Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Glæsileiki á Golden Globe Golden Globe verðlaunahátíðin fór fram með pompi og pragt á sunnudaginn í Los Angeles. Fræga fólkið gekk varlega niður rauða dregilinn enda í sviðsljósinu og ekki gott að stíga feilspor, sérstaklega ekki í fatavali. Kjólarnir sem sáust á hátíðinni voru flestir fallegir og var hið svokallaða „hafmeyjusnið“ áberandi. 17.1.2012 06:30
Fór í mótorhjólaferð um Evrópu Írski leikarinn Michael Fassbender ákvað að skella sér í mótorhjólaferð um alla Evrópu eftir mikla törn á árinu 2011. Fassbender lék í sex kvikmyndum á aðeins tuttugu mánuðum og hafði verið að störfum í næstum tvö ár samfleytt. Þetta tók sinn toll og því ákvað leikarinn að bjóða föður sínum og besta vini á flakk um heimsálfuna. 16.1.2012 23:30
Craig og Weisz kaupa sér lúxusíbúð James Bond-leikarinn Daniel Craig og eiginkona hans, Rachel Weisz, hafa fjárfest í sex herbergja íbúð í SoHo-hverfinu í New York. Íbúðin skartar meðal annars þremur baðherbergjum, sjónvarpsherbergi með arni og sér þakgarði. Skötuhjúin þurftu að borga 11,5 milljónir dollara samkvæmt New York Post. 16.1.2012 23:00
Ósáttur við kærasta J-Lo Marc Anthony er sagður mjög ósáttur við framferði fyrrverandi eiginkonu sinnar, söngkonunnar Jennifer Lopez, og ungs kærasta hennar. Lopez tók saman við dansarann Casper Smart stuttu eftir skilnaðinn við Anthony og hefur þegar kynnt hann fyrir börnum sínum tveimur. 16.1.2012 22:30
Madonna leyfir söngleik Bandaríska söngkonan Madonna hefur opnað á þann möguleika að lög hennar verði notuð í söngleik. Þetta kemur fram í viðtali við hana í breska blaðinu Daily Star. 16.1.2012 22:00
Help Them komist að erlendis Verið er að kanna möguleikann á að gefa út erlendis ensku útgáfuna af laginu Hjálpum þeim, eða Help Them. „Þetta var gefið út í samvinnu við Hjálparstofnun kirkjunnar. Ætlunin er að koma þessu á framfæri í gegnum samtök sem þau eru tengd sem heita Act Alliance," segir Jóhann G. Jóhannssonar, annar af höfundum lagsins. 16.1.2012 21:30
Lág stefgjöldin fyrir Thank You Stefgjöldin sem hljómsveitin Dikta fékk fyrir lagið Thank You í desember voru mun lægri en hún átti von á. Lagið var eitt það vinsælasta árið 2010 og mikið spilað í útvarpinu en það virðist ekki hafa dugað til. 16.1.2012 21:00
Sex pör úr ungu Hollywood Ný kynslóð leikara og söngvara hefur verið að ryðja sér til rúms í Hollywood síðustu ár og líkt og gengur og gerist hefur þetta unga, myndarlega fólk verið að draga sig saman. 16.1.2012 20:00
Jón Gnarr óttast ekki norska meðhöndlun „Mig myndi langa mjög mikið til að heimsækja þá. Og sem borgarstjóri getur maður náttúrlega komið í kring ýmsum hlutum," segir Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkurborgar. 16.1.2012 19:00
Hannes hrifinn af Meryl "Meryl Streep vinnur mikinn leiksigur í myndinni. Hún er mjög sannfærandi sem Margaret Thatcher og nær henni mjög vel," segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. 16.1.2012 18:00
Stefnir á Ólympíuleikana 2016 Jón Þór Sigurðsson, eða Nonni kjuði, trommari hljómsveitarinnar Diktu, stefnir á þátttöku í Ólympíuleikunum í Brasilíu 2016 í skotfimi. „Núna er stefnan tekin á að standa sig vel hérna heima. Svo er aldrei að vita nema maður taki stefnuna á Ólympíuleikana 2016,“ segir Nonni. 16.1.2012 17:00
Vá hvað þessi kjóll er svakalega fleginn Fyrirsætan Erin Wasson stal senunni á Golden Globe verðlaunahátíðinni vægast sagt eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þar sem örþunnur fleginn kjóllinn hennar huldi ekki stóran hluta líkama hennar... 16.1.2012 16:30
Bubbi færir sig yfir á Bylgjuna "Mig langaði til að halda áfram að þróa þetta form, mér finnst þetta æðislega skemmtilegt. Og svo er líka heilt haf af ungum tónlistarmönnum sem enn á eftir að kanna,“ segir Bubbi Morthens. Bubbi er hættur með þátt sinn Færibandið á Rás 2 og hefur fært sig yfir á Bylgjuna þar sem hann byrjar með nýjan þátt, Stál og hnífur, eftir rúma viku á mánudagskvöldum. 16.1.2012 16:00
Edrú John Grant Bandaríski tónlistarmaðurinn John Grant sneri aftur hingað til lands 9. janúar eftir að hafa spilað á Airwaves-hátíðinni síðasta haust við góðar undirtektir. Hann ætlar að dvelja á landinu til næstu mánaðamóta, eða í um þrjár vikur. 16.1.2012 16:00
Engum leiddist þarna Meðfylgjandi myndir voru teknar um helgina á Kjarvalsstöðum á opnun málverkasýningu Karenar Agnete Þórarinsson og arkitektasýningu frá norska arkitektastórveldinu Snøhetta... 16.1.2012 14:15
Sniðgengu Golden Globe glamúrinn Leikarahjónin Penelope Cruz, 37 ára og Javier Bardem, 42 ára, sem hafa verið gift í 18 mánuði, mættu ekki á Golden Globe verðlaunaafhendinguna í gærkvöldi... 16.1.2012 12:45
Demi dafnar vel eftir skilnað Eins og sjá má í meðfylgjandi myndasafni dafnar leikkonan Demi Moore, 49 ára, vel eftir skilnað hennar og leikarans Ashton Kutcher... 16.1.2012 12:15
Páfagaukurinn ljúfur mótleikari Einar Aðalsteinsson leikari fer með aðalhlutverkið í Gulleyjunni sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir í samstarfi við Borgarleikhúsið 27. janúar næstkomandi. Einar leikur þar á móti tónlistarmanninum Birni Jörundi Friðbjörnssyni og páfagauknum Joshua. 16.1.2012 12:00
Tíu sveitir sem neyddust til að breyta nafninu sínu Margar hljómsveitir hafa þurft að breyta nafni sínu eftir að kom í ljós að einhver annar var á undan þeim með nafnið. Skemmst er að minnast deilu hinna hollensku og íslensku Maus. Hin íslenska Maus á einkaréttinn á nafninu í Evrópu og því er hin hollenska nauðbeygð til að skipta um sitt nafn. Fréttablaðið skoðaði tíu aðrar hljómsveitir sem hafa lent í svipuðum vandræðum og hin hollenska Maus. 16.1.2012 11:00
Valin úr 5.000 stuttmyndum "Það verða 28 myndir frá Bandaríkjunum eða Kanada og bara ein önnur mynd frá Evrópu. Þannig að við ætlum einhvern veginn að vera fulltrúar Evrópu. Segjum það bara,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Helgi Jóhannsson. 16.1.2012 10:30
Þessir kjólar eru sko ekkert slor Golden Globe verðlaunahátíðin fór fram í Los Angeles í gærkvöldi þar sem þögla svart-hvíta myndin The Artist var sigurvegari kvöldsins eins og lesa má hér. Meðfylgjandi má sjá kjólana sem stjörnurnar klæddust á rauða dreglinum sem voru sko ekkert slor! 16.1.2012 09:30
Don McLean höfundur American Pie til Íslands Bandaríski söngvarinn, lagahöfundurinn og Grammy-verðlaunahafinn Don McLean spilar í Háskólabíói 17. október. Hann er þekktastur fyrir lagið American Pie sem er eitt það vinsælasta í tónlistarsögunni. 16.1.2012 09:00
