Sameining handsöluð um áramótin 4. júlí 2007 01:45 Þórður Friðjónsson, forstjóri kauphallar íslands OMX fær fimm fulltrúa í nýrri sameinaðri yfirstjórn NASDAQ og OMX. NASDAQ fær níu, auk forstjórans Roberts Greifeld. Þórður Friðjónsson býst síður við því að Kauphöll Íslands eignist fulltrúa í stjórninni. MYND/Páll
Jón Skaftason skrifar Sameiningu kauphallarsamstæðanna NASDAQ og OMX verður lokið um áramót gangi áætlanir eftir. Gögn frá OMX-kauphallarsamstæðunni liggja nú til yfirferðar hjá bandaríska fjármálaeftirlitinu og er búist við að því ferli verði lokið um mánaðamótin ágúst/september. Að því loknu tekur við útboðsferli og ætti afstaða hluthafa að liggja fyrir í byrjun október. Samningar verða síðan endanlega handsalaðir um áramót. „Tafir á málinu stafa af gagnaöflun sem þarf að fara í gagnvart bandaríska fjármálaeftirlitinu. Það eru öðruvísi staðlar þar um fjárhagsupplýsingar en hér í Evrópu. Þetta er einungis formlegt ferli, við í Evrópu þurfum ekki að lúta bandarískum lögum og reglum“, segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands. Hin nýja NASDAQ/OMX-samstæða mun lúta fimmtán manna yfirstjórn undir forystu Roberts Greifeld, forstjóra NASDAQ. Auk hans skipa níu fulltrúar frá NASDAQ og fimm frá OMX stjórnina. Sérstakar stjórnir verða síðan yfir dótturfélögunum, þar á meðal ein fyrir norræna OMX-markaðinn og önnur fyrir Kauphöll Íslands. Kauphöllin hefur nú einn fulltrúa í stjórn OMX, Þorgeir Eyjólfsson. Þórður Friðjónsson býst síður við því að Ísland eignist fulltrúa í hinni nýju yfirstjórn en segir þó tryggt að fulltrúar Kauphallar Íslands hafi áhrif á gang mála „Það hefur komið skýrt fram í þessum viðræðum að kauphöllin hér verður rekin með svipuðum hætti og hingað til. Hlutverk okkar stjórnar verður hins vegar fyrst og fremst lögformlegt, meiriháttar stefnumarkandi ákvarðanir verða teknar erlendis.“ Fram hefur komið að áhugi sé fyrir því innan NASDAQ og OMX að skoða gaumgæfilega hvort flytja eigi einhverja hluta starfseminnar til Íslands í ljósi hagstæðs skattaumhverfis og aðstæðna. Þórður segir ekki tímabært að velta því fyrir sér nákvæmlega hvaða þætti starfseminnar kemur til greina að flytja hingað til lands „Margt kemur til greina, ég held að það sé ekki taktískt að nefna þau atriði sem eru til skoðunar á þessu stigi.“ Hann segir þó styrk Kauphallar Íslands felast í einföldum lausnum og hraðri ákvarðanatöku. Auk þess séu öll ytri skilyrði, til að mynda skattaumhverfi, hagstæð hér á landi. Hin nýja kauphallarsamstæða verður önnur tveggja stærstu kauphalla í veröldinni ásamt sameinaðri kauphöll New York Stock Exchange og Euronext. Þórður telur styrk NASDAQ og OMX felast í því að vera með fótfestu víða um heim „Nú eru NASDAQ og OMX komin með fótfestu bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Nú þegar erum við með samstarfssamninga víða í Asíu og síðan má búast við að stefnt verði enn frekar inn á þá markaði í náinni framtíð.“ Þórður segir samstarfið við OMX hafa styrkt þann grunn sem Kauphöll Íslands byggi á og telur að aðkoma NASDAQ verði ekki síður til heilla. „Sýnileikinn er miklu meiri en áður. Þegar samþættingarferlinu lýkur setjum við kraft í markaðssókn. Ég á von á því að á næstu mánuðum verði sú breyting að öflugir erlendir fjárfestingabankar fari að fjárfesta hér í auknum mæli.“
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira