Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
FM Belfast hannar boli, stuttbuxur og svitabönd „Við viljum fá íþróttaandann inn – að fólk upplifi sig sem íþróttastjörnur á tónleikum með okkur,“ segir Árni Vilhjálmsson úr hljómsveitinni FM Belfast. FM Belfast ætlar að senda frá sér boli, stuttbuxur og svitabönd í samstarfi við Henson í sumar. Klæðnaðurinn mun henta sérstaklega vel fyrir gesti á tónleikum hljómsveitarinnar, en þar myndast iðulega gríðarlega sveitt stemning – svo sveitt að fólk hefur vanið sig á að fækka fötum á miðjum tónleikum. 27.3.2010 09:00
Hefði tekið fram kylfuna Fréttirnar af framhjáhaldi Jesse James, eiginmanni Söndru Bullock, hafa farið sem eldur í sinu um heiminn. Konurnar sem Jesse hélt við eru orðnar þrjár og enn má búast við að fleiri komi fram. 27.3.2010 07:45
Kaupir sér nýtt hús Skoska söngkonan Susan Boyle ætlar að eyða tæpum 60 milljónum í nýtt hús samkvæmt fréttum í Bretlandi. Nýja húsið er stórt og veglegt, með fimm svefnherbergjum, þremur baðherbergjum og tvöföldum bílskúr. Það er í heimabæ hennar í Skotlandi. Húsið er með búnað sem nýtir sólarorku til að búa til rafmagn fyrir húsið. 27.3.2010 06:00
Verður Hjálmum aftur hent af sviðinu? Aldrei fór ég suður, hin mikla tónlistarhátíð á Ísafirði, verður haldin í sjöunda skipti um páskana. Að vanda úir og grúir af alls kyns tónlist, en aldrei hafa verið jafnmörg atriði og núna, 37 samtals. 27.3.2010 05:45
Íslandsvinir stýra hátíð Meðlimir hljómsveitarinnar Belle & Sebastian munu stjórna tónlistarhátíðinni All Tomorrow‘s Parties í desember næstkomandi. Hátíðin stendur frá 10.-12. desember í Minehead á sunnanverðu Englandi. Meðlimir Belle & Sebastian munu velja um 40 hljómsveitir sem koma fram á hátíðinni. 27.3.2010 05:00
Grúsk-hópurinn með nýtt lag Hljómsveitin Grúsk hefur sent frá sér lagið Til lífs á ný og er það annað lagið sem fer í spilun af fyrstu plötu sveitarinnar sem kemur út seinna á árinu. Hið fyrra heitir Góða skapið og var í sjö vikur á meðal 30 vinsælustu laga Rásar 2 í haust. 27.3.2010 05:00
Ólafur meðal þeirra bestu Íslenski listamaðurinn Ólafur Elíasson er meðal níu listamanna sem koma fram í níu þátta heimildarmyndaþáttaröð bandaríska sjónvarpsrisans HBO undir nafninu Masterclass. 27.3.2010 04:30
Prince skuldar peninga Óveðursskýin hrannast upp hjá bandaríska tónlistarmanninum Prince. Eins og fjölmiðlar greindu frá í gær skuldar hann himinháar upphæðir í fasteignagjöld og í gær varð hann fyrir enn einu fjárhagslega áfallinu. Írskt tónleikahaldsfyrirtæki að nafni MCD fór í mál við Prince eftir að hann ákvað að fresta tónleikum sínum í landinu með aðeins nokkurra daga fyrirvara. Forsvarsmenn MCD fóru ekki fram á neina skiptimynt heldur um 400 milljónir íslenskra króna. 27.3.2010 04:15
Peaches í vandræðum Peaches Geldof, vandræðabarn hungurpopparans Bobs Geldof, er enn og aftur búin að koma sér á forsíður bresku slúðurpressunnar. Að þessu sinni eru það nektarmyndir sem lekið var á Netið í gær. Þær sýna Peaches í erótískum stellingum, heldur fáklædda. Umræddur einstaklingur hélt því fram að hann hefði átt stundargaman með Peaches á hótelherbergi og á meðan hefði hún neytt heróíns. 27.3.2010 04:00