Mun ekki mygla á rassinum Tónlistarmaðurinn Sigtryggur Baldursson, einnig þekktur sem Bogomil Font, tekur innan skamms við stöðu framkvæmdastjóra Útón, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar. Hann sagði Kjartani Guðmundssyni frá bransanum, góðri gagnrýni og Kópavogi. 15.1.2012 22:00
Frelsið getur verið flókið Fyrir rúmum tveimur áratugum var Lolita Urboniene stödd í hringiðu dramatískra atburða í Vilnius. Í gærmorgun kveikti hún á kerti til minningar um fórnarlömb sovéskra hersveita 13. janúar 1991. 15.1.2012 21:00
Ég er sérstakur sendiboði Guðs Kontrabassaleikarinn og útvarpsmaðurinn Smutty Smiff var virkur í endurreisn rokkabillítónlistarinnar í lok áttunda áratugarins. Hann hefur nú búið á Íslandi í fimm ár og berst fyrir uppgangi rokkabillísins hér á landi. 15.1.2012 16:45
Sumar mömmur eru sjóðheitar Ástralska fyrirsætan Miranda Kerr, 28 ára, pósaði á rauða dreglinum í hvítum kjól eins og sjá má á meðfylgjandi myndum... 14.1.2012 15:00
Adele og kærastinn Breska söngkonan Adele, 23 ára og unnusti hennar Simon Konecki, 36 ára, yfirgáfu asískan veitingastað í London glóð að sjá. Eins og sjá má á myndunum knúsar parið krúttlegan hund sem varð á vegi þeirra. Adele er tilnefnd til sex Golden Globe verðlauna í ár og þar á meðal plötu ársins. 14.1.2012 11:15
The Artist besta myndin The Artist stóð uppi sem sigurvegari hjá samtökum gagnrýnenda í Bandaríkjunum á fimmtudagskvöld. Þessi svarthvíta-kvikmynd þykir líkleg til sigra á Golden Globe-hátíðinni sem haldin verður á sunnudaginn. George Clooney hélt áfram sigurgöngu sinni en hann var valinn besti leikarinn fyrir frammistöðu sína í The Descendants. 14.1.2012 11:00
Passar mataræðið og stundar jóga Leikkonan Charlize Theron borðar mikið af ávöxtum og grænmeti og reynir að hreyfa sig daglega. Hún sækir jógatíma... 13.1.2012 15:30
Nilla refsað af landsliðinu "Ég átti nú ekki von á því að þeir myndu fara svona illa með mig," segir Nilli úr Týndu kynslóðinni sem mætti á æfingu hjá íslenska handboltalandsliðinu í gær. Hann hafði tapað veðmáli gegn Birni Braga, stjórnanda þáttarins, og fékk markvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson, sem er aðalgestur þáttarins í kvöld, að velja refsingu fyrir Nilla. 13.1.2012 15:00
Kaupir inn kasólétt Leikkonan Jennifer Garner, 39 ára, verslaði í matvöruversluninni Whole Foods í gær í Brentwood í Kaliforníu. Eins og sjá má er Jennifer í fullu fjöri þrátt fyrir að vera gengin níu mánuði. Jennifer og eiginmaður hennar, leikarinn Ben Affleck eiga saman tvær stúlkur fyrir. 13.1.2012 12:30
Umdeild fæðing Blue Ivy Tónlistarhjónin Beyonce Knowles og Jay-Z eignuðust sitt fyrsta barn á Lenox Hill sjúkrahúsinu í New York á laugardaginn síðasta. Stúlkan hlaut nafnið Blue Ivy Carter og hafa fjölmiðlar birt margar furðulegar fréttir um fæðingu barnsins. 13.1.2012 12:00
Youtube hafnar Félagi tónskálda og textahöfunda „Það eru allir í heiminum að klóra sér í hausnum yfir því hvernig rétthafarnir, þeir sem að eiga músíkina, geti eignast hlutdeild í arðinum sem er að þessu efni í net- og símheimum.“ segir Jakob Frímann Magnússon, formaður FTT, Félags tónskálda og textahöfunda. 13.1.2012 11:30
