Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jólaleg hönnun Mikið er til af fallegri íslenskri hönnun sem er jólaleg en á ekki síður vel við árið um kring. Slíka muni er gaman að gefa sem jólagjafir eða skreyta eigið heimili með þeim í þeirri vitneskju að þeir þurfa ekki að rykfalla inni í kompu árstíða á milli. 16.12.2010 06:00
Myndbandið af Nicolas Cage sem allir eru að tala um Leikarinn Nicolas Cage hefur lengi verið duglegur við að leika sturlaða menn, en nú veltir almenningur í Rúmeníu fyrir sér hvar mörkin milli leiks og alvöru liggja. 15.12.2010 17:00
Erpur og Steindi Jr nota gúmmíhanska Borðspilið Flakk kom á markað nú fyrir jólin en spilið hönnuðu nokkrir félagar sem áttu það sameiginlegt að finnast ekkert til af borðspilum annað en orða- og spurningaspil. Framleiðsla spilsins fer öll fram hér á Íslandi og pakka framleiðendurnir spilunum sjálfir. Viðtökur spilsins hafa verið það góðar undanfarið að allir sem vettlingi geta valdið voru fengnir til aðstoðar. Eins og myndirnar sýna mættu stjörnurnar Steindi Jr. og Erpur til að aðstoða við pökkunina og notuðust þeir við gúmmíhanska eins og myndirnar sýna greinilega. „Þeir voru mjög duglegir og engin spil féllu á gæðaprófinu eftir pökkun. Erfitt var að fá þá til að einbeita sér að verkefninu í byrjun en svo kom það og þeir unnu eins og róbótar við pökkunina." segir Svavar Melberg sem er einn hönnuða spilsins og eigenda Drekafisk sem gefur spilið út. 15.12.2010 14:20
Nick Cave valdi Ólöfu Arnalds „Það er frábært að fá að spila á undan Nick Cave í hans heimalandi,“ segir tónlistarkonan Ólöf Arnalds, sem hitar upp fyrir hljómsveitina Grinderman á tónleikum í Tasmaníu í Ástralíu um miðjan janúar. 15.12.2010 15:00
Eyðir jólunum með bandarísku sjónvarpsfolunum „Þeir ætla að vera saman í New York yfir hátíðarnar og buðu okkur að koma með,“ segir Andri Jónsson, 21 árs starfsmaður á Austri, en hann vingaðist við þá Shawn Pyfrom og Penn Badgley þegar þeir voru staddir hér á landi fyrir skömmu. 15.12.2010 09:00
Sinfónía í búri Á aðventutónleikum Sinfóníunnar var yfirleitt fínn hljómsveitarleikur en söngurinn kom misjafnlega út. 15.12.2010 20:00
Forsprakki Cave In til Íslands Steve Brodsky, söngvari og gítarleikari bandarísku rokksveitarinnar Cave In, spilar á Sódómu Reykjavík á fimmtudagskvöld. Brodsky á að baki fimmtán ára feril með Cave In en hefur undanfarin ár látið að sér kveða sem sólótónlistarmaður. 15.12.2010 13:00
Hæðir og lægðir Zac og Vanessu Zac Efron og Vanessa Hudgens eru hætt saman eftir tæplega fimm ára samband. Hinn 23 ára gamli Zac og hin 22 ára gamla Vanessa felldu hugi saman við tökur á kvikmyndinni High School Musical fyrir fimm árum, en nú skilja leiðir. 15.12.2010 08:00
Spila póker til styrktar Ellu Dís „Allur ágóði af mótinu rennur beint til þeirra mæðgna og vonast ég til að sem flestir sjái sér fært að leggja okkur lið,“ segir Davíð Rúnarsson, einnig þekktur sem Dabbi Rú, eigandi Gullaldarinnar í Grafarvogi. 15.12.2010 07:30
Djöfullegra en lífið sjálft Vel byggðar og vel stílaðar smásögur sem undirstrika einstæða sýn Kristínar á eðli þess að vera manneskja. 15.12.2010 07:00
Læðurnar sækja í Jóhann Pál „Ég hélt auðvitað að þetta væri vegna kvenhylli minnar,“ segir Jóhann Páll Valdimarsson, bókaútgefandi hjá Forlaginu. 15.12.2010 07:00
Jólapopp á Café Haití Skemmtidagskráin Jólapopp fer fram á Café Haití, miðvikudagskvöldið 15. desember kl. 21:00. Boðið verður upp á þrjú atriði. 15.12.2010 14:58
Ja Rule í steininn Rapparinn Ja Rule má muna fífil sinni fegri. Hann náði talsverðum vinsældum upp úr aldamótum, en lítið hefur spurst til hans undanfarin misseri. Þar til nú. 15.12.2010 06:00
Skáld á jaðri jaðarskálda Bókaforlagið Omdúrman gefur út í samvinnu við Listasafn Íslands bókina Jónas E. Svafár – ljóð og myndir. Þröstur Helgason ritstýrði verkinu um þennan sérstaka listamann. 15.12.2010 00:01
Saltfiskur í hátíðarbúningi Í kaþólskum sið hefur löngum verið hefð fyrir því að dregið sé úr kjötáti síðustu vikur fyrir jól, eins og orðið jólafasta felur í sér. Af þeim sið eimir enn eftir hér á landi og sjálfsagt þykir að neyta fisks á Þorláksmessu. Hér er tillaga að góðum saltfisk. 15.12.2010 06:00
Dexter skilinn Dexter-stjörnurnar Michael C. Hall, 39 ára, og Jennifer Carpenter, 31 árs, eru hætt saman. Fjölmiðlafulltrúinn þeirra sendi tilkynningu sem hljómaði svona: Eftir að hafa verið skilin að skiptum í þó nokkurn tíma, hafa Jennifer Carpenter og Michael C. Hall sótt um endanlegan skilnað. Jennifer og Michael giftu sig í desember árið 2008 eftir að hafa kynnst við tökur á sjónvarpsþáttunum Dexter. 14.12.2010 15:49
Glætan að þið séuð ennþá æðislega góðir vinir Söng- og leikaraparið Zac Efron, 23 ára, og Vanessa Hudgens, 22 ára, eru hætt saman eftir 4 ára samband. Samkvæmt fréttatilkynningu sem fyrrum kærustuparið sendi frá sér eru þau ennþá æðislega góðir vinir þrátt fyrir sambandsslitin. Zac er um þessar mundir upptekinn við að leika í kvikmyndinni The Lucky One í New Orleans og Vanessa er stödd á Hawaii. Skoða má Zac og Vanessu á meðan allt lék í lyndi í meðfylgjandi myndasafni. 14.12.2010 13:54
Pollapönk tekur fram úr Botnleðju í plötusölu Hljómsveitin Pollapönk er að taka fram úr Botnleðju í vinsældum ef marka má seldar plötur. Sömu meðlimir eru í báðum sveitum, þeir Heiðar og Halli. Nýjasta plata Pollapönks, Meira pollapönk, hefur selst í um tvö þúsund eintökum, sem er svipað og jafnvel ívið meira en þrjár síðustu plötur Botnleðju. Haraldur Freyr Gíslason og Heiðar Örn Kristjánsson eru meðlimir beggja sveitanna, en Botnleðja hefur ekki starfað undanfarin sjö ár. 14.12.2010 13:00
Hollywood stígur í vænginn við Óskar frænda Um þetta leyti ársins eru tvö orð vinsælust í Hollywood: „Oscar buzz“ eða „Óskarsmöguleiki“. Tilnefningarnar verða ekki tilkynntar fyrr en á nýju ári en aðrar verðlaunahátíðir eru farnar að draga upp víglínuna. 14.12.2010 11:00
X-mas til styrktar Stígamótum á Sódómu Hinir árlegur X-mas tónleikar Xins 977 fara fram á Sódómu Reykjavík, föstudagskvöldið 17 desember. Aðgangseyrir er 977 krónur og rennur allur aðgangseyrir óskiptur til Stígamóta. 14.12.2010 16:03
LA Times spáir Jónsa Óskarstilnefningu Todd Martens, tónlistarskríbent bandaríska stórblaðsins Los Angeles Times, spáir því að Jónsi, oftast kenndur við Sigur Rós, hljóti tilnefningu til Óskarsverðlauna fyrir lagið sitt Sticks and Stones sem hljómaði í teiknimyndinni How to Train Your Dragon. Jónsi var fyrr á þessu ári tilnefndur til World Soundtrack Award en tapaði fyrir T-Bone Burnett og laginu The Weary Kind úr kvikmyndinni Crazy Heart. 14.12.2010 12:00