Ætlar að vinna hug og hjarta Cheryl á ný Knattspyrnukappinn Ashley Cole ætlar að reyna að vinna hug og hjarta eiginkonu sinnar Cheryl á ný yfir páskana. Ekki er búið að ganga formlega skilnaði þeirra en Cheryl sagði skilið við Ashley eftir að upp komst í síðasta mánuði að hann hefði haldið fram hjá henni. 26.3.2010 19:59
Mottu-mars: Söfnunarþáttur í beinni Söfnunarátakinu Karlmenn og krabbamein, Mottu-mars, lýkur í dag með glæsilegum söfnunarþætti í beinni og opinni útsendingu á Stöð 2. Logi Bergmann tekur á móti góðum gestum í þessari ríflega tveggja klukkustunda löngu sjónvarpsútsendingu, sem verður uppfull af tónlistaratriðum, gríninnslögum og skemmtilegum uppákomum auk þess sem verður fjallað um þennan vágest sem krabbamein er. Í símaverinu verður Villi Naglbítur og flytur reglulega fréttir af því hvernig söfnunin gengur. 26.3.2010 18:30
Hefði viljað gera fleiri Bond myndir Ég hefði gjarnan viljað gera fleiri James Bond myndir, segir Pierce Brosnan í samtali við Ekstra Bladet. Brosnan var rekinn úr hlutverki 26.3.2010 16:00
Þjóðin velur Mottumeistara Krabbameinsfélagsins árið 2010 Söfnunarátakinu Karlmenn og krabbamein – Mottu-mars lýkur í kvöld með söfnunarþætti í beinni og opinni dagskrá á Stöð 2. Yfir 2.400 manns og 500 lið skráðu sig til leiks á karlmennogkrabbamein.is. Arion banki vann liðakeppnina. Efstu 5 motturnar í einstaklingskeppninni berjast til úrslita í beinni útsendingu. 26.3.2010 14:16
Kærastinn flytur inn til Rihönnu Söngdívan Rihanna er búin að bjóða kærastanum sínum að flytja inn til sín. Rihanna og kærastinn, hinn 25 ára gamli hafnaboltaleikmaður Matt Kemp, hafa verið að slá sér upp saman undanfarna mánuði. 26.3.2010 14:00
Abba gæti komið saman að nýju Sönghópurinn sívinsæli Abba gæti komið saman að nýju. Hópurinn sem samanstendur af þeim Anni-Frid Lyngstad , Björn Ulvaeus, Benny Andersson and Agnetha Fältskog. Þau nutu gríðarlegra vinsælda eftir að hafa unnið Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 1974. Þekktustu lögin þeirra eru Dancing Queen, Knowing Me, Knowing You og Super Trouper. 26.3.2010 12:00
Geri Halliwell: Robbie bjargaði mér frá búlimíunni Geri Halliwell sem gerði garðinn frægan með stúlknasveitinni Spice Girls og var þekkt sem "rauðhærða kryddið", segir að Robbie Williams hafi bjargað lífi sínu þegar hún þjáðist af búlimíu, eða lotugræðgi. 26.3.2010 11:06
Boy George naut sín í fangelsi Boy George naut sín í fangelsi vegna þess að hann hitti svo margt frábært fólk. Söngvarinn, sem er þekktastur fyrir framlag sitt með hljómsveitinni Culture Club, afplánaði fjóra mánuði í fangelsi á síðasta ári vegna árásar á fylgdarmann í íbúð sinni i austurhluta Lundúna. 26.3.2010 10:15
Hopper skilur við konuna til að lengja lífið Leikarinn Dennis Hopper verður þess heiðurs aðnjótandi að fá nafn sitt ritað á gangstéttina í Hollywood í dag. Þetta eru þó einu góðu fréttirnar sem leikarinn hefur fengið nýlega því hann berst nú við krabbamein í blöðruhálskirtli og segir talsmaður hans að hann eigi aðeins fáar vikur eftir ólifaðar. 26.3.2010 09:00
Kóngavegi Valdísar Óskars fagnað - Myndir Valdís Óskarsdóttir frumsýndi kvikmyndina Kóngaveg í stóra sal Háskólabíós á miðvikudagskvöld. Vel var mætt á frumsýninguna og var ekki annað að sjá en gestir hefðu gaman af myndinni. 26.3.2010 09:00
Gaga-met Bandaríska söngkonan Lady Gaga hefur enn og aftur skráð nafn sitt í sögubækurnar. Þessi sérvitra söngkona frá New York er nefnilega fyrsti listamaðurinn sem nær yfir einum milljarði áhorfenda á myndbönd sín á YouTube. 26.3.2010 08:15
Spurningaljónið úr Garðabæ „Þetta er bara mjög gaman,“ segir Elías Karl Guðmundsson sem vakið hefur mikla athygli fyrir framgöngu sína í spurningakeppnum í sjónvarpi undanfarið. Elías komst í úrslit Útsvars fyrir viku sem liðsmaður Garðabæjar en hann var þá þegar kominn í úrslit Gettu betur með framhaldsskóla sínum, MR. Það skýrist í kvöld hverjir verða mótherjar Garðabæjar-liðsins en þá keppa lið Reykjavíkur og Reykjanesbæjar. 26.3.2010 07:00
Útvarpsstöð lokað á Akureyri „Við erum ekkert hættir,“ segir Gunnar Torfi Steinarsson, einn af þremur grunnskólapiltum á Akureyri sem eru eigendur hinnar nýstofnuðu netútvarpsstöðvar Brekkunnar. 26.3.2010 06:00
Cheryl á HM Samkvæmt breska blaðinu Daily Star mun Cheryl Cole fara á HM í knattspyrnu en ekki fráfarandi eiginmaður hennar, Ashley Cole. Cheryl hefur gert samning við tónleikahaldara í Suður-Afríku, þar sem keppnin fer fram, um að troða upp á tónleikum með hipp/hopp-hljómsveitinni Black Eyed Peas á sérstökum upphitunartónleikum fyrir opnunarleik keppninnar sem fer fram 10. júní í Jóhannesarborg. 26.3.2010 06:00
Mottumenn Íslands mætast í kvöld Söfnunarátakinu Karlmenn og krabbamein – Mottumars lýkur í kvöld með söfnunarþætti í beinni útsendingu á Stöð 2. Fimm karlmenn keppa um titilinn Mottumeistari Krabbameinsfélags Íslands. Fréttablaðið tók púlsinn á fjórum mottumönnum. 26.3.2010 05:30
Orðuð við kúrekamynd Reese Witherspoon og Tom Cruise eiga í viðræðum við Sony um að leika aðalhlutverkin í kúrekamyndinni Paper Wings. Um er að ræða rómantíska mynd þar sem Tom á að leika ródeómeistara sem fellur fyrir ungri kántrísöngkonu sem Reese á að leika. Það er fyrirtæki Wills Smith sem vinnur að framleiðslu myndarinnar. 26.3.2010 05:00
Dóri spilar í klúbbi Morgans Blúsaranum Halldóri Bragasyni hefur verið boðið að spila í Ground Zero-blúsklúbbnum fræga í Clarksdale í Mississippi sem Hollywood-leikarinn Morgan Freeman er meðeigandi að. 26.3.2010 05:00
Phil Spector gerir plötu Playboy-módelið Rachelle Short, eiginkona Phils Spector, segir að þau hjónin ætli að gefa út plötu saman í júní. Platan var tekin upp áður en Phil fór í steininn, gefið að sök að hafa myrt leikkonuna Lönu Clarkson. Morðið átti sér stað árið 2003 en Rachelle og Phil giftust þremur árum síðar. 26.3.2010 04:45
