Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hógvær stórsöngvari Bandaríski söngvarinn Tony Bennett kemur fram á tónleikum í Hörpunni í kvöld. Söngvarinn lenti ásamt föruneyti sínu á Reykjavíkurflugvelli í hádeginu í gær og hélt þá strax út á land til að skoða náttúru landsins. 10.8.2012 10:00
Hannar á lítil höfuð Thelma Þorsteinsdóttir hefur undanfarið ár hannað falleg hárbönd á litlar stelpur. 10.8.2012 09:29
Björk söng í Noregi í gær Söngkonan Björk fær ágæta einkunn í norska blaðinu Aftenposten eftir tónleika sem hún hélt þar í landi í gær. Gagnrýnandi bendir á að söngkonan hafi ávallt þótt óvenjuleg og engin breyting hafi verið á því í gærkvöld. Hún sé jafnvel enn furðulegri nú í ár, en áður. Gagnrýnandi blaðsins minnist líka tónleikanna sem Björk hélt á Hróarskeldu í júlí og segir að margir hafi orðið fyrir vonbrigðum. Tónleikarnir þá hafi þó verið með því besta sem hann hefur séð í langan tíma. Hann hafi kunnað að meta tónlist Bjarkar enn betur í gær þegar hann heyrði hana að nýju. 10.8.2012 09:09
Hreinskilni er góð Heiðarleiki hefur jákvæð áhrif á andlega og líkamlega líðan fólks. Rannsókn sem kynnt var á ráðstefnu American Psychological Association leiddi þetta í ljós. 10.8.2012 09:00
Varaforseti Rússlands afar ósáttur við Madonnu Dmitry Rogozin, varaforseti Rússlands, kallaði Madonnu dræsu eftir að hún hét samkynhneigðu fólki stuðningi á tónleikum sem hún hélt í Pétursborg í Rússlandi í gær. Bannað er að réttlæta samkynhneigð fyrir ungu fólki í Rússlandi en Madonna lét það bann sem vind um eyru þjóta. Hún hafði áður hneykslað marga Rússa með því að krefjast þess að konur í pönkhljómsveitinni Pussy Riot yrðu látnar lausar, en þær eiga yfir höfði sér margra ára fangelsi fyrir að mótmæla stjórn Pútins. 10.8.2012 08:07
Ólympíuleikar í orðanotkun „Þetta eru Ólympíuleikarnir í orðaleik og það eru tveir keppendur í úrslitum, íþróttafréttamennirnir Þorkell Gunnar og Einar Örn, og þeir hafa staðið sig alveg gríðarlega vel,“ segir grínistinn Gunnar Sigurðarson. 10.8.2012 08:00
Reynslubolti formaður dómnefndar á RIFF „Við erum í skýjunum að fá svona reynslubolta til liðs við okkur í ár,“ segir Hrönn Marínósdóttir hjá Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík, RIFF, en formaður dómnefndar á hátíðinni í ár verður Geoffrey Gilmore, stjórnandi Tribeca-hátíðarinnar. 10.8.2012 07:30
Bjartsýn fyrir seinni hálfleik "Það hittist þannig á að ég er á Grænlandi og verð þar á þessum tímamótum," segir Siv Friðleifsdóttir alþingismaður sem á fimmtíu ára afmæli á morgun. Það var ekki með ráðum gert að vera að heiman á afmælisdaginn; Siv er í vinnuferð á fundi með stjórn Norræna menningarsjóðsins sem ræðir nú framtíðaráherslur sínar. Hún sýtir það hins vegar ekki að vera á Grænlandi á afmælinu. 9.8.2012 19:00
Heidi Klum súpermamma Heidi Klum er ekki bara ofurfyrirsæta heldur ofurmamma ef marka má allar þær myndir sem birtast af henni með börnum sínum í pressunni vestan hafs. Í vikunni sást meðal annars til hennar í skemmtigarði sem og í hádegismat í stórborginni New York með þau Leni Samuel, Johan Samuel, Henry Samuel og Lou Samuel en þau á hún með fyrrverandi eiginmanni sínum og söngvaranum Seal. 9.8.2012 13:00
Sýnir afrakstur Asíureisu á Skólavörðustíg "Að hafa sýninguna utandyra er í ætt við ferðalagið sjálft og gerir það líka að verkum að fleiri sjá myndirnar," segir ljósmyndarinn Baldur Kristjánsson sem opnar ljósmyndasýninguna Austur fyrir fjall á göngugötu Skólavörðustígs í kvöld. 9.8.2012 08:00
Full af svörtu gamni Keira Knightley og Steve Carell fara með aðalhlutverkin í svörtu kómedíunni Seeking a Friend for the End of the World sem kemur í bíóhúsin á föstudaginn. Loftsteinninn Matilda stefnir á jörðina og heimsendir er boðaður innan þriggja vikna. Eiginkona persónu Carells, Dodge Petersen, yfirgefur hann þegar þau heyra fréttirnar og hann ákveður í kjölfarið að leggja upp í vegferð á heimaslóðir til að endurnýja kynnin við æskuástina sína Oliviu. 9.8.2012 23:00
Venjulegt líf Kate Hudson Leikkonan Kate Hudson var elt af æstum ljósmyndurum á meðan hún gerði heiðarlega tilraun til að eiga venjulegan dag með sonum sínum tveimur. 9.8.2012 23:00
Woody Allen og stjörnurnar í Róm Nýjasta mynd Woodys Allen, To Rome With Love, kemur í kvikmyndahús á föstudaginn. Myndin segir sögu nokkurra ólíkra einstaklinga í borginni Róm á Ítalíu og ævintýrin sem þeir lenda í þar og hvernig þau fléttast saman. 9.8.2012 22:00
Kjarnorkuárásanna á Japan minnst Fræðslu- og ljósmyndasýning um kjarnorkusprengjurnar sem varpað var á Hírosíma og Nagasaki og afleiðingar þeirra verður opnuð í Borgarbókasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu í kvöld. 9.8.2012 21:00
Hárprúð teiknimyndahetja Teiknimyndin Brave verður frumsýnd annað kvöld. Kvikmyndin er þrettánda mynd fyrirtækisins Pixar. 9.8.2012 20:00
Sýnir sixpakkann Það er ekki hægt að segja að hasarleikarinn Jean-Claude Van Damme, 51 árs, sé ekki í góðu formi. Eins og sjá má á myndunum sýndi Jean-Claude sixpakkann með glöðu geði... 9.8.2012 15:00
Fyrrverandi eiginmaður Winehouse í öndunarvél Blake Fielder-Civil, fyrrverandi eiginmanni Amy Winehouse, er haldið sofandi í öndunarvél eftir óhóflega drykkju og lyfjaneyslu. Unnusta Blakes fann hann andstuttan á föstudag og var hann fluttur með hraði á spítala. Þar varð ljóst að fjölmörg líffæri virkuðu ekki sem skyldi. Blake hitti unnustu sína í meðferð fyrir þremur árum. Hún sagðist í samtali við fjölmiðla í gær biðja fyrir því að hann myndi lifa af. Hún búi sig hins vegar undir það að hann vakni aldrei. 9.8.2012 11:05
Glimmerskreytt geðveiki Rafpoppararnir í Passion Pit sendu frá sér aðra breiðskífu sína á dögunum en hafa þurft að aflýsa tónleikum vegna slæmrar geðheilsu söngvarans. 9.8.2012 11:00
Liberty Ross losar sig við giftingahringinn Leikkonan Liberty Ross hefur verið mynduð síðustu daga án giftingarhringsins en hún er gift leikstjóranum Rupert Sanders sem hélt fram hjá henni með leikkonunni Kristen Stewart eins og frægt er orðið. Ross hefur fjarlægt hringinn af fingri sér og flaggað því fyrir ljósmyndara í Los Angeles á meðan Sanders heldur greinilega enn þá í vonina því leikstjórinn skartar enn sínum hring. 9.8.2012 10:00
Hænsnabrúðkaup og rokktónleikar Bæjarhátíðin Sumar á Selfossi hefst með pompi og prakt í dag og stendur yfir helgina. Rokkið verður í hávegum haft í kvöld þegar Kiryama Family, Wicked Strangers, hljómsveitin Elín Helena, Foreign Monkeys, Caterpillarmen og Vintage Caravan koma fram í Miðbæjargarðinum. Mannakorn og Stuðlabandið halda fjörinu gangandi annað kvöld og á laugardaginn leika Raggi Bjarna, Þorgeir Ástvalds og Þorvaldur Halldórs fyrir dansi í hátíðartjaldinu. Þá verður einnig boðið upp á sléttusöng, flugeldasýningu og margt fleira. 9.8.2012 10:00
