Ólympíuleikar í orðanotkun 10. ágúst 2012 08:00 Báðir hafa þeir Þorkell Gunnar og Einar Örn staðið sig með prýði í orðaleik Gunnars. Þorkell Gunnar leiðir með einu stigi en Einar Örn á leik inni. fréttablaðið/ernir „
Þetta eru Ólympíuleikarnir í orðaleik og það eru tveir keppendur í úrslitum, íþróttafréttamennirnir Þorkell Gunnar og Einar Örn, og þeir hafa staðið sig alveg gríðarlega vel,“ segir grínistinn Gunnar Sigurðarson. Gunnar er með leik í gangi á Twitter-síðu sinni þar sem hann skorar á íþróttafréttamennina til að láta viss orð falla í beinni útsendingu. „Ég lít á þetta sem þjálfun í orðanotkun starfsmanna Ríkisútvarpsins,“ segir Gunnar sem hefur áður verið með sams konar leiki í gangi fyrir fjölmiðlafólk og segir alla hafa hlýtt kalli hingað til. Meðal orða sem þeir Þorkell Gunnar og Einar Örn hafa þurft að láta flakka í beinni útsendingu eru þvagfærasýking, rotþróarhreinsiefni, brandugla og sækýr. „Þeir geta notað orðin að vild en hafa staðið sig frábærlega í að koma þeim inn í setningar,“ segir Gunnar. „Ég hef aldrei orðið uppvís að svona frábærri orðanotkun hjá neinum starfsmanni ríkisútvarps eða sjónvarps. Þeir eiga heiður skilið,“ bætir hann við. Gunnar fylgir ströngum reglum þegar hann velur orðin og segir þau aldrei vera íþyngjandi eða niðurlægjandi fyrir neinn. Strákarnir fá bónusstig fyrir gott samhengi í setningu og svo eru erfiðleikastig á orðum og sum gefa fleiri stig en önnur. Þorkell Gunnar leiðir nú keppnina með eitt stig, 10 á móti 9, en Einar Örn á þó leik til góða. „Það verður spennandi að fá þá heim og veita þeim verðlaun fyrir framúrskarandi frammistöðu,“ segir Gunnar og tilnefnir sjálfan sig til verðlauna Jónasar Hallgrímssonar fyrir verndun á íslenskri tungu. „Það eru Nóbelsverðlaunin sem ég stefni á,“ segir hann. - trs
Mest lesið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Hætt saman en ennþá vinir Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira