Kaupþing, Exista og FL Group týndu 137 milljörðum í Kauphöllinni 8. desember 2007 13:44 Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings.
Kaupþing, Exista og FL Group voru þau þrjú fyrirtæki sem rýrnuðu mest í Kauphöllinni í lækkunum vikunnar. Samanlagt minnkaði verðmæti fyrirtækjanna þriggja um 136,8 milljarða á fimm dögum, frá mánudegi og fram á föstudag. Verðmæti Marels jókst á sama tímabili um 1,1 milljarð og er það eina markverða hækkunin í vikunni. FL Group var með skráð gengi upp á 20,75 mánudaginn þriðja desember en eftir tíðindi vikunnar og breytingar hjá fyrirtækinu fór gengið niður um 24,82 prósent og stóð lokagengi félagsins í 15,6 á föstudag. Þá hafði verðmæti fyrirtækisins dregist saman um 47,2 milljarða. Kaupþing rýrnaði þó enn meira í vikunni þrátt fyrir að hafa ekki lækkað nema um 7,38 prósent. Verðmæti fyrirtækisins á föstudag hafði minnkað um 50,4 milljarða. Exista hóf vikuna í 25,95 en lauk keppni á föstudag í 22,5. Það gerir lækkun upp á 13,29 prósent og minnkaði verðmæti félagsins um 39,2 milljarða. 365 lækkaði um 18,83 prósent í vikunni, Glitnir um 7,63 prósent, Icelandic Group um 7,38 prósent, SPRON um 11,54 prósent og Teymi um 7,75 prósent, svo dæmi séu tekin. Verðmæti annara banka en Kaupþings minnkuðu einnig töluvert í vikunni, hjá Glitni um 28,2 milljarða, hjá Landsbanka um 21 milljarð og hjá SPRON um 6,6 milljarða. Þá minnkaði verðmæti bréfa í Straumi Burðarás um 6,6 milljarða. Hækkanir vikunnar voru ekki eins miklar. Marel hækkaði um 4,17 prósent og jók verðmæti sitt um 1,6 milljarða og Alfesca fór upp um 2,44 prósent og verðmæti jókst um milljarð.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira