Fleiri fréttir
Sjá næstu 50 greinar
Verður heilbrigðisstarfsfólk klónað? Auður Finnbogadóttir skrifar Síðustu viku hef ég verið sorgmædd og hrædd. Laugardaginn 1. desember fékk yndislegi dregurinn minn, Finnbogi Örn sem er 11 ára, heilablóðfall. Hann lamaðist hægra megin og missti málið sitt. Finnbogi Örn hefur oft háð baráttu á sinni stuttu ævi. Hann er með Down‘s heilkenni, hann fór í hjartaaðgerð þriggja mánaða í London og aðra í Lundi í apríl sl. svo við höfum meiri reynslu en við kærum okkur um vegna veikinda. 11.12.2012 06:00
Framgangskerfi hjúkrunarfræðinga Sigurveig Magnúsdóttir skrifar Ég hef tilheyrt hjúkrunarstéttinni frá árinu 2006 og þar af unnið í fimm ár á Landspítalanum. Þar sem ég hef aldrei tilheyrt annarri stétt hef ég hugleitt hvort starfsþróun annarra stétta sé með sama móti og hjá hjúkrunarfræðingum Landspítalans. 11.12.2012 06:00
Ferðaþjónustan sameinist gegn kynferðisofbeldi á börnum Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Öll börn heimsins eiga rétt á vernd gegn kynferðislegu ofbeldi, þau eiga rétt á vernd gegn hvers kyns kynferðislegu hátterni, vændi og klámi. Slíkt er tilgreint í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og í íslenskum lögum. 11.12.2012 06:00
Af vísindalegri fáfræði um græðara Gunnlaugur Sigurðsson skrifar Sannarlega er öfundsvert það fólk sem nýtur blíðviðris og góðrar tíðar án þess að kvíða því vonda veðri og ótíð sem hlýtur að binda enda á sæluna fyrr eða síðar. Ég er ekki þannig en mér hefur samt tekist að draga talsvert úr kvíðanum fyrir verri tíð með markvissri viðleitni til að sætta mig við vont veður þegar það loksins brestur á og sjá fegurðina í austan hreti og hvassviðri jafnvel og fagna norðan nepjunni sem býður mín utandyra að morgni og fer köldum höndum sínum inn undir klæðin og frostrigningunni sem sleikir vanga minn eins og vingjarnlegur hundur sem hefur verið að lepja krapavatn. Þetta hefur tekist bærilega, kvíðinn er minni og árangurinn sá að ég nýt betur bæði góðviðris og lakari tíðar og er umfram allt orðinn mun mildari í dómum mínum um vont veður en áður og að því leyti sjálfur örlítið skárri í umgengni við mína nánustu og jafnvel fleiri. 10.12.2012 15:00
Hver vill verða öryrki? Grétar Pétur Geirsson skrifar Af og til kemur upp umræða um mikla fjölgun öryrkja. Oftar en ekki er látið að því liggja að fólk geti sótt um örorkulífeyri alveg eins og sótt er um atvinnuleysisbætur, málið sé svo einfalt. Því fer fjarri að hlutirnir gangi þannig fyrir sig. Fram þarf að fara nokkuð ítarlegt læknisfræðilegt mat. Svo er það spurningin hver vill verða öryrki? 10.12.2012 15:00
Útflutningur rafmagns – besti kosturinn? Sveinn A. Sæland skrifar Á undanförnum árum hefur umræðan um lagningu sæstrengs til Evrópu og sala á rafmagni frá Íslandi um hann fengið byr undir vængi. Með tilkomu orkumikils forstjóra árið 2009 hefur Landsvirkjun (LV) gengið í gegnum stefnumörkun þar sem nýtt hlutverk fyrirtækisins er sett fram og áherslur eru aðrar en áður. 10.12.2012 15:00
Útgerðarmenn innheimta 92% veiðigjald Kristinn H. Gunnarsson skrifar Mikil orrusta stendur yfir um skiptingu arðsins sem fiskimiðin gefa af sér. Sjávarútvegurinn gefur af sér 35-45 milljarða króna árlega svo það er eftir miklu að slægjast. Um 75% af þessari fjárhæð fara til 18 stærstu fyrirtækjanna. 10.12.2012 15:00
