Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þakklátasta leikkona landsins Það stóð nú aldrei til að halda svona langa ræðu. Elma Lísa, vinkona mín sem fékk Edduverðlaunin í fyrra, var búin að vara mig við og sagði að ég yrði að vera búin að ákveða hvað ég ætlaði að segja ef ég færi upp. Mér fannst það mjög óþægilegt, því mér finnst tilhugsunin um að halda ræðu mjög stressandi. Þegar ég svo mætti þarna í Gamla bíó var ég alveg sannfærð um að ég væri ekkert að fara upp, svo ég var alveg róleg. En það var 3.3.2012 08:00
Kristrún Ösp eignaðist dreng Kristrún Ösp Barkardóttir fyrirsæta er búin að eignast lítinn dreng. Það vakti mikla athygli í ágúst síðastliðinn þegar Kristrún tilkynnti um það á Facebook að hún væri ólétt, en hún gaf ekkert uppi um faðerni barnsins. 2.3.2012 17:20
Mæðgin keppa á Northern Wave Spænski kvikmyndagerðarmaðurinn Sergio De Vega verður gestur á alþjóðlegu stuttmyndahátíðinni Northern Wave sem fram fer í Grundarfirði um helgina. Stuttmynd De Vega, Making Counts, verður sýnd á hátíðinni auk þess sem móðir hans mun keppa í hinni vinsælu fiskisúpukeppni sem haldin er í tengslum við hátíðina. 2.3.2012 17:00
Mila Kunis andlit Dior Leikkonan Mila Kunis, 28 ára, var klædd í bleikan kjól fyrir herferð Dior fataframleiðandans í Frakklandi í gærdag. „Ég er alltaf með plan B,“ lét Mila hafa eftir sér. Eins og sjá má var hugað að hári leikkonunnar við tökurnar. 2.3.2012 15:45
Poppstjarnan Rex á leið til Íslands Í meðfylgjandi myndbandi má sjá viðtal við poppstjörnurnar Rex og Atle Petterson sem tóku fyrir skömmu upp myndband við nýjasta smell sinn Amazing á Íslandi. Kvikmyndadeild Pipar/TBWA sá um framleiðsluna og Gus Ólafsson leikstýrði. „Við fengum handrit frá nokkrum fyrirtækjum á Norðurlöndum og við völdum Pipar/TBWA og Gus og við sjáum ekki eftir því, segir Rex um útkomuna. Útgáfuteiti var í gærkvöldi í Osló fyrir fjölmiðlafólk og fólk úr tónlistargeiranum, en í kvöld verður almennt útgáfupartý fyrir almenning í Noregi. Stjörnurnar fljúga svo til Íslands á morgun laugardag til að halda upp á útgáfuna á laginu og myndbandinu á Austur í Reykjavík klukkan: 23.00. „Við vildum endilega halda líka partý á Íslandi þar sem við vorum með svo marga sem unnu að myndbandinu og það hefði verið svo leiðinlegt að geta ekki haldið upp á svo flotta útkomu án þess að fagna henni með þeim sem unnu verkið," sagði Rex . Það var 35 manna hópur frá Íslandi sem vann að verkinu og var myndbandið tekið upp í Atantic studios að Ásbrú í Keflavík, en það var áður flugskýli Bandaríska hersins. 2.3.2012 15:15
Breyttu stefi eftir kvörtun frá útgáfu White Stripes „Það er búið að skipta laginu út. Nýju auglýsingarnar eru með öðru lagi. Þetta var bara svona gítarriff,“ segir Hörður Harðarson hjá VERT markaðsstofu sem sér um markaðsmál fyrir smálánafyrirtækið Hraðpeningar. 2.3.2012 15:00
Júlíus Kemp og Harpa eiga von á barni Glæsikonan Harpa Þórunn Pétursdóttir, lögfræðingur hjá Orkustofnun, og Júlíus Kemp leikstjóri eiga von á barni í ágúst.... 2.3.2012 13:36
