Fleiri fréttir Sonur Nicolas Cage snappar Sonur leikarans, Nicolas Cage, Weston Cage fór yfir um í dag. Drengurinn gjörsamlega snappaði þegar þjálfarinn hans bannaði honum að panta mat af matseðli á veitingahúsi. Þá réðst Weston á þjálfarann sem náði að yfirbuga drenginn sem nánast froðufelldi af reiði. Þá reyndu nærstaddir að róa Weston niður en ekkert gekk í þeim efnum. Vitni segja Weston hafa verið í vímu. Þá mætti lögreglan á svæðið, handjárnaði Weston og kom honum í læknishendur. Nicolas Cage, vitjaði sonar síns á spítalann og ætlar að vera hjá honum eins lengi og hann þarf á honum að halda. 8.6.2011 17:18 Egglaga hús Veggirnir í egglaga húsi, sem skoða má í meðfylgjandi myndasafni, eftir dmvA arkítekta, eru afskaplega vel nýttir. Sofa má í hliðum hússins, elda, vaska upp sem og geyma ýmsa hluti. Þá er einnig klósett í öðrum enda hússins. Húsið, sem er á stærð við hjólhýsi, má nota sem gestaherbergi, vinnustofu eða móttöku. Það er færanlegt hvert sem er. 8.6.2011 16:30 Hvað ertu að pæla og þú sem ert nýtrúlofuð? Sjónvarpsstjarnan Kim Kardashian er sögð hafa haldið framhjá unnusta sínum Kris Humphries með NFL spilaranum Bret Lockett. Krim og Kris trúlofuð sig í lok maí á þessu ári en trúlofunarhringurinn sem skoða má í myndasafni kostaði litlar 228 milljónir íslenskar kr. Það svoleiðis sýður á Kim yfir forsíðufréttinni sem hún segir vera bull frá a-ö. Kim er staðráðin í að kæra InTouch tímaritið og Bret Lockett. Ég vissi að þetta (kynlífið) var leikur í hennar huga. Hún þvingaði mig í að vera með sér, læstur Bret hafa eftir sér í InTouch. 8.6.2011 15:38 Sér sjálfan sig í Viggó viðutan Freyr Eyjólfsson, útvarpsmaðurinn góðkunni á Rás 2, segist eiga ýmislegt sameiginlegt með hinum skrautlega Viggó viðutan og leitar nú logandi ljósi að bókum um myndasöguhetjuna sem Freyr segir vera hálfgerðan tvífara sinn. 8.6.2011 15:30 Ýr fundaði með Barney's Fatahönnuðurinn Ýr Þrastardóttir hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir hönnun sína bæði hér heima og úti í heimi. Bandarískt upplýsingafyrirtæki hreifst svo af hönnun Ýrar á RFF-tískuhátíðinni að það hefur boðist til að sjá alfarið um allt sem viðkemur umfjöllun og útliti merkisins. 8.6.2011 15:00 Leo taktu af henni myndavélina... núna! Leikkonan Blake Lively og leikarinn og Leonardo DiCaprio upplifðu saman Veronu á Ítalíu um helgina þar sem hún sá um að taka myndir af því sem fyrir augu bar á iPhone-inn sinn eins og sjá má í meðfylgjandi myndasafni. Blake heldur því fram að nakta konan sem myndar sjálfa sig eins og sjá má hér sé ekki hún. Slúðurmiðlar halda því hinsvegar fram að hún hafi myndað sig nakta. Þá eru getgátur uppi um að þessar símamyndir voru sendar áfram á leikarann Ben Affleck. 8.6.2011 14:55 Hvítt, hið nýja svart Þrátt fyrir yfirvofandi litadýrð í sumartískunni verður hvíti liturinn einnig áberandi og hafa rómantískir kjólar, hvítar blúndur og gegnsæ pils sjaldan verið heitari. 8.6.2011 14:30 Var einhver að tala um lýtaaðgerðir? Í meðfylgjandi myndskeiði má greinilega sjá að stjörnurnar í Hollywood hafa látið tjasla allverulega upp á útlitið með aðstoð lýtalækna. Sjón er sögu ríkari. 8.6.2011 13:44 Paris Hilton grilluð í beinni Paris Hilton kynnti nýja raunveruleikaþáttinn sinn í bandaríska sjónarpsþættinum The View þar sem Whoopi Goldberg spyr Paris meðal annars af hverju í ósköpunum hún leggi áherslu á að versla og grínast í raunveruleikaþættinum sínum þrátt fyrir þá staðreynd að hún er vel gefin kona sem vill láta gott af sér leiða. Paris svarar fullum hálsi eins og sjá má í myndskeiðinu: Þó ég grínist er ekki þar með sagt að mér sé alvara með því. Paris og móðir hennar bókstaflega brjáluðust eftir útsendinguna út af óundirbúnum spurningunum sem rigndu yfir þær í umræddum þætti. 