Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Neil Young setur Spotify afarkosti vegna Joe Rogan Rokkarinn Neil Young hefur krafist þess að tónlist hans á Spotify verði fjarlægð vegna falsupplýsinga um bóluefni sem Joe Rogan dreifi í hlaðvarpi sínu. Neil Young segir Spotify hafa valið; Neil Young eða Joe Rogan. 25.1.2022 11:48
Taylor Swift ósátt við Damon Albarn Tónlistarkonan Taylor Swift er ekki par sátt við þau orð sem söngvarinn og íslenski ríkisborgarinn Damon Albarn lét falla um hana í viðtali nýlega. Í viðtalinu sakar hann Swift um að semja ekki sína eigin tónlist sjálf. 25.1.2022 11:30
Fann lögreglubúning og hárkollu Á sunnudaginn fór í loftið sjötti þátturinn af Svörtum söndum á Stöð 2. Þorpslæknirinn Salomon heldur áfram að vera mjög dularfullur og margt gruggugt í hans hegðun. 25.1.2022 10:30
Paranafnið „Juliye“ varð fyrir valinu Ye og Julia Fox mættu á fyrsta rauða dregilinn sinn saman, klædd gallaefni frá toppi til táar í stíl og greindu formlega frá paranfninu Juliye á samfélagsmiðlum. Parið mætti saman á tískusýningu hjá KENZO í París og virtist njóta þess að vera saman. Ye og Julia eru búin að vera að hittast síðan um áramótin og hafa verið dugleg að láta sjá sig á hinum ýmsu stöðum en aldrei á formlegum rauðum dregli áður. 25.1.2022 09:49
Bubbi um svörtu gleraugun hjá Hemma Gunn: „Ég var bara út úr stónd“ Bubbi Morthens kveðst muna eftir nánast öllum þeim skiptum sem hann kom fram í þáttum Hemma Gunn. „Það er ástæða fyrir því að ég var alltaf með kolsvört Ray-Ban gleraugu í öllum Hemma Gumm þáttunum, það var bara vegna þess að ég var út úr stónd,“ segir hann. 24.1.2022 20:40
Lisa Snowdon fagnar hálfri öld á Íslandi Lisa Snowdon er nýjasti Íslandsvinurinn og er um þessar mundir að fagna fimmtíu ára afmælinu sínu hér á landi ásamt unnusta sínum George Smart. Parið hafði það huggulegt í Sky Lagoon og var hún dugleg að sýna frá afmælisferðinni á samfélagsmiðli sínum. 24.1.2022 17:30
Lára Clausen hefur fundið ástina Lára Clausen hefur fundið ástina sem hún kynnti til leiks á samfélagsmiðlum sínum á sjálfan bóndadaginn. Kærastinn heitir Benedikt Hlöðversson og eru þau skráð í samband á Facebook. 24.1.2022 15:30
Fyrstur á vettvang þegar tveir hröpuðu í fallhlíf og náðist allt á myndband út af fótboltaleik Lárus Petersen, varðstjóri sem hóf störf hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins síðan 1987, rifjaði upp slys í síðasta þætti af Baklandinu en það átti sér stað á sínum tíma rétt við slökkviliðsstöðina í Skógarhlíðinni. 24.1.2022 14:30
Marengsbotn eins og pönnukaka hjá Gunnari Í síðasta þætti af Blindum bakstri með Evu Laufey Kjaran mættu góðir gestir og kepptu í blindum bakstri. 24.1.2022 12:30
Stjörnulífið: Brúðkaup, bóndadagur og detox í Gdansk Verkfræðingurinn og áhrifavaldurinn Katrín Edda giftist sínum besta vini í Þýskalandi um helgina. 24.1.2022 11:21
Skírð í höfuðið á flugvél Hún hefur slegið í gegn í Svörtu söndum en er svo sannarlega ekki sama týpan og hún leikur. Nei, þessi Icelandair flugfreyja, leikkona, hundakona, handritahöfundur og fagurkeri er lífsglaðari og skemmtilegri en flestir. 24.1.2022 10:31
Eiga fimm hundruð metra eftir á toppinn Þeir Arnar Hauksson og Sebastian Garcia eru nú nærri því að ná á topp Aconcague, hæsta fjalls Ameríku. Myndlistarmaðurinn Tolli ætlaði á topp fjallsins en hætt við í gær. Þeir Arnar og Sebastian áttu einungis fimm hundruð metra eftir á toppinn í morgun. 23.1.2022 12:33
Skráði sig í leiklistarnám eftir að hafa reynt við suður-kóreska Idolið Leikkonan Aldís Amah Hamilton sem slegið hefur í gegn í þáttunum Svörtu söndum á Stöð 2, segir það ekki endilega hafa legið beinast við að hún færi í leiklist. Hún komst til að mynda aldrei inn í nemendasýningu Verzlunarskólans. Eftir að dómari í suður-kóreska Idolinu sagði henni að hún væri með leikhúslega rödd ákvað hún þó að skrá sig í prufur fyrir leiklistarnám við Listaháskólann. 23.1.2022 10:01
Stökkið: „Mér fannst ég vera í bíómynd á hverjum einasta degi“ Alexandra Sif Tryggvadóttir flutti til Los Angeles fyrir átta árum til þess að fara í nám við draumaskólann sinn UCLA. Hún býr þar ásamt kærastanum sínum Birni Jóni Þórssyni og starfar hjá Spotify við spennandi verkefni. 23.1.2022 07:00
Tolli heltist úr lestinni en félagarnir halda ótrauðir á toppinn Myndlistarmaðurinn Tolli Morthens er hættur við að klífa Aconcauga, hæsta fjall Ameríku. Arnar Hauksson og Sebastian Garcia leiðsögumaður hans stefna á að ná toppi fjallsins á morgun. 22.1.2022 19:06
Sonur Reginu King svipti sig lífi Ian Alexander Jr. sonur Óskarsverðlaunahafans Reginu King svipti sig nýverið lífi. Hann átti 26 ára afmæli á miðvikudaginn og var hann einkabarn King sem hún átti með fyrrverandi eiginmanni sínum. 22.1.2022 14:41
Fréttakviss #52: Ertu með á nótunum? Hversu vel fylgist þú með fréttum og líðandi stund? Taktu þátt í Fréttakvissi sem kemur út á laugardögum á Vísi. 22.1.2022 13:01
Fór til Kenía í verknám og endaði á að giftast frægum rappara „Ég vissi alltaf að mig langaði til að starfa innan heilbrigðiskerfisins en var ekki alveg viss hvar,“ segir læknirinn Ásrún Björk Hauksdóttir. 22.1.2022 07:00
Ellefu ára læðan Lúsí ein eftir í heimilisleit hjá Kattholti Mikill kattaskortur virðist vera hér á landi og stefnir ekki í að það muni draga úr eftirspurninni á næstunni. Dæmi eru um að venjulegir kettlingar seljist fyrir tugi þúsunda og er jafnvel mikil eftirspurn eftir eldri köttum. Aðeins einn köttur er nú í heimilisleit hjá Kattholti. 21.1.2022 23:20
Eignuðust dóttur með hjálp staðgöngumóður Ofurhjónin Priyanka Chopra Jonas og Nick Jonas eignuðust sitt fyrsta barn á dögunum þegar staðgöngumóðir ól þeim dóttur. 21.1.2022 23:18
Ferðalöngum létt þegar fregn af áfengisleysi reyndist röng Forseti Íslands var með í för þegar hópur Íslendinga tók leiguflug til Búdapest til þess að hvetja strákana okkar áfram gegn heimsmeisturum Dana á EM í handbolta. Óhætt er að fullyrða að stemningin hafi verið gríðarleg allt frá því að komið var inn í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Fullyrðing eins ferðalangs um að um áfengislaust flug væri að ræða féll hins vegar í grýttan jarðveg. Þá vakti kátínu blaðamanns þegar sjálfur forsetinn var spurður hvort hann væri Íslendingur. 21.1.2022 21:01
Hálfleikssýning Ofurskálarinnar stórstjörnum prýdd í ár Dr. Dre, Snoop Dogg, Eminem, Mary J. Blige og Kendrick Lamar koma fram í hálfleikssýningu Ofurskálarinnar í ár. Pepsi var að gefa út auglýsingu til þess að skapa stemningu fyrir viðburðinum. 21.1.2022 15:20
Sofia Vergara nær óþekkjanleg í nýju hlutverki Leikkonan Sofia Vergara fer með hlutverk eiturlyfjabarónessunnar Griselda Blanco í nýjum Netflix þáttum. Griselda var oft kölluð guðmóðir kókaínsins. 21.1.2022 14:54
Óli Stef kom íslenskri stelpu á Mallorca til bjargar Ólafur Stefánsson, fjórfaldur íþróttamaður ársins og handboltakempa, kom ókunnugri íslenskri menntaskólastelpu til aðstoðar á Mallorca sumarið 2002. Talið var að stelpunni hefði verið byrlað ólyfjan í útskriftarferð. 21.1.2022 14:03
Stockfish hækkar verðlaunafé í stuttmyndasamkeppninni Sprettfiskur Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Sprettfisk, stuttmyndasamkeppni Stockfish kvikmyndahátíðarinnar sem haldin verður í áttunda sinn dagana 24. mars til 3. apríl á þessu ári. Umsóknarfrestur stendur til 10. febrúar næstkomandi. 21.1.2022 13:30
Með viðkvæmt hjarta og tilfinningarnar á yfirborðinu Annie Mist er nýjasti gestur Dóru Júlíu í þáttunum Þetta reddast. 21.1.2022 12:31
Laufey Lin spilaði fyrir Jimmy Kimmel Íslenska tónlistarkonan Laufey Lin Jónsdóttir flutti lagið sitt Like the Movies í spjallþætti Jimmy Kimmel í gærkvöldi. 21.1.2022 10:53
Norðmenn fagna átján ára afmæli Ingiríðar prinsessu Ingiríður Alexandra Noregsprinsessa fagnar átján ára afmæli sínu í dag og hefur dagskrá hennar verið þétt skipuð síðustu daga í tilefni af tímamótunum. 21.1.2022 10:36
Grátandi Adele neyðist til þess að fresta Las Vegas tónleikunum Tónlistarkonan Adele hefur frestað fyrstu tónleikunum í Las Vegas sýningu sinni Weekend with Adele. Söngkonan var miður sín þegar hún kom fram í myndbandi á Instagram og tilkynnti aðdáendum sínum að sýningin væri einfaldlega ekki tilbúin. 21.1.2022 10:34
Meat Loaf er látinn Bandaríski rokkarinn og leikarinn Meat Loaf er látinn, 74 ára að aldri. 21.1.2022 08:05
Króli komst inn í leiklistina Leikarinn og tónlistarmaðurinn Kristinn Óli Haraldsson, betur þekktur sem Króli, komst inn fyrstu tilraun í leiklistarnám við Listaháskóla Íslands í dag. 20.1.2022 22:22
„Þetta er náttúrlega hræðileg hugmynd, að byrja með besta vini sínum og samstarfsfélaga“ Þau Edda Sif og Vilhjálmur kynntust innan veggja RÚV og urðu þau fljótt góðir vinir. Á þeim tímapunkti áttu þau bæði maka og voru þau meira að segja öll saman í matarklúbbi. Það var ekki fyrr en nokkrum árum síðar, þegar þau voru bæði orðin einhleyp að þau fóru að þróa tilfinningar í garð hvors annars. 20.1.2022 22:00
Laddi 75 ára: Skapar nýja karaktera í lyftuspeglum Þórhallur Sigurðsson, best þekktur sem Laddi, fagnar 75 ára afmæli sínu í dag. Stóru afmælissýningunni var þó frestað fram í mars vegna heimsfaraldursins. 20.1.2022 15:40
Æfir einn í herberginu með tennisbolta til að halda sér í formi Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmarkvörður er einn þeirra leikmanna sem greinst hefur með Covid. Hann missir því af næstu leikjum en hefur engar áhyggjur af strákunum á vellinum gegn Dönum í kvöld. 20.1.2022 14:00
Enginn Heimsóknarþáttur tekið lengri tíma í vinnslu Sindri Sindrason leit við hjá Úlfari Finsen í Garðabæ í síðasta þætti af Heimsókn á Stöð 2 en þátturinn var sýndur á gærkvöldi. Úlfar er eigandi Módern verslunarinnar. 20.1.2022 12:30
Britney krefst þess að Jamie Lynn hætti að tala illa um sig Lögmenn Britney Spears hafa farið fram á það að systir hennar, Jamie Lynn, hætti að tala illa um Britney í auglýsingaherferð fyrir bók sem hún var að gefa út. Í bréfi, sem lögmaður Britney hefur sent Jamie Lynn, segir hann sjálfsævisöguna innihalda villandi og fáránlegar staðhæfingar um Britney. 20.1.2022 11:52
Selja handáburði í lopapeysum til styrktar Konukoti Þessa dagana stendur yfir söfnun fyrir Konukot á vegum L’Occitane sem selur handáburði í lopapeysum til styrktar athvarfsins. Prjónasysturnar frá Eyrarbakka þær Ingibjörg Jóhannsdóttir og Sólrún Jóhannsdóttir eru í sjálfboðavinnu við að hanna og prjóna peysurnar. Það renna 1.500 krónur af hverjum seldum handáburði í lopapeysu til Konukots. 20.1.2022 11:30
„Ég er að fara deyja ef ég held þessu áfram“ Sjónvarps- og samfélagsmiðlastjarnan Brynjar Steinn Gylfason, betur þekktu sem Binni Glee, greindi frá því á dögunum að hann glímir við matarfíkn á lokastigi og lotugræðgi. 20.1.2022 10:30
Las fréttirnar í átján ára gömlum jakka úr H&M Fréttakonan María Sigrún Hilmarsdóttir klæddist grænum H&M jakka í fréttunum á RÚV í gær. 19.1.2022 16:30
Vonarstjarna Frakka lést eftir skíðaslys Franski leikarinn Gaspard Ulliel, vonarstjarna í franskri kvikmyndagerð og stjarna í Moon Knight þáttum Marvel sem frumsýndir verða í mars, er látinn eftir skíðaslys. AFP fréttaveitan greinir frá. 19.1.2022 15:33
Úrslitin í fyrsta Krakkakviss þættinum réðust undir lokin Fyrsti þátturinn af Krakkakviss fór í loftið á Stöð 2 á laugardagskvöldið. Þar áttust við nemendur í 5.-7.bekk í nýjum og skemmtilegum spurningaþætti. 19.1.2022 15:30
Einstök útsýnisíbúð í Bríetartúni Á Fasteignavefnum okkar er til sölu útsýnisíbúð á áttundu hæð í Bríetartúni 9 í Reykjavík. Íbúðin er 136,1 fermetrar og uppsett verð er 119 milljónir. 19.1.2022 14:30
„Mjög mikið frelsi þegar ég áttaði mig á því að ég þyrfti ekki að velja og hafna“ Mars Proppé er eðlisfræðinemi við Háskóla Íslands og á sama tíma aktívisti sem hefur vakið athygli að undanförnu fyrir baráttu sína fyrir auknum sýnileika og réttindum kynsegin fólks. 19.1.2022 12:31
Herra Hnetusmjör og Sara eignuðust annan dreng Rapparinn Herra Hnetusmjör og kærasta hans, Sara Linneth Lovísudóttir Castañeda, eignuðust sitt annað barn þann 16. janúar. Parið segir frá þessu á Instagram en drengurinn hefur fengið nafnið Krummi Steinn Árnason Castañeda. 19.1.2022 11:29
Birti eina af síðustu myndunum af Betty White sem hefði orðið hundrað ára Aðstoðarkona Betty White heitinnar, bandarísku leikkonunnar sem lést síðastliðinn gamlársdag, birti í fyrradag mynd sem hún sagði vera meðal þeirra síðustu sem teknar voru af leikkonunni. Myndina birti hún í tilefni þess að White hefði fagnað hundrað ára afmæli í gær. 19.1.2022 08:01