Útflutningur rafmagns - besti kosturinn? Sveinn A. Sæland skrifar Á undanförnum árum hefur umræðan um lagningu sæstrengs til Evrópu og sala á rafmagni frá Íslandi um hann fengið byr undir vængi. Með tilkomu orkumikils forstjóra árið 2009 hefur Landsvirkjun (LV) gengið í gegnum stefnumörkun þar sem nýtt hlutverk fyrirtækisins er sett fram og áherslur eru aðrar en áður. Til upprifjunar þá byggir stefnumörkunin á þremur meginstoðum: 1. Að stunda skilvirka raforkuvinnslu og framþróun. 2. Að þróa fjölbreyttan viðskiptavinahóp. 3. Að tengjast evrópskum orkumarkaði. 10.12.2012 06:00
Kynbundið ofbeldi er mál sem snertir alla Kynbundið ofbeldi heldur áfram að vera mest langvarandi en samt minnst viðurkennda mannréttindabrot í heiminum. Það er mál sem snertir alla menningarheima, kynþætti, trúarbrögð, og félags- og efnahagslegar stöður. Birtingarform kynbundins ofbeldis eru nauðganir, heimilisofbeldi, kynferðisleg árás, mansal á konum og stúlkum, vændi, limlestingar á kynfærum kvenna, kynferðisleg áreitni og nauðungarhjónabönd. 10.12.2012 06:00
Heimilisofbeldi þrífst í skjóli þagnarinnar Borghildur Dóra Björnsdóttir skrifar Því miður hef ég ekki heyrt nægilega umræðu um heimilisofbeldi í samfélaginu eða í fjölmiðlum, hún þarf að vera meiri. Það þarf fræðslu um heimilisofbeldi í skólum og í samfélaginu öllu. Það er svo margt sem við vitum ekki um það og svo margt sem er í felum. Heimilisofbeldi er nær okkur en við höldum. Það kemur fram í ólíkum myndum, líkamlegu ofbeldi, vanrækslu, andlegu- og kynferðislegu ofbeldi. Ég hef horft upp á heimilisofbeldi, vitað um manneskjur sem hafa lent í því og einnig hef ég lent í flestum þáttum þess sjálf. 10.12.2012 06:00
Frelsið mun gjöra yður sanna Finnur Þór Vilhjálmsson skrifar Því fylgir jafnan einkennileg blanda af kátínu, furðu og ónotum að lesa frásagnir af boðunarsamkomum langt leiddra hægrimanna. (Með því á ég bara við jaðarhópinn sem heldur fastar í ósýnilegu höndina en eigin skynsemi.) Í viðskipta- og atvinnulífshluta Morgunblaðsins 20. nóvember sl. var viðtal vegna stólræðu innflutts farandpredikara frá fyrirheitnalandi þessa hóps yfir innvígðum á dögunum. (Og blaðamanni Morgunblaðsins, ef gera ber einhvern skilsmun þar á.) Sá var Daniel nokkur Mitchell, bandarískur starfsmaður Cato Institute í Washington DC, USA, og pípa nú kannski strax reykskynjarar hjá mörgum en látum gott heita og höldum áfram. (Bara sem smjörþefur þá var eftirfarandi bók efst á lista nýrra og forvitnilegra á heimasíðu Cato Institute um miðja vikuna: The Financial Crisis and the Free Market Cure: Why Pure Capitalism is the World Economy's Only Hope.) 8.12.2012 08:00
Útrýmum kynbundu ofbeldi! Jóhanna Sigurðardóttir skrifar Einn allra stærsti áfanginn í sögu jafnréttisbaráttunnar á síðustu áratugum felst óneitanlega í að þögnin um kynbundið ofbeldi hefur verið rofin og jafnframt hefur baráttan gegn því verið sett á dagskrá grasrótarsamtaka, stjórnmálanna og samfélagsins alls. Við vitum að á meðan kynbundið ofbeldi er við lýði eru mannréttindi og velferð, líf og heilsa fótum troðin. Í hvert einasta skipti sem fórnarlömb stíga fram og greina frá ofbeldinu og ná eyrum samfélagsins höfum við færst nær markmiðum okkar um samfélag án ofbeldis, samfélag virðingar fyrir mannréttindum allra og reisn og almennrar velferðar. 8.12.2012 08:00