Hvað ertu með upp í þér maður? Ef myndirnar sem teknar voru í St. Barts í gær eru skoðaðar gaumgæfilega má sjá að sjónvarpsstjarnan Simon Cowell er með eitthvað sem líkist ávexti upp í sér þar sem hann nýtur sín á lúxussnekkju sem er langt frá því að vera árabátur... 13.1.2012 11:15
Skaupið kostaði 30 milljónir Framleiðslukostnaður við Áramótaskaup Sjónvarpsins var þrjátíu milljónir samkvæmt upplýsingum frá Páli Magnússyni, Útvarpsstjóra. Gunnar Björn Guðmundsson leikstýrði því þriðja árið í röð en Skaupið þótti nokkuð umdeilt í ár; Sjálfstæðismenn kvörtuðu undan því á vefmiðlum og þá setti Eiður Guðnason, fyrrverandi ráðherra, fram harða gagnrýni á bloggsíðu sinni á brandara um útrás Íslendinga til Noregs en þar fannst honum voðaverkin í Útey vera höfð í flimtingum. 13.1.2012 11:00
Ómáluð Glee stjarna Glee stjarnan Lea Michele, 25 ára, var glæsileg á rauða dreglinum á verðlaunahátíðinni People's Choice Awards klædd í hvítan Marchesa kjól og Jimmy Choo skóm... 13.1.2012 10:00
Ebert ekki hrifinn af Contraband Tveir af virtustu gagnrýnendum Bandaríkjanna eru ekki sammála um ágæti Contraband, fyrstu Hollywood-kvikmyndar Baltasars Kormáks. Myndin verður frumsýnd í dag í Bandaríkjunum í 3.300 kvikmyndasölum en hún er dýrasta kvikmynd íslensks leikstjóra, kostaði tæplega 41 milljón dollara í framleiðslu. Myndin verður frumsýnd hér á landi í næstu viku. 13.1.2012 09:45
Tónleikaferð um heiminn Madonna hefur í hyggju að fara í tónleikaferð um heiminn á þessu ári. Tilefnið er tólfta hljóðversplata hennar, MDNA, sem kemur út í vor. 13.1.2012 09:00
Spilar í fimm klukkutíma Óli Ofur heldur upp á tíu ára plötusnúðaafmælið sitt á laugardaginn með því að slá upp stóru klúbbakvöldi á Nasa. Hann ætlar sjálfur að spila allt kvöldið, eða í um fimm klukkutíma. 13.1.2012 07:00
Stjörnu-sýning í Nokia-höllinni Engin hörgull var á stórstjörnum þegar People‘s Choice Awards voru afhent í Nokia-höllinni í Los Angeles þrátt fyrir að helstu sigurvegarar kvöldsins hefðu verið víðsfjarri. 13.1.2012 07:00
Uppselt hálfu ári fyrir sýningu Miðar á sérstakar miðnætursýningar The Dark Knight Rises, nýjustu Batman-myndarinnar, eru þegar orðnir uppseldir í Bandaríkjunum, um sex mánuðum áður en myndin kemur út 20. júlí. 13.1.2012 04:15
Björk tilnefnd til BRIT verðlaunanna Tónlistarkonan Björk hefur verið tilnefnd til BRIT verðlauna sem áhrifamesti alþjóðlegi kvennlistamaðurinn. Ásamt Björk eru Beyonce, Feist, Lady Gaga og Rihanna tilnefndar. 12.1.2012 23:52
Þórunn Antonía og Nilli í skyrglímu Sjónvarpsþátturinn Týnda kynslóðin hefur aftur göngu sína á föstudagskvöld. Í fyrsta þætti ársins verður Björgvin Páll Gústavsson, markvörður íslenska handboltalandsliðsins, aðalgestur þáttarins og herma fregnir Vísis að Nilli hafi fengið vægast sagt slæma útreið hjá leikmönnum landsliðsins. 12.1.2012 19:04
Ný klipping Kutcher í krúttlegri kantinum Eins og sjá má á myndunum er ný klipping leikarans Ashton Kutcher í krúttlegri kantinum. Ashton, sem gekk að eiga leikkonuna Demi Moore 24. september árið 2005, skildi við hana nokkrum framhjáhöldum síðar... 12.1.2012 17:30
Eins árs stúlka lætur ljósmynda sig með stórstjörnum Þrátt fyrir að vera aðeins eins árs gömul hefur Tyler litla hitt stjörnur á borð George Clooney, Johnny Depp og Meryl Streep. Móðir hennar hefur mætt á rúmlega 60 frumsýningar og krefst þess að stjörnurnar sitji fyrir á mynd ásamt dóttur sinni. 12.1.2012 21:41