Elín sleikir sárin með samnemanda Á meðan fyrrverandi eiginmaður hennar, Tiger Woods, rembist eins og rjúpan við staurinn við að ná tökum á sveiflunni og koma ferli sínum aftur í gang er Elin Nordegren nú sögð komin með nýjan kærasta. Sá er víst nemandi við háskóla í Flórída, eins og Elin, og er 35 ára maður frá Suður-Afríku. „Það hafa verið kossar og faðmlög en ég veit ekki hvort þetta hefur gengið eitthvað lengra,“ sagði heimildarmaður The Sun sem greindi fyrst frá málinu. Elin er ekki á flæðiskeri stödd eftir að gengið var formlega frá skilnaði hennar og Tigers því samkvæmt fréttum fékk hún hundrað milljónir dollara frá kylfingnum lausláta. 14.12.2010 08:00
Baksviðs á Frostrósum Frostrósir héldu ferna uppselda tónleika í Laugardalshöll um helgina. Hátt í 200 manns voru á sviði þegar mest lét og áhorfendur sem troðfylltu Höllina héldu heim í jólaskapi efitr dynjandi lófatak. Hátt í þrjátíu þúsund manns sjá og heyra Frostrósir fyrir þessi jól, en næst verða þær á Akureyri þar sem uppselt er á fimm af sex tónleikum í Hofi. Eins og sjá má af meðfylgjandi myndum var ekki síður gaman baksviðs. 14.12.2010 07:47
Borgaði 41 milljón í skatt Bandaríska leikaranum Nicholas Cage tókst að nurla saman rúmum 360 þúsund dölum eða 41 milljón króna til að greiða skattinum í Bandaríkjunum. Þetta kom fram á Wikileaks-síðu fræga fólksins, TMZ. Cage skuldaði skattinum fjórtán milljónir í ógreidda skatta og gjöld fyrir árin 2002, 2003, 2004 og 2007 en hefur nú innt af hendi greiðslu í reiðufé til skattsins samkvæmt skjölum sem TMZ hefur undir höndum. 14.12.2010 07:00
Kate komin með kjólahönnuð Mikil spenna og eftirvænting hefur ríkt í tískuheiminum yfir því hver muni hanna brúðarkjól Kate Middleton, tilvonandi eiginkonu Vilhjálms Bretaprins. Nú virðist sem niðurstaða sé komin í málið, en breski fatahönnuðurinn Bruce Oldfield hefur að sögn slúðurmiðla orðið fyrir valinu. 14.12.2010 06:00
Jenný segir frá Nýjasta skáldsaga Braga Ólafssonar er flókið skáldverk og metnaðarfullt. Þar birtast öll bestu höfundareinkenni Braga, hún er launfyndin og spakleg rannsókn á skáldsögunni og lífinu sjálfu. 14.12.2010 06:00
Á tökustað Karla sem hata konur „Ég talaði við leikstjórann [David Fincher] hvort ég gæti fengið einhverja svipaða vinnu og hann sagði að ég gæti unnið allan sólarhringinn ef ég vildi,“ segir Baldur Bragason, íslenskur ljósmyndari sem hefur verið starfandi í Svíþjóð undanfarin tíu ár. 14.12.2010 06:00
Justin Bieber slær Eminem og Lady Gaga við á Youtube Ef Justin Bieber væri Íslendingur hefði hann verið fermdur fyrir tveimur árum. Hann er orðinn alþjóðleg ofurstjarna – á einu ári. Bieber bætti enn einni rósinni í hnappagatið á dögunum þegar kom í ljós að myndband hans við lagið Baby var það vinsælasta á Youtube á árinu. 14.12.2010 06:00
Frikki Weiss með fjögurra metra jólatré „Ég er að drepast í bakinu enda þurfti ég að fá hjálp frá tveimur nágrönnum mínum til að bera tréð upp fjórar hæðir,“ segir veitingamaðurinn Friðrik Weisshappel. Stofa Friðriks í Kaupmannahöfn skartar nú rúmlega fjögurra metra háu jólatré sem nær upp á milli tveggja hæða. „Ég hló bara svona geðveikislegum hlátri þegar tréð var komið og hugsaði með sjálfum mér hvort það væri ekki einhver keppni sem ég gæti unnið eins og hver væri með hæsta jólatréið heima hjá sér,“ heldur Friðrik áfram. Hann reif síðan upp málbandið og mældi tréð sem reyndist vera fjórir metrar og tuttugu sentimetrum betur. 14.12.2010 06:00
Coldplay sendir frá sér þemaplötu Chris Martin, söngvari bresku hljómsveitarinnar Coldplay, hefur upplýst að væntanleg plata hljómsveitarinnar sé þemaplata (e. concept album). Nafn plötunnar og útgáfudagur eru enn á huldu, en Martin sagði í viðtali við BBC að þetta væri mjög persónuleg plata. „Á plötunni er sagt af tveimur einstaklingum sem eru frekar týndir, sagan er sögð frá þeirra sjónarhorni. Þau hugsa eins, en eru í erfiðu umhverfi og fara í ferðalag saman.“ 14.12.2010 06:00
Hjónabandi Hurley lokið Leikkonan Elizabeth Hurley hefur skilið við eiginmann sinn, indverska viðskiptajöfurinn Arun Nayar, eftir þriggja ára hjónaband. „Þetta var slæmur dagur. Svo að það sé nú á hreinu þá hættum við Arun saman fyrir nokkrum mánuðum. Vinir okkar og fjölskyldur vita af þessu,“ skrifaði hin 45 ára Hurley á Twitter-síðu sína. 14.12.2010 06:00
Social Network best Kvikmyndin The Social Network, sem fjallar um upphaf Facebook-síðunnar, hefur verið kjörin besta mynd ársins af gagnrýnendasamtökum Los Angeles. Leikstjóri myndarinnar, David Fincher, var kjörinn besti leikstjórinn ásamt Olivier Assayas sem átti bestu erlendu myndina, Carlos. Handritshöfundur The Social Network, Aaron Sorkin, var einnig verðlaunaður auk þess sem tónlistin í myndinni var kjörin sú besta, ásamt tónlistinni í The Ghost Writer. 14.12.2010 06:00
Jolie finnst erfitt að vera ein í baði Leikkonan Angelina Jolie segir það ekki fara í taugarnar á sér hve lítinn tíma hún hefur fyrir sjálfa sig. Hún undrast raunar hve vel hún taki þessu, því áður fyrr naut hún þess að vera í ró og næði. 14.12.2010 06:00
Róar ófríska konu Chris Rock nýtti húmorinn á frekar óhefðbundinn hátt um helgina, þegar hann kom ófrískri konu til hjálpar í verslunarmiðstöð í New Jersey. Konan var að stíga af rúllustiga þegar hún skyndilega missti legvatnið. Leikarinn var ekki langt undan og hóf að segja konunni og nærstöddum alls konar brandara í von um að róa þá ófrísku. 14.12.2010 05:00
Zoolander 2 kemur brátt Owen Wilson hefur sefað aðdáendur kvikmyndarinnar Zoolander og upplýst að það styttist í framhaldsmyndina. „Það er komið virkilega gott handrit,“ sagði gamanleikarinn við fjölmiðla um helgina en Owen lék ofurfyrirsætuna Hansel í fyrri myndinni. 14.12.2010 04:00
Piparkökulest: Skemmtileg samverustund Margir baka myndakökur og skreyta fyrir jólin. Sumir eru síðan myndarlegri en aðrir, hella sér í stórframkvæmdir og byggja vegleg hús og farartæki. Hrefna Sigurjónsdóttir er ein þeirra. Hún virkjar fjölskylduna til verksins og úr verður gæðastund. 14.12.2010 06:00