Mikilvægi hluta- bréfaskráninga Páll Harðarson skrifar Velmegun Íslands í gegnum tíðina hefur verið nátengd því hvernig atvinnulífinu reiðir af. Örfá af stærri fyrirtækjum landsins sem gegna stóru hlutverki sem atvinnuveitendur eru nú á hlutabréfamarkaði en þau hafa að miklu leyti fjármagnað sinn vöxt í gegnum kauphöll. Hlutabréfamarkaðurinn er núna að glæðast, en einhverra hluta vegna hefur það verið útbreiddur misskilningur að einungis stór fyrirtæki eigi erindi inn á markað. Við sjáum það svo á nýskráningum og á þeim sem hafa áætlanir um að koma á markað að um er að ræða fyrirtæki í stærri kantinum, frekar en ekki. En þetta er ekki staðreyndin þegar litið er til annarra markaða á Norðurlöndunum. Hvers vegna koma ekki fleiri smá og millistór fyrirtæki á markað hér og njóta þeirra vaxtarmöguleika sem þar er boðið upp á? 8.12.2012 08:00
Alþjóðasamvinna um heilbrigðismál Ingimar Einarsson skrifar Ríki heims hafa átt með sér víðtækt samstarf um heilbrigðismál um langt skeið. Með undirritun stofnskrár Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) 22. júlí 1946 og formlegri stofnunar hennar 7. apríl 1948 tók WHO yfir verkefni og hlutverk Heilbrigðisnefndar Þjóðabandalagsins ásamt fleiri viðfangsefnum. Alls var um að ræða 43 alþjóðasamninga um heilbrigðismál og a.m.k. 7 alþjóðlegar stofnanir sem hin nýja alþjóðasamvinnustofnun um heilbrigðismál tók yfir. 8.12.2012 08:00
Vernd barna óháð landamærum Halla Gunnarsdóttir skrifar Síðastliðið sumar voru gerðar breytingar á kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga. Breytingarnar létu ekki mikið yfir sér en fólu í sér þýðingarmikið skref í alþjóðlegri baráttu gegn ofbeldi gegn börnum. Þar á meðal var gerð sú breyting að mögulegt er að sækja til saka íslenskan ríkisborgara eða einstakling sem býr hér á landi fyrir brot gegn barni utan landsteinanna, óháð því hvort brotið sætir refsingu í því landi sem það er framið. 8.12.2012 08:00
Úrtölufólkið og spýjan Sr. Örn Bárður Jónsson skrifar Hvað ef landnámsmennirnir forðum daga hefuðu snúið við og sagt "Þetta er bara vesen. Hættum við að leita á vit nýrrar framtíðar“? 8.12.2012 08:00
Er gætt að rétti þínum? Starf mitt felst í því að gæta að réttindum fólks, meðal annars vegna umferðarslysa. Ég veit því vel að það verður seint sagt að íslenskt tryggingaumhverfi ofali þá sem eiga um sárt að binda vegna slysa. Sumir launþegar eru þó betur settir en annað fólk, þar sem þeir hafa viðbótartryggingavernd vegna bílslysa í sínum kjarasamningi. Tryggingin er þó að hverfa úr kjarasamningum án þess að nokkur veiti því athygli. 7.12.2012 07:00
Ert þú barnið mitt? Helga Vala Helgadótttir skrifar Nú liggur fyrir á Alþingi löngu tímabært frumvarp til breytinga á barnalögum. Um er að ræða slíka réttarbót að ótrúlegt er að hún sé ekki fyrir löngu afgreidd. Örlítil breyting á 10. gr. barnalaga, sem segir til um hverjir geti átt aðild að faðernismáli. 7.12.2012 06:00
„Af barna munni og brjóstmylkinga býrðu þér lof“ Aldís Schram skrifar Lítil stúlka hefur verið svívirt af kaþólskum kirkjuþjónum Landakotsskólans. Sem foreldrarnir treystu fyrir í þeirri trú að þar yrði hún í öruggum höndum, þarna sem hún var í klerksins Georges höndum, hans öfugugga höndum, sem auðmýktu hana, kúguðu og saurguðu hana; þessa kirkjunnar þjóns sem átti að leggja hendur yfir hana en lagði hendur á hana; þessa séra sem átti að að auðsýna henni gæsku Guðs en svipti hana sakleysinu, barndóminum, meydóminum; þarna í þessum kaþólska skóla þar sem hún leið kynferðisofbeldi af skólastjórans Georges hendi, aftur og aftur, dag eftir dag, mánuð eftir mánuð, ár eftir ár. 7.12.2012 06:00
Skólastarf í framhaldsskólum í skugga niðurskurðar Aðalheiður Steingrímsdóttir skrifar Því er oft haldið fram að lítill niðurskurður hafi orðið í velferðarkerfinu og vísað til forgangsröðunar í ríkisfjármálum. Ætli það sé raunin hjá framhaldsskólum landsins sem eru hluti af velferðarkerfinu? Hefur þeim verið hlíft við niðurskurði? Hver er veruleikinn í skólastarfinu? Hér á eftir verða dregnar fram nokkrar staðreyndir til íhugunar fyrir þá sem standa fyrir utan skólakerfið. 7.12.2012 06:00
„Það mikilvægasta er ósýnilegt berum augum“ Auðbjörg Reynisdóttir skrifar Fyrirsögnin að ofan eru orð litla prinsins í samnefndri bók frá 1943 eftir Antoine De Saint-Exupéry. Ég naut þess að lesa bókina fyrir son minn er hann var yngri enda með betri barnabókum sem skrifaðar hafa verið. Prinsinn varaði vin sinn við því að það mikilvægasta færi fram hjá honum ef hann ekki horfði og hlustaði með hjartanu. „Maður sér ekki vel nema með hjartanu“ endurtók hann í sífellu. Hvað átti prinsinn við? Nú langar mig að segja aðra sögu úr heilbrigðiskerfinu í framhaldi af grein minni hér í blaðinu 16. þessa mánaðar og viðtali við mig þann sautjánda. 7.12.2012 06:00
Spámaður snýr aftur! Steingrímur J. Sigfússon skrifar Fræg er innkoma hins danska Lars Christensen í umræður um íslensk efnahagsmál árið 2006. Lars karlinn var ekki sleginn blindu á ójafnvægið, skuldsetninguna og hætturnar í íslensku efnahagsbólunni eins og flestir hér heima. Hann horfði á mælana, kannaði undirliggjandi hagvísa og dró sínar ályktanir um að hér stefndi í óefni og reyndist sannspár eins og við þekkjum. Nýfrjálshyggju- og útrásarliðið á Íslandi tók gagnrýni hans illa eins og yfirleitt öllu og öllum sem ekki tóku þátt í lofgerðarsöngnum um íslensku snilldina. Lars þótti vera veisluspillir sem stýrðist af litlu öðru en sérstakri tegund af danskri öfund og var þannig afgreiddur út úr umræðunni. 7.12.2012 06:00
Gull Gunnar Hansson skrifar Hvað segir maður við barn sem vinnur allan daginn niðri í þrjátíu metra djúpri holu í svartamyrkri og kæfandi hita? Þar sem súrefni er það lítið að erfitt er að anda? Holan er þröng og eina leiðin út er að klifra upp eftir reipi sem virðist við það að slitna í sundur. Allt í kring eru eins holur með fleiri vinnandi börnum í. Þetta er gullnáma. Börnin eru ódýrt vinnuafl. 7.12.2012 06:00
Helstu átakamál samfélagsins má rekja til íslensku krónunnar Upphrópanir um reikningaskil milli kynslóða eru ekki nýlunda á Íslandi. Meðal þess sem rætt hefur verið um í því sambandi er kynslóðin sem fékk lánin sín að gjöf, þ.e. að þeir sem voru í réttum stjórnmálaflokkum á árunum fyrir verðtryggingu gátu margir hverjir fengið óverðtryggð "lán“ til kaupa á íbúð sem þeir þurftu aldrei að borga til baka nema að óverulegu leyti, þar sem verðbólgan sá um að gera lánin verðlaus áður en þau voru að fullu greidd. 7.12.2012 06:00
Umferðaröryggi, mengun og rekstraröryggi Özur Lárusson skrifar Meðalaldur bílaflotans hér á landi hefur hækkað mikið á síðustu árum enda hrundi bílasala úr 13 þúsundum bíla árið 2008 niður í tæplega þrjú þúsund bíla árið 2009. Heldur hefur salan tekið við sér á síðustu misserum en frá síðasta ári hefur verið gaman að ræða um prósentuaukningu í bílasölu þar sem hún er há. Sama á við um fjölgun nemenda í Finnbogastaðaskóla í Árneshreppi á Ströndum en þar fjölgaði nemendum í vetur um 50%, fór úr fjórum í sex! 7.12.2012 06:00
Spennufíklar í sæstrengsspreng Jón Helgi og Rúnar Þórarinssynir skrifar Fyrir rúmum tveimur áratugum var byggt vatnsraforkuver á S-Grænlandi m.a. með túrbínum framleiddum á Ystafelli í Mývatnssveit. Orkuverið virtist hagkvæmt og lyftistöng fyrir byggðalagið. Eins og með alla framleiðslu í Grænlandi á þeim tíma þurftu eigendurnir að borga 15% af framleiðslugjaldinu í nýlenduskatt til danska ríkisins. 6.12.2012 11:06
Enn betri reglugerð Svandís Svavarsdóttir skrifar Árið 2010 hófst endurskoðun byggingarreglugerðar á grundvelli nýrra mannvirkjalaga en í nefndinni áttu sæti einn verkfræðingur og tveir arkitektar. Því næst voru 60 sérfræðingar tilnefndir af rúmlega 15 hagsmunaaðilum og átta samráðshópar fjölluðu um mismunandi kafla en í hverjum hópi voru haldnir minnst átta fundir. Um er að ræða yfirgripsmikið verk sem margir hafa komið að og lá reglugerðin fyrir um síðustu áramót í núverandi mynd. 6.12.2012 07:00
Fjórir ráðherrar – ekkert að frétta? Sverrir Bollason skrifar Spurt er: Hve litlu geta fjórir ráðherrar komið í verk á einu ári? Svarið má glöggt sjá á árangri vinnu ráðherranefndar í lánsveðsmálum sem var skipuð í febrúar síðastliðnum. Tillögur nefndarinnar áttu að liggja fyrir strax í mars, þar sem hin sérstaka ráðherranefnd átti að útfæra leiðir til að mæta lánsveðshópnum, en ekkert bólar á þeim. 6.12.2012 07:00
Er fótbolti fyrir alla? Kristinn Þór Sigurjónsson skrifar Þjóðfélagsleg áhrif af öflugu íþróttastarfi eru að flestra mati jákvæð þó að það sé oft á tíðum erfitt að benda með óyggjandi hætti á þau. Heilbrigt líferni, félagsleg tengsl og samhugur þjóðar þegar „strákarnir okkar“ koma heim með silfurpeninga eru allt atriði sem eru bein eða óbein afleiðing íþróttastarfs, sama hvaða íþrótt um er að ræða. Á ráðstefnu sem bar yfirskriftina „Skipta íþróttir máli?“ sem haldin var á vegum ÍSÍ og Háskóla Íslands þann 28. nóvember síðastliðinn voru mörg atriði sem komu fram sem benda til jákvæðra áhrifa, en einnig neikvæðra. 6.12.2012 07:00
Ísland: Nyrsta Afríkuríkið? Vilhjálmur Egilsson skrifar Á fundi Samtaka atvinnulífsins um skattamál þann 9. nóvember sl. gat ég þess að í hópi erlendra fjárfesta væri rætt um Ísland sem nyrsta Afríkuríkið. Ástæðu slíkrar nafngiftar má rekja til ýmissa ákvarðana stjórnvalda og atburða sem hér hafa gerst. Bjarni Gíslason, upplýsingafulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar, skrifaði grein í Fréttablaðið þann 27. nóvember sem ekki er hægt að skilja öðruvísi en svo að hann móðgist fyrir hönd Afríku vegna samanburðarins. Í Afríku þurfi ekki að vantreysta orðum allra manna og Eþíópía, Malaví og Úganda eru nefnd til sögunnar en almennt hvatt til fjárfestinga í álfunni. Tilefni er til þess að ræða nokkuð um hvað veldur því að menn taka svona til orða um Ísland. 6.12.2012 06:00