Glímir við ókunnugan ljósmyndaþjóf á alheimsnetinu "Hún sendi mér póst í byrjun vikunnar þar sem hún þakkar mér fyrir að setja myndirnar mínar inn á Facebook svo hún geti stolið þeim. Ég áttaði mig þá á því að hún hlyti að vera vinur minn á Facebook og þá undir öðru nafni þannig ég ákvað að fara í gegnum vinalistann minn og henda út öllum sem ég þekkti annað hvort lítið eða ekkert. Síðan þá hef ég fengið um fimm vinabeiðnir á dag frá henni og alltaf undir nýju nafni,“ segir María Guðrún Rúnarsdóttir nemandi í ljósmyndun við BTK skólann í Berlín. Ókunnug manneskja er kallar sig Maejapaejapictures á Facebook hefur stolið fjölda mynda Maríu Guðrúnar en segir síðuna vera aðdáendasíðu. 9.8.2012 09:00
Fær hærri laun en strákarnir Konur í Hollywood virðast ekki þurfa að berjast gegn launamuni kynjanna ef marka má nýjustu fréttir af samningum fyrir aðra myndina af þrennunni um Hunger Games, Catching Fire. 9.8.2012 21:00
Forsætisráðherra og Ásdís spjótkastari spjalla Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir spjallaði við Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra Íslands í gær í Ólympíuþorpinu eins og sjá má á meðfylgjandi mynd... 9.8.2012 17:00
Crowe og Keating skiptast á Íslandskveðjum Það hefur líklegast farið fram hjá fæstum að Ronan Keating var staddur hérlendis yfir verslunarmannahelgina. 9.8.2012 17:00
Best klæddu pörin í Hollywood Í meðfylgjandi myndasafni má sjá þau pör sem hafa vakið hvað mesta athygli á árinu fyrir fatnað og glæsileika á rauða dreglinum. 9.8.2012 16:00
Vildu fá Pussy Riot Grímur Atlason, framkvæmdastjóri tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves, hafði samband við talsmann rússnesku pönksveitarinnar Pussy Riot. 9.8.2012 15:00
Ekki hætt saman Það er ekki tekið út með sældinni að vera kærustupar í Hollywood eins og leikkonan Jennifer Aniston og leikarinn Justin Theroux hafa þurft að upplifa frá því þau byrjuðu saman. Slúðurmiðlar vestan hafs básúna um þessar mundir fréttir um að þau séu hætt saman... 9.8.2012 14:00
Aftur í syndabælið Leikarinn Mickey Rourke gæti mögulega snúið aftur sem Marv í kvikmyndinni A Dame To Kill For sem er framhaldsmynd Sin City. Samkvæmt Empire Magazine á Rourke nú í viðræðum við framleiðendur um þátttöku sína í myndinni. 9.8.2012 14:00
Fjölmenni á frumsýningu Ragnhildar Steinunnar Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var fullt út úr dyrum í Bíó Paradís á frumsýningu heimildarmyndar Ragnhildar Steinunnar Jónsdóttur, Hrafnhildur, sem fjallar um Hrafnhildi sem fór í kynleiðréttingu. Ragnhildur Steinunn prýðir forsíðu Lífsins, fylgiblað Fréttablaðsins, á morgun föstudag. 9.8.2012 11:45
Stallone syrgir soninn í Cannes Sylvester Stallone, 66 ára, er staddur í Cannes í Frakklandi ásamt fjölskyldunni á lúxussnekkju eins og sjá má á myndunum í myndasafni. Eiginkona hans Jennifer Flavin og börnin þeirra Sophia, Sistine og Scarlet njóta lífsins um borð en syrgja á sama tíma bróður sinn, Sage Stallone, sem fannst látinn aðeins 36 ára að aldri eftir banvænan skammt af fíkniefnum í júlí. 9.8.2012 10:00
Védís hefur sólóferilinn að nýju „Þetta er svo ríkt í mér og það sem gerir mig hamingjusamasta og það liggur beinast við að rækta garðinn sinn,“ segir söngkonan Védís Hervör Árnadóttir. Hún flytur eigin tónsmíðar í fyrsta sinn í langan tíma annað kvöld sem gestur Ragnheiðar Gröndal í tónleikaröð hennar á Café Haiti klukkan hálf tíu. 9.8.2012 07:30
Fótboltahetja fækkar fötum Fótboltakappinn Cristiano Ronaldo, 27 ára, hefur ekkert til að skammast sín fyrir þegar kemur að líkamsbyggingu og hreysti en hann afklæddist... 8.8.2012 18:00
Robert talar í beinni Sjarmörinn raunamæddi, Robert Pattinson, hefur boðað komu sína í ameríska þáttinn Good Morning America á miðvikudaginn í næstu viku, 15. ágúst. 8.8.2012 16:00
Frumsýnir stúlkuna á forsíðu slúðurtímarits Kourtney Kardashian prýðir forsíðu US Weekly tímaritsins með mánaðargamla dóttur sína Penelope... 8.8.2012 14:30
Þvílíkur munur Það er ekki hægt að segja annað en að nýji stílisti bresku söngkonunnar Jessie J, 24 ára, sem skaust upp á stjörnuhimininn með þvílíkum látum þegar lag hennar do it like a dude sló í gegn. Hún viðurkennir að hún leit út eins... 8.8.2012 14:30
Sjáðu brúðkaupsmyndir Natalie Portman Natalie Portman gekk í hjónaband með sínum heittelskaða, Benjamin Millepied, við sólarlag í Kaliforníu á laugardaginn... 8.8.2012 13:30
Jennie Garth horast niður eftir skilnað Jennie Garth komst í pressuna í vikunni eftir að hún sást fyrir utan stúdíó í New York. 8.8.2012 12:30
Frægar Hollywood fjölskyldur Frægir í Hollywood hafa oft á tíðum öðlast frægð fyrir það eitt að eiga fræga foreldra á sama tíma og ættingjar þeirra sem hafa unnið sér til frægðar með afrekum og dugnaði njóta oft góðs af. 8.8.2012 11:15
Sofia Vergara ólétt á tökustað Leikkonan Sofia Vergara fór á kostum á tökustað gamanþáttanna "Modern Family" í vikunni en upptökur standa nú yfir á nýrri þáttaröð. 8.8.2012 10:00
Stiller vill fá Íslendinga Fyrirsætufyrirtækið Eskimo-Casting á Íslandi leitar nú logandi ljósi að íslensku sjósunds- og þríþrautarfólki fyrir hönd kvikmyndafyrirtækisins Fox Studios. 8.8.2012 15:30
Strandvörður í hjólastól í sigurliði mýrarboltans „Auðvitað langar mann alltaf ógeðslega mikið að fara inn á völlinn og spila með, en stemningin í liðinu okkar er svo rosalega góð og mikið sprellað og haft gaman svo það er alveg þvílíkt skemmtilegt hjá okkur utan vallar líka,“ segir hin 22 ára gamla Arna Sigríður Albertsdóttir, fyrirliði Team Hasselhoff sem sigraði í kvennadeild mýrarboltans á Ísafirði í ár. 8.8.2012 15:00
Hefð að enda á Queen-lagi Hljómsveitin In Siren fagnar útgáfu plötunnar In Between Dreams á Gamla Gauknum í kvöld. Hljómsveitin hefur gert það að hefð að ljúka tónleikum sínum á Queen-laginu The Prophet‘s Song, en lagið er rúmar átta mínútur að lengd. 8.8.2012 12:00
Tískufrumkvöðull látinn Ítalski tískublaðamaðurinn og frumkvöðullinn Anna Piaggi er látin 81 árs að aldri. Piaggi setti sinn svip á tískuheiminn en hún var með reglulega pistla og tískuþætti í ítalska Vogue og Vanity Fair. Einnig var Piaggi daglegur gestur á götutískubloggum úti um allan heim þar sem fatastíll hennar þótti einstaklega frumlegur og litríkur. Hún var mikill aðdáandi breska fatahönnuðarins Vivianne Westwood og bar yfirleitt skrautleg höfuðföt frá Prudence Millinery. 8.8.2012 10:30
Málar á bakarí og verkstæði Okkur finnst prentaðir vínyldúkar ljótir og viljum hafa karakter í lógóum. Við handmálum því auglýsingar og skilti fyrir fólk, segir Björn Loki Björnsson, nemi í grafískri hönnun í Listaháskóla Íslands. 8.8.2012 10:00
Fæddist andvana Söngvarinn Gary Barlow er harmi sleginn eftir að barn hans fæddist andvana um helgina. Breski tónlistarmaðurinn gaf út yfirlýsingu ásamt eiginkonu sinni Dawn þar sem þau óskuðu eftir friði og ró til að takast á við sorgina. „Dawn og ég erum sorgmædd yfir að segja frá því að við misstum barnið okkar. Poppy Barlow fæddist andvana þann 4. ágúst í London, eftir átta og hálfs mánaðar meðgöngu. Við ætlum að einbeita okkur að því að halda fallega jarðarför og biðjum um frið á þessum erfiðu tímum.“ Barlow og eiginkona hans eiga þrjú börn fyrir. 8.8.2012 08:00