Fleiri fréttir Kom fram í óvæntum kveðjuþætti Opruh Winfrey „Ég sagði ekki orð. Ég stóð bara eins og spýtukall með skiltið með bókstafnum,“ segir Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, sjónvarpskona á Stöð 2. 10.6.2011 15:00 Kennir Cage um hegðun sonarins Sonur leikarans Nicolas Cage var færður á geðsjúkrahús í vikunni eftir að hann sturlaðist á veitingastað og lét það bitna á einkaþjálfara sínum. 10.6.2011 14:00 Valdimar mætir í Vasadiskó 10.6.2011 13:56 Segir að von sé á Hangover 3 Zach Galifianakis lét margt flakka í viðtali við tímaritið Rolling Stone á dögunum, en hann ljóstraði því meðal annars upp að von væri á þriðju Hangover-kvikmyndinni. Söguþráður myndarinnar verður frábrugðinn hinum tveimur, en þriðja myndin á að fjalla um flótta Alans, sem leikinn er af Galifianakis, af geðveikrahæli með hjálp þeirra Phils, Stu og Dougs, sem hafa verið burðarhlutverkin í Hangover-myndunum. Galifianakis er þó þekktur fyrir mikið sprell og því verður athyglisvert að sjá hvort hann er í raun að segja satt eða hvort þetta er allt uppspuni. 10.6.2011 12:15 Einstaka karlmenn sem þora á tónleikana okkar Söngvararnir Friðrik Ómar og Jógvan Hansen verða á ferð og flugi um landið í sumar. Þeir ætla að fylgja eftir plötunni Vinalög sem kom út árið 2009 en lofa að taka Eurovision-lögin líka. 10.6.2011 12:00 Hvaða viðbjóð ertu að drekka stelpa? Meðfylgjandi myndir voru teknar af leikkonunni Scarlett Johansson, 26 ára, sem dömpaði Sean Penn á dögunum, yfirgefa líkamsræktarstöð í Hollywood og síðar sama kvöld þar sem hún stillti sér upp á rauða dreglinum. Eins og myndirnar sýna er leikkonan stórglæsileg hvort sem hún er ómáluð klædd í æfingagalla eða uppstríluð klædd í kjól. Spurning hvað grænbrúni vökvinn sem sjá má í brúsanum hennar í myndasafni inniheldur. Facebooksíða Lífsins. 10.6.2011 11:30 Fær nálgunarbann Lindsay Lohan hefur fengið tveggja ára nálgunarbann á mann að nafni David Cocordan, en maðurinn hefur setið um leikkonuna frá árinu 2009. Cocordan á meðal annars að hafa komið reglulega að heimili Lohan með súkkulaði og tímaritagreinar, útbúnar af honum sjálfum, sem gáfu til kynna að þau tvö ættu í ástarsambandi. Hvorki Lohan né Cocordan mættu í réttarsalinn, en málið var tekið fyrir í Los Angeles á miðvikudag. Nýlega hélt leikkonan því fram að Cocordan hafi ætlað að drepa sig og birti mynd af manninum á Twitter-síðu sinni, en þá var hann ráfandi fyrir utan heimili hennar. 10.6.2011 11:00 Boðið á alþjóðlega leiklistarhátíð í Írak Uppfærslu leikhússins í Konstanz á verki Bertolt Brecht, Móðir Hugrekki, í leikstjórn Þorleifs Arnarssonar hefur verið boðið að taka þátt í fyrstu alþjóðlegu leiklistarhátíðinni í Írak. 10.6.2011 11:00 Viltu gjöra svo vel að fara í eitthvað annað American Idol dómarinn Steven Tyler, 63 ára, leit út eins og kona með stráhatt á höfði eins og greinilega má sjá á meðfylgjandi myndum sem teknar voru af honum á eyjunni Maui í gærdag þar sem rokkarinn er staddur ásamt unnustu sinni í fríi. Lagið Dude Looks Like A Lady má sjá og heyra í myndskeiðinu sem á einstaklega vel við Steven núna. 10.6.2011 09:45 Leikstýrir þriðja Skaupinu í röð „Ég er að fara að taka þetta að mér. Það er ekki búið að ákveða neitt annað,“ segir leikstjórinn Gunnar Björn Guðmundsson. 10.6.2011 09:15 Viðbjóðurinn nánast horfinn Sandra Hlíf Ocares, sem keypti niðurnítt hús á Bræðraborgarstígnum fyrir nokkru ætlar að flytja inn um helgina með stúlkurnar sínar tvær. 10.6.2011 08:46 Hætta að selja hrossapylsur fyrir Morrissey Belgísk tónlistarhátíð sem er fræg fyrir hrossakjötspylsur hyggst hætta sölu á pylsunum í einn dag til að geðjast tónlistarmanninum Morrissey. 10.6.2011 08:45 Ráðherra fagnar risamynd Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir komu Ridley Scott verulega góðar fréttir fyrir Ísland. Hún vill líka horfa til indverska kvikmyndaiðnaðarins í Bollywood enda hafi hann mikil áhrif á ferðamannastraum frá næstfjölmennasta landi heims. 10.6.2011 08:00 Ég hefði átt að deyja 100 sinnum Ný heimildarmynd um myrkraprinsinn Ozzy Osbourne verður frumsýnd á næstunni. Myndin heitir God Bless Ozzy Osbourne, eða Drottinn blessi Ozzy Osbourne, og er framleidd af Jack, syni hans, og eiginkonunni Sharon. 10.6.2011 07:30 Baltasar kemur sér fyrir í Baker Street Baltasar Kormákur hefur verið á ferð og flugi á þessu ári. Hann bjó í hálft ár í New Orleans þegar tökur á Hollywood-myndinni Contraband stóðu yfir. Svo kom hann heim í sveitasæluna í Skagafirði þar sem kvikmyndin var klippt með Elísabetu Ronaldsdóttur og nú er hann fluttur út aftur, að þessu sinni til London til að sinna eftirvinnslu myndarinnar. „Ég verð hérna meira og minna í allt sumar. Ég er kominn með íbúð rétt hjá höfuðstöðvum Working Title og verð að hljóðvinna myndina í Baker Street þar sem þeir eru með aðstöðu,“ segir Baltasar í samtali við Fréttablaðið. 10.6.2011 07:15 Gera innrás í útvarpið "Þetta verður þáttur um uppátækjasamar stelpur sem hafa skoðanir og eru að gera áhugaverða hluti,“ segir blaðamaðurinn Þóra Tómasdóttir, en 20. júní næstkomandi hefur þátturinn Sokkabandið göngu sína á Rás 2 í umsjón systranna Þóru og Kristínar. 10.6.2011 07:00 Allt í lagi með Groban Það fór um marga aðdáendur Josh Groban þegar hann frestaði tónleikum sínum í Suður-Karólínu á þriðjudag. Í ljós kom að Groban hafði fengið heiftarlega matareitrun en söngvarinn sýndi af sér fádæma hörku og mætti strax aftur til leiks degi seinna í Duluth í Georgiu. 10.6.2011 06:00 Hilton skammar The View Paris Hilton hefur skammað stjórnendur umræðuþáttarins The View fyrir að vera illa undirbúnir. Hilton mætti í þáttinn nýverið til að kynna nýjasta raunveruleikaþáttinn sinn, The World According to Paris, og er óhætt að fullyrða að hún hafi fengið óblíðar viðtökur. 10.6.2011 05:00 Taka pásur í hjónabandinu Jada Pinkett Smith segir að pör verði að gefa sér tíma frá hvort öðru af og til. 10.6.2011 04:45 Cole selur kjólana Cheryl Cole hefur ákveðið að láta gott af sér leiða og hyggst selja marga af sínum frægustu kjólum á uppboði til styrktar góðu málefni. Cole, sem hefur verið á milli tannanna á fólki í Bretlandi eftir brottreksturinn úr ameríska X-Factor, hefur gefið tuttugu kjóla, en andvirðið rennur í sjóð góðgerðarsamtaka sem bera nafn hennar. 10.6.2011 03:00 Limp Bizkit snýr aftur Limp Bizkit er hljómsveit sem fólk annað hvort hataði eða elskaði. Hljómsveitin var gríðarlega vinsæl fyrir rúmum áratug en tilraunir til að endurheimta fyrri vinsældir hafa mistekist. Nú er liðsskipan Limp Bizkit sú sama og árið 2000 og ný plata á leiðinni. 9.6.2011 22:00 Hættu að tuða og láttu dekra almennilega við þig Meðfylgjandi myndir voru teknar í kvöld á Hótel Loftleiðum þegar Sóley Elíasdóttir leikkona sem framleiðir Sóley organics lífrænar húðvörur og Þórhalla Ágústsdóttir snyrtifræðimeistari opnuðu nýja heilsulind sem ber heitið Sóley Natura Spa. Sóley Natura Spa á Facebook. 9.6.2011 21:01 Pacino í Lennon-mynd Al Pacino er í viðræðum við handritshöfundinn og leikstjórann Dan Fogelman um að leika í kvikmynd hans Imagine. Myndin segir frá skallarokkara sem fær bréf frá John Lennon, fjörutíu árum eftir að það var skrifað, og ákveður að breyta lífi sínu með því hafa uppi á syni sínum. Upphaflega stóð til að Steve Carell léki í myndinni en hann forfallaðist sökum anna á öðrum vígstöðvum. 9.6.2011 21:00 Mjúkar og léttar línur að sunnan Tískuvikan í Ástralíu var haldin hátíðleg fyrstu vikuna í maí og var margt fallegt að sjá á tískupöllunum þar eins og myndirnar bera vitni um. Forvitnilegt er að fylgjast með tískustraumunum sem þar ríkja og eru ástralskir hönnuðir engir eftirbátar þeirra frönsku eða ítölsku. 9.6.2011 20:30 Skjólstæðingur Jay-Z ákærður fyrir skotárás Rapparinn K Koke, breskur skjólstæðingur Jay-Z, hefur verið ákærður fyrir morðtilraun. K Koke er nú í gæsluvarðhaldi sakaður um aðild að skotárás á Harlesden-lestarstöðinni í mars. Hann er 25 ára gamall og er á mála hjá útgáfufyrirtækinu Roc Nation, sem er stýrt af rapparanum Jay-Z. 9.6.2011 20:30 Walker í T:5 Samkvæmt kvikmyndatímaritinu Empire er nýjasta kjaftasagan í Hollywood sú að Paul Walker eigi að leika aðalhlutverkið í fimmtu Tortímandamyndinni. Upphaflega stóð til að Arnold Schwarzenegger sneri aftur á hvíta tjaldið í þessari mynd en horfið var frá þeirri hugmynd. 9.6.2011 19:30 Besta útihátíðin lokar dagskránni 9.6.2011 18:03 Þriðja barnið hjá Connelly Leikkonan Jennifer Connelly og eiginmaður hennar, leikarinn Paul Bettany, eignuðust dóttur á dögunum. Fyrir áttu hjónin hinn sjö ára gamla Stellan, en Connelly átti einnig hinn þrettán ára gamla Kai með fyrrum kærasta sínum, David Dugan. Dóttirin hefur hlotið nafnið Agnes Lark, en leikkonan fæddi hana á heimili hjónanna í New York. „Öllum heilsast vel,“ sagði talsmaður leikkonunnar. 9.6.2011 17:00 Æi þetta hefur verið sárt (myndband) Söngkonan Shania Twain hló og brosti blítt þrátt fyrir að hafa misstigið sig illa á CMT tónlistarhátíðinni. Söngkonan rifjar upp fallið og lætur aðdáendur sína vita á vefsíðunni sinni að hún er líkamlega í lagi eftir að hún datt illa í beinni útsendingu eins og sjá má hér. 9.6.2011 16:30 Eva Longoria búin að læra táknmál Eva Longoria hefur nú lært táknmál til þess að ná til heyrnarlausra aðdáenda sinna, en hún gaf nýlega út uppskriftabókina Eva‘s Kitchen. "Fjölmargir heyrnarlausir einstaklingar hafa keypt eintak af bókinni minni og ég hef náð að tala til þeirra með táknmáli um uppáhalds uppskriftirnar og hvað þeir eigi að elda,“ sagði Longoria á hátíðarsamkomu um helgina. Hún sagðist þekkja vel þá tilfinningu að tilheyra minnihlutahópi. "Margir innan minnar fjölskyldu tilheyra minnihlutahópi og það gleður mig að geta talað þeirra máli,“ sagði Longoria. 9.6.2011 15:00 Reese framleiðir næstu mynd sjálf Óskarsverðlaunaleikkonan Reese Witherspoon hyggst framleiða og leika aðalhlutverkið í kvikmyndinni Who Invited Her? Kvikmyndaverin Sony, Paramount og Dreamworks börðust hatrammlega um myndina en að endingu hreppti síðastnefnda fyrirtækið hnossið. 9.6.2011 15:00 Kjóstu þína Sloggi stúlku Útvarpsstöðin FM957 og undirfataframleiðandinn Sloggi leita að Sloggi stúlku 2011. Þær Aldís, Arna, Dísa, Emma, Hafdís, Hildur, Þórdís og Þorgerður sem skoða má í myndasafni berjast um titilinn. Veldu þína Sloggi stúlku með því að kjósa hér. 9.6.2011 13:54 Glíman við karlmennskuna Fjórir karlmenn halda af stað í ferðalag til Taílands vitandi að einn þeirra á eftir að reka einhvern af hinum þremur. Þannig hljómar söguþráðurinn í nýju verki sem sett verður upp í Austurbæ. 9.6.2011 13:00 Gerir mynd um Taylor og Burton Óskarsverðlaunaleikstjórinn Martin Scorsese hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn að bókinni Furious Love en hún fjallar um stormasamt samband kvikmyndastjarnanna Elizabeth Taylor og Richard Burton. 9.6.2011 12:00 Rómantíkin allsráðandi Leikkonan Blake Lively, 23 ára, og leikarinn Leonardo DiCaprio, 36 ára, leiddust á götum Monte Carlo í Mónakó eins og myndirnar sýna greinilega. Sagan segir að Leonardo kynni Blake fyrir öllum sem kærustuna sína. Parið spókaði sig líka um á Ítalíu eins og sjá má hér. 9.6.2011 11:15 Emmu Watson var ekki strítt Harry Potter leikkonan Emma Watson tjáir sig um brotthvarf sitt úr Brown-háskólanum í viðtali við tímaritið Style, fylgirit Sunday Times. Hin 21 árs gamla leikkona hætti í skólanum í apríl síðastliðnum. Þá greindu fjölmiðlar frá því að henni hefði verið strítt á frægð sinni og þess vegna hefði hún hrakist úr skólanum. Watson segir það ekki rétt. 9.6.2011 11:00 Frægir spreyta sig í útvarpi „Við Andri þurfum nú að fara í sumarfrí eins og aðrir, og gerum það bara hvort í sínu laginu og fáum til okkar þekkta gestastjórnendur í staðinn,“ segir Guðrún Dís Emilsdóttir, betur þekkt sem Gunna Dís, annar stjórnenda þáttanna Virkra morgna á Rás 2. 9.6.2011 10:45 Alvöru íslensk tónlistarhátíð Besta útihátíðin hefur blásið út og er að breytast í alvöru tónlistarhátíð að erlendri fyrirmynd. Hátíðin á að verða að árlegum viðburði. 9.6.2011 10:00 Klikkað kaffihús Mocha – Mojo er kaffihús í Chennai á Indlandi eftir Mancini arkítekta þar sem húsgögn staðarins eru að mestu dýnur og púðar. Kaffihúsið er ævintýralegt, eins og sjá má í myndasafni, nánast í líkingu við Legoland. Áhersla var lögð á að skapa þrívíddar umhverfi á staðnum sem heppnaðist líka svona afburða vel. 9.6.2011 09:38 Stórar og ýktar augabrúnir eru málið Stúlkur, fleygið plokkaranum og leyfið augabrúnunum að vaxa villtum. Á tískupöllunum í haust mátti víða sjá fyrirsætur bera ýktar og dökkar augabrúnir með sóma og eiga augabrúnirnar því að taka vaxtarkipp með gróðrinum í vor. 9.6.2011 09:30 Enn ein geirvartan í beinni Kardashian fjölskyldan veit vissulega hvernig fanga á athyglina. Einn fjölskyldumeðlimurinn, Khloe Kardashian, gerði það svo sannarlega í bandaríska sjónvarpsþættinum Fox and Friends í fyrradag. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sýndi Khloe á sér hægri geirvörtuna í miðju viðtali og það í beinni. Þá má sjá fleiri myndir af Khloe í myndasafni. 9.6.2011 09:05 Stjörnurnar fagna með Emmsjé Gauta Rapparinn Emmsjé Gauti fagnar útgáfu plötunnar Bara ég með tónleikum í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld. Þúsund krónur kostar inn á tónleikana og húsið verður opnað klukkan 21.30. 9.6.2011 09:00 Skotin í Bretaprinsi Söngkonan Adele segist gjarnan vilja fara út með Harry Bretaprins og telur að þau myndu ná vel saman. „Ég er að eltast við Harry Bretaprins. Ég sagðist aldrei ætla að fara út með rauðhaus, en þetta er Bretaprinsinn!“ sagði söngkonan í viðtali við tímaritið Glamour. Þrátt fyrir að vilja fara út með prinsinum er Adele lítið fyrir að opinbera einkalíf sitt. „Ég hef farið á nokkur stefnumót með þekktum einstaklingum en mér líkar ekki öll sú athygli sem þeim fylgir.“ 9.6.2011 09:00 Aerosmith tekur upp Rokksveitin Aerosmith er á leið í hljóðver í næsta mánuði. Liðsmenn sveitarinnar hyggjast taka upp nýja plötu, en sú síðasta, Honkin‘ on Bobo, kom út árið 2004. 9.6.2011 08:00 Erpur til Danmerkur að hvetja landsliðið „Þetta eru gæjarnir sem ég hitti á tónleikum og eru með á nótunum,“ segir rapparinn Erpur Eyvindarson um U21 landslið Íslands í fótbolta. 9.6.2011 08:00 Sjá næstu 50 fréttir
Kom fram í óvæntum kveðjuþætti Opruh Winfrey „Ég sagði ekki orð. Ég stóð bara eins og spýtukall með skiltið með bókstafnum,“ segir Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, sjónvarpskona á Stöð 2. 10.6.2011 15:00
Kennir Cage um hegðun sonarins Sonur leikarans Nicolas Cage var færður á geðsjúkrahús í vikunni eftir að hann sturlaðist á veitingastað og lét það bitna á einkaþjálfara sínum. 10.6.2011 14:00
Segir að von sé á Hangover 3 Zach Galifianakis lét margt flakka í viðtali við tímaritið Rolling Stone á dögunum, en hann ljóstraði því meðal annars upp að von væri á þriðju Hangover-kvikmyndinni. Söguþráður myndarinnar verður frábrugðinn hinum tveimur, en þriðja myndin á að fjalla um flótta Alans, sem leikinn er af Galifianakis, af geðveikrahæli með hjálp þeirra Phils, Stu og Dougs, sem hafa verið burðarhlutverkin í Hangover-myndunum. Galifianakis er þó þekktur fyrir mikið sprell og því verður athyglisvert að sjá hvort hann er í raun að segja satt eða hvort þetta er allt uppspuni. 10.6.2011 12:15
Einstaka karlmenn sem þora á tónleikana okkar Söngvararnir Friðrik Ómar og Jógvan Hansen verða á ferð og flugi um landið í sumar. Þeir ætla að fylgja eftir plötunni Vinalög sem kom út árið 2009 en lofa að taka Eurovision-lögin líka. 10.6.2011 12:00
Hvaða viðbjóð ertu að drekka stelpa? Meðfylgjandi myndir voru teknar af leikkonunni Scarlett Johansson, 26 ára, sem dömpaði Sean Penn á dögunum, yfirgefa líkamsræktarstöð í Hollywood og síðar sama kvöld þar sem hún stillti sér upp á rauða dreglinum. Eins og myndirnar sýna er leikkonan stórglæsileg hvort sem hún er ómáluð klædd í æfingagalla eða uppstríluð klædd í kjól. Spurning hvað grænbrúni vökvinn sem sjá má í brúsanum hennar í myndasafni inniheldur. Facebooksíða Lífsins. 10.6.2011 11:30
Fær nálgunarbann Lindsay Lohan hefur fengið tveggja ára nálgunarbann á mann að nafni David Cocordan, en maðurinn hefur setið um leikkonuna frá árinu 2009. Cocordan á meðal annars að hafa komið reglulega að heimili Lohan með súkkulaði og tímaritagreinar, útbúnar af honum sjálfum, sem gáfu til kynna að þau tvö ættu í ástarsambandi. Hvorki Lohan né Cocordan mættu í réttarsalinn, en málið var tekið fyrir í Los Angeles á miðvikudag. Nýlega hélt leikkonan því fram að Cocordan hafi ætlað að drepa sig og birti mynd af manninum á Twitter-síðu sinni, en þá var hann ráfandi fyrir utan heimili hennar. 10.6.2011 11:00
Boðið á alþjóðlega leiklistarhátíð í Írak Uppfærslu leikhússins í Konstanz á verki Bertolt Brecht, Móðir Hugrekki, í leikstjórn Þorleifs Arnarssonar hefur verið boðið að taka þátt í fyrstu alþjóðlegu leiklistarhátíðinni í Írak. 10.6.2011 11:00
Viltu gjöra svo vel að fara í eitthvað annað American Idol dómarinn Steven Tyler, 63 ára, leit út eins og kona með stráhatt á höfði eins og greinilega má sjá á meðfylgjandi myndum sem teknar voru af honum á eyjunni Maui í gærdag þar sem rokkarinn er staddur ásamt unnustu sinni í fríi. Lagið Dude Looks Like A Lady má sjá og heyra í myndskeiðinu sem á einstaklega vel við Steven núna. 10.6.2011 09:45
Leikstýrir þriðja Skaupinu í röð „Ég er að fara að taka þetta að mér. Það er ekki búið að ákveða neitt annað,“ segir leikstjórinn Gunnar Björn Guðmundsson. 10.6.2011 09:15
Viðbjóðurinn nánast horfinn Sandra Hlíf Ocares, sem keypti niðurnítt hús á Bræðraborgarstígnum fyrir nokkru ætlar að flytja inn um helgina með stúlkurnar sínar tvær. 10.6.2011 08:46
Hætta að selja hrossapylsur fyrir Morrissey Belgísk tónlistarhátíð sem er fræg fyrir hrossakjötspylsur hyggst hætta sölu á pylsunum í einn dag til að geðjast tónlistarmanninum Morrissey. 10.6.2011 08:45
Ráðherra fagnar risamynd Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir komu Ridley Scott verulega góðar fréttir fyrir Ísland. Hún vill líka horfa til indverska kvikmyndaiðnaðarins í Bollywood enda hafi hann mikil áhrif á ferðamannastraum frá næstfjölmennasta landi heims. 10.6.2011 08:00
Ég hefði átt að deyja 100 sinnum Ný heimildarmynd um myrkraprinsinn Ozzy Osbourne verður frumsýnd á næstunni. Myndin heitir God Bless Ozzy Osbourne, eða Drottinn blessi Ozzy Osbourne, og er framleidd af Jack, syni hans, og eiginkonunni Sharon. 10.6.2011 07:30
Baltasar kemur sér fyrir í Baker Street Baltasar Kormákur hefur verið á ferð og flugi á þessu ári. Hann bjó í hálft ár í New Orleans þegar tökur á Hollywood-myndinni Contraband stóðu yfir. Svo kom hann heim í sveitasæluna í Skagafirði þar sem kvikmyndin var klippt með Elísabetu Ronaldsdóttur og nú er hann fluttur út aftur, að þessu sinni til London til að sinna eftirvinnslu myndarinnar. „Ég verð hérna meira og minna í allt sumar. Ég er kominn með íbúð rétt hjá höfuðstöðvum Working Title og verð að hljóðvinna myndina í Baker Street þar sem þeir eru með aðstöðu,“ segir Baltasar í samtali við Fréttablaðið. 10.6.2011 07:15
Gera innrás í útvarpið "Þetta verður þáttur um uppátækjasamar stelpur sem hafa skoðanir og eru að gera áhugaverða hluti,“ segir blaðamaðurinn Þóra Tómasdóttir, en 20. júní næstkomandi hefur þátturinn Sokkabandið göngu sína á Rás 2 í umsjón systranna Þóru og Kristínar. 10.6.2011 07:00
Allt í lagi með Groban Það fór um marga aðdáendur Josh Groban þegar hann frestaði tónleikum sínum í Suður-Karólínu á þriðjudag. Í ljós kom að Groban hafði fengið heiftarlega matareitrun en söngvarinn sýndi af sér fádæma hörku og mætti strax aftur til leiks degi seinna í Duluth í Georgiu. 10.6.2011 06:00
Hilton skammar The View Paris Hilton hefur skammað stjórnendur umræðuþáttarins The View fyrir að vera illa undirbúnir. Hilton mætti í þáttinn nýverið til að kynna nýjasta raunveruleikaþáttinn sinn, The World According to Paris, og er óhætt að fullyrða að hún hafi fengið óblíðar viðtökur. 10.6.2011 05:00
Taka pásur í hjónabandinu Jada Pinkett Smith segir að pör verði að gefa sér tíma frá hvort öðru af og til. 10.6.2011 04:45
Cole selur kjólana Cheryl Cole hefur ákveðið að láta gott af sér leiða og hyggst selja marga af sínum frægustu kjólum á uppboði til styrktar góðu málefni. Cole, sem hefur verið á milli tannanna á fólki í Bretlandi eftir brottreksturinn úr ameríska X-Factor, hefur gefið tuttugu kjóla, en andvirðið rennur í sjóð góðgerðarsamtaka sem bera nafn hennar. 10.6.2011 03:00
Limp Bizkit snýr aftur Limp Bizkit er hljómsveit sem fólk annað hvort hataði eða elskaði. Hljómsveitin var gríðarlega vinsæl fyrir rúmum áratug en tilraunir til að endurheimta fyrri vinsældir hafa mistekist. Nú er liðsskipan Limp Bizkit sú sama og árið 2000 og ný plata á leiðinni. 9.6.2011 22:00
Hættu að tuða og láttu dekra almennilega við þig Meðfylgjandi myndir voru teknar í kvöld á Hótel Loftleiðum þegar Sóley Elíasdóttir leikkona sem framleiðir Sóley organics lífrænar húðvörur og Þórhalla Ágústsdóttir snyrtifræðimeistari opnuðu nýja heilsulind sem ber heitið Sóley Natura Spa. Sóley Natura Spa á Facebook. 9.6.2011 21:01
Pacino í Lennon-mynd Al Pacino er í viðræðum við handritshöfundinn og leikstjórann Dan Fogelman um að leika í kvikmynd hans Imagine. Myndin segir frá skallarokkara sem fær bréf frá John Lennon, fjörutíu árum eftir að það var skrifað, og ákveður að breyta lífi sínu með því hafa uppi á syni sínum. Upphaflega stóð til að Steve Carell léki í myndinni en hann forfallaðist sökum anna á öðrum vígstöðvum. 9.6.2011 21:00
Mjúkar og léttar línur að sunnan Tískuvikan í Ástralíu var haldin hátíðleg fyrstu vikuna í maí og var margt fallegt að sjá á tískupöllunum þar eins og myndirnar bera vitni um. Forvitnilegt er að fylgjast með tískustraumunum sem þar ríkja og eru ástralskir hönnuðir engir eftirbátar þeirra frönsku eða ítölsku. 9.6.2011 20:30
Skjólstæðingur Jay-Z ákærður fyrir skotárás Rapparinn K Koke, breskur skjólstæðingur Jay-Z, hefur verið ákærður fyrir morðtilraun. K Koke er nú í gæsluvarðhaldi sakaður um aðild að skotárás á Harlesden-lestarstöðinni í mars. Hann er 25 ára gamall og er á mála hjá útgáfufyrirtækinu Roc Nation, sem er stýrt af rapparanum Jay-Z. 9.6.2011 20:30
Walker í T:5 Samkvæmt kvikmyndatímaritinu Empire er nýjasta kjaftasagan í Hollywood sú að Paul Walker eigi að leika aðalhlutverkið í fimmtu Tortímandamyndinni. Upphaflega stóð til að Arnold Schwarzenegger sneri aftur á hvíta tjaldið í þessari mynd en horfið var frá þeirri hugmynd. 9.6.2011 19:30
Þriðja barnið hjá Connelly Leikkonan Jennifer Connelly og eiginmaður hennar, leikarinn Paul Bettany, eignuðust dóttur á dögunum. Fyrir áttu hjónin hinn sjö ára gamla Stellan, en Connelly átti einnig hinn þrettán ára gamla Kai með fyrrum kærasta sínum, David Dugan. Dóttirin hefur hlotið nafnið Agnes Lark, en leikkonan fæddi hana á heimili hjónanna í New York. „Öllum heilsast vel,“ sagði talsmaður leikkonunnar. 9.6.2011 17:00
Æi þetta hefur verið sárt (myndband) Söngkonan Shania Twain hló og brosti blítt þrátt fyrir að hafa misstigið sig illa á CMT tónlistarhátíðinni. Söngkonan rifjar upp fallið og lætur aðdáendur sína vita á vefsíðunni sinni að hún er líkamlega í lagi eftir að hún datt illa í beinni útsendingu eins og sjá má hér. 9.6.2011 16:30
Eva Longoria búin að læra táknmál Eva Longoria hefur nú lært táknmál til þess að ná til heyrnarlausra aðdáenda sinna, en hún gaf nýlega út uppskriftabókina Eva‘s Kitchen. "Fjölmargir heyrnarlausir einstaklingar hafa keypt eintak af bókinni minni og ég hef náð að tala til þeirra með táknmáli um uppáhalds uppskriftirnar og hvað þeir eigi að elda,“ sagði Longoria á hátíðarsamkomu um helgina. Hún sagðist þekkja vel þá tilfinningu að tilheyra minnihlutahópi. "Margir innan minnar fjölskyldu tilheyra minnihlutahópi og það gleður mig að geta talað þeirra máli,“ sagði Longoria. 9.6.2011 15:00
Reese framleiðir næstu mynd sjálf Óskarsverðlaunaleikkonan Reese Witherspoon hyggst framleiða og leika aðalhlutverkið í kvikmyndinni Who Invited Her? Kvikmyndaverin Sony, Paramount og Dreamworks börðust hatrammlega um myndina en að endingu hreppti síðastnefnda fyrirtækið hnossið. 9.6.2011 15:00
Kjóstu þína Sloggi stúlku Útvarpsstöðin FM957 og undirfataframleiðandinn Sloggi leita að Sloggi stúlku 2011. Þær Aldís, Arna, Dísa, Emma, Hafdís, Hildur, Þórdís og Þorgerður sem skoða má í myndasafni berjast um titilinn. Veldu þína Sloggi stúlku með því að kjósa hér. 9.6.2011 13:54
Glíman við karlmennskuna Fjórir karlmenn halda af stað í ferðalag til Taílands vitandi að einn þeirra á eftir að reka einhvern af hinum þremur. Þannig hljómar söguþráðurinn í nýju verki sem sett verður upp í Austurbæ. 9.6.2011 13:00
Gerir mynd um Taylor og Burton Óskarsverðlaunaleikstjórinn Martin Scorsese hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn að bókinni Furious Love en hún fjallar um stormasamt samband kvikmyndastjarnanna Elizabeth Taylor og Richard Burton. 9.6.2011 12:00
Rómantíkin allsráðandi Leikkonan Blake Lively, 23 ára, og leikarinn Leonardo DiCaprio, 36 ára, leiddust á götum Monte Carlo í Mónakó eins og myndirnar sýna greinilega. Sagan segir að Leonardo kynni Blake fyrir öllum sem kærustuna sína. Parið spókaði sig líka um á Ítalíu eins og sjá má hér. 9.6.2011 11:15
Emmu Watson var ekki strítt Harry Potter leikkonan Emma Watson tjáir sig um brotthvarf sitt úr Brown-háskólanum í viðtali við tímaritið Style, fylgirit Sunday Times. Hin 21 árs gamla leikkona hætti í skólanum í apríl síðastliðnum. Þá greindu fjölmiðlar frá því að henni hefði verið strítt á frægð sinni og þess vegna hefði hún hrakist úr skólanum. Watson segir það ekki rétt. 9.6.2011 11:00
Frægir spreyta sig í útvarpi „Við Andri þurfum nú að fara í sumarfrí eins og aðrir, og gerum það bara hvort í sínu laginu og fáum til okkar þekkta gestastjórnendur í staðinn,“ segir Guðrún Dís Emilsdóttir, betur þekkt sem Gunna Dís, annar stjórnenda þáttanna Virkra morgna á Rás 2. 9.6.2011 10:45
Alvöru íslensk tónlistarhátíð Besta útihátíðin hefur blásið út og er að breytast í alvöru tónlistarhátíð að erlendri fyrirmynd. Hátíðin á að verða að árlegum viðburði. 9.6.2011 10:00
Klikkað kaffihús Mocha – Mojo er kaffihús í Chennai á Indlandi eftir Mancini arkítekta þar sem húsgögn staðarins eru að mestu dýnur og púðar. Kaffihúsið er ævintýralegt, eins og sjá má í myndasafni, nánast í líkingu við Legoland. Áhersla var lögð á að skapa þrívíddar umhverfi á staðnum sem heppnaðist líka svona afburða vel. 9.6.2011 09:38
Stórar og ýktar augabrúnir eru málið Stúlkur, fleygið plokkaranum og leyfið augabrúnunum að vaxa villtum. Á tískupöllunum í haust mátti víða sjá fyrirsætur bera ýktar og dökkar augabrúnir með sóma og eiga augabrúnirnar því að taka vaxtarkipp með gróðrinum í vor. 9.6.2011 09:30
Enn ein geirvartan í beinni Kardashian fjölskyldan veit vissulega hvernig fanga á athyglina. Einn fjölskyldumeðlimurinn, Khloe Kardashian, gerði það svo sannarlega í bandaríska sjónvarpsþættinum Fox and Friends í fyrradag. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sýndi Khloe á sér hægri geirvörtuna í miðju viðtali og það í beinni. Þá má sjá fleiri myndir af Khloe í myndasafni. 9.6.2011 09:05
Stjörnurnar fagna með Emmsjé Gauta Rapparinn Emmsjé Gauti fagnar útgáfu plötunnar Bara ég með tónleikum í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld. Þúsund krónur kostar inn á tónleikana og húsið verður opnað klukkan 21.30. 9.6.2011 09:00
Skotin í Bretaprinsi Söngkonan Adele segist gjarnan vilja fara út með Harry Bretaprins og telur að þau myndu ná vel saman. „Ég er að eltast við Harry Bretaprins. Ég sagðist aldrei ætla að fara út með rauðhaus, en þetta er Bretaprinsinn!“ sagði söngkonan í viðtali við tímaritið Glamour. Þrátt fyrir að vilja fara út með prinsinum er Adele lítið fyrir að opinbera einkalíf sitt. „Ég hef farið á nokkur stefnumót með þekktum einstaklingum en mér líkar ekki öll sú athygli sem þeim fylgir.“ 9.6.2011 09:00
Aerosmith tekur upp Rokksveitin Aerosmith er á leið í hljóðver í næsta mánuði. Liðsmenn sveitarinnar hyggjast taka upp nýja plötu, en sú síðasta, Honkin‘ on Bobo, kom út árið 2004. 9.6.2011 08:00
Erpur til Danmerkur að hvetja landsliðið „Þetta eru gæjarnir sem ég hitti á tónleikum og eru með á nótunum,“ segir rapparinn Erpur Eyvindarson um U21 landslið Íslands í fótbolta. 9.6.2011 08:00