Umræða um lífræn matvæli á villigötum? Sverrir Örn Gunnarsson skrifar Fréttir hafa birst bæði á visir.is og á mbl.is um að lífræn matvæli séu ekki hollari en hefðbundin matvæli. Þó er vitnað í niðurstöður sem sýna að miklu minna af skordýraeitri finnst í lífrænum matvælum en þeim hefðbundnu, sem skiptir í raun og veru mjög miklu máli. Um var að ræða aðeins tveggja ára rannsókn um næringargildi tiltekinna matvæla og rannsóknin tekur þar af leiðandi ekki til greina hugsanlegar langtímaafleiðingar, t.d. af neyslu á skordýraeitri (rannsókn á vegum Stanford-háskólans). Þessu má líkja við rannsóknir á skaðsemi reykinga, sem eru kannski ekki svo miklar til skamms tíma, en til langs tíma, það þarf ekki að spyrja að því. Þannig að það er stór galli á rannsókn sem er að bera saman matvæli en spannar aðeins tvö ár. 6.12.2012 06:00
Þarf lygamæli á bankastjóra Íslandsbanka? Jón Þorvarðarson skrifar Nýleg frétt sem ber yfirskriftina "Segir Íslandsbanka flæktan í fyrirlitlegan hugmyndastuld“ vakti mikla athygli enda raðaði hún sér í fyrsta sæti á Visir.is þann dag sem hún birtist. Fréttin fjallar um stuld bankans á vígorðinu "Reiknaðu með okkur“ sem ég kynnti fyrir Birnu Einarsdóttur og hennar nánasta samstarfsfólki, bæði skriflega og munnlega. Og eins og kunnugt er tók fjármögnunarþjónusta bankans (Ergo) upp umrætt vígorð og beitti sömu hugmyndafræði og ég hafði rækilega kynnt fyrir bankanum. 6.12.2012 06:00
Refaveiðar – vannýtt tekjulind Steinþór Einarsson skrifar Ég greip með mér Bændablaðið um daginn þar sem ég var á ferðinni um Suðurland og meðal fjölda áhugaverðra greina í blaðinu var tilskrif fjárbóndans og alþingismannsins Ásmundar Einars Daðasonar þar sem hann snuprar fyrrum samflokksmann sinn í Vinstri grænum, Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra, fyrir skilningsleysi og fálæti í garð landbúnaðar og landsbyggðar. Erindið við ráðherra er fjölgun heimskautarefsins og niðurskurður opinberra aðila á fjármunum til refaveiða. Eina lausnin á þessum „vanda“ sem fjárbóndinn og þingmaðurinn bendir á er aukin útgjöld úr tómum sjóðum opinberra aðila, sveitarfélaga og ríkis. Eins og endranær sjá sauðfjárbændur enga aðra leið til þess að fjármagna og tryggja framleiðslu sína aðra en þá að auka útgjöld hins opinbera og þar er þingmaðurinn framarlega í flokki. 6.12.2012 06:00
Opið bréf til þingmanna Kristófer Sigurðsson skrifar Ágætu þingmenn Guðrún Erlingsdóttir, Bjarkey Gunnarsdóttir, Ólína Þorvarðardóttir og Álfheiður Ingadóttir. 6.12.2012 06:00
Meiri vinna – minni laun Elsa B. Friðfinnsdóttir skrifar Um mánaðamótin sögðu 254 hjúkrunarfræðingar starfi sínu lausu á Landspítala (LSH). Alls starfa þar 1.348 hjúkrunarfræðingar þannig að tæplega 20% hjúkrunarfræðinga munu hætta störfum á LSH þann 1. mars næstkomandi. Það eru grafalvarleg tíðindi sem þýða það eitt að LSH verður ekki starfræktur í núverandi mynd gangi uppsagnirnar eftir. Stjórnvöld, sem bera ábyrgð á því að landsmönnum standi fullnægjandi heilbrigðisþjónusta til boða, verða að sýna ábyrgð og grípa til aðgerða. 6.12.2012 06:00
Skapandi greinar, menntun og rannsóknir Ólöf Gerður Sigfúsdóttir skrifar Starfshópur á vegum fimm ráðuneyta hefur unnið ítarlega greiningu á starfsumhverfi skapandi greina í nýútkominni skýrslu, Skapandi greinar – sýn til framtíðar. Skýrslan markar tímamót í almennri umræðu um listir og menningu á Íslandi og er mikilvæg viðbót við áður útkomna skýrslu um hagræn áhrif skapandi greina. Í þessari skýrslu er gildi skapandi greina í samfélagi okkar dregið fram og lagður grunnur að þróun faglegrar orðræðu á sviðinu. Auk þess er stjórnsýslulegu umhverfi greinanna lýst og opinber fjárframlög sundurgreind eftir sviðum. Starfshópurinn leggur áherslu á mikilvægi þess að efla list- og starfsmenntun á öllum stigum skólakerfisins en lýsir því jafnframt að fjölgun menntunartækifæra á meistarastigi sé nauðsynleg svo stuðla megi að fagmennsku og góðum undirbúningi fyrir atvinnu- og menningarlíf. Loks lýsir hópurinn skorti á rannsóknum á sviðinu og leggur fram tillögu um að komið verði á fót sérstökum rannsóknasjóði fyrir skapandi greinar, sem vistaður yrði hjá Rannsóknaráði Íslands. 6.12.2012 06:00
Fagna ber samstöðu í öryggismálum Gunnar Alexander Ólafsson og Elvar Örn Arason skrifar Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG og formaður utanríkismálanefndar, gagnrýndi ákvörðun Finnlands og Svíþjóðar um að taka þátt í loftrýmiseftirliti hér á landi í Fréttablaðinu 15. nóvember sl. Það er vissulega rétt hjá Árna Þór að kalda stríðinu lauk með falli Sovétríkjanna í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar. Þrátt fyrir að því sé lokið og nú um stundir sé friðsælt á Norður-Atlantshafi, þá hvarf ekki sú grundvallarskylda íslenskra stjórnvalda að tryggja öryggi og varnir landsins til frambúðar. Markmiðið með samstarfinu er fyrst og fremst að efla öryggi og tryggja sameiginlega hagsmuni svæðisins í heild. 6.12.2012 06:00
Mismunun skal það vera Sigrún Edda Lövdal skrifar Við viljum þakka Oddnýju Sturludóttir skjót viðbrögð við opnu bréfi stjórnar Barnsins, félags dagforeldra í Reykjavík. Í svari Oddnýjar, sem birtist í Fréttablaðinu 20. nóvember sl. staðhæfir hún að það sé rangt hjá okkur að fjárhagslegt sjónarmið ráði því hvort foreldrar velji leikskólavist umfram þjónustu dagforeldra, Oddný veit betur. Í úttekt Fréttablaðsins sem birt var þann 19. nóvember sl. kemur fram að um 400.000 krónur skilja á milli hlutar foreldra í gjaldskrá dagforeldra og svo borgarrekinna leikskóla. Þessi mismunur gefur foreldrum ekki val. Það liggur ljóst fyrir að þetta há upphæð vegur þungt í heimilisbókhaldi barnafjölskyldna í Reykjavík sem margar hverjar hafa þurft að taka á sig þungar byrðar í kjölfar hrunsins 2008. Auðvitað hefur þetta áhrif á fjárhag þeirra, um það þarf Oddný Sturludóttir ekki að efast. 6.12.2012 06:00
Kjördæmapot eða byggðastefnu? Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar Lengi hefur verið talað um kjördæmapot þegar landsbyggðarþingmenn hafa verið að berjast fyrir umbótum í sínu kjördæmi en sjaldan heyrist talað um kjördæmapot Reykjavíkurþingmanna t.d. varðandi Hörpuna, Reykjanesbraut eða Suðurlandsveg. Svo undarlegt sem það nú er. 6.12.2012 06:00
Stuðningur við íslenska hönnun Haukur Már Hauksson skrifar Hönnun er ekki aðeins mikilvægur þáttur í menningu þjóðarinnar; hún er ekki síður mikilvægur þáttur í atvinnulífi hennar. Samkvæmt niðurstöðu hagrænnar rannsóknar á stöðu skapandi greina, sem kynnt var 1. desember 2010, starfa um 10.000 manns innan þessara greina og skapa virðisaukaskattskylda veltu sem nemur að lágmarki 198 milljörðum. Samkvæmt sömu rannsókn nema útflutningstekjur þjóðarinnar af skapandi greinum yfir 24 milljörðum króna. 6.12.2012 06:00
