Fleiri fréttir

Skáru trúlega úr mér skáldæðina

Á föstudagskvöldið frumsýndi Leikfélag Reykjavíkur Híbyli vindanna eftir Böðvar Guðmundsson. Leikritið er gert eftir vesturfarasögu Böðvars, "Híbýli vindanna". Böðvar á líka afmæli í dag. Hann er 66 ára.

Muwango er ekta amatör

Félagi íslenskra radíóamatöra hefur ákveðið að gefa tveimur munaðarlausum drengjum frá Úganda, þeim Muwango og Peter, nýtt útvarp.

Gere hvetur fólk til að kjósa

Leikarinn góðkunni Richard Gere hefur verið fenginn til þess að lesa inn á auglýsingu þar sem Palestínumenn eru hvattir til þess að nýta kosningarétt sinn í forsetakosningum á sunnudaginn. Það er hópur friðelskandi manna í Palestínu sem stendur á bak við uppátækið og vonast til þess að hin blíða rödd Geres, sem biðlar til kjósenda á arabísku, verði til þess að auka þátttöku í kosningunum.

Snjóbrettatilþrif á Arnarhóli

Snjóbrettamótið RVK Stunt fest verður haldið í fyrsta sinn á Arnarhóli klukkan 20.00 í kvöld. Um jib-boðsmót er að ræða þar sem keppendur renna sér frjálst í klukkutíma og dæma síðan sjálfir hverjir stóðu sig best. Þeir þrír efstu fá auka hálftíma til að keppa um fyrstu þrjú sætin.

Fókus býður í bíó

Það er kominn föstudagur og Fókus fylgir með DV. Þessa vikuna býður blaðið lesendum sínum á hefndarmyndina Oldboy, sem hefur farið sigurför um heiminn. Vann m.a. verðlaun dómnefndar á Cannes. Hún fjallar um mann sem er rænt og hent í heimatilbúið fangelsi í fimmtán ár. Einn daginn er honum sleppt og upphefst þá klikkaður eltingaleikur við óvininn.

Hafdís Huld orðin pródúser

Fókus fylgir með DV í dag. Þar er m.a. að finna áramotamyndir og -sögur nokkurra partýljóna, brasilíska barþjóninn George Leite, sem er einn af framgöngumönnum sundknattleiks hér á landi, farið ítarlega í fyrirbærið mp3-blogg og gefnir miðar á kvikmyndina Oldboy. Einnig er viðtal við Hafdísi Huld, sem er að gefa út plötu og orðin pródúser.

Brasilískur barþjónn í boltaleik

Forsíðu Fókus, sem fylgir DV í dag, prýðir brasilíski barþjónninn George Leite sem, ásamt félögum sínum og þjálfara, ætlar að koma sundknattleik aftur á legg á Íslandi. Íslendingar iðkuðu íþróttina eitt sinn, tóku m.a.s. þátt á ÓL í Berlín 1936. George vonar að fólk flykkist í laugarnar til að kasta boltanum og rífa sundskýlurnar af mótherjunum.

Útgáfutónleikar Ske

Hljómsveitin Ske er í afskaplega góðu skapi þessa dagana. Í kvöld býður hún landsmönnum ókeypis á tónleika í Grand Rokk þar sem leikin verða lög af plötunni Feelings Are Great, sem kom út núna fyrir jólin.

Há dú jú læk Æsland?

Heimildarmyndin "How do you like Iceland?" verður frumsýnd sunnudaginn 16. janúar í Sjónvarpinu. Eins og titillinn gefur til kynna er þarna á ferðinni mynd sem tekur á skoðunum útlendinga á Íslandi og íbúum þess.

Tveir hlutu hvatningarverðlaun

Tveir hlutu Hvatningarverðlaun fyrir rannsóknir á sviðum heilbrigðis- og lífeðlisfræða sem afhent voru í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, á miðvikudag.

Minningarsjóður stofnaður

Guðlaugur Bergmann framkvæmdastjóri lést hinn 27. desember 2004. Hann verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag klukkan 13.00. Fjölskylda hans hefur stofnað um hann Minningarsjóð og er markmið sjóðsins að styrkja verkefni í umhverfis- og samfélagsmálum, en þau áttu hug og hjarta Guðlaugs síðustu árin.

Milljónir horfðu á Örninn

Um 4,5 milljónir Þjóðverja horfðu á fyrsta þátt dönsk-íslensku spennuþáttaraðarinnar Örninn, eða Ørnen eins og hann heitir á frummálinu, á mánudaginn var þegar hann var sýndur á þýsku sjónvarpsstöðinni ZDF. Elva Ósk Ólafsdóttir fer með eitt af aðalhlutverkum þáttarins en Benedikt Erlingssyni bregður þar einnig fyrir.

MH sýnir Martröð á jólanótt

Leikfélag Menntaskólans í Hamrahlíð frumsýndi skömmu fyrir áramót leikritið Martröð á jólanótt sem er byggt á brúðumyndinni The Nightmare Before Christmas eftir leikstjórann Tim Burton.