8.6.2011 13:15 Fyrirsætur í yfirstærð á forsíðu ítalska Vogue Miklar umræður hafa verið um forsíðu nýjasta tölublaðs ítalska Vogue, en hana prýða fyrirsætur í yfirstærð. 8.6.2011 13:00 Útidúr safnar fyrir ferð til Þýskalands Hljómsveitin Útidúr kemur fram á tónleikum á Faktorý annað kvöld ásamt Sóleyju, Jóni Þór og hljómsveitinni Nolo. Þúsund krónur kostar inn á tónleikana, en allur ágóðinn rennur í ferðasjóð Útidúrs sem kemur fram á fernum tónleikum í Þýskalandi í júní. 8.6.2011 12:00 Fáránlega flottar eftir fertugt Leikkonan Demi Moore, 48 ára, og söngkonan Jennifer Lopez, 41 árs, stilltu sér upp á rauða dreglinum á góðgerðarsamkomu í New York í gærkvöldi. Eins og meðfylgjandi myndir sýna geisluðu þær sem aldrei fyrr. Demi klæddist Louis Vuitton kjól og Jimmy Choo skóm. 8.6.2011 11:45 Inspired by Iceland misnotað í Búlgaríu "Ég var bara bókaður í gegnum umboðsskrifstofuna mína,“ segir Stephan Stephensen, betur þekktur sem President Bongo úr GusGus. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær stendur til að halda upp á þjóðhátíðardag Íslendinga á offiseraklúbbi í Sofíu hinn 17. júní eins og lög gera ráð fyrir. 8.6.2011 11:30 Þú vissir að dressið er götótt er það ekki? Ástralska fyrirsætan Miranda Kerr, 28 ára, stillti sér upp fyrir nærstadda ljósmyndara í New York síðasta mánudag. Miranda var stórglæsileg með hárið tekið aftur í Michael Kors fatnaði frá toppi til táar. Um var að ræða svartan þröngan topp og skósítt pils. Þá má sjá Miröndu stilla sér upp með hönnuðinum sjálfum, Michael, og leikkonunni Ashley Greene. Í myndasafni má einnig sjá hana ásamt eiginmanni sínum, leikaranum Orlando Bloom. 8.6.2011 10:54 Coldplay hafnar ásökunum um að nýja lagið sé stolið Enn og aftur hefur breska hljómsveitin Coldplay verið sökuð um lagastuld. Í þetta skipti voru Chris Martin og félagar búnir að baktryggja sig, en nýtt lag Coldplay er byggt á lagi frá 1976. 8.6.2011 09:00 Gunnar stóð við stóru orðin "Þetta er eitthvað sem þjóðin verður að vita. Ég stóð við stóru orðin,“ segir Gunnar Hansson leikari. 8.6.2011 08:00 Syrgja Norman saman Tímarit hið vestra greindu nýverið frá því að hundur leikkonunnar Jennifer Aniston væri dauður. Hundurinn Norman var orðinn fjörgamall og saknar leikkonan hans sárt. 8.6.2011 07:00 Blake er sinn eigin stílisti Blake Lively er ein af fáum leikkonum sem njóta ekki aðstoðar stílista þegar hún sækir opinberar samkomur. 8.6.2011 04:00 CCP undirritar stóran samning við Sony 8.6.2011 00:01 Giftast á Playboysetrinu Hugh Hefner, 84 ára, og unnusta hans, Crystal Harris, 24 ára, hafa staðfest að brúkaupið fari fram 18. júní næstkomandi á Playboysetrinu. Athöfnin verður innileg í návist góðra vina. Þetta verður sérstök einlæg stund, sagði Hugh en Crystal ætlar að klæðast Romona Keveza kjól þegar hún gengur að eiga gamla manninn sem bað hennar á jóladag. Sagan segir að þau bjóði innan við 300 mans í brúðkaupið. 7.6.2011 16:48 Áhugaverð breytingatilraun Gus Gus Ástæðan fyrir því að hljómsveitin Gus Gus ákvað að halda tvenna útgáfutónleika sama kvöldið á Nasa, þann 18. júní næstkomandi, er sú að liðsmenn vilja sjá breytingu á tónlistarmenningu landsins. Frá þessu greindi Birgir Þórarinsson, betur þekktur sem Biggi Veira, í útvarpsþættinum Vasadiskó síðasta sunnudag. 7.6.2011 15:21 Slayer ekki í hljóðver strax Hljómsveitin Slayer mun ekki hefja upptökur á nýju efni fyrr en gítarleikarinn Jeff Hanneman jafnar sig á veikindum sínum. Þetta kemur fram í tímaritinu Billboard. 7.6.2011 15:00 Þetta eru kjólarnir sem stílistarnir drulla yfir Selena Gomez sem var klædd í Giambattista Valli blússu, Kristen Stewart í Balmain kjól og Emma Watson sem klæddist Marchesa kjól voru allar gagnrýndar fyrir ósmekklegan klæðnað á MTV hátíðinni síðasta sunnudagkvöld. Þá voru fleiri leikkonur sem féllu ekki í kramið hjá stílistunum vestan hafs þegar kom að klæðnaði eins og Leighton Meester, Emmu Stone, Nikki Reed, Lil Mama, Elle Fanning og Reese Witherspoon. Þær má skoða betur í myndasafni. 7.6.2011 13:19 CCP gefur út Playstation leik hjá Sony Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP kynnti í nótt að fyrirtækið væri komið í samstarf við tölvuleikjarisann Sony um útgáfu tölvuleiks á Playstation 3 leikjatölvuna. Talsmaður fyrirtækisins segir að leikurinn verði byltingarkenndur. 7.6.2011 12:09 Gallinn er gegnsær stelpa Meðfylgjandi myndir voru teknar af söngkonunni Lady Gaga, 25 ára, á CFDA verðlaunahátíðinni í New York þar sem hún var heiðruð fyrir að vera lifandi tískutákn. Eins og myndirnar sýna klæddist Lady Gaga gegnsæjum galla og athyglisverðum skóm. Söngkonan hafði vit á því að klæðast g-streng undir gallanum og hylja geirvörturnar. 7.6.2011 12:03 Koma á tveimur einkaþotum Liðsmenn hljómsveitarinnar Eagles mæta til landsins á tveimur einkaþotum samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þeir æfa á sviðinu í Nýju Laugardalshöllinni á morgun fyrir tónleikana á fimmtudag. 7.6.2011 12:00 Fjölskylduvænt hús þar sem sólin skín Arkitektinn Bernando Rodrigues lagði ríka áherslu á að öllum fjölskyldumeðlimum liði vel í húsinu eftir hann sem skoða má í meðfylgjandi myndasafni. Húsið, sem er staðsett á Azore, eyjaklasa í Atlantshafi vestur af strönd Portúgals þar sem hlý sólin kemur upp í suðri og kaldur vindurinn blæs úr norðri, er skemmtilega hannað með tilliti til veðráttunnar þar sem börnin geta svo sannarlega unað sér vel á þakinu. 7.6.2011 11:07 Já var það ekki kynlíf uppáhalds íþróttin Leikkonan Cameron Diaz, 38 ára, skemmti sér vel með leikaranum Jason Segel á MTV tónlistarhátíðinni síðasta sunnudag eins og meðfylgjandi myndir sýna greinilega. Cameron, sem er nýhætt með hafnarboltaspilaranum Alex Rodriguez, er óhrædd að viðurkenna opinberlega að kynlíf er uppáhalds íþróttin hennar. 7.6.2011 10:28 Hættir loksins að klára appelsínusafa mömmu „Það eru allir að tala um að ég sé brjálaður að flytja út frá mömmu fyrir þrítugt,“ segir Steinþór Helgi Arnsteinsson, umboðsmaður hljómsveitarinnar Hjaltalín og starfsmaður Senu. 7.6.2011 10:00 Pínu fleginn brúðarkjóll finnst þér ekki? Meðfylgjandi myndir voru teknar í Hollywood á laugardaginn þegar Ice-T og eiginkona hans Coco endurnýjuðu hjúskaparheitin en þau kynntust fyrir nákvæmlega tíu árum en hafa verið gift í nærri sex ár. Fleginn kjóll Coco stal senunni en hann má skoða í meðfylgjandi myndasafni. 7.6.2011 09:47 Missir af 17. júní gleðinni í Sofíu „En leiðinlegt að maður skuli missa af þessu,“ segir Ásdís Rán Gunnarsdóttir, frægasta dóttir Íslands í höfuðborg Búlgaríu, Sófíu. 7.6.2011 09:00 Músmos í fjórða sinn Tónlistarhátíðin Músmos verður haldin í fjórða sinn á Álafossi í Mosfellsbæ laugardaginn 11. júní. Þar koma margir flytjendur fram, þar á meðal Rökkurró, Legend, Elín Ey og rapparinn Gummster. 7.6.2011 08:00 Byrjuðu að hanna saman í Víetnam Gúrý Finnbogadóttir fatahönnuður og Jónas Breki Magnússon gullsmiður hafa vakið athygli með sameiginlegri skartgripalínu sinni Zero6. Hugmyndin að samstarfinu kom eftir að parið flutti til Víetnam en þar fengu þau að kynnast hinni hliðinni á hönnunarferlinu. 7.6.2011 07:00 Blóð- og saltþvegin Biblía Sýning Þóru Þórisdóttur "Rubrica“ var opnuð í anddyri Hallgrímskirkju síðastliðinn sunnudag. Á sýningunni eru myndverk sem fjalla um túlkun Þóru á heilögum anda. 7.6.2011 06:00 Lér konungur fékk flestar tilnefningar Sýningin Lér konungur hlýtur flestar tilnefningar til Grímuverðlaunanna í ár. Tilkynnt var um tilnefningarnar í gær, en verðlaun eru veitt í sextán flokkum. 7.6.2011 04:00 Twilight sigurvegari á MTV-hátíð Það er alltaf mikið um dýrðir þegar tónlistarstöðin MTV blæs til fagnaðar, en um helgina voru veitt kvikmyndaverðlaun MTV. 7.6.2011 02:00 Marvel hamrar járnið X-Men: First Class er skemmtilegt ævintýri sem tekur sig mátulega alvarlega. Enda engin ástæða til annars. 6.6.2011 22:30 Bono bjargað af íshokký-leikmanni Íshokký-leikmaðurinn Gilbert Brule átti sennilega eki von á því, þegar hann var að keyra með kærustunni sinni Kelsey Nichols í vesturhluta Vancouver, að hann ætti eftir að rekast á írska söngvarann Bono við vegakantinn. 6.6.2011 20:00 Sverrir keppir hjá Sameinuðu þjóðunum „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á auglýsingum sem bæta samfélagið og hef gert nokkrar slíkar áður fyrir Stígamót og Auga," segir Sverrir Björnsson, hönnunarstjóri Hvíta Hússins, en hann er með framlag í auglýsingasamkeppni á vegum Sameinuðu þjóðanna. 6.6.2011 19:00 Catherine Zeta-Jones kvartaði aldrei 6.6.2011 18:30 Áttburamamman pósar léttklædd Áttburamóðirin Nadya Suleman, 35 ára, pósar léttklædd í sjávarmáli eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Fæðing áttburanna vakti heimsathygli í janúar árið 2009 þegar Nadya, þá sex barna móðir, varð skyndilega fjórtán barna móðir. Nadya, sem eignaðist áttburana með aðstoð sæðisgjafa, leitar allra leiða til að auka tekjurnar hvort sem um er að ræða raunveruleikasjónvarpsþátt þar sem börnin fara með aðalhlutverkin eða myndatökur þar sem hún situr fyrir fáklædd. 6.6.2011 17:02 Að fanga hverfandi andrá Núið og hverfulleiki andartaksins eru inntak bókverksins Júní eftir Hörpu Árnadóttur myndlistarmann. Bókin er nátengd sýningunni Mýraljós en báðar byggja þær á eins konar dagbókarbrotum Hörpu frá dvöl hennar á Bæ á Höfðaströnd í fyrrasumar. 6.6.2011 16:30 Ofurhugar mæta á Galtalæk Tjaldsvæðið á Galtalæk er líklega þekktast fyrir fjölskylduhátíðina sem þar fer fram um verslunarmannahelgar. Innan tíðar verður breyting þar á því fyrsta jaðar-útihátíð landsins fer fram á Galtalæk dagana 24. til 26. júní. 6.6.2011 16:00 Brynja Jónbjarnardóttir heillar tískuheiminn Myndaþáttur með fyrirsætunni Brynju Jónbjarnardóttur í aðalhlutverki hefur vakið mikla athygli í netheimum og hlotið mikið lof. Brynja er búsett í London þar sem hún sinnir fyrirsætuhlutverkinu. 6.6.2011 14:45 Liðið skemmti sér greinilega Meðfylgjandi myndir voru teknar í teiti hjá auglýsingastofunni PIPAR/TBWA 1. júní þar sem ný deild í samfélagsmiðlum var kynnt. 1.017 manns sóttu um vinnu í umræddri deild og voru fjórir ráðnir. Auglýsingastofan átti 17 ára afmæli þennan dag og Valli, Valgeir Magnússon, framkvæmdastjóri stofunnar varð 43 ára þann dag líka. Margt var um manninn og stóð gleðskapurinn fram eftir nóttu. 6.6.2011 10:51 Sjá næstu 50 fréttir
Sonur Nicolas Cage snappar Sonur leikarans, Nicolas Cage, Weston Cage fór yfir um í dag. Drengurinn gjörsamlega snappaði þegar þjálfarinn hans bannaði honum að panta mat af matseðli á veitingahúsi. Þá réðst Weston á þjálfarann sem náði að yfirbuga drenginn sem nánast froðufelldi af reiði. Þá reyndu nærstaddir að róa Weston niður en ekkert gekk í þeim efnum. Vitni segja Weston hafa verið í vímu. Þá mætti lögreglan á svæðið, handjárnaði Weston og kom honum í læknishendur. Nicolas Cage, vitjaði sonar síns á spítalann og ætlar að vera hjá honum eins lengi og hann þarf á honum að halda. 8.6.2011 17:18
Egglaga hús Veggirnir í egglaga húsi, sem skoða má í meðfylgjandi myndasafni, eftir dmvA arkítekta, eru afskaplega vel nýttir. Sofa má í hliðum hússins, elda, vaska upp sem og geyma ýmsa hluti. Þá er einnig klósett í öðrum enda hússins. Húsið, sem er á stærð við hjólhýsi, má nota sem gestaherbergi, vinnustofu eða móttöku. Það er færanlegt hvert sem er. 8.6.2011 16:30
Hvað ertu að pæla og þú sem ert nýtrúlofuð? Sjónvarpsstjarnan Kim Kardashian er sögð hafa haldið framhjá unnusta sínum Kris Humphries með NFL spilaranum Bret Lockett. Krim og Kris trúlofuð sig í lok maí á þessu ári en trúlofunarhringurinn sem skoða má í myndasafni kostaði litlar 228 milljónir íslenskar kr. Það svoleiðis sýður á Kim yfir forsíðufréttinni sem hún segir vera bull frá a-ö. Kim er staðráðin í að kæra InTouch tímaritið og Bret Lockett. Ég vissi að þetta (kynlífið) var leikur í hennar huga. Hún þvingaði mig í að vera með sér, læstur Bret hafa eftir sér í InTouch. 8.6.2011 15:38
Sér sjálfan sig í Viggó viðutan Freyr Eyjólfsson, útvarpsmaðurinn góðkunni á Rás 2, segist eiga ýmislegt sameiginlegt með hinum skrautlega Viggó viðutan og leitar nú logandi ljósi að bókum um myndasöguhetjuna sem Freyr segir vera hálfgerðan tvífara sinn. 8.6.2011 15:30
Ýr fundaði með Barney's Fatahönnuðurinn Ýr Þrastardóttir hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir hönnun sína bæði hér heima og úti í heimi. Bandarískt upplýsingafyrirtæki hreifst svo af hönnun Ýrar á RFF-tískuhátíðinni að það hefur boðist til að sjá alfarið um allt sem viðkemur umfjöllun og útliti merkisins. 8.6.2011 15:00
Leo taktu af henni myndavélina... núna! Leikkonan Blake Lively og leikarinn og Leonardo DiCaprio upplifðu saman Veronu á Ítalíu um helgina þar sem hún sá um að taka myndir af því sem fyrir augu bar á iPhone-inn sinn eins og sjá má í meðfylgjandi myndasafni. Blake heldur því fram að nakta konan sem myndar sjálfa sig eins og sjá má hér sé ekki hún. Slúðurmiðlar halda því hinsvegar fram að hún hafi myndað sig nakta. Þá eru getgátur uppi um að þessar símamyndir voru sendar áfram á leikarann Ben Affleck. 8.6.2011 14:55
Hvítt, hið nýja svart Þrátt fyrir yfirvofandi litadýrð í sumartískunni verður hvíti liturinn einnig áberandi og hafa rómantískir kjólar, hvítar blúndur og gegnsæ pils sjaldan verið heitari. 8.6.2011 14:30
Var einhver að tala um lýtaaðgerðir? Í meðfylgjandi myndskeiði má greinilega sjá að stjörnurnar í Hollywood hafa látið tjasla allverulega upp á útlitið með aðstoð lýtalækna. Sjón er sögu ríkari. 8.6.2011 13:44