Skuldar skattinum Staðarblaðið Chaska Herald í Minnesota greindi frá því í gær að tónlistarmaðurinn Prince væri skuldum vafinn. Samkvæmt blaðinu skuldar hann og fyrirtæki tengd honum rúma fimm hundruð þúsund dollara eða 66 milljónir íslenskra króna í fasteignagjöld og aðrar skatttengdar greiðslur. 26.3.2010 04:30
Airwaves í hlýjan faðm hins opinbera „Ég er ánægður með þessa niðurstöðu. Ég vona að hátíðinni sé fundinn réttur farvegur með Útón,“ segir Þorsteinn Stephensen, framkvæmdastjóri Hr. Örlygs. Í gær var tilkynnt að Icelandair og Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar, Útón, hefðu skrifað undir samning þess efnis að Útón sjái um rekstur tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves næstu fimm árin. Þar með kveður Þorsteinn hátíðina sem hann kom á fót fyrir ellefu árum og hefur komið að skipulagningu síðan. Í samkomulaginu felst þó að Þorsteinn verði nýjum rekstraraðila innan handar næstu tvö árin. 26.3.2010 03:45
Kóngavegur: fjórar stjörnur Bráðfyndin og ákaflega vel leikin tragikómedía um ólánsfólk úr ýmsum áttum sem glímir við sjálft sig og tilveruna við kostulegar aðstæður á Kóngavegi. 26.3.2010 00:01
Konukvöld Létt Bylgjunnar - Myndir Hátt í sex þúsund konur lögðu leið sína í Smáralind á árlegt Konukvöld Létt Bylgjunnar í gærkveldi. Yfir 80 verslanir voru með opið til klukkan 23. Fjölmörg ómótstæðileg tilboð, skemmtilegar uppákomur og skemmtiatriði héldu öllum gestunum við efnið allt kvöldið. 25.3.2010 18:30
Arion sigraði liðakeppni Mottumars Nú hefur verið lokað fyrir keppni á vefnum karlmennogkrabbamein.is og því ljós hverjir hlutu sigur úr bítum í hópakeppni átaks Krabbameinsfélagsins - Mottumars. 25.3.2010 17:05
Eva norn gefur út bók um ýlandi dræsur Eva Hauksdóttir, sem var áberandi í búsáhaldabyltingunni, hefur gefið út bókina: Ekki lita út fyrir - Sjálfshjálparbók fyrir mig og aðrar ýlandi dræsur. 25.3.2010 16:12
Avatar stjarna ætlar ekki að biðja kærustunnar Sam Worthington segist ekki vera að flýta sér neitt að giftast kærustunni sinni Natalie Mark. 25.3.2010 15:29
Naomi fær rosalega afmælisveislu Unnusti Naomi Campell ætlar að halda henni risapartý næst þegar hún fagnar afmæli sínu. Campell verður fertug 22. maí og rússneski 25.3.2010 12:57
Jesse sakaður um að halda framhjá Bullock með mörgum konum Jesse James, eiginmaður Söndru Bullock, er sakaður um að haldið framhjá með konu sem hann hitti á Internetinu. Í síðustu viku greindi tattúfyrirsætan, Michelle McGee, frá því að hún og Jesse hefðu átt í 11 mánaða löngu sambandi á meðan að Sandra var við tökur á The Blind Side. Hún sagði að McGee sagði að þau Jesse hefðu stundað hömlulaust kynlíf í fimm vikur og að Jesse hefði sagt sér að hjónabandinu væri lokið. 25.3.2010 10:00
Tekur grínið fram yfir pólitíkina „Ég hef engan tíma í þessa þvælu,“ segir Steindi Jr. Fréttablaðið greindi frá því á þriðjudag að grínistinn Steindi væri kominn í framboð fyrir Vinstri græna í Mosfellsbæ. Hann hefur nú dregið framboð sitt baka af persónulegum ástæðum. 25.3.2010 09:45
