Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mamma reynir ekki að græða á mér Leikkonan Blake Lively, 23 ára, segir að mamma hennar komi henni stöðugt á óvart því hún reyni ekki að hafa peninga af sér eftir að hún skaust hratt upp á stjörnuhimininn í Hollywood. Blake leikur Serenu Van Der Woodsen í sjónvarpsþáttaröðinni Gossip Girl sem sýnd er á Stöð 2. Umboðsmaður Blake er móðir hennar en hún hefur aldrei misnotað aðstoðu sína gagnvart henni að sögn Blake. „Mamma er mögnuð kona því hún sinnir móðurhlutverkinu vel. Hún vill ekki prósentur af laununum mínum þrátt fyrir að sjá um mín mál." 14.9.2010 13:00
Hollywoodkynslóðin hittist Meðfylgjandi myndir voru teknar á skemmtistaðnum Broadway um helgina þegar Hollywoodkynslóðin svokallaða rifjaði upp skemmtilega tíma. Ljósmyndarinn Thorgeir.com náði að fanga gleðina sem ríkti á meðal gesta staðarins. 14.9.2010 11:30
Gaga með átta MTV-verðlaun MTV-myndbandaverðlaunin voru afhent um helgina í Los Angeles. Lady Gaga hirti flest verðlaun allra. 14.9.2010 10:30
Öskraði eftir erfiðar kynlífssenur Leikkonan Michelle Williams leikur í átakanlegum kynlífssenum á móti leikaranum Ryan Gosling í nýrri kvikmynd sem ber heitið Blue Valentine. Michelle fannst erfitt að leika í kynlífssenunum. Hún hataði hverja einustu sekúndu á meðan á tökunum stóð. Eftir tökurnar, sem tóku nokkra daga, öskraði hún út um bílgluggann á leiðinni heim úr vinnunni til að losa um streituna sem hún upplifði. „Við æfðum senurnar í marga daga í röð og það voru erifðir dagar," sagði Michelle. „Í byrjun gengu tökurnar á létta þægilegar ástarsenur en þegar við lékum kynlífsatriðin var tilfinningin ömurleg. Tökurnar stóðu yfir heila eilífð. Ég keyrði langa vegalengd heim úr vinnunni á hverjum degi og setti höfuðið út um gluggann og öskraði af öllum lífsins sálar kröftum. Þannig tókst ég á við óþægilegheitin," sagði hún. 14.9.2010 09:15
Ljúka tónleikaferð á Íslandi Gítarleikarinn Sigurður Rögnvaldsson, sem er búsettur í Svíþjóð, heldur tvenna tónleika hér á landi annað kvöld og fimmtudagskvöld með hljómsveitinni Defekt. Tónleikarnir verða þeir síðustu í tónleikaferð sveitarinnar um Norðurlönd til að fylgja eftir plötunni Pete’s Game Machine. Tónlistinni má lýsa sem djassi með áhrifum frá rokki, poppi og brimbrettatónlist. 14.9.2010 09:00
Tvö ný andlit í Gettu betur Spyrillinn Edda Hermannsdóttir og stigavörðurinn Marteinn Sindri Jónsson eru ný andlit spurningakeppninnar Gettu betur sem hefur göngu sína í Sjónvarpinu 19. febrúar. Höfundur spurninga verður sá sami og áður, Örn Úlfar Sævarsson. 14.9.2010 07:00
Uppvakningur gleymdist „Við réðumst í miklar endurbætur fyrir hálfu ári og þá kom sér vel að það varð eitthvert smáræði eftir sem við gátum nýtt okkur,“ segir Benedikt Guðmundsson hjá Draugasetrinu á Stokkseyri. 14.9.2010 06:00
Kolsvartur pakki frá XIII Rokksveitin XIII sendir frá sér tvöföldu plötuna Black Box í dag. Þar verða öll bestu lög sveitarinnar ásamt sjö nýjum lögum sem voru tekin upp í sumar. „Við erum búnir að spila mikið undanfarið ár og höfum fundið fyrir miklum áhuga,“ segir forsprakkinn Hallur Ingólfsson. 13.9.2010 20:00
