Viðskipti innlent

Íhuga að leggja niður Ísafold vegna "ritskoðunar" Jóns Helga

Andri Ólafsson skrifar
Jón Trausti brá á það ráð að selja Ísafold fyrir utan Nóatún eftir Kaupás tók tímaritið úr sölu.
Jón Trausti brá á það ráð að selja Ísafold fyrir utan Nóatún eftir Kaupás tók tímaritið úr sölu.

Útgáfufélagið Birtíngur íhugar alvarlega að leggja niður tímaritið Ísafold og sameina ritstjórn þess tímaritinu Nýtt Líf. Samkvæmt heimildum Vísis var þetta á meðal þess sem var rætt á fundi helstu stjórnenda útgáfufélagsins í morgun.

Ástæðan er sú að forsvarsmenn Birtíngs telja alvarlega hafi verið vegið að rekstrargrundvelli Ísafoldar þegar Jón Helgi Guðmundson og fyrirtæki hans, Kaupás, sem reka Nóatún, Krónuna og 11-11, ákvað að taka tímaritið úr sölu eftir að Ísafold birti grein um tengsl Gunnars I Birgissonar bæjarstjóra í Kópavogi við nektardansstaðinn Goldfinger.

Með ákvörðun sinni rifti Kaupás einhliða samningi sínum við Ísafold um að tímaritinu yrði dreift í verslunum félagsins.

Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Ísafoldar, vildi ekki staðfesta að heimildir Vísis um málið væru réttar þegar hann var spurður um málið í dag. Hann sagði hins vegar að ekkert stórt tímarit gæti lifað það af að vera ekki á boðstólum í verslunum Nóatúns 11-11 og Krónunnar.

Jón Trausti segist hafa rætt þessi mál við Jón Helga í þrígang án þess að fá nokkra niðurstöðu. "Þriðja samtali okkar lauk á þeim orðum Jóns Helga að við hefðum átt að hugsa okkur betur um áður en við fórum að dreifa óhróðri," segir Jón Trausti.

Eins og Vísir greindi frá fyrr í dag sendi Blaðamannafélag Íslands frá sér tilkynningu um málefni Ísafoldar í dag.

Í henni segir; "Blaðamannafélag Íslands telur óþolandi að áhrifamenn reyni í krafti valds síns, auðæfa eða viðskiptahagsmuna að hafa áhrif á skrif fjölmiðla. Mislíki mönnum umfjöllun fjölmiðla eiga þeir þess kost að leita til siðanefndar Blaðamannafélags Íslands eða dómstóla. Með aðgerðum sínum gagnvart tímaritinu Ísafold lítur út fyrir að stórfyrirtæki á Íslandi sé að beita áhrifum sínum á markaði til að knésetja tímarit og veigri sér ekki við að brjóta gerða samninga til að ná markmiði sínu."

Ekki náðist í forsvarsmenn Kaupás í dag þar sem nú fer fram ársfundur móðurfélags þess, Norvik.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×