Sigurvegarinn mætti í bleiu Það var Hörður Guðlaugsson sem bar sigur úr býtum í búningakeppni Big Lebowski-hátíðarinnar sem var haldin í fjórða sinn í keilusalnum í Öskjuhlíðinni á dögunum. Þetta var annað árið í röð sem Hörður sigrar í keppninni. Í fyrra var hann klæddur eins og persónan Walter Sobchak, sem John Goodman túlkaði á eftirminnilegan hátt í hinni samnefndu kvikmynd en í þetta sinn var hann eingöngu með bleiu, sem er tilvísun í eina setningu í myndinni. 25.3.2010 09:30
Samstarfi Jóhönnu Guðrúnar og Maríu að ljúka Tíu ára samstarfi söngkonunnar Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur og umboðsmannsins Maríu Bjarkar Sverrisdóttur lýkur í sumar. Norskur umboðsmaður tekur þá við keflinu en söngkonan hyggst fylgja eftir frábærri frammistöðu í Eurovision-keppninni fyrir ári. María Björk staðfesti þetta í samtali við Fréttablaðið í gær. 25.3.2010 09:00
Ljónið er fast úti í Hrísey í einangrun Sirkus Ísland sýnir í Salnum í Kópavogi. Fyrsta sýning er á sunnudaginn og svo á að sýna í dymbilvikunni og um páskana, samtals ellefu sýningar. Sýningin er kölluð Sirkus Sóley. 25.3.2010 07:00
Dekrað við Mezzofortemenn á Kastrup „Án þess að við séum einhver lúxusdýr var þægilegt að láta fara vel um sig í smástund,“ segir Eyþór Gunnarsson, hljómborðsleikari Mezzoforte. Eyþór og félagar hans, Óskar Guðjónsson og Jóhann Ásmundsson, duttu í lukkupottinn á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn á leið sinni til Ungverjalands þar sem þeir héldu tónleika síðasta föstudag. 25.3.2010 07:00
Laug Lilju og Steinunnar vígð Sundlaugin á Hofsósi sem athafnakonurnar Steinunn Jónsdóttir og Lilja Pálmadóttir gáfu íbúum staðarins 2007 verður vígð á laugardaginn. 25.3.2010 06:30
Skjaldborg haldin í fjórða sinn Hvítasunnuhelgina 21.–24. maí verður Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildarmynda, haldin í fjórða sinn á Patreksfirði. Auk þess að frumsýna nýjar íslenskar heimildarmyndir er hátíðinni ætlað að vera tækifæri fyrir kvikmyndagerðarfólk og áhugamenn um heimildarmyndir til að koma saman. Í lok hátíðarinnar verður besta heimildarmyndin á Skjaldborg 2010 valin af áhorfendum. 25.3.2010 06:00
Flúði frá Skotlandi Leikarinn og hjartaknúsarinn Brad Pitt er ekkert alltof spenntur fyrir því að heimsækja Skotland eftir að hann lenti í vandræðum þar áður en hann varð frægur. Pitt var á ferðalagi um Skotland og kynntist þar konu í borginni Glasgow sem átti brjálaðan fyrrverandi kærasta. 25.3.2010 06:00
Björk syngur á plötu Ólafar Arnalds Björk Guðmundsdóttir syngur dúett í einu lagi á væntanlegri plötu Ólafar Arnalds. Lagið verður eitt þriggja sem er sungið á ensku á plötunni, hin eru á íslensku. Líkt og á fyrstu plötu Ólafar, Við og við sem kom út 2007, vann Kjartan Sveinsson (í Sigur Rós) plötuna með henni. Platan er tilbúin og heitir Innundir skinni, en ekki er frágengið hvenær hún kemur út. Það gæti verið í vor eða í október. Útgefandinn, hið gamalgróna fyrirtæki Sykurmolanna og Bjarkar, One Little Indian, gefur plötuna út. OLI gaf Við og við út í Bandaríkjunum í janúar. 25.3.2010 06:00