Afþreyingin víkur fyrir Óskarsvænni dramatík Afþreyingarmyndir sumarsins sem hafa tröllriðið kvikmyndahúsum eru að hverfa á braut og eins og venjan er fylla alvarlegri og Óskarsvænni myndir þeirra skörð. 13.9.2010 17:30
Bannað að lyfta lóðum Leikkonan Christina Hendricks hefur verið bannað að lyfta lóðum í líkamsræktinni vegna vinnunnar en hún fer með hlutverk Joan Harris í sjónarpsþáttunum Mad Men, sem sýndur er á Stöð 2, þar sem mikið er lagt upp úr trúverðugleika karakterana. Christina heldur sér í formi með því að hreyfa sig þrisvar í viku en nú hefur henni verið bannað að lyfta lóðum í ræktinni. Handritshöfundur þáttanna, Matthew Weiner, hefur sannfært Christinu um að hætta að lyfta þungum lóðum því hann vill ekki að hún verði stæltari. „Matt myndi klikkast ef hann sæi massaðan handlegg því hann vill ekki að neitt sé í anda ársins 2010," sagði Christina. Christina er stolt af líkama sínum og hefur engan áhuga á að grenna sig, hvað þá létta sig. Foreldrar Christinu kenndu henni að vera stolta af því hvernig hún er vaxin. 13.9.2010 16:30
Sagði börnunum ekki frá krabbameininu Leikkonan Marcia Cross, 48 ára, sagði börnum sínum ekki frá því þegar pabbi þeirra greindist með krabbamein. Desperate Housewives leikkonan á þriggja ára gamlar tvíburadætur, Eden og Savönnuh, með eiginmanni sínum Tom Mahoney. Tom fékk krabbamein á síðasta ári. Í dag lítur allt út fyrir að Tom hafi náð að sigrast á krabbameininu eftir að hafa farið í gegnum lyfjameðferð. Marcia var óttaslegin þegar Tom fékk fréttirnar en upplýsti ekki ungar stúlkurnar sínar því hún vildi ekki hræða þær. Við ákváðum að segja þeim ekki frá því þó við vissum ekki hvernig heilsa Tom yrði," sagði Marcia. Þær njóta tilverunnar áhyggjulausr og pabbi þeirra er hraustur í dag. Veikindin tilheyra fortíðinni og hann vill ekki segja þeim frá því strax," sagið hún. 13.9.2010 15:00
Æfir 5 sinnum í viku Danska leikkonan Brigitte Nielsen, 47 ára, er ánægð með líkama sinn sem er í það góðu formi að hún gæti auðveldlega tekið að sér að leika í spennumynd þar sem útlit og úthald þarf að vera framurskarandi að hennar sögn. Brigitte sem skildi við leikarann Sylvester Stallone árið 1987,hefur æft eins og enginn væri morgundagurinn undanfarin ár. Ég hef lést gríðarlega mikið síðan ég byrjaði að æfa og taka mataræðið íg egn og mér líður frábærlega vel með líkama minn á ný, sagði Brigitte. Hún segir að líkamsræktin taki töluverðan tíma frá annasamri dagskrá en það sé svo sannarlega þess virði því útkoman er frábær. Ég neyðist til að æfa fimm sinnum í viku í klukkutíma sí senn svo ég sjái árangur sem ég er ánægð m eð," sagið hún. 13.9.2010 13:00
Brjóstagjöf lykill að kjörþyngd Mamma brasilísku ofurfyrirsætunnar Gisele Bündchen er hetjan hennar. Gisele, sem á soninn Benjamin fyrir níu mánuðum, með eiginmanni sínum Tom Brady elskar móðurhlutverkið. Mamma hennar, Vânia, er fyrirmyndin í lílfi hennar. Mamma er hetjan mín. Ég kann virkilega að meta allt sem hún hefur gert. Hún ól upp sex börn samhliða vinnunni og nágrannarnir hjálpuðu okkur. Hverfið var eins og ein stór fjölskylda," sagði Gisele. Gisele var mætt aftur í vinnuna aðeins sex vikum eftir að hún eignaðist drenginn en hún þurfti ekki að hafa mikið fyrir því að grennast aftur. Hún borðaði holla fæðu yfir meðgönguna og heldur því fram að brjóstagjöfin hafi hjálpað til að ná kjörþyngd á ný. Hún tekur drenginn með sér hvert sem hún fer. Ég er svo heppin að geta tekið hann með mér hvert sem ég fer. Ég geri ekkert án hans. Við höfum verið aðskilin í þrjá klukkutíma," sagði Gisele. 13.9.2010 11:30