Sjáðu myndirnar frá frumsýningu Svartur á leik Meðfylgjandi má sjá myndir sem voru teknar á frumsýningu kvikmyndarinnar Svartur á leik í leikstjórn Óskars Þórs Axelssonar. Troðið var út úr dyrum í Smárabíó og góð stemning á meðal frumsýnignargesta að sjá spennutryllinn sem olli ekki vonbrigðum. 2.3.2012 13:30
Vaccines valin besti nýliðinn hjá NME Rokkararnir í The Vaccines, með bassaleikarann Árna Hjörvar innanborðs, urðu fyrir valinu sem besti nýliðinn á NME-hátíðinni í London á miðvikudagskvöld. 2.3.2012 21:00
Snooki ólétt Nicole Polizzi, betur þekkt sem Snooki úr raunveruleikaþáttunum Jersey Shore, er ólétt. Snooki er hvað þekktust fyrir mikið partýstand í raunveruleikaþáttunum sem sýndir eru á MTV og hafa notið mikilla vinsælda vestanhafs. 2.3.2012 20:00
Frábær stemning á tónlistarverðlaununum Tónlistarfólk landsins fjölmennti í Hörpu á miðvikudagskvöldið þar sem íslensku tónlistarverðlaunin fóru fram. Mugison fór heim með fimm verðlaun á hátíðinni og var meðal annars valinn vinsælasti flytjandi ársins. Kynnir kvöldsins var Vilhelm Anton Jónsson og meðal þeirra sem tróðu upp voru hljómsveitin Of Monsters and Men, Sóley, Mugison og Ari Eldjárn. 2.3.2012 14:00
Mörg andlit J.Lo Það eru fáar konur sem komast nánast upp með allt þegar kemur að hári, förðun og fatastíl en söngkonan og leikkonan Jennifer Lopez er svo sannarlega ein þeirra. J.Lo hefur óneitanlega farið út um víðan völl í gegnum árin en margir eru á því að hún sé upp á sitt allra besta í dag, komin yfir fertug. 2.3.2012 13:00
Elín Hirst horfir til Bessastaða Elín Hirst gefur sér góðan tíma til að sinna ömmuhlutverkinu með eins árs gamalli sonardóttur sinni, Margréti Stefaníu Friðriksdóttur Hirst, ásamt því að huga að góðgerðamálum og framtíðinni. Hún rifjar upp með Lífinu eftirminnileg atvik á þrjátíu ára löngum farsælum fjölmiðlaferli. Nú styttist í 30 ára starfsafmæli þitt sem fjölmiðlamaður. Ef þú lítur um öxl og skoðar fjölmiðlaferil þinn í nokkrum orðum? Ég hef gegnt ábyrgðarstöðum, störfum varafréttastjóra og fréttastjóra, bæði á fréttastofu Stöðvar tvö og Bylgjunnar og á fréttastofu Sjónvarpsins. Auk þessa hef ég framleitt framleitt einar fimm sögulegar heimildarmyndir sem sjálfstæður framleiðandi og einnig heimildarmyndir um önnur efni s.s. börn með Downs-heilkenni og fleira. Ég hef einnig verið fréttaþulur á þriðja áratug og því tíður gestur á heimilum fólks, enda heilsa mér margir eins og gömlum og góðum vini. Það er notalegt. Hvað stendur upp úr þegar þú lítur til baka? Það sem stendur upp úr er skemmtilegur og skapandi starfsferill með hæfileikaríku og flottu fagfólki. Ég hef kynnst þvílíku úrvalsfólki í gegnum störf mín á fjölmiðlunum sem myndi sóma sér vel hvar sem væri í heiminum. Ég sá þetta best þegar ég vann með teymi frá bandaríska fréttaskýringaþættinum 60 mínútur frá CBS í tengslum við eldgosið í Eyjafjallajökli en Þorvarður Björgúlfsson, eigandi kvikmyndafyrirtækisins Kukls, sá um þá heimsókn og ég aðstoðaði hann. Íslenska sjónvarpsfólkið í þeim leiðangri var í heimsklassa, og þarna vorum við að vinna með heimsmeisturunum í sjónvarpsþáttagerð ef svo má að orði komast. Áttu eftirminnilegt augnablik á skjánum sem þú vilt deila með okkur? Ég held að það erfiðasta sem ég hef upplifað sé þegar við fluttum Sjónvarpið af Laugavegi 176 upp í Efstaleiti árið 2000. Við tókum um leið í gagnið nýtt útsendingakerfi sem stríddi okkur mikið fyrstu vikurnar. Eitt kvöldið sem oftar var ég fréttaþulur og ég held að ég hafi verið meira og minna á skjánum í 30 mínútur að biðja fólk afsökunar og biðja það um að hafa biðlund því nýja kerfið var kolstíflað og engar fréttir birtust á skjánum. Þetta var mikil þolraun og mig langaði mest að skríða undir fréttaborðið og fela mig. Lá alltaf fyrir að fara í fjölmiðla? Nei, alls ekki. Ég byrjaði í viðskiptafræði en leiddist námið og hætti eftir eitt ár og kom mér til útlanda í háskóla. Það var gríðarlega mikilvæg lífsreynsla fyrir mig að fara til útlanda í nám rúmlega tvítug og brjóta allar brýr að baki mér því foreldrum mínum leist ekkert sérlega vel á blikuna í fyrstu, en svo skilaði ég mér heim með háskólagráðu, þeim til mikils léttis, auk þess sem ég hafði kynnst hinum stóra heimi og lært að standa á eigin fótum, og ég hef búið að því alla tíð. Hvaða lærdóm hefurðu helst dregið af reynslu þinni í fjölmiðlum? Pólitík er eitur inni á fjölmiðlum. Þá á ég við bæði flokkapólitík, eigendapólitík eða aðra sérhagsmunapólitík. Fréttastofur eru ekkert annað en fólkið sem þar starfar. Því eru stöðug opin skoðanaskipti, gagnrýni á fréttamat og vinnubrögð lífsnauðsynleg inni á hverri fréttastofu sem vill kallast hlutlæg. Öflugar fréttastofur sem fara að líta of stórt á sig og gleyma þessu eru hættulegar fyrir lýðræði og tjáningarfrelsið í landinu. Hvað Ríkisútvarpið varðar hef ég áhyggjur af því að verið sé að gera það of háð valdhöfunum, en fjármunir til þess eru í raun skammtaðir úr fjármálaráðuneytinu nú um stundir. Gömlu afnotagjöldin voru að mörgu leyti skárra kerfi og tryggðu betur fjárhagslegt sjálfstæði RÚV. Ertu hætt í fjölmiðlum? Nei, hreint alls ekki. Hefur þú upplifað það að vera þekkt á Íslandi? Já, nokkrum sinnum. Helst var það þegar ég fór á skemmtistaði, en ég hætti því bara. Þá vildi fólk fara að ræða um ýmsa persónulega hluti eins og hvernig ég klæddi mig og hvernig hárið á mér væri. Mér fannst þetta mjög óþægilegt. Hvernig upplifun er það að vera kona sem hefur klifið metorðastigann? Æ, mér finnst þessi metorðastigi ósköp mikið hjóm. Það eina sem ég vil er að láta gott af mér leiða og fá að starfa í friði við það sem mér finnst skemmtilegast og geri best. Ég hef enga sérstaka þörf fyrir að ráða og stjórna, en axla auðvitað þá ábyrgð sem mér er falin með glöðu geði, ef ég á annað borð tek að mér slík verkefni. Hvernig hefur gengið að tvinna saman álagsvinnu og uppeldi barna þinna? Ég var oft þjökuð af samviskubiti gagnvart börnunum mínum þegar þau voru lítil. Vinnan var svo krefjandi og vinnutíminn svo ófjölskylduvænn, fram á kvöld og um helgar. Ég held hins vegar að ég hafi verið góð mamma og naut þess að vera með sonum mínum í öllum mínum frístundum. Við höfum alltaf verið miklir vinir og mjög samrýmd og ég man að ég skrapp oft í hádeginu og við fórum og fengum okkur pitsu eða hamborgara til að stytta daginn. Nú ertu orðin amma – hvernig tilfinning er það? Það er mjög góð tilfinning. Sonardóttir mín heitir Margrét Stefanía Friðriksdóttir Hirst og er eins árs. Við erum miklar vinkonur og oft að bralla eitthvað saman. Við kubbum mikið, púslum og lesum. Dýrin í Hálsaskógi eru í miklu uppáhaldi hjá okkur um þessar mundir en Margrét er stundum svolítið hrædd við Mikka ref. Við erum oft mjög menningarlegar og förum til dæmis í barnadeildina í Borgarbókasafninu og dundum okkur. Um daginn fórum við og skoðuðum Alþingi og Dómkirkjuna og svo vorum við teknar tali á Austurvelli af sjónvarpsmönnum sem voru að spyrja okkur um einhver bankahrunsmál. Margrét Stefanía er því orðin mjög meðvitaður þjóðfélagsþegn aðeins ársgömul. Margrét Stefanía er líka svo heppin að eiga afa sem er mjög duglegur að passa hana og yndislega móðurömmu og afa sem bera hana á höndum sér. Hvað gerið þið fjölskyldan helst saman í fríum? Við förum á skíði og göngum á fjöll með hundinn á sumrin. Ég er mjög hrifin af gönguskíðum en ég er líka þokkaleg á svigskíðum. En hvað gerir þú til að rækta sjálfa þig? Stunda jóga og hreyfi mig. Nú varstu stödd á Ísafirði í vikunni – hvað ertu að takast á við þessa dagana? Það er leyndarmál hvað ég var að gera á Ísafirði, en kemur í ljós í haust. Annars er ég að skipuleggja fleiri fjölmiðlanámskeið fyrir konur sem vilja auka færni sína í að fara í sjónvarpsviðtöl. Ég er búin að fara í gegnum svona námskeið með fimmtíu konum frá áramótum, læknum, prestum, verkfræðingum, lögfræðingum og endurskoðendum. Námskeiðið er fyrir konur því ég vil stuðla að því að auka þátttöku kvenna í opinberri umræðu. Mér finnst of fáar konur tilbúnar að tjá sig og það vil ég laga. Við eigum svo margar frábærar konur á öllum sviðum samfélagsins. Ég held að margar okkar séu með fullkomnunaráráttu og við óttumst að standa okkur ekki nógu vel ef við gefum kost á okkur í sjónvarpsviðtal. Það eru óþarfa áhyggjur en oft þarf bara eitt kvöldnámskeið til að yfirvinna þennan ótta. Þá er ég að undirbúa ásamt fleira góðu fólki, þar á meðal konunum í á Allra vörum, LSH, Umhyggju og RÚV að hleypa af stað stórri landssöfnun í haust til að opna miðstöð sem aðstoðar veikustu börnin okkar í landinu, börn með sjaldgæfa, alvarlega, langvinna sjúkdóma, sem sum þurfa öndunarvél til að geta lifað. Þetta eru um 50 börn hér á landi en þessi hópur hefur stækkað mikið á síðustu tíu árum. Börn með slíka sjúkdóma lifðu ekki af áður fyrr en gera það í dag, en eiga afar erfitt líf sem og fjölskyldur þeirra. Þetta er verkefni sem brennur á okkur árið 2012 að mæta þörf sem nú er brýn að hlúa betur að allra veikustu börnunum okkar. Ég er reyndar í fleiri slíkum verkefnum, til dæmis á vegum Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur. Svo í dag fer dágóður tími hjá mér í hverri viku í sjálfboðastörf tengd mannúðarmálum, sem er mjög gaman og gefandi. Einnig er ég að ljúka við gerð heimildarmyndar um stofnfrumur ásamt Ásvaldi Kristjánssyni kvikmyndagerðarmanni sem er afar spennandi og skemmtilegt verkefni. Þú varst viðloðandi pólitík fyrir allmörgum árum hjá Sjálfstæðisflokknum, geturðu hugsað þér að fara aftur í pólitíkina? Nei, ég hef aldrei verið í pólitík, nema að ég slysaðist inn í stjórn Heimdallar þegar ég var rúmlega tvítug en var fljót að hætta þar vegna starfa minna sem blaðamaður. Flokkapólitík og hagsmunagæsla í tengslum við hana fer í raun mjög gegn mínu eðli. Ég hugsa eins og fréttamaður, vil alltaf skoða allar hliðar, þess vegna valdi ég líka fréttamennsku sem ævistarf. Það fer oft í taugarnar á eiginmanninum sem er mjög pólitískur og mikill sjálfstæðismaður hvað ég læt illa að stjórn. Samt hefur sá stimpill loðað við mig alla tíð að ég sé eldheitur sjálfstæðismaður, líklega af því að margir vina okkar eru þekktir sjálfstæðismenn. Ég á mig sjálf. Nú ert þú ein þeirra kvenna sem nefnd hefur verið á nafn í forsetaumræðunni – að öllu gamni slepptu, er það eitthvað sem þú getur raunverulega hugsað þér að skoða? Já, það get ég. Það eru hins vegar ýmis ljón á veginum. Fyrsta ljónið er núverandi forseti. Ætlar hann að gefa kost á sér í fimmta sinn eður ei. Hann stóð illa eftir hrunið, og tengsl hans við almenning höfðu beðið skaða, en svo hefur hann náð aftur sambandi við fólkið í landinu til dæmis með því að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-samninginn. En að mínum dómi er þetta orðið ágætt eftir sextán ár í embætti. Það þarf að hleypa frískum vindum inn á Bessastaði. Fleiri ljón eru á veginum fyrir hugsanlega forsetaframbjóðendur. Kostnaður við slíkt framboð er óheyrilegur og fjármálin voru frambjóðendum árið 1996 þrautin þyngri. Síðast en ekki síst er afar óljóst um stöðu forseta Íslands í framtíðinni vegna boðaðra stjórnarskrárbreytinga. Hvað mig sjálfa snertir þá hef ég ekki hugmynd um hvort ég hefði eitthvað fylgi meðal kjósenda, en það er að sjálfsögðu lykilatriði. Ég gef því minni líkur en meiri að ég verði næsti húsráðandi á Bessastöðum, segir Elín og kímir. Hvaða áherslur leggur Elín Hirst forseti Íslands á? Ég vil færa forsetaembættið nær fólkinu í landinu þar sem forsetinn yrði fremstur á meðal jafningja sem ynni með þjóðinni að hinu góða hverju nafni sem það nefnist. Svo einfalt er það. Allt annað yrðu praktísk úrlausnarefni með þetta meginþema. Hverjar eru þínar fyrirmyndir og af hverju? Forfeður mínir sem þorðu að taka þá áhættu að flytja til Vesturheims með fjögur ung börn í leit að betri lífskjörum, sem þeim tókst. Þetta fólk sem ekkert átti var líka annálað fyrir góðmennsku, gjafmildi og hjálpsemi við þá sem þurftu á að halda. Hvar sérðu þig eftir 10 ár? Ætli við Margrét Stefanía verðum ekki að bauka eitthvað skemmtilegt saman með hinum barnabörnunum sem þá hafa bæst í hópinn. Eitthvað að lokum? Já, þú vilt að ég nefni einhverja speki og í því sambandi er ég mjög hrifin af því sem Albert Einstein sagði: að árangur væri 1% snilli og 99% vinna. Þetta finnst mér afar gott veganesti í lífinu. 2.3.2012 11:00
Boladagurinn í dag - Íslendingar hrella stjörnur á Twitter "Það sem er búið að vera gerast síðustu tíu klukkutímana er langt frá mínum björtustu vonum og maður er gjörsamlega orðlaus,“ segir íþróttafréttamaðurinn Henry Birgir Gunnarsson, sem stendur fyrir Boladeginum svokallaða á samskiptasíðunni Twitter í dag. 2.3.2012 10:44
Ellen gefur Justin Bieber bíl Justin Bieber sem fagnaði 18 ára afmæli sínu í vikunni varð heldur betur hissa er hann heimsótti spjallþáttardrottninguna Ellen í gær. 2.3.2012 10:30
Eftirpartý - Svartur á leik Meðfylgjandi myndir tók Sigurjón Ragnar ljósmyndari í frumsýningarteiti á veitingahúsinu Kex sem haldið var eftir frumsýningu myndarinnar Svartur á leik... 2.3.2012 10:15
Hlauparáð fyrir byrjendur Elísabet Margeirsdóttir starfar sjálfstætt við það að ráðleggja einstaklingum um mataræði og heilsusamlegan lífstíl en ásamt því flytur hún landanum veðurfréttir á Stöð 2 nokkrum sinnum í viku... 2.3.2012 08:15
Björk fær fullt hús Björk Guðmundsdóttir fær fullt hús stiga, eða fimm stjörnur, fyrir Biophilia-tónleika sína í New York í nýjasta hefti breska tónlistartímaritsins Q. 2.3.2012 17:00
Raunverulegur sýndarheimur Svartur á leik húðar viðfangsefni sitt ekki í sykur. Gríðarlegt magn af eiturlyfjum hverfur upp í nasir aðalpersónanna og ofbeldið er á köflum yfirgengilegt. En svona er þetta. Þetta er raunveruleiki sem fullt af fólki býr við og kjánaleg samtöl um kóla og kúlur eiga fullkomlega við. Óskar og félagar sýna raunverulega mynd af sýndarheiminum í frábærri spennumynd. 2.3.2012 11:45
Villtur æskublómi Það mikilvægasta af öllu er að varðveita barnið sem í listamanninum býr og það hafa þær systur Sara og Svanhildur svo sannarlega gert og sverja sig þannig í ætt við íslenskar hefðir. 2.3.2012 11:00
Katy Perry í Veru Wang kjól Söngkonan Katy Perry, 27 ára, var glæsileg í gær þegar hún mætti á tískuvikuna í Paris í Frakklandi klædd í Veru Wang kjól... 2.3.2012 10:15
Athafnakonan - Allir vegir færir eftir verkfræðina Hin fjölhæfa Þórdís Jóhannsdóttir er athafnakona vikunnar í Lífinu... 2.3.2012 08:00
Bístró-veitingastaðir njóta vaxandi vinsælda Bístró veitingastaðir sem bjóða upp á fjölbreyttan en ódýran matseðil virðast njóta aukinna vinsælda hér á landi. Að sögn veitingamanna má rekja þess þróun til breytts tíðaranda. 1.3.2012 20:00
Connery besti Bond allra tíma Sean Connery hefur verið kjörinn besti James Bond allra tíma í nýrri könnun á vegum tímaritsins Vanity Fair. Skoski leikarinn hlaut 56% atkvæða fyrir frammistöðu sína sem njósnari hennar hátignar, 007, í myndum á borð við Dr. No, Goldfinger og Diamonds Are Forever. Connery er fyrsti Bondinn sem leit dagsins ljós og lék hann njósnarann alls í sjö myndum. 1.3.2012 17:00
Kinnaman gæti leikið Robocop Sænski leikarinn Joel Kinnaman hefur verið orðaður við aðalhlutverkið í endurgerð kvikmyndarinnar RoboCop sem kom fyrst út árið 1987. Kinnaman vakti fyrst athygli fyrir leik sinn í myndinni Snabba Cash þar sem hann fór með hlutverk Daniels Espinosa. 1.3.2012 23:00
Glee höfundur framleiðir söngvamynd Cameron Diaz, Gwyneth Paltrow, Reese Witherspoon og Ryan Murphy, höfundur sjónvarpsþáttanna Glee, eru sögð vera að undirbúa framleiðslu nýrrar söngvamyndar sem mun skarta leikkonunum þremur í aðalhlutverkum. 1.3.2012 22:00
Skrifar bók um Cobain Eric Erlandson, fyrrum gítarleikari Hole, hefur skrifað bók um sjálfsvíg vinar síns Kurts Cobain úr Nirvana. Bókin heitir Letter To Kurt og kemur út 8. apríl. 1.3.2012 22:00
Syngur um græðgina og spillinguna á Wall Street Sautjánda hljóðversplata Bruce Springsteen nefnist Wrecking Ball og kemur út eftir helgi. Umfjöllunarefnið er bágt efnahagsástandið í Bandaríkjunum. 1.3.2012 20:30
Vilja gera plötu með Jimi Tenor Hjálmar eru í viðræðum við finnska tónlistarmanninn Jimi Tenor um að vinna með honum fleiri lög. Hann söng með hljómsveitinni í laginu Messenger of Bad News sem var tekið upp í fyrra. 1.3.2012 18:00
Syngja lag Jackson og Mercury Friðrik Ómar og Matthías Matthíasson bregða sér í hlutverk söngvaranna sálugu Michaels Jackson og Freddies Mercury í nýútgefnu lagi. 1.3.2012 17:30
Á stefnumót með óþekktum manni Söngkonan Katy Perry sást á dögunum á stefnumóti með óþekktum manni í Los Angeles en samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs daðraði Perry ófeimin við kappann fyrir framan ljósmyndara. 1.3.2012 16:30
Magni syngur til heiðurs Houston "Ég er ekkert að fara að taka I Will Always Love You,“ segir Magni Ásgeirsson. Hann verður eini karlsöngvarinn á tónleikum til heiðurs Whitney Houston í Austurbæ 22. mars. Þar stíga einnig á svið Jóhanna Guðrún, Sigga Beinteins og fleiri söngkonur. 1.3.2012 16:00
Leirlistamenn hanna skeggbolla Fjórir listamenn hafa hannað hver sína útgáfu af skemmtilegum skeggbollum til styrktar Mottumars. Bollarnir eru að erlendri fyrirmynd og eru ætlaðir undir hvers kyns kaffidrykki en um leið að minna karlmenn á að fylgjast með sjálfum sér. 1.3.2012 15:30
Dansa Shakespeare "Við tökum heilu senurnar úr leikritum Shakespeare og dönsum þær,“ segir Ragnheiður Bjarnason einn flytenda dansverksins Úps!, sem ætlað er að fanga gamanleikrit leikritaskáldsins William Shakespeare. Verkið er síðasti hluti þríleiks Íslensku hreyfiþróunarsamsteypunnar sem byggður er á verku 1.3.2012 11:00
Laug til um aldur sinn Fyrirsætan Agyness Deyn viðurkennir að hún hafi logið um aldur sinn og að hún sé í raun 29 ára gömul í stað þess að vera 24 eins og flestir héldu. Þetta kemur fram í viðtali ofurfyrirsætunnar við blaðið Guardian. "Þegar ég byrjaði í fyrirsætubransanum var ég 18 ára og í raun of gömul til að geta orðið nýtt andlit þá. Þess vegna ákváðum við umboðsmaður minn að yngja mig um nokkur ár á pappírunum,“ segir Deyn sem eldist því um fimm ár á skömmum tíma. 1.3.2012 14:15
Flottustu greiðslurnar á Óskarnum Stjörnurnar þóttu flestar standa sig nokkuð vel í kjólavali, stíl og hári á Óskarnum en sumar báru vissulega af. 1.3.2012 14:00
Mætti með nýju kærustuna Leikarinn Ashton Kutcher mætti með nýja dömu í eftirpartý eftir Óskarsverðlaunin um síðustu helgi. Frá þessu greinir US Magazine en daman er sú sama og sást ítrekað með kappanum í fríi um Evrópu á dögunum, Lorene Scafaria. 1.3.2012 14:00
Nicole Kidman og fjölskyldan Leikkonan Nicole Kidman, 44 ára, og eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn Keith Urban, leiddu þriggja ára dóttur þeirra Sunday á flugvellinum í Sydney í Ástralíu... 1.3.2012 13:15
Með hnút í maganum Kvikmyndin Svartur á leik verður frumsýnd annað kvöld. Þetta er fyrsta kvikmynd leikstjórans Óskars Þórs Axelssonar og hefur verið mörg ár í vinnslu. Myndin er byggð á samnefndri metsölubók höfundarins Stefáns Mána og segir frá Stebba psycho sem flækist óvart inn í dimma undirheima Reykjavíkur í lok síðustu aldar. Með aðalhlutverk fara Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Damon Younger og María Birta Bjarnadóttir. 1.3.2012 13:00
Vöxuð Celine Dion Vaxstytta af kanadísku söngkonunni Celine Dion var afhjúpuð í vikunni á Madame Tussauds safninu í Las Vegas. Eins og sjá má er vaxmyndin nákvæm eftirlíking af söngkonunni. Þá má einnig sjá Celine sjálfa á sviði með Andrea Bocelli. 1.3.2012 12:15
Ljúft og fagurt þjóðlagapopp Tónlist Blágresis er ljúft þjóðlagapopp. Tinna Marína hefur mjög bjarta og fallega söngrödd sem nýtur sín vel í þessari tónlist, bæði þegar hún syngur ein og þegar hún raddar með strákunum. Platan er mjög vel unnin, hljómurinn er góður og útsetningarnar eru smekklegar, fiðlan kemur t.d. mjög vel út. 1.3.2012 11:30
Lopez ber með boxhanska Jennifer Lopez, 42 ára, prýðir forsíðu V tímaritsins fáklædd með boxhanska. Eins og sjá má eru myndirnar af henni ólíkar því sem fólk er vant að sjá. Fyrrum franski Vogue ritstjórinn Carine Roitfeld og Mario Testino stíleseruðu myndasyrpuna sem sýnir dívuna í glænýju ljósi. 1.3.2012 11:15
Högni spilar á Íslandi Færeyingurinn Högni Reistrup treður upp ásamt hljómsveit á þrennum tónleikum 1. til 3. mars. Þetta verða fyrstu tónleikar hans hér að landi. Hann fær til liðs við sig færeysku söngkonuna Guðrið Hansdóttur sem hefur verið búsett á Íslandi síðan í haust. Högni Reistrup sendi í byrjun árs frá sér sína þriðju plötu, Samröður við framtíðina, þar sem hann blandar saman poppi, raf- og rokktónlist. Gripurinn hefur fengið góða dóma í færeyskum og dönskum fjölmiðlum. Fyrstu tónleikarnir verða á Græna hattinum í kvöld, þeir næstu á Gauki á Stöng annað kvöld og þeir síðustu á Kex Hosteli á laugardagskvöld. 1.3.2012 10:00
Jessica Alba í röndóttu Leikkona Jessica Alba, 30 ára, stillti sér upp á rauða dreglinum klædd í blússu og röndótta peysu. "Þegar þú ert örugg með þig getur þú gert all - meira að segja þegar þú hefur ekki hugmynd um hvað þú ætlar þér að gera," lét Jessica hafa eftir sér. Þá má einnig sjá hana ásamt dóttur sinni, Honor, í Beverly Hills. 1.3.2012 09:30
Charlies-stúlkur djarfar í væntanlegu myndbandi "Söguþráðurinn á eftir að koma áhorfendum á óvart,“ segir Steinunn Camilla sem ásamt þeim Klöru og Ölmu skipa hljómsveitina The Charlies. Stúlkurnar tóku upp fyrsta myndband sitt í Los Angeles á dögunum. 1.3.2012 07:00