingum hratt í gegn. 12.12.2007 06:00 Manngerðin endurspeglast í skónum Snjáðir og illa hirtir skór þykja ekki vera til þess að efla traust á eigandanum í viðskiptalífinu. Konur búa við „endalausa fjölbreytni“ en karlar sitja fremur að þægindunum. 12.12.2007 02:15 Banakahólfið: Misjafnt gengi, líka í fréttum Nokkur fljótfærnisbragur þykir á forsíðufrétt 24 stunda í gær þar sem slegið er upp sem mikilli nýbreytni væntanlegum íbúðalánum Sparnaðar ehf. í evrum. Tilfellið er nefnilega að hér hefur fólk átt þess kost um árabil að taka lán í evrum, hver í sínum viðskiptabanka, og þá á vaxtakjörum sem um þá mynt gilda hverju sinni. Meiri afglöp eru hins vegar að hvergi kemur fram í fréttinni að lántöku í annarri mynt en krónum fylgir gengisáhætta. 12.12.2007 00:01 Þurfum líka evrur Landsbankinn ætlar að bjóða meginlandsbúum sams konar innlánsreikninga og slegið hafa í gegn í Bretlandi. 12.12.2007 00:01 3. kynslóð farsíma Ljóst er að nokkur samkeppni verður um hylli símnotenda í þriðju kynslóðar kerfinu. Þrjú fyrirtæki bítast um fólk: Síminn, Vodafone og Nova, sem er nýr aðili á símamarkaði hérlendis. 12.12.2007 00:01 Töluverð lækkun á Wall Street Hlutabréf féllu í Kauphöllinni á Wall Street í dag eftir að tilkynnt var um 25 punkta lækkun stýrivaxta þar í landi. Margir fjárfestar höfðu búist við enn meiri lækkun stýrivaxta og því er talið að fall hlutabréfanna megi rekja til óánægju með ákvörðun Seðlabankans. Dow Jones vísitalan féll um 294.26 punkta, eða um 2,14%. Standard & Poor's féll um 38.33 stig eða 2,53% og Nasdaq féll um 66.60 punkta eða 2,45%, samkvæmt Reuters fréttastofunni. 11.12.2007 21:58 Vextir lækkaðir um 25 punkta Bankastjórn Seðlabanka Bandaríkjanna ákvað á fundi sínum í dag að lækka stýrivexti um 25 punkta í 4,25%. Þetta er þriðja vaxtalækkun bankans á þremur mánuðum. Hagfræðingar bjuggust fyrirfram við þessari niðurstöðu og margir telja nauðsynlegt að Seðlabankinn lækki vexti sína enn frekar 11.12.2007 20:22 Exista leiddi hækkanahrinu Gengi hlutabréfa í Existu hækkaði um 4,24 prósent í Kauphöllinni í dag og stendur í 23,35 krónum á hlut. Þetta var mesta hækkunin í Kauphöllinni en svipuðu máli gegndi um öll hin fjárfestingafélögin og bankana en gengi þeirra hækkað á bilinu 0,65 prósent til 3,94 prósenta, mest í Kaupþingi. Úrvalsvísitalan rauk upp um 2,75 prósent á sama tíma. 11.12.2007 16:47 Jón Helgi kaupir fyrir 6,5 milljarða í Kaupþingi Straumborg ehf. félag í eigu Jóns Helga Guðmundssonar hefur keypt 7.404.531 hluti í Kaupþing banka á genginu 867 kr. á hlut. Samtals nema viðskiptin því um 6,5 milljörðum kr. 11.12.2007 14:22 Skortur á jólatrjám angrar Evrópubúa Það er skortur á jólatrjám í Evrópu og sá skortur mun verða viðvarandi næstu 5-6 árin. 11.12.2007 12:57 Borguðu 860 fyrir kg af þorski í Danmörku Verð á þorski fór í hæstu hæðir á uppboðsmarkaðnum í Hanstholm í Danmörku í lok síðustu viku. Hæsta verðið, sem greitt var, samsvaraði 860 ísl. krónum fyrir kílóið. 11.12.2007 12:28 Spá um 5,6% verðbólgu í desember Greining Glitnis reiknar með að vísitala neysluverðs hækki um 0,4% milli nóvember og desember en Hagstofa Íslands birtir vísitöluna í fyrramálið. 11.12.2007 11:13 Putin býr til kjarnorkurisa í Rússlandi Vladimir Putin forseti Rússlands hefur ákveðið að steypa saman öllum þeim fyrirtækjum og stofnunum í landinu sem vinna á sviði kjarnorku í eitt risafyrirtæki. 