Troðfullt á súlukeppni Meðfylgjandi myndir voru teknar á Íslandmeistaramótinu í Súluformi sem fram fór Re-Play Sportbar um helgina. „Keppnin gekk afskaplega vel. Stelpurnar sýndu atriðin sín sem voru ekkert smá flott. Húsið var troðið og mögnuð stemming," svaraði Inga Dungal framkvæmdastjóri keppninnar spurð hvernig til tókst. Sólveig Steinunn Pálsdóttir sigraði en hana sjá hér (youtube) og Eva Rut Hjaltadóttir landaði öðru sætinu eins og sjá má hér (youtube). Myndirnar tók Sveinbi ljósmyndari hjá Súperman.is. 13.9.2010 10:15
Tískuvikurnar byrjaðar Nú eru tískuvikur haustsins að fara af stað og er það New York sem reið á vaðið um helgina. Verið er að sýna tískustrauma og stefnur næsta vors og sumars. Stjörnurnar flykkjast til borgarinnar til að sýna sig og sjá aðra sem og að drekka í sig tískuna. 13.9.2010 10:00
Victoria nakin í lyftu Hjónin David og Victoria Beckham leika saman í sjónvarpsauglýsingu fyrir nýtt ilmvatn sem ber nafnið 13.9.2010 09:45
Óútgefin bók Jónínu seld til Þýskalands Þýska forlagið Kiepenheuer und Witsch hefur fest kaup á óútgefinni bók Jónínu Leósdóttur. Bókin kemur út í nóvember hér á landi en Þjóðverjarnir hrifust svo af handritinu að þeir ákváðu að eigna sér það strax. 13.9.2010 14:00
Ófáanlegar gersemar „Okkur finnst þetta vera ófáanlegar gersemar sem eru að koma út. Við teljum þetta vera poppsögulegt innlegg,“ segir Karl Roth úr hljómsveitinni Melchior sem gaf fyrir skömmu út tvöföldu plötuna Um er að ræða 13.9.2010 13:00
Noel frestar plötuútgáfu Noel Gallagher, gáfaða bróðurnum úr Oasis, liggur ekkert á að taka upp nýtt efni fyrir sólóplötu sína. Hann ætlar að einbeita sér að komandi erfingja. Noel yfirgaf Oasis í ágúst á síðasta ári eftir að hafa lent í slag við yngri 13.9.2010 12:00
Jay-Z vill eiga Arsenal Rapparinn Jay-Z hefur mjög mikinn áhuga á að fjárfesta í enska úrvalsdeildarliðinu Arsenal. Jay-Z, sem er kvæntur söngkonunni Beyoncé Knowles, hefur verið aðdáandi liðsins síðan Frakkinn Thierry Henry lék með því fyrir nokkrum árum. 13.9.2010 10:00
Skólahreysti vettvangur nýrrar bíómyndar Unglingakeppnin Skólahreysti, þar sem grunnskólnemar landsins keppa í allskyns íþróttaþrautum, verður miðpunktur nýrrar íslenskra unglingamyndar sem framleiðslufyrirtækið Saga Film hyggst gera. 13.9.2010 09:00
Hefur ekki sungið í fimmtán ár Jónmundur Grétarsson gerði garðinn frægann fyrir fimmtán árum í leikritinu Bugsy Malone þar sem hann heillaði áhorfendur með sóp í hönd raulandi lagið „Á morgun“. Nú hefur hann ákveðið að dusta rykið af leikaraferlinum og fer með hlutverk Sams Cook í söngleiknum Buddy Holly. „Það hefur alltaf 13.9.2010 08:00
Sér fyrir endann hjá Kylie Söngkonan Kylie Minogue segist enn eiga í erfiðleikum vegna krabbameinsmeðferðar sinnar en hlakkar til þegar henni lýkur á næsta ári. Eins og kunnugt er greindist Kylie með brjóstakrabbamein árið 2005 og nú fimm árum síðar er hún enn í lyfjameðferð sem á að tryggja að sjúkdómurinn taki sig ekki upp að nýju. 13.9.2010 07:00
Smith-barnið í tónlistina Willow Smith, níu ára gömul dóttir leikarahjónanna Wills Smith og Jada Pinkett Smith, er að hasla sér völl innan tónlistargeirans. Fyrsta smáskífa stúlkunnar hefur lekið á Netið og fær afbragðs dóma, meðal annars frá gagnrýnanda LA Times. Laginu „Whip my hair“ er sagt geta verið frá stórstjörnum á borð við Rihönnu og Keri Hilson og þykir Willow Smith hafa alla burði til að ná langt á sviði tónlistar. 13.9.2010 06:00
Sofia Coppola sigraði í Feneyjum Leikstjórinn Sofia Coppola hlaut Gullna ljónið á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum um helgina fyrir kvikmynd sína Somewhere. Myndin fjallar um Hollywoodstjörnu sem reynir að ná aftur til ungrar dóttur sinnar. Með aðalhlutverk í myndinni fara Stephen Dorff og Elle Fanning. 13.9.2010 06:00
Vinalaus og skrýtin Leikkonan Taylor Momsen, 17 ára, var skrýtin sem barn, átti örfáa vini og feimin. 12.9.2010 19:39
Útvarp er leikhús ímyndunaraflsins Vetrardagskrá Útvarpsleikhússins hefst á sunnudag þegar leikritið Djúpið eftir Jón Atla Jónasson verður frumflutt. Útvarpsleikhúsið hefur breyst frá því sem var, að mati Viðars Eggertssonar leikhússtjóra og forsendur og möguleikar útvarpsins höfð í fyrirrúmi. 12.9.2010 10:30
Trúarvakning í bókaútgáfu Bókaforlagið Veröld hefur gefið út bókina Þú sem ert á himnum – rýnt í bresti biblíunnar með guði almáttugum eftir Úlfar Þormóðsson. Í bókinni fer Úlfar í 12.9.2010 08:30
Röddin aldrei verið betri Ómar Ragnarsson heldur tvenna tónleika í Salnum í tilefni af sjötugsafmæli sínu. Hann lofar fjöri frá upphafi til enda. 11.9.2010 16:30
Ólafur biskup í hlandskálum „Það tókst aldrei að dæma hann og okkur fannst það leiðinlegt. Þetta er okkar framlag í því máli,“ segir Össur Hafþórsson, einn af eigendum skemmtistaðarins Sódómu Reykjavík. 11.9.2010 15:30
Orðin sérfræðingur um kossa og kynlífsstellingar „Þetta er náttúrlega aðallega bara hrikalega óþægilegt, að lýsa kynlífsathöfnum í smáatriðum,“ segir Anna Svava Knútsdóttir leikkona hlæjandi en hún er þessa dagana að leggja lokahönd á handrit að sjónvarpsþáttum byggðum á bókinni Makalaus. Fylgifiskur þess er að 11.9.2010 14:00
Leikur alka í nýrri mynd Samkvæmt breska blaðinu Daily Mail hefur Gwyneth Paltrow samþykkt að leika áfengissjúka tónlistarkonu í kvikmyndinni Country Strong. Gwyneth er auðvitað gift Chris Martin, oftast kenndum við Coldplay, og því ættu 11.9.2010 13:00
Í brúðkaupsferð til Ítalíu Anna Paquin og eiginmaður hennar, Stephen Moyer, eru nú stödd í Ravello á Ítalíu til að halda upp á brúðkaup sitt. Þau játuðust hvort öðru í Malibu fyrir tveimur vikum og sáust ákaflega hamingjusöm á hinum vinsæla ferðamannastað, Amalfi-ströndinni, á mánudag. 11.9.2010 12:00
Europe-stjóri aðstoðaði Noise Bandaríski upptökustjórinn Beau Hill lagði lokahönd á þriðju plötu rokksveitarinnar Noise sem kemur út á mánudaginn. Hann er þekktastur fyrir að hafa tekið upp plötur með Alice Cooper, Warrant og Europe og hafa þær útgáfur selst í hátt í fimmtíu milljónum eintaka. 11.9.2010 10:00
Lou Reed vildi ekki sjá Boyle Breskir fjölmiðlar greindu frá því í vikunni að farþegar hefðu kvartað undan ónæði af hálfu söngkonunnar Susan Boyle um borð í flugi frá New York til London í vikunni. Boyle ku hafa sungið hátt og grátið með reglulegu millibili auk þess sem henni þótti ekkert verra að fá sér í tána inn á milli. Bandaríski slúðurvefurinn TMZ komst í gær yfir tölvupóst frá talsmanni Boyle þar sem málið er útskýrt. 11.9.2010 09:00
Erlendur snýr aftur í nóvember Erlendur Sveinsson, einn ástsælasti rannsóknar-lögreglumaður Íslands, snýr aftur í nóvember í fjórtándu skáldsögu Arnaldar Indriðasonar. Erlendur hefur lítið komið við sögu í síðustu bókum Arnaldar og leyft aðstoðarmönnum sínum, þeim Elínborgu og Sigurði Óla, að eiga sviðið. 11.9.2010 08:00
Borgarfulltrúar í karate Borgarfulltrúar Besta flokksins skelltu sér á karateæfingu í hádeginu í gær og slóst Gísli Marteinn Baldursson í hópinn. Stefnt er að því að meira verði um álíka hópefli í borgarstjórn. 11.9.2010 06:00
Ætlar að sigrast á krabbameininu Michael Douglas eru gefnar áttatíu prósent líkur á því að sigrast á krabbameini sem hann greindist með á dögunum. Hann er í baráttuhug. Michael Douglas kveðst vera bjartsýnn á að honum takist að sigrast á krabbameini sem hann greindist með í hálsi í síðasta mánuði. Hann viðurkennir þó að bæði geisla- og lyfjameðferðin dragi úr honum kraft og hann komist ekki yfir allt sem hann langi til að gera yfir daginn. 11.9.2010 06:00
Elskaði að vera á lausu Breski leikarinn Stephen Moyer sem leikur vampíruna Bill Compton í sjónvarpsþáttaröðinni True Blood á móti eiginkonu sinni, leikkonunni Önnu Paquin, rölti um Lundúnarborg þegar hann var laus og liðugur og sötraði vín samhliða því að semja léleg ljóð. Stephen er í sjöunda himni yfir því að hafa hitt Önnu. Ég er elskaði að vera á lausu. Þá naut ég þess að rölta um London með rauðvínsflösku og samdi léleg ljóð," sagði Stephen. Hann segir að samband hans við Önnu sé frábært því þau eru opin gagnvart hvort öðru og ræða öll heimsins mál. Það er gott að tala við Önnu. Ef mér líður illa yfir einhverju er ekkert mál að ræða við hana," sagði hann. 10.9.2010 17:00
Íhugar að kýla á klámbransann Leikarinn Justin Long hefur skyndilega fengið áhuga á að leikstýra eða leika í klámmynd. Um þessar mundir kynnir Justin kvikmyndina Going the Distance sem segir frá pari í fjarbúð. Hann hefur mikinn áhuga á að kynna sér klámiðnaðinn að eigin sögn. Ég veit að þetta hljómar eins og brandari en ég hef verið að kynna mér framtíðarstörf innan klámbransans," sagði Justin. Jafnvel sem leikari, leikstjóri eða handritshöfundur. Kannski tekst ég bara á við klámið næsta árið." 10.9.2010 16:00
