Viðskipti innlent

Lágir skattar hvetja til atvinnuþátttöku

Víglundur Þorsteinsson. Skattlausa árið sýnir að lágir skattar hvetja mjög til atvinnuþátttöku, að sögn Víglundar Þorsteinssonar, fyrrverandi fulltrúa Vinnuveitandasambandsins og núverandi forstjóra BM Vallár.
Víglundur Þorsteinsson. Skattlausa árið sýnir að lágir skattar hvetja mjög til atvinnuþátttöku, að sögn Víglundar Þorsteinssonar, fyrrverandi fulltrúa Vinnuveitandasambandsins og núverandi forstjóra BM Vallár. MYND/GVA

„Það voru vangaveltur um það hvað ætti að gera við þetta ár sem yrði á milli þess sem eftirágreiðslukerfið var fellt niður og staðgreiðsla tekin upp. Til tals kom að leggja á eftirágreidda skatta og leyfa einhverja mynd af skuldajöfnun. En einfaldasta og skjótvirkasta leiðin var að gefa út yfirlýsingu þess efnis að láta almanaksárið verða skattlaust,“ segir Víglundur Þorsteinsson, formaður Félags iðnrekenda árið 1986 og fulltrúi vinnuveitenda á þeim tíma.

Víglundur segir að kjarasamningsaðilar hafi frá upphafi talið eina ráðið að hafa árið 1987 skattlaust. „Ríkisstjórnin skoðaði ýmsa kosti en endaði á því að þetta yrði heillavænlegast,“ segir Víglundur. Ekki lá hins vegar fyrir undir árslok 1986 að næsta ár yrði skattlaust heldur var það tilkynnt í byrjun næsta árs.

Víglundur útilokar þó ekki að ríkisstjórnin hafi tekið endanlega ákvörðun eftir að verkalýðshreyfingin lýsti því yfir að árið yrði skattlaust áður en það var formlega gefið út. „Ætli stjórnmálamennirnir hafi ekki talið það erfitt að tvíleggja á skatt, sérstaklega eftir að yfirlýsingar voru komnar um það frá kjarasamningsaðilum að miklu skynsamlegra væri að hafa árið skattlaust. Og kannski var það áróðurspressan sem ýtti málinu áfram,“ segir Víglundur og bætir við að margt hafi breyst til batnaðar í kjölfarið. „Vinnuþátttaka stórjókst og menn sóttu vinnu eins mikið og hver gat. Þetta var mikill uppgangur og staðfestir að lágir skattar hvetja mjög til atvinnuþátttöku,“ segir hann.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×