Lífið

Björk fær fullt hús

Freyr Bjarnason skrifar
Tónleikar Bjarkar í Hörpu síðasta haust voru valdir tónlistarviðburður ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum í fyrrakvöld.
Tónleikar Bjarkar í Hörpu síðasta haust voru valdir tónlistarviðburður ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum í fyrrakvöld.
Björk Guðmundsdóttir fær fullt hús stiga, eða fimm stjörnur, fyrir Biophilia-tónleika sína í New York í nýjasta hefti breska tónlistartímaritsins Q.

Tónleikarnir hafa hitt rækilega í mark síðan þeir hófu göngu sína í Manchester síðasta sumar en þá fengu þeir fjórar stjörnur af fimm mögulegum í breska dagblaðinu The Guardian.

Skemmst er að minnast þess að Biophila-tónleikar Bjarkar í Hörpu síðasta haust voru valdir tónlistarviðburður ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum í fyrrakvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×