Sellóleikara Wilson saknað

Brian Wilson, fyrrum forsprakki The Beach Boys, er miður sín eftir að tilkynning barst um að Svíans Markus Sandlund, sem spilaði á selló á plötu hans Smile, væri saknað úr flóðunum í Asíu.

Er loksins að fullorðnast

"Ég er búin að hafa það mjög gott um jólin," segir Þórunn Erna Clausen leikkona sem hefur verið á ferðalagi á milli Akureyrar og Reykjavíkur öll jólin en hún leikur í söngleiknum Óliver sem Leikfélag Akureyrar sýnir þessa dagana. Tímaritið Magasín fylgir DV á fimmtudögum.

Blautt og safaríkt nýtt ár

Elsku Ragga Mér finnst hálfhallærislegt að skrifa þér með þetta ákveðna vandamál því ég er komin langt yfir þrítugt, er sjálfstæð og ákveðin kona og ætti að geta unnið úr svona málum sjálf...

Eignaðist lítinn engil

"Mér finnst æðilegt að vera heima með henni og hún er algjör engill," segir handboltakonan Harpa Melsted sem eignaðist litla dóttur þann 5. júlí. Tímaritið Magasín fylgir DV á fimmtudögum.

S Rozhdestvom!

Jólahátíð Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi hefst í kvöld með messu í Friðrikskapellu klukkan 23.00. Stendur hún yfir fram yfir miðnætti, hugsanlega til 2.00.

Gettu Betur hefst á mánudag

Þrjátíu skólar um allt land munu á næstu dögum og mánuðum takast á í Gettu Betur spurningakeppni framhaldsskólanna.

Losar um orkuhnúta

Bergur Björnsson er titlaður reikimeistari. Ekki vita allir hvað það þýðir en Bergur hefur stundað þetta fag í nærri aldarfjórðung og haldið mörg námskeið í þessum fræðum. "Reiki er ekki beinlínis starf heldur lífsstíll. Þegar þú lærir reiki þá ertu tengdur við reikiorkuna og hún fer að hafa áhrif á þig."

Atomic Kitten stjarnan fæðir son

Fyrrum Atomic Kitten stjarnan Natasha Hamilton hefur eignast sitt annað barn. Söngkonan er yfir sig ánægð með son númer tvö sem hefur verið nefndur Harry.

Paris og Nicole í líkhúsi

Í næstu seríu af raunveruleikaþáttunum The Simple Life þar sem aðalstjörnurnar eru ljóskurnar Paris Hilton og Nicole Richie, munu þær meðal annars þurfa að vinna í líkhúsi.

Verkamaður í víngarði Drottins

Jón Oddgeir Guðmundsson rekur verslunina Litla húsið á Akureyri. Þar höndlar hann með Guðsorð í ýmsum myndum en allt hans líf snýst um Guð, trúna og kirkjuna.

Mynd er minning

Margir eiga margra áratuga stafla af ljósmyndum sem þeim hrýs hugur við að skoða og flokka. Það þarfa verkefni getur orðið að skemmtilegri dægrastyttingu.

Seldist upp á mettíma

Um miðjan dag í gær seldist upp á aukasýningu af Hárinu sem verður í Austurbæ á laugardagskvöldið klukkan átta til styrktar fórnarlömbum hamfaranna í Asíu á annan í jólum.

Bókabúð Lárusar Blöndal lokar

Í næstu viku verður skellt í lás í síðasta sinn í Bókabúð Lárusar Blöndal við Engjateig. Bóksalinn í Laugardalnum hefur tapað milljónum króna á rekstrinum síðustu ár og segir gylliboð Bónuss fyrir jólin hafa gert útslagið. Fyrir nokkrum árum lét hann gamlan draum um verslunarmennsku rætast og keypti búðina.

Sjónvarpsþáttaröð ekki í bígerð

Sjónvarpsmyndin Njála verður sýnd í Sjónvarpinu á sunnudagskvöld klukkan 20.00. Myndin, sem vann Edduverðlaunin fyrr í vetur, er gerð er upp úr Njálssögu og segir frá vináttu Gunnars og Njáls og baráttu Gunnars við óvildarmenn sína

U2 og Pavarotti í samstarf

Írska hljómsveitin U2 ætlar að taka upp lag með stórtenórnum Luciano Pavarotti fyrir næstu smáskífu sína, Sometimes You Can´t Make it on Your Own.

Shrek 2 tekjuhæst 2004

Teiknimyndin Shrek 2 var tekjuhæsta mynd ársins í Bandaríkjunum á síðasta ári og jafnframt sú þriðja tekjuhæsta í sögunni þar í landi. Halaði hún inn 436 milljónir Bandaríkjadala, eða um 27 milljarða króna.

Lucas segir lítið

Það hvílir jafnan mikil leynd yfir gerð Star Wars mynda Georges Lucas og það gildir einnig um næstu mynd, Episode III: Revenge of the Sith þrátt fyrir að nánast hvert mannsbarn viti hvernig myndin endar þar sem allar fyrri myndirnar fimm hafa undirbyggt sorglega lokaniðurstöðuna.