11.12.2007 10:52 Danskar konur vilja helst kaupa bréf í bönkum Danskar konur elska hlutabréf í bönkum. Á meðal 50 uppáhalds hlutabréfa þeirra eru 24 í bönkum. Karlar aftur á móti eru með 17 hlutabréf í bönkum á sínum lista. 11.12.2007 10:41 Kaupþing hækkar um þrjú prósent Gengi bréfa í Kaupþingi rauk upp um rúm þrjú prósent við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöllinni í dag og leiðir bankinn hækkun Úrvalsvísitölunnar. Á eftir fylgja Exista, sem hefur hækkað um rúm 2,3 prósent, og fleiri bankar og fjárfestingafélög. Einungis gengi bréfa í FL Group hefur haldið áfram að lækka. 11.12.2007 10:22 Sampo ræðst til atlögu gegn Nordea 11.12.2007 09:50
Sjá næstu 50 fréttir
Nýr stjóri í brúnni hjá Citigroup Bandaríski bankinn Citigroup hefur fengið nýjan forstjóra. Sá heitir Vikrum Pandit og tekur við Charles Prince, sem tók poka sinn í nóvember eftir að bankinn greindi frá því að hann þyrfti að afskrifa heila 17 milljarða dala, jafnvirði rúmra eitt þúsund milljarða króna, úr bókum sínum vegna tapaðra útlána. 12.12.2007 09:28
Hlutabréf lækka eftir stýrivaxtalækkun Hlutabréf féllu verulega í verði í kauphöllinni í New York efftir að Seðlabanki Bandaríkjanna tilkynnti um 0,.25% lækkun stýrivaxta í gær. Dow Jones féll um 300 stig í viðskiptum dagsins. 12.12.2007 08:04
Evrunefnd ráðherra enn í smíðum Gagnaöflun hafin vegna nefndarstarfs. Vilji er til að koma lagabreytingum hratt í gegn. 12.12.2007 06:00
Manngerðin endurspeglast í skónum Snjáðir og illa hirtir skór þykja ekki vera til þess að efla traust á eigandanum í viðskiptalífinu. Konur búa við „endalausa fjölbreytni“ en karlar sitja fremur að þægindunum. 12.12.2007 02:15
Banakahólfið: Misjafnt gengi, líka í fréttum Nokkur fljótfærnisbragur þykir á forsíðufrétt 24 stunda í gær þar sem slegið er upp sem mikilli nýbreytni væntanlegum íbúðalánum Sparnaðar ehf. í evrum. Tilfellið er nefnilega að hér hefur fólk átt þess kost um árabil að taka lán í evrum, hver í sínum viðskiptabanka, og þá á vaxtakjörum sem um þá mynt gilda hverju sinni. Meiri afglöp eru hins vegar að hvergi kemur fram í fréttinni að lántöku í annarri mynt en krónum fylgir gengisáhætta. 12.12.2007 00:01
Þurfum líka evrur Landsbankinn ætlar að bjóða meginlandsbúum sams konar innlánsreikninga og slegið hafa í gegn í Bretlandi. 12.12.2007 00:01
3. kynslóð farsíma Ljóst er að nokkur samkeppni verður um hylli símnotenda í þriðju kynslóðar kerfinu. Þrjú fyrirtæki bítast um fólk: Síminn, Vodafone og Nova, sem er nýr aðili á símamarkaði hérlendis. 12.12.2007 00:01
Töluverð lækkun á Wall Street Hlutabréf féllu í Kauphöllinni á Wall Street í dag eftir að tilkynnt var um 25 punkta lækkun stýrivaxta þar í landi. Margir fjárfestar höfðu búist við enn meiri lækkun stýrivaxta og því er talið að fall hlutabréfanna megi rekja til óánægju með ákvörðun Seðlabankans. Dow Jones vísitalan féll um 294.26 punkta, eða um 2,14%. Standard & Poor's féll um 38.33 stig eða 2,53% og Nasdaq féll um 66.60 punkta eða 2,45%, samkvæmt Reuters fréttastofunni. 11.12.2007 21:58
