Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stýrivextir hækka í Bretlandi Englandsbanki ákvað í dag að hækka stýrivexti um 25 punkta og fara þeir við það í 5,75 prósent. Þetta er í takt við væntingar en lengi búist við að bankinn myndi hækka stýrivexti á næstunni. 5.7.2007 11:34
Hráolíuverð lækkar Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði lítillega á markaði í Asíu í dag en greinendur gera ráð fyrir því að eldsneytisbirgðir hafi aukist á milli vikna í Bandaríkjunum. Birgðirnar hafa dregist saman vestanhafs undanfarnar vikur. 5.7.2007 10:05
Góðir viðskiptahættir Milestone Nefnd á vegum Sænsku kauphallarinnar hefur úrskurðað að Racon Holdings, sænskt dótturfélag Milestone, hafi að öllu leyti fylgt yfirtökureglum og góðum viðskiptaháttum við yfirtöku á sænska tryggingarfélaginu Invik. Nokkrir stórir fjárfestingar- og lífeyrissjóðir í Svíþjóð voru ekki á eitt sáttir við það verð sem Milestone bauð og sendu því erindi til nefndarinnar. 5.7.2007 09:29
Hlutabréf féllu í Kína Gengi kínversku SCI-vísitölunnar féll um 5,25 prósent í kauphöllinni í Sjanghæ við lokun viðskipta í Kína í dag. Ástæðan er ótti fjárfesta við að aukinn fjöldi fyrirtækjaskráninga á hlutabréfamarkað og hlutafjáraukningar muni veikja markaðinn. 5.7.2007 09:20
Stýrivextir verða óbreyttir Seðlabankinn hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 13,30 prósentum, sem jafngildir 14,25 prósenta vöxtum á ársgrundvelli, sem er í takt við væntingar. Bankinn birtir rökstuðning sinn fyrir ákvörðuninni í Peningamálum, sem kemur út klukkan 11 í dag en greinendur búast við allhörðum tóni frá bankanum.. 5.7.2007 09:00
Íslendingar og Indverjar í samstarf á sviði jarðskjálftarannsókna Íslensk og indversk stjórnvöld hafa gert með sér samkomulag um samstarf á sviði jarðskjálftamælinga. Von er á tveimur indverskum vísindamönnum hingað til lands til að kynna sér tækni á Íslandi á sviði jarðskjálftamælinga. Fyrsti áfangi samkomulagsins var undirritaður í dag milli utanríkisráðuneytisins og Veðurstofu Íslands sem mun sjá um framkvæmd samstarfsins. 4.7.2007 17:58
Gert ráð fyrir óbreyttum stýrivöxtum Greiningardeild Kaupþings gerir ráð fyrir því að Seðlabankinn haldi stýrivöxtum óbreyttum í 13,3%, eða sem jafngildi 14,25% ávöxtun á ársgrundvelli. 4.7.2007 17:51
Straumur með 95% hlutafjár í eQ Straumur-Burðarás hefur eignast ríflega 95% hlutafjár í finnska bankanum eQ samkvæmt niðurstöðum yfirtökutilboðs. Að auki hyggst Straumur-Burðarás eignast alla útgefna og eftirstandandi hluti í eQ. 4.7.2007 17:23
Íslendingar sigursælir í virtri gervigreindarkeppni Íslenskur hugbúnaður frá Háskólanum í Reykjavík lenti í efsta sæti í undankeppni virtrar gervigreindarkeppni í Stanford háskóla í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. 40 forrit frá ýmsum rannsóknarháskólum víðsvegar að úr heiminum voru send í keppninni. Þetta er í fyrsta skipti sem Háskólinn í Reykjavík tekur þátt. 4.7.2007 15:50
Enn tekur Úrvalsvísitalan stökkið Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,59 prósent í Kauphöllinni í dag. Vísitalan endaði í 8.541 stigi í dag og hefur aldrei verið hærri. Gengi bréfa í Alfesca, eða um 3,96 prósent. Mesta lækkunin varð hins vegar á gengi bréfa í Föroya Banka, sem fór niður um 1,69 prósent. 4.7.2007 15:48