Sumum leiddist ekki í EFJ ilmvatnsboðinu Sigrún Lilja Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Gyðja Collection stóð fyrir stórglæsilegum opnunarviðburði á laugardaginn þegar nýja ilmvatnið sem unnið er úr Eyjafjallajökli, EFJ Eyjafjallajökull by Gyðja, var kynnt í fyrsta sinn og það með látum. Mikil leynd ríkti yfir viðburðinum sem haldinn var á veitingastaðnum Austur. Það var fjölmiðlakonan Friðrika Hjördís Geirsdóttir sem hélt uppi stemningunni í hlutverki veislustjóra. 13.12.2010 15:51
Fallega fólkið fílar Baggalút Jólatónleikar Baggalúts sem fram fóru í Háskólabíó í gærkvöldi eru ómissandi og órjúfanlegur hluti af jólahaldi margra. Hljómsveitin flutti þekkta slagara fyrir troðfullu húsi eins og henni einni er lagið. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út þegar hljómsveitin tók jólalagið Saddur sem er á annarri jólaplötu sveitarinnar Næstu jól en hún er sjálfstætt framhald plötunnar Jól & blíða sem kom út árið 2006. Eins og meðfylgjandi myndir sýna voru tónleikagestir áberandi fríðir og í jólastuði. Baggalútur heldur aukatónleika í Háskólabíó í kvöld. 13.12.2010 10:07
Leikur þokkafullan útrásarvíking „Mér líst vel á þessa þætti og fólkið í kringum þá. Ég var að fá handritið í hendurna og er því ekki búinn að kynna mér persónuna í þaula,“ segir Guðmundur Ingi Þorvaldsson. Hann hefur ráðinn í hlutverk útrásarvíkings en sá mun leika stóra rullu í sjónvarpsþáttunum Makalaus sem byggðir eru samnefndri bók Þorbjargar Marinósdóttur, Tobbu Marinós. Bókin naut feykilegra vinsælda á þessu ári og fjallar um sýn ungrar, einhleyprar stúlku í Reykjavík og þeim ævintýrum sem hún lendir í. 13.12.2010 09:00
Arney Ingibjörg sigraði Röddina „Þetta kom rosalega á óvart og ég er eiginlega ennþá í sjokki,“ segir hin sextán ára gamla Arney Ingibjörg Sigurbjörnsdóttir. Hún sigraði í söngkeppninni Röddinni en þættir með keppninni hafa verið sýndir á Stöð 2 að undanförnu. Hátt í níu hundruð keppendur á aldrinum 12 til 16 ára skráðu sig til leiks og því var leiðin að sigrinum bæði löng og ströng. Arney segir frábært fyrir sig að vinna jafn stóra keppni og Röddin sé. „Ég hélt pottþétt að ég myndi ekki vinna en mér leið æðislega þegar Sveppi tilkynnti hver væri sigurvegarinnar.“ 13.12.2010 08:00
Af skunkum og svörtum englum Fínn krimmi með flottu plotti og góðri persónusköpun. Rígheldur athygli lesandans, vekur til umhugsunar og kemur á óvart. 13.12.2010 07:00
Möguleg gifting Orðrómur þess efnis að Nicole Richie og Joel Madden ætli að ganga í það heilaga er aftur kominn á kreik. Samkvæmt Hollywood Life mun brúðkaupið eiga sér stað á morgun á heimili föður Richie. 13.12.2010 07:00
Hasselhoff sparkað Lífið er ekki bara hvítar strandir og sólbrenndir líkamar hjá David Hasselhoff. Nú hefur raunveruleikaþáttur hans, The Hasselhoffs, verið tekinn af dagskrá A&E-sjónvarpsstöðvarinnar eftir aðeins tvo þætti. 13.12.2010 06:00
Að klípa þjóninn í rassinn Flott sýning þar sem flugust á orð og fastir frasar sem svo sannarlega hanga enn í loftinu. 12.12.2010 07:00
Hönnunin rataði á síður Vogue „Nú fara Ítalirnir vonandi að taka línuna inn í sínar búðir,“ segir fatahönnuðurinn Sunna Dögg Ásgeirsdóttir. Hluti úr nýjustu fatalínu hennar birtist í ítalska barnablaði Vogue á dögunum, Vogue Bambini. 11.12.2010 18:00