Paris Hilton grilluð í beinni Paris Hilton kynnti nýja raunveruleikaþáttinn sinn í bandaríska sjónarpsþættinum The View þar sem Whoopi Goldberg spyr Paris meðal annars af hverju í ósköpunum hún leggi áherslu á að versla og grínast í raunveruleikaþættinum sínum þrátt fyrir þá staðreynd að hún er vel gefin kona sem vill láta gott af sér leiða. Paris svarar fullum hálsi eins og sjá má í myndskeiðinu: Þó ég grínist er ekki þar með sagt að mér sé alvara með því. Paris og móðir hennar bókstaflega brjáluðust eftir útsendinguna út af óundirbúnum spurningunum sem rigndu yfir þær í umræddum þætti. 8.6.2011 13:15
Fyrirsætur í yfirstærð á forsíðu ítalska Vogue Miklar umræður hafa verið um forsíðu nýjasta tölublaðs ítalska Vogue, en hana prýða fyrirsætur í yfirstærð. 8.6.2011 13:00
Útidúr safnar fyrir ferð til Þýskalands Hljómsveitin Útidúr kemur fram á tónleikum á Faktorý annað kvöld ásamt Sóleyju, Jóni Þór og hljómsveitinni Nolo. Þúsund krónur kostar inn á tónleikana, en allur ágóðinn rennur í ferðasjóð Útidúrs sem kemur fram á fernum tónleikum í Þýskalandi í júní. 8.6.2011 12:00
Fáránlega flottar eftir fertugt Leikkonan Demi Moore, 48 ára, og söngkonan Jennifer Lopez, 41 árs, stilltu sér upp á rauða dreglinum á góðgerðarsamkomu í New York í gærkvöldi. Eins og meðfylgjandi myndir sýna geisluðu þær sem aldrei fyrr. Demi klæddist Louis Vuitton kjól og Jimmy Choo skóm. 8.6.2011 11:45
Inspired by Iceland misnotað í Búlgaríu "Ég var bara bókaður í gegnum umboðsskrifstofuna mína,“ segir Stephan Stephensen, betur þekktur sem President Bongo úr GusGus. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær stendur til að halda upp á þjóðhátíðardag Íslendinga á offiseraklúbbi í Sofíu hinn 17. júní eins og lög gera ráð fyrir. 8.6.2011 11:30
Þú vissir að dressið er götótt er það ekki? Ástralska fyrirsætan Miranda Kerr, 28 ára, stillti sér upp fyrir nærstadda ljósmyndara í New York síðasta mánudag. Miranda var stórglæsileg með hárið tekið aftur í Michael Kors fatnaði frá toppi til táar. Um var að ræða svartan þröngan topp og skósítt pils. Þá má sjá Miröndu stilla sér upp með hönnuðinum sjálfum, Michael, og leikkonunni Ashley Greene. Í myndasafni má einnig sjá hana ásamt eiginmanni sínum, leikaranum Orlando Bloom. 8.6.2011 10:54
Coldplay hafnar ásökunum um að nýja lagið sé stolið Enn og aftur hefur breska hljómsveitin Coldplay verið sökuð um lagastuld. Í þetta skipti voru Chris Martin og félagar búnir að baktryggja sig, en nýtt lag Coldplay er byggt á lagi frá 1976. 8.6.2011 09:00
Gunnar stóð við stóru orðin "Þetta er eitthvað sem þjóðin verður að vita. Ég stóð við stóru orðin,“ segir Gunnar Hansson leikari. 8.6.2011 08:00
Syrgja Norman saman Tímarit hið vestra greindu nýverið frá því að hundur leikkonunnar Jennifer Aniston væri dauður. Hundurinn Norman var orðinn fjörgamall og saknar leikkonan hans sárt. 8.6.2011 07:00
Blake er sinn eigin stílisti Blake Lively er ein af fáum leikkonum sem njóta ekki aðstoðar stílista þegar hún sækir opinberar samkomur. 8.6.2011 04:00
Giftast á Playboysetrinu Hugh Hefner, 84 ára, og unnusta hans, Crystal Harris, 24 ára, hafa staðfest að brúkaupið fari fram 18. júní næstkomandi á Playboysetrinu. Athöfnin verður innileg í návist góðra vina. Þetta verður sérstök einlæg stund, sagði Hugh en Crystal ætlar að klæðast Romona Keveza kjól þegar hún gengur að eiga gamla manninn sem bað hennar á jóladag. Sagan segir að þau bjóði innan við 300 mans í brúðkaupið. 7.6.2011 16:48
Áhugaverð breytingatilraun Gus Gus Ástæðan fyrir því að hljómsveitin Gus Gus ákvað að halda tvenna útgáfutónleika sama kvöldið á Nasa, þann 18. júní næstkomandi, er sú að liðsmenn vilja sjá breytingu á tónlistarmenningu landsins. Frá þessu greindi Birgir Þórarinsson, betur þekktur sem Biggi Veira, í útvarpsþættinum Vasadiskó síðasta sunnudag. 7.6.2011 15:21
Slayer ekki í hljóðver strax Hljómsveitin Slayer mun ekki hefja upptökur á nýju efni fyrr en gítarleikarinn Jeff Hanneman jafnar sig á veikindum sínum. Þetta kemur fram í tímaritinu Billboard. 7.6.2011 15:00
Þetta eru kjólarnir sem stílistarnir drulla yfir Selena Gomez sem var klædd í Giambattista Valli blússu, Kristen Stewart í Balmain kjól og Emma Watson sem klæddist Marchesa kjól voru allar gagnrýndar fyrir ósmekklegan klæðnað á MTV hátíðinni síðasta sunnudagkvöld. Þá voru fleiri leikkonur sem féllu ekki í kramið hjá stílistunum vestan hafs þegar kom að klæðnaði eins og Leighton Meester, Emmu Stone, Nikki Reed, Lil Mama, Elle Fanning og Reese Witherspoon. Þær má skoða betur í myndasafni. 7.6.2011 13:19
CCP gefur út Playstation leik hjá Sony Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP kynnti í nótt að fyrirtækið væri komið í samstarf við tölvuleikjarisann Sony um útgáfu tölvuleiks á Playstation 3 leikjatölvuna. Talsmaður fyrirtækisins segir að leikurinn verði byltingarkenndur. 7.6.2011 12:09
Gallinn er gegnsær stelpa Meðfylgjandi myndir voru teknar af söngkonunni Lady Gaga, 25 ára, á CFDA verðlaunahátíðinni í New York þar sem hún var heiðruð fyrir að vera lifandi tískutákn. Eins og myndirnar sýna klæddist Lady Gaga gegnsæjum galla og athyglisverðum skóm. Söngkonan hafði vit á því að klæðast g-streng undir gallanum og hylja geirvörturnar. 7.6.2011 12:03
Koma á tveimur einkaþotum Liðsmenn hljómsveitarinnar Eagles mæta til landsins á tveimur einkaþotum samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þeir æfa á sviðinu í Nýju Laugardalshöllinni á morgun fyrir tónleikana á fimmtudag. 7.6.2011 12:00
Fjölskylduvænt hús þar sem sólin skín Arkitektinn Bernando Rodrigues lagði ríka áherslu á að öllum fjölskyldumeðlimum liði vel í húsinu eftir hann sem skoða má í meðfylgjandi myndasafni. Húsið, sem er staðsett á Azore, eyjaklasa í Atlantshafi vestur af strönd Portúgals þar sem hlý sólin kemur upp í suðri og kaldur vindurinn blæs úr norðri, er skemmtilega hannað með tilliti til veðráttunnar þar sem börnin geta svo sannarlega unað sér vel á þakinu. 7.6.2011 11:07
Já var það ekki kynlíf uppáhalds íþróttin Leikkonan Cameron Diaz, 38 ára, skemmti sér vel með leikaranum Jason Segel á MTV tónlistarhátíðinni síðasta sunnudag eins og meðfylgjandi myndir sýna greinilega. Cameron, sem er nýhætt með hafnarboltaspilaranum Alex Rodriguez, er óhrædd að viðurkenna opinberlega að kynlíf er uppáhalds íþróttin hennar. 7.6.2011 10:28
Hættir loksins að klára appelsínusafa mömmu „Það eru allir að tala um að ég sé brjálaður að flytja út frá mömmu fyrir þrítugt,“ segir Steinþór Helgi Arnsteinsson, umboðsmaður hljómsveitarinnar Hjaltalín og starfsmaður Senu. 7.6.2011 10:00
Pínu fleginn brúðarkjóll finnst þér ekki? Meðfylgjandi myndir voru teknar í Hollywood á laugardaginn þegar Ice-T og eiginkona hans Coco endurnýjuðu hjúskaparheitin en þau kynntust fyrir nákvæmlega tíu árum en hafa verið gift í nærri sex ár. Fleginn kjóll Coco stal senunni en hann má skoða í meðfylgjandi myndasafni. 7.6.2011 09:47
Missir af 17. júní gleðinni í Sofíu „En leiðinlegt að maður skuli missa af þessu,“ segir Ásdís Rán Gunnarsdóttir, frægasta dóttir Íslands í höfuðborg Búlgaríu, Sófíu. 7.6.2011 09:00
Músmos í fjórða sinn Tónlistarhátíðin Músmos verður haldin í fjórða sinn á Álafossi í Mosfellsbæ laugardaginn 11. júní. Þar koma margir flytjendur fram, þar á meðal Rökkurró, Legend, Elín Ey og rapparinn Gummster. 7.6.2011 08:00
Byrjuðu að hanna saman í Víetnam Gúrý Finnbogadóttir fatahönnuður og Jónas Breki Magnússon gullsmiður hafa vakið athygli með sameiginlegri skartgripalínu sinni Zero6. Hugmyndin að samstarfinu kom eftir að parið flutti til Víetnam en þar fengu þau að kynnast hinni hliðinni á hönnunarferlinu. 7.6.2011 07:00
Blóð- og saltþvegin Biblía Sýning Þóru Þórisdóttur "Rubrica“ var opnuð í anddyri Hallgrímskirkju síðastliðinn sunnudag. Á sýningunni eru myndverk sem fjalla um túlkun Þóru á heilögum anda. 7.6.2011 06:00
Lér konungur fékk flestar tilnefningar Sýningin Lér konungur hlýtur flestar tilnefningar til Grímuverðlaunanna í ár. Tilkynnt var um tilnefningarnar í gær, en verðlaun eru veitt í sextán flokkum. 7.6.2011 04:00
Twilight sigurvegari á MTV-hátíð Það er alltaf mikið um dýrðir þegar tónlistarstöðin MTV blæs til fagnaðar, en um helgina voru veitt kvikmyndaverðlaun MTV. 7.6.2011 02:00
Marvel hamrar járnið X-Men: First Class er skemmtilegt ævintýri sem tekur sig mátulega alvarlega. Enda engin ástæða til annars. 6.6.2011 22:30
Bono bjargað af íshokký-leikmanni Íshokký-leikmaðurinn Gilbert Brule átti sennilega eki von á því, þegar hann var að keyra með kærustunni sinni Kelsey Nichols í vesturhluta Vancouver, að hann ætti eftir að rekast á írska söngvarann Bono við vegakantinn. 6.6.2011 20:00
Sverrir keppir hjá Sameinuðu þjóðunum „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á auglýsingum sem bæta samfélagið og hef gert nokkrar slíkar áður fyrir Stígamót og Auga," segir Sverrir Björnsson, hönnunarstjóri Hvíta Hússins, en hann er með framlag í auglýsingasamkeppni á vegum Sameinuðu þjóðanna. 6.6.2011 19:00
Áttburamamman pósar léttklædd Áttburamóðirin Nadya Suleman, 35 ára, pósar léttklædd í sjávarmáli eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Fæðing áttburanna vakti heimsathygli í janúar árið 2009 þegar Nadya, þá sex barna móðir, varð skyndilega fjórtán barna móðir. Nadya, sem eignaðist áttburana með aðstoð sæðisgjafa, leitar allra leiða til að auka tekjurnar hvort sem um er að ræða raunveruleikasjónvarpsþátt þar sem börnin fara með aðalhlutverkin eða myndatökur þar sem hún situr fyrir fáklædd. 6.6.2011 17:02
Að fanga hverfandi andrá Núið og hverfulleiki andartaksins eru inntak bókverksins Júní eftir Hörpu Árnadóttur myndlistarmann. Bókin er nátengd sýningunni Mýraljós en báðar byggja þær á eins konar dagbókarbrotum Hörpu frá dvöl hennar á Bæ á Höfðaströnd í fyrrasumar. 6.6.2011 16:30
Ofurhugar mæta á Galtalæk Tjaldsvæðið á Galtalæk er líklega þekktast fyrir fjölskylduhátíðina sem þar fer fram um verslunarmannahelgar. Innan tíðar verður breyting þar á því fyrsta jaðar-útihátíð landsins fer fram á Galtalæk dagana 24. til 26. júní. 6.6.2011 16:00
Brynja Jónbjarnardóttir heillar tískuheiminn Myndaþáttur með fyrirsætunni Brynju Jónbjarnardóttur í aðalhlutverki hefur vakið mikla athygli í netheimum og hlotið mikið lof. Brynja er búsett í London þar sem hún sinnir fyrirsætuhlutverkinu. 6.6.2011 14:45
Liðið skemmti sér greinilega Meðfylgjandi myndir voru teknar í teiti hjá auglýsingastofunni PIPAR/TBWA 1. júní þar sem ný deild í samfélagsmiðlum var kynnt. 1.017 manns sóttu um vinnu í umræddri deild og voru fjórir ráðnir. Auglýsingastofan átti 17 ára afmæli þennan dag og Valli, Valgeir Magnússon, framkvæmdastjóri stofunnar varð 43 ára þann dag líka. Margt var um manninn og stóð gleðskapurinn fram eftir nóttu. 6.6.2011 10:51