Uppfært mat á Singer & Friedlander Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch hefur uppfært lánshæfiseinkunnir Singer & Friedlander, banka Kaupþings í Bretlandi. Stuðningseinkunn bankans hækkar um eitt sæti í 2. Þá fær bankinn langtímaeinkunnina A en skammtímaeinkunnina F1. 4.7.2007 14:58
Regluvarsla NordVest ófullnægjandi Fjármálaeftirlitið (FME) hefur komist að þeirri niðurstöðu í kjölfar úttektar, að umgjörð um regluvörslu NordVest Verðbréfa hf. hafi verið ófullnægjandi og hefur farið fram á úrbætur er skyldi vera lokið innan nánar tiltekinna fresta. 4.7.2007 14:07
Metsekt fyrir samkeppnisbrot Samkeppnisyfirvöld Evrópusambandsins (ESB) dæmdu í dag spænska símafyrirtækið Telefonica til að greiða 151,9 milljónir evra, jafnvirði 12,8 milljarða íslenskra króna, í sekt vegna brota á samkeppnislögum. Þetta er metsekt vegna brota af þessu tagi. 4.7.2007 13:24
KKR skráð á markað Fjárfestingasjóðurinn KKR ætlar að feta í fótspor bandaríska félagsins Blackstone og skrá félagið á markað vestanhafs í kjölfar útboðs með bréf í félaginu. Fjárfestingasjóðir hafa í auknum mæli horft til þess sækja sér aukið á almennum markaði til að auka fjárfestingagetu sína. 4.7.2007 12:00
Alcoa kíkir ekki í bækur Alcan Kanadíski álrisinn Alcan, móðurfélag álversins í Straumsvík, hefur neitað bandaríska álframleiðandanum Alcoa, sem rekur álver við Reyðarfjörð, að að skoða bókhald fyrirtækisins. Alcoa hefur ýjað að því að það geti hugsað sér að bæta yfirtökutilboð sitt í Alcan, sem hljóðar upp á 28 milljarða dala, jafnvirði 1.739 milljarða íslenskra króna. 4.7.2007 11:17
Afkoma ríkissjóðs umfram áætlanir Greiðsluafkoma ríkissjóðs á fyrstu fimm mánuðum ársins var hagstæðari en áætlanir gerðu ráð fyrir í fjárlögum. Handbært fé frá rekstri var jákvætt um 34,1 milljarð króna sem er 5,9 milljörðum meira en á sama tíma í fyrra. 4.7.2007 10:15
Blackstone kaupir Hilton-hótelkeðjuna Bandaríski fjárfestingasjóðurinn Blackstone Group, sem skráður var á hlutabréfamarkað vestanhafs fyrir um hálfum mánuði, hefur keypt Hilton-hótelkeðjuna. Kaupverð nemur 26 milljörðum dala, jafnvirði heilla 1.615 milljarða íslenskra króna. Greitt verður fyrir hótelin í reiðufé. 4.7.2007 09:37
Dregur úr halla á vöruskiptum Vöruskipti voru neikvæð um 9,6 milljarða krónur í síðasta mánuði, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Þetta er nokkur umskipti frá sama tíma á síðasta ári en þá voru vöruskiptin neikvæð um 15,4 milljarða krónur. 4.7.2007 09:16
Allofmp3 lokað Rússnesk yfirvöld hafa lokað rússnesku tónlistarveitunni allofmp3.com, en þar hefur fram til þessa verið hægt að kaupa tónlist til niðurhals á niðursettu verði. 4.7.2007 08:00
Er viðskiptahallinn að grafa undan krónunni? Gríðarlegur halli hefur verið á viðskiptum við útlönd undanfarin ár. Fyrst og fremst vegna innflutnings á fjárfestingarvörum og neysluvörum en einnig vegna halla á þáttatekjum, þ.e. launum, vaxtagreiðslum og eignatekjum á milli landa. 4.7.2007 06:45
Geysir tilkynnir um olíufund Straumborg á meirihluta í tveimur félögum sem saman eiga um fimmtung í olíuleitarverkefni í Norðursjó. Verið er að mæla magn nýfundinnar olíu. 4.7.2007 06:15