Vextir lækkaðir um 25 punkta Bankastjórn Seðlabanka Bandaríkjanna ákvað á fundi sínum í dag að lækka stýrivexti um 25 punkta í 4,25%. Þetta er þriðja vaxtalækkun bankans á þremur mánuðum. Hagfræðingar bjuggust fyrirfram við þessari niðurstöðu og margir telja nauðsynlegt að Seðlabankinn lækki vexti sína enn frekar 11.12.2007 20:22
Exista leiddi hækkanahrinu Gengi hlutabréfa í Existu hækkaði um 4,24 prósent í Kauphöllinni í dag og stendur í 23,35 krónum á hlut. Þetta var mesta hækkunin í Kauphöllinni en svipuðu máli gegndi um öll hin fjárfestingafélögin og bankana en gengi þeirra hækkað á bilinu 0,65 prósent til 3,94 prósenta, mest í Kaupþingi. Úrvalsvísitalan rauk upp um 2,75 prósent á sama tíma. 11.12.2007 16:47
Jón Helgi kaupir fyrir 6,5 milljarða í Kaupþingi Straumborg ehf. félag í eigu Jóns Helga Guðmundssonar hefur keypt 7.404.531 hluti í Kaupþing banka á genginu 867 kr. á hlut. Samtals nema viðskiptin því um 6,5 milljörðum kr. 11.12.2007 14:22
Skortur á jólatrjám angrar Evrópubúa Það er skortur á jólatrjám í Evrópu og sá skortur mun verða viðvarandi næstu 5-6 árin. 11.12.2007 12:57
Borguðu 860 fyrir kg af þorski í Danmörku Verð á þorski fór í hæstu hæðir á uppboðsmarkaðnum í Hanstholm í Danmörku í lok síðustu viku. Hæsta verðið, sem greitt var, samsvaraði 860 ísl. krónum fyrir kílóið. 11.12.2007 12:28
Spá um 5,6% verðbólgu í desember Greining Glitnis reiknar með að vísitala neysluverðs hækki um 0,4% milli nóvember og desember en Hagstofa Íslands birtir vísitöluna í fyrramálið. 11.12.2007 11:13
Putin býr til kjarnorkurisa í Rússlandi Vladimir Putin forseti Rússlands hefur ákveðið að steypa saman öllum þeim fyrirtækjum og stofnunum í landinu sem vinna á sviði kjarnorku í eitt risafyrirtæki. 11.12.2007 10:52
Danskar konur vilja helst kaupa bréf í bönkum Danskar konur elska hlutabréf í bönkum. Á meðal 50 uppáhalds hlutabréfa þeirra eru 24 í bönkum. Karlar aftur á móti eru með 17 hlutabréf í bönkum á sínum lista. 11.12.2007 10:41
Kaupþing hækkar um þrjú prósent Gengi bréfa í Kaupþingi rauk upp um rúm þrjú prósent við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöllinni í dag og leiðir bankinn hækkun Úrvalsvísitölunnar. Á eftir fylgja Exista, sem hefur hækkað um rúm 2,3 prósent, og fleiri bankar og fjárfestingafélög. Einungis gengi bréfa í FL Group hefur haldið áfram að lækka. 11.12.2007 10:22
Hlutafjárútboð FL Group hafið FL Group hyggst auka hlutafé félagsins með lokuðu útboði til fjárfesta og er stefnt að því að selja hlutafé fyrir allt að 10 milljarða króna. 11.12.2007 09:30
Árshækkun vísitölu launakostnaðar er 5,4 - 7,9% Árshækkun vísitölu heildarlaunakostnaðar frá þriðja ársfjórðungi 2006 var á bilinu 5,4% - 7,9%, mest í iðnaði en minnst í samgöngum og flutningum. 11.12.2007 09:10
Vilhjálmur vill að stýrivextir verði lækkaðir strax Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir það ekki spurningu að Seðlabanki Íslands eigi að hefja vaxtalækkunnarferli sitt strax í þessum mánuði. 11.12.2007 06:55
Viðskipti hafin á rólegasta tíma Gengi bréfa Atlantic Airways hækkaði um 0,6 prósent frá útboðsgengi á fyrsta degi viðskipta með bréfin í OMX kauphöll Íslands í gær. 11.12.2007 02:00
Baugur staðfestir orðróm um áhuga á Moss Bros Baugur Group sendi í dag tilkynningu til kauphallarinnar í London þar sem félagið staðfestir þann orðróm að félagið sé að kanna möguleika sína á því að taka yfir Moss Bros Group með hliðsjón af óbeinum eignarhlut sínum í félaginu. Þetta kemur fram í Hálf-fimm fréttum Kaupþings. 10.12.2007 17:59
Jón Örn Guðbjartsson hjá HÍ Jón Örn Guðbjartsson hefur tekið við starfi sem markaðs- og samskiptastjóri Háskóla Íslands en hann starfaði áður sem fréttamaður á Stöð 2. Í starfinu felst yfirstjórn innri og ytri markaðs- og kynningarmála, fjölmiðlasamskipta, útgáfumála, viðburða og vefmála Háskóla Íslands. 10.12.2007 17:37
SPRON hækkaði mest allra í dag SPRON hækkaði mest allra félaga í Kauphöllinni í dag eða um 1,19%. Flaga Group lækkaði mest allra félaga en það lækkaði um 6,5% Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,41% og var 6406 stig í lok dags. 10.12.2007 16:25
Breytingar á leiðakerfi hjá Icelandair Icelandair mun breyta áherslum í flugi sínu vestur um haf á næsta ári. Reglulegt áætlunarflug hefst til Toronto í maí, en flugi verður hætt til Baltimore í vetur. 10.12.2007 15:50
Gengi í Moss Bros hefur hækkað um 17% í morgun Gengi bresku karlfatakeðjunnar Moss Bros hefur hækkað um tæp 17% síðan markaðir opnuðu í morgun. Ástæða hækkunarinnar eru sögusagnir um að Baugur Group hyggist gera yfirtökutilboð í félagið. 10.12.2007 12:11
Ný spá gerir ráð fyrir óbreyttu íbúðaverði á næsta ári Greining Glitnis hefur gefið út nýja spá um íbúðamarkað. Í spánni er gert ráð fyrir 15,4%% hækkun íbúðarhúsnæðisverð yfir þetta ár en að verðið verði nánast óbreytt yfir árið 2008 sem er töluverður viðsnúningur eftir mikla hækkun undanfarin ár. 10.12.2007 11:08
Jólabónusinn er 36 milljónir kr. hjá Goldman Sachs Jólabónusinn sem hver starfsmaður fjármálafyrirtækisins Goldman Sachs fær í ár nemur um 36 milljónum kr. Og forstjórinn Lloyd Blankfein fær rúma 3 milljarða í jólabónus þetta árið. 10.12.2007 10:25
Föroya banki undir útboðsgengi Gengi hlutabréfa í hinum færeyska Föroya banka hefur lækkað um 1,58 prósent frá upphafi viðskipta í Kauphöll Íslands í dag. Gengið stendur nú í 187 krónum á hlut sem er tveimur krónum undir útboðsgengi með bréf í bankanum 21. júní síðastliðinn. 10.12.2007 10:18
Dagens Industri segir Sampo vilja skipa upp Nordea Sænska viðskiptablaðið Dagens Industri segir að ætlun Sampo með því að yfirtaka hlut sænska ríkisins í Nordea sé að skipta upp bankanum. Selja stóra hluta hans og reka svo bankann með Björn Wahlross forstjóra Sampo sem stjórnarformann. 10.12.2007 09:53
FLE og Nova semja um farsímaþjónustu Flugstöð Leifs Eiríkssonar ohf. og Nova ehf. hafa undirritað samning um aðstöðu fyrir búnað til móttöku og miðlunar á merkjum fyrir þriðju kynslóð farsíma í og við flugstöðina. 10.12.2007 09:26
Viðskipti með bréf í Atlantic Airways hefjast í dag Viðskipti með bréf flugfélagsins P/F Atlantic Airways munu hefjast í dag, mánudaginn 10. desember kl. 10.00. Athöfnin mun fara fram í Færeyjum. 10.12.2007 09:22
Fimm nýir í stjórn FL Group Ljóst er að fimm nýir aðilar munu setjast í stjórn FL Group á næsta hlutahafafundi sem fer fram föstudaginn 14. desember næstkomandi. Aðeins stjórnarformaðurinn Jón Ásgeir Jóhannesson og varaformaðurinn Þorsteinn M. Jónsson gefa kost á sér áfram. 10.12.2007 09:09
UBS afskrifar 10 milljarða dala úr bókum sínum Svissneski alþjóðabankinn UBS segist óttast að svo geti farið að hann verði að afskrifa allt að 10 milljarða bandaríkjadala, jafnvirði 617 milljarða króna, vegna tapaðra útlána í tengslum við bandarísk undirmálslán. Á sama tíma hafa stjórnvöld í Síngapúr ákveðið að kaupa hlut í bankanum fyrir svotil sömu upphæð og nemur útlánatapinu. 10.12.2007 08:55
Fossvélar kaupa risajarðýtu Vélasvið Heklu afhenti Fossvélum á Selfossi risajarðýtu af gerðinni Caterpillar D11R á starfssvæði Fossvéla við Ingólfsfjall á föstudaginn var. Þetta er önnur jarðýtan af þessari gerð sem selst hér á landi á þessu ári. Að jafnaði selur Caterpillar aðeins þrjár til fjórar svona vélar á ári í Evrópu, þannig að sala á tveimur vélum til Íslands á einu og sama árinu þykir tíðindum sæta. 9.12.2007 13:08
Baugsmenn sagðir ráðgera yfirtöku í Moss Bros Baugur ráðgerir yfirtökutilboð í bresku fataverslanakeðjuna Moss Bros, að því er dagblaðið Sunday Times greinir frá í dag. Heimildir blaðsins herma að Baugur muni á næstunni, sennilega í vikunni, leggja fram tilboð upp á 40 milljónir punda, eða rúma fimm milljarða íslenskra króna. Baugur á nú þegar 29 prósenta hlut í félaginu í gegnum fjárfestingafélagið Unity Investments sem er í eigu Baugs og Kevin Stanford. 9.12.2007 10:45
Kaupþing, Exista og FL Group týndu 137 milljörðum í Kauphöllinni Kaupþing, Exista og FL Group voru þau þrjú fyrirtæki sem rýrnuðu mest í Kauphöllinni í lækkunum vikunnar. Samanlagt minnkaði verðmæti fyrirtækjanna þriggja um 136,8 milljarða á fimm dögum, frá mánudegi og fram á föstudag. Verðmæti Marels jókst á sama tímabili um 1,1 milljarð og er það eina markverða hækkunin í vikunni. 8.12.2007 13:44
365 lækkaði mest annan daginn í röð Líkt og undanfarna daga var eitthvað um rauðar tölur við lokun Kauphallar í dag. 365 sem meðal annars rekur vísir.is lækkaði mest annan daginn í röð. Félagið lækkaði um 2,51% og stendur gengi félagsins nú í 1,94. 7.12.2007 16:37
Íhuga að leggja niður Ísafold vegna "ritskoðunar" Jóns Helga Útgáfufélagið Birtíngur íhugar alvarlega að leggja niður tímaritið Ísafold og sameina ritstjórn þess tímaritinu Nýtt Líf. Samkvæmt heimildum Vísis var þetta á meðal þess sem var rætt á fundi helstu stjórnenda útgáfufélagsins í morgun. 7.12.2007 15:59
Apar jafngóðir og sérfræðingar á fjármálamarkaðinum? Eru apar jafngóðir og sérfræðingarnir á fjármálamarkaðinum? Merkilegt nokk hafa fleiri rannsóknir leitt í ljós að svo er. 7.12.2007 12:46
Reiknað með að gengið veikist til ársloka Greining Glitnis reiknar með að gengi krónunnar muni veikjast fram að áramótum. Spáð er að vísitalan verði að meðaltali 121 stig úr mánuðinn. 7.12.2007 12:32
Forstjóri Coka Cola stígur úr forstjórastólnum Neville Isdell, forstjóri og stjórnarformaður bandaríska gosdrykkjarisans Coca Cola, ætlar að gefa forstjórastólinn eftir um mitt næsta ári og mun Muhtar Kent, næstráðandi hans, taka við starfinu. Isdell mun eftir sem áður vera stjórnarformaður fyrirtækisins næstu tvö árin. 7.12.2007 12:27
Magnús Kristinsson kaupir af sjálfum sér fyrir 4 milljarða Fjárfestingarfélagið Gnúpur hefur selt rúmlega 4,6 milljón hluti í Kaupþingi til Smáeyjar hf. en andvirði viðskiptanna nemur tæpum 4 milljörðum kr. 7.12.2007 10:56
James Murdoch valdamesti fjölmiðlamaður Bretlands James Murdoch, sonur gamla mannsins Rupert Mordoch, verður valdamesti fjölmiðlamaður Bretlands í dag. Tilkynnt verður um að hann taki við yfirstjórn á News Corp. í landinu. 7.12.2007 10:39