Fastur gestalisti á P Bar Meðfylgjandi myndir voru teknar á nýjum bar sem er staðsettur þar sem Austurstræti og Pósthússtræti mætast. Barinn ber heitið P Bar og það sem vekur athygli er að aldurstakmarkið er 25 ár. Staðurinn er lítill og kósý og þar hefur undanfarnar vikur myndast eftirsóknarvert andrúmsloft," svarar Daddi diskó, sem er plötusnúður, spurður út í nýja staðinn. P Bar höfðar mjög sterkt til þeirra sem gera kröfur um góða þjónustu, þægilegt andrúmsloft og vilja gera vel við sig. Staðurinn opnar snemma og við byrjum að spila um tíu leitið skemmtilega kokteiltónlist en um miðnættið er það púkatónlistin sem ræður ríkjum og þá getur allt gerst. Þetta hefur mælst gríðarlega vel fyrir og gestir hafa lýst yfir ánægju með það að loks sé í boði staður af þessu tagi í miðbænum," segir Daddi. Útgangspunkturinn er gott partý meðal vina," bætir hann við. Við erum með fastan gestalista líkt og ég kom á á Thorvaldsen bar í denn enda leggjum við áherslu á að mæta kröfum okkar viðskiptavina um persónulega þjónustu og persónuleg samskipti. P Bar notar Facebook til að halda utan um þann hóp sem er á föstum gestalista hér. 10.9.2010 14:30
K-Fed kemur Britney til varnar Kevin Federline dúkkar upp í bandarískum fjölmiðlum með reglulegu millibili. Ekki þó vegna þess að þeir séu svo áhugasamir um dans-eða rappferil hans heldur af því að þeir vilja vita hvað honum finnist um hin og þessi mál sem tengjast fyrrum eiginkonu hans, popp-prinsessunni Britney Spears 10.9.2010 13:30
Hraunar yfir klæðaburð Victoriu Sænska leikkonan Britt Ekland, 67 ára, hraunar yfir kjólana sem Victoria Beckham klæðist. Britt segist frekar fremja sjálfsmorð en að klæðast kjólum eftir Victoriu. Britt, sem er fyrrum Bond stúlka, segir að þægindin skipti hana miklu meira máli en merkin þegar kemur að fatnaði og fylgihlutum. Hún vill frekar klæðast gallabuxum og þægilegum skóm heldur en að ganga um á hælaskóm og þröngum kjólum líkt og Victoria gerir. Ég myndi frekar drepa sjálfa mig heldur en að ganga í kjólum eins og Victoria Beckham og að ekki sé minnst á hælaskóna sem hún gengur í dag eftir dag," sagði Britt. Hér áður fyrr var ég mikið fyrir rándýran fatnað og skartgripi en ég hef engan áhuga á slíku í dag." 10.9.2010 12:30
Angelina á enga vini Angelina Jolie á ekki margar vinkonur eða vini sem hún leitar til. Ef hún þarf á vini að halda þá er unnusti hennar, leikarinn Brad Pitt, til staðar fyrir hana. Leikkonan, sem er stödd í Pakistan, viðurkennir að hlutverk hennar er einmanalegt því hún á fáa vini sem hún getur treyst. Angelina Jolie er velgjörðarsendiherra Sameinuðu þjóðanna og heimsótti flóðasvæðin í Pakistan þar sem hún vekur athygli á ástandinu og reynir að hafa áhrif. Angelina og Brad eiga sex börn en hún þolir ekki að vera í burtu frá fjölskyldunni. Ég tala við fjölskylduna þegar ég þarf á því að halda, sagði Anglina spuð hvernig hún tekst á við einveruna á ferðlagi hennar. En ég viðurkenni að ég á ekki marga vini sem ég get rætt við. Hann (Brad) er í rauninni eina manneskjan sem ég tala við." Þrátt fyrir söknuðinn þá eru börnin í góðum höndum. Áður en Angelina lagði af stað í ferðina lagði hún mikla áherslu á að útskýra tilganginn fyrir börnunum. 10.9.2010 11:00
Vinnur ekki eins og skepna Leikkonan Julia Roberts, 42 ára, vinnur ekki eins mikið og fólk heldur. Eftir að Julia lék á móti Richard Gere árið 1999 í kvikmyndinni Pretty Woman var ekki aftur snúið þegar kom að heijmsfrægð en síðan þá hefur hún ekki unnið nærri eins mikið eins og margir kunna að halda. 10.9.2010 09:15