Sýndaráætlun eða sóknaráætlun Sigurjón Þórðarson skrifar Ríkisstjórn Samfylkingar og VG hefur um langt skeið haft í undirbúningi að hleypa af stokkunum nýrri áætlun undir yfirskriftinni Sóknaráætlun landshluta 20/20. Sú hugmyndafræði sem unnið er með er að mínu mati mjög jákvæð, en hún miðar að því að auka svæðisbundna sjálfstjórn í mikilvægum málum og kalla eftir sameiginlegri framtíðarsýn. 6.12.2012 06:00
Kvennaathvarf í þrjátíu ár Sigþrúður Guðmundsdóttir skrifar Í dag eru þrjátíu ár frá því að Kvennaathvarfið hóf starfsemi sína. Í þrjátíu ár hefur sem sagt verið opið athvarf á Íslandi fyrir konur og börn þeirra sem ekki hafa getað búið heima hjá sér vegna ofbeldis. Þær hafa heldur betur vitað hvað þær voru að gera, konurnar sem ruddu brautina fyrir öllum þessum árum og opnuðu Kvennaathvarfið þrátt fyrir að ýmsum þætti hin mesta fásinna að halda því fram að ástæða væri til þess. Mér hefur verið sagt að strax fyrsta kvöldið sem athvarfið var opið hafi kona komið til dvalar með ungan son sinn og síðan hafa konur í þúsundatali lagt leið sína í Kvennaathvarfið til lengri eða skemmri tíma þegar einhver hefur gert þeim lífið óbærilegt heima. 6.12.2012 06:00
Hver er þín afstaða? Opið bréf til alþingismanna Gísli Jónasson skrifar Háttvirti alþingismaður. 6.12.2012 06:00
Hin ógurlega Algebra Guðni Rúnar Jónasson skrifar Kynbundið ofbeldi á sér stað um allan heim í þvílíku magni að við rekumst á vegg þegar við eigum að skynja og skilja tölfræðina sem að baki því liggur. Tölur eins og: Sex hundruð milljónir kvenna búa í löndum þar sem heimilisofbeldi er ekki saknæmt. 45% kvenna í Evrópusambandslöndum hafa orðið fyrir ofbeldi karlmanna. Sjö konur deyja daglega í heiminum af völdum heimilisofbeldis og að lokum þá kostar heimilisofbeldi Evrópulöndin 3.220.480.000.– krónur árlega. Rannsóknir hafa sýnt fram á að í slíkum aðstæðum rekur okkur í vitsmunalegt strand. Við höfum ekki andlegu tólin til að geta unnið úr gögnunum. Eddy Izzard náði þessu eiginlega langbest þegar hann fjallaði um málefnið í uppistandi sínu: „Þú hefur drepið yfir 100.000 manns! Vá! Þú hlýtur að vakna alveg rosalega snemma á morgnana til að ná þessum árangri. Ég kem mér varla í ræktina!“ Við eigum erfitt með að hafa samkennd með tölum og þurfum því að reikna þær niður í stærðir sem við skiljum. 6.12.2012 06:00
Göran Persson: Ljúkið viðræðunum við ESB Össur Skarphéðinsson skrifar Göran Persson, fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar, heimsótti Ísland rétt eftir bankahrunið og flutti magnaða ræðu. Hún var ákall til Íslendinga um þjóðarsamstöðu og úthald. Persson hafði sjálfur tekið þátt í að stýra Svíþjóð gegnum norrænu bankakreppuna upp úr 1990. Á grundvelli þeirrar reynslu hvatti hann Íslendinga til að hlusta ekki á þær raddir, sem vildu fresta því að axla sársaukafullar aðgerðir og sagði okkur að taka slaginn strax. Hann réði okkur heilt. 5.12.2012 06:00
Greiðsla með Vísakorti tryggir ekki endurgreiðslu – forfallatryggingar gagnslausar þegar mest á reynir Erna Guðmundsdóttir Skoðun
Í minningu sonar – og allra þeirra sem aldrei komu heim Kristín Dýrfjörð,Friðrik Þór Guðmundsson Skoðun