Ísland í fjórða sæti Verðbólga mældist 2,2 prósent á ársgrundvelli að meðaltali innan svæðis OECD-ríkjanna á fyrstu sex mánuðum árs. 4.7.2007 06:15
Íslandsvinir mæta í Kauphöllina Á 175 ára afmæli Eik Banka er við hæfi að þessi stærsti banki Færeyja fari í tvíhliða skráningu í Kauphöll Íslands og Kauphöllina í Kaupmannahöfn 11. júlí næst komandi. 4.7.2007 06:00
NimbleGen vex innan Roche Svissneski lyfjarisinn Roche ætlar að kaupa líftæknifyrirtækið NimbleGen, sem er með rannsóknastofu í Grafarholtinu. Kaupverð nemur tæpum sautján milljörðum króna. 4.7.2007 06:00
Tuttugu ár frá skattlausa árinu Í ár eru tuttugu ár liðin frá skattlausa árinu svokallaða þegar eftirágreiðsla skatta var felld niður og staðgreiðslukerfið tekið upp. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson fór aftur í tímann og sneri aftur með svipmynd af þessu síðasta uppsveifluári. 4.7.2007 06:00
Sex milljarðar Róbert Wessman, forstjóri Actavis, ber ekki skarðan hlut frá borði við sölu á hlut sínum í Actavis til Novators. Verðmæti hlutar Róberts var 12,3 milljarðar og við lauslegan útreikning á kaupum hans á bréfum í félaginu frá upphafi má áætla að hreinn hagnaður hans, að undanskildum fjármagnskostnaði, sé rétt rúmir sex milljarðar. 4.7.2007 06:00
FME breytir ekki tilboði Eyjamanna Fjármálaeftirlitið hefur hafnað beiðni frá hluthafa í Vinnslustöðinni um breytingu á tilboðsverði eignarhaldsfélagsins Eyjamanna í Vinnslustöðina. Samkvæmt 8. mgr. 40. gr laga um verðbréfaviðskipti hefur Fjármálaeftirlitið heimild til að breyta tilboðsverði ef sérstakar kringumstæður eru fyrir hendi. 4.7.2007 05:30
Allt hækkar í Hong Kong Hlutabréfavísitölur í Hong Kong standa í hæstu hæðum. Íbúum hefur fjölgað um fjörutíu prósent síðan Kínverjar tóku við lyklavöldum. 4.7.2007 05:00
Vaxtalækkun gæti orðið skarpari Niðurskurður í aflaheimildum og fyrirséðar breytingar á hámarkslánum Íbúðalánasjóðs stuðla að hjöðnun í hagkerfinu og gætu boðað hraðari lækkun stýrivaxta Seðlabankans. 4.7.2007 05:00
Hlutabréf í Eik þykja dýr Hlutabréf í Eik Banka, sem verður skrásettur í Kauphöllina í næstu viku, eru í dýrari kantinum segja sérfræðingar hjá Föroya Banka, hinum stóra færeyska bankanum. Þeir benda þó á að bankinn sé spennandi valkostur sem hafi gefið eigendum sínum góðan ávöxt. 4.7.2007 04:45
Nýjar upplýsingar hjá Seðlabankanum Á vef sínum hefur Seðlabanki Íslands nú gert aðgengilegar margvíslegar upplýsingar, meðal annars um nýtt þjóðhagslíkan. 4.7.2007 04:30
Tjáir sig ekki um aðalfund Hornfirska útgerðarfélagið Skinney-Þinganes er hið ellefta kvótahæsta á landinu með um 3,07 prósent allra aflaheimilda. Aðalfundur félagsins var í síðustu viku. 4.7.2007 04:30
Frábæri frændinn ég Kæri frændi Mig langar bara til að þakka þér fyrir hvað þú hefur verið hugulsamur við okkur að láta fjölskylduna fylgjast með tækifærum sem opnast á markaðnum. Við erum öll alsæl með færeyska bankann sem þú lést okkur kaupa. Við vorum svolítið hikandi að fara með yfirdráttinn svona hátt til að kaupa þessi bréf, en þú getur ímyndað þér hvað við erum ánægð þegar upp er staðið. 4.7.2007 04:00
Marel nálgast fimmtungshlut Marel hefur enn aukið hlut sinn í hollenska iðnfyrirtækinu Stork samkvæmt heimildum Markaðarins og nálgast nú 20 prósenta eign í gegn um félagið LME sem einnig er í eigu Landsbankans og Eyris. 4.7.2007 03:45
Tryggðu sjálfstæði Wall Street Journal Samkomulag er sagt hafa náðst um ritstjórnarlegt sjálfstæði Wall Street Journal. Starfsfólk blaðsins gekk á dyr. 4.7.2007 03:45
Metvelta á OMX Dagleg hlutabréfaviðskipti í OMX-kauphallarsamstæðunni námu 454,5 milljörðum íslenskra króna að meðaltali fyrstu sex mánuði ársins. Um er að ræða rúmlega níu prósenta aukningu sé miðað við veltu síðustu tólf mánaða. Að meðaltali fóru fram 186,094 viðskipti á degi hverjum. 4.7.2007 03:30
Ónýtt gróðatækifæri Vikuritið Vísbending hefur venjulega að geyma ýmislegt forvitnilegt og ígrundað. Í nýjasta heftinu fjallar bróðir ritstjórans, hagfræðingurinn Sigurður Jóhannesson um skýrslu um launamun karla og kvenna. 4.7.2007 03:00
Vilja aldurinn úr sjötugu í 67 ár SVÞ fagna breytingum stjórnvalda þar sem tekið hefur verið fyrir skerðingu á atvinnutekjum vegna aldurs. 4.7.2007 03:00
Indverjar græða á úthýsingum Fimm prósent þjóðartekna Indverja verða til vegna úthýsinga. Gert er ráð fyrir 2.400 milljarða króna tekjum á árinu. 4.7.2007 03:00
Pundið í methæðum Breska pundið hefur styrkst gríðarlega gagnvart Bandaríkjadal undanfarin misseri og nú er svo komið að fyrir eitt breskt pund fást rúmlega 2,02 Bandaríkjadalir. Pundið hefur ekki staðið styrkara gagnvart Bandaríkjadal í 26 ár. 4.7.2007 02:45
Samvinnutryggingar veita Bifröst styrk Í síðustu viku veitti Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, viðtöku styrk til skólans að upphæð 20 milljónir króna. Styrkurinn kemur frá Eignarhaldsfélagi Samvinnutrygginga. 4.7.2007 02:45
Auglýsingar drepa áhuga Vísbending er laus við auglýsingar, en það sama verður ekki sagt um systurina Frjálsa Verslun. Margt hefur verið ljómandi vel gert í því blaði, en í aftari hluta blaðsins hafa auglýsingasalarnir tekið öll völd. Í ágætu blaði um konur í viðskiptalífinu er margt forvitnilegt að finna. 4.7.2007 02:30
Lágir skattar hvetja til atvinnuþátttöku „Það voru vangaveltur um það hvað ætti að gera við þetta ár sem yrði á milli þess sem eftirágreiðslukerfið var fellt niður og staðgreiðsla tekin upp. Til tals kom að leggja á eftirágreidda skatta og leyfa einhverja mynd af skuldajöfnun. En einfaldasta og skjótvirkasta leiðin var að gefa út yfirlýsingu þess efnis að láta almanaksárið verða skattlaust,“ segir Víglundur Þorsteinsson, formaður Félags iðnrekenda árið 1986 og fulltrúi vinnuveitenda á þeim tíma. 4.7.2007 02:30
Sameining handsöluð um áramótin NASDAQ og OMX ganga í eina sæng um áramótin. Ólíklegt er að Kauphöll Íslands eignist fulltrúa í nýrri yfirstjórn. Forstjóri Kauphallarinnar væntir stórra erlendra fjárfestingabanka inn á íslenskan hlutabréfamarkað. 4.7.2007 01:45
Vopnahléi lýkur í Nígeríu Uppreisnarmenn í MEND-flokknum, sem berjast fyrir því að Níger-árósasvæðið öðlist sjálfstæði frá Nígeríu, hafa lýst því yfir að vopnahléi sem staðið hefur undanfarinn mánuð sé lokið. Níger-árósarnir eru helsta olíuframleiðslusvæði Nígeríu. 4.7.2007 01:30
Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Viðskipti innlent