Jónsi ananas

Jón Jósep Snæbjörnsson, söngvari hljómsveitarinnar Í svörtum fötum, mun bregða sér í líki Imma ananas þegar söngleikurinn Ávaxtakarfan verður frumsýndur í Austurbæ í febrúar. Jónsi fer með hlutverk vonda karlsins Imma en auk hans mun Birgitta Haukdal leika Geddu gulrót og Selma Björnsdóttir fer með hlutverk Evu appelsínu, svo fáeinir séu nefndir.

Hljómsveitin Vínyl til Texas

Hljómsveitin Vínyl heldur til Austin í Texas í mars þar sem þeir kauðar spila á tónlistarhátíðinni SXSW. Þetta er stærðarinnar hátíð þar sem margar hljómsveitirnar hafa fengið sitt stóra tækifæri.

Nútímalegur hallarstíll

Nú þykir mjög flott að hafa kristalsljósakrónu á heimilinu og setja hana inn í mjög nútímalegt umhverfi þar sem viktorískum og módernískum stíl er blandað saman. Verslunin Exó í Fákafeni sem að jafnaði býður upp á mjög stílhrein og nútímaleg ljós hefur nánast á einni nóttu breyst í höll þar sem allt hefur fyllst af kristalsljósakrónum.

Þegar jólaskrautið fer í geymsluna

Nú þegar jólin eru á enda og jólaskraut ratar aftur ofan í kassa og kirnur verður eftir ákveðið tómarúm í híbýlum fólks. Það er hins vegar engin ástæða til fyllast þunglyndi því nú er einmitt tíminn til að endurskipuleggja.

Góð vinnuaðstaða fyrir mestu

"Við fluttum inn fyrir þremur árum og þá var eldhúsið agalegt," segir Guðrún þegar hún var beðin um að segja okkur frá eldhúsinu sínu. "Við erum reyndar ekki sú týpa af Íslendingum sem rífa allt út og setja nýtt áður en flutt er inn," segir Guðrún

Gluggaþvottur

* Ef sólin skín úti vertu þá með sólgleraugu þegar þú þrífur gluggana. Þannig sérðu betur þá bletti sem þú átt eftir og hvar strokurnar eftir hreinsivökvann liggja.

Heimsborgarleg gatnamót

Gatnamótin þar sem Suðurlandsbraut og Laugavegur mætast hafa fengið á sig stórborgarbrag þar sem nokkur mikilfengleg og nútímaleg glerhýsi hafa risið. Fyrst ber að nefna Kauphöll Íslands sem trónir yfir gatnamótum, sem bogadregið glerhýsi og gefur tóninn af því sem koma skal í henni Reykjavík.

Hljómalind verður kaffihús

"Við hringdum í Kidda, sem rak Hljómalind, og hann gaf okkur strax leyfi til að nota nafnið. Hann var mjög ánægður með að við skyldum vilja nota það," segir Helena Stefánsdóttir, sem ásamt sex félögum sínum er að opna nýtt kaffihús að Laugavegi 21, þar sem plötubúðin Hljómalind var áður til húsa.

Illugi í útvarpið

Illugi Jökulsson hefur látið af störfum sem ritstjóri DV og tekur við útvarpsstjórastöðu á nýrri talútvarpsstöð í eigu Íslenska útvarpsfélagsins.

Cleese missir titilinn

Breski grínistinn Peter Cook var í dag valinn hæfileikaríkasti grínisti heims en það var sjónvarpsstöðin Channel 4 í Bretlandi sem stóð fyrir valinu. Cook, sem sló fyrst í gegn fyrir leik sinn í þáttunum „Beyond The Fringe“, tekur við titlinum af Monty Python meðliminum John Cleese. Í öðru sæti var kanadíski leikarinn Mike Myers og þriðji varð Woody Allen.

Börkur undirbýr Karfann

Fyrsta kvikmynd leikstjórans Barkar Gunnarssonar, hin íslensk-tékkneska Sterkt kaffi, er í sjöunda sæti yfir það mikilvægasta sem gerðist árið 2004 á kvikmyndasviðinu, samkvæmt hinu víðlesna tékkneska dagblaði Nedélní svet. Í efsta sæti er tilnefning tékknesku myndarinnar Zelary til Óskarsverðlauna fyrr á árinu.

Ný slanguryrði í orðabók

Eftir að orðið "blingbling" rataði í ensku Webster orðabókina hafa umsjónarmenn netútgáfu ensku Oxford orðabókarinnar ákveðið að bæta einnig nokkrum slanguryrðum í sarpinn.

Á sama vinnustað í 56 ár

Akureyringurinn Svavar Friðrik Hjaltalín lauk starfsævi sinni á nýliðinni Þorláksmessu. Þá hafði hann starfað á sama vinnustaðnum í 56 ár en vinnuveitandinn var Útgerðarfélag Akureyringa sem nú er í eigu Brims.

Sextán fengu heiðursmerki

Sextán Íslendingar hlutu heiðursmerki hinnar íslensku fálkorðu nú í ár. Forseti Íslands sæmdi þá orðunni að venju á nýársdag.

Sjá næstu 50 fréttir