Tíska og hönnun

Jólaleg hönnun

Mynd/Marinó Thorlacius
Mynd/Marinó Thorlacius
Mikið er til af fallegri íslenskri hönnun sem er jólaleg en á ekki síður vel við árið um kring.

Slíka muni er gaman að gefa sem jólagjafir eða skreyta eigið heimili með þeim í þeirri vitneskju að þeir þurfa ekki að rykfalla inni í kompu árstíða á milli.



Glithringir á aðventukrans

Kertahringirnir hér til hliðar kallast Lyngkolur og eru hannaðir fyrir Bility af Guðrúnu Lilju Gunnlaugs­dóttur og Rúnu Thors. Hringina er upplagt að nota til að flikka upp á aðventukransinn og gera hann meira glitrandi. Hringirnir fást meðal annars hjá Kraum og í Epal.

Bleikur hreindýrapúði

Hlýlegir púðar í stofuna, skreyttir hreindýrum, sem lifa allan ársins hring en minna um leið á jólin.

Hönnuðirnir eru Stáss-tvíeykið Árný Þórarinsdóttir og Helga Guðrún Vilmundardóttir. Púðarnir fást meðal annars í Epal, Mýrinni og í safnbúð Þjóðminjasafnsins.

Gestabækur

Rannveig Helgadóttir listmálari býr til fallegar handmálaðar bækur sem má nota sem gestabækur, undir uppskriftir eða hvaðeina.

Bækurnar fást meðal annars í í Sirku á Akureyri og Magmatika í Mosfellsbæ.

Undir konfektmolann

Hellur sem hannaðar eru af Öldu Halldórsdóttur og Guðrúnu Valdimarsdóttur og eru sniðug vara.

Hellurnar má nota sem disk undir kaffibolla og konfektmola, sushi, kökusneið, eða bara hvað sem fólki dettur í hug. Hellurnar fást meðal annars hjá Birkilandi.

Sítrónufjöll sem pressa

Þóra Breiðfjörð keramiker hefur vakið mikla athygli síðustu árin fyrir hlýleg og frumleg verk sín. Þar má nefna kökudiska á nokkrum hæðum sem hún kallar Hrím og eiga einmitt vel við jólaborðið.

Þessi sítrónufjöll eru hennar nýjasta nýtt og þjóna hlutverki sítrónupressu. Þau fást á vinnustofu Þóru á Skúlaskeiði í Hafnar­firði. -jma






Fleiri fréttir

Sjá meira


×