Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Iggy hættur sviðsdýfum Rokkarinn Iggy Pop er hættur sviðsdýfum í bili eftir að hann meiddist illa á tónleikum í Carnegie Hall í New York. Þar stökk Iggy af sviðinu eins og svo oft áður en í þetta sinn var enginn til að grípa hann. „Þegar ég lenti meiddi ég mig og ég áttaði mig á því að Carnegie Hall er kannski ekki rétti staðurinn fyrir sviðsdýfur,“ sagði Iggy sem er 62 ára. 25.3.2010 04:30
Uppgjör við frægðina Dúettinn MGMT sló í gegn árið 2007 með plötunni Oracular Spectacular. Þar var sleginn ferskur og poppaður tónn sem nú er tekinn og afmyndaður á nýrri plötu, Congratulations. Platan er sett á útgáfudag 13. apríl, en má þegar heyra víða á Netinu. 25.3.2010 04:15
Meðferðarúrræðin duga Á laugardagskvöldið er frumsýning í Borgarleikhúsinu á nýju íslensku leikverki sem kallast Eilíf óhamingja. Höfundarnir eru þeir Andri Snær Magnason og Þorleifur Arnarsson. Verkið er sjálfstætt framhald verksins Eilíf hamingja, sem hlaut mjög góðar viðtökur gagnrýnenda sem og áhorfenda. 25.3.2010 04:00
Ævisaga Jónasar á ensku Von er á góðum gesti hingað til lands um næstu helgi. Dick Ringler, prófessor og Íslandsvinur, er höfundur bókarinnar Bard of Iceland sem kom út hjá Máli og menningu í liðinni viku. Þar rekur Ringler ævi Jónasar Hallgrímssonar og útlínur af sögu Íslands fram að tíma hans en þorri bókarinnar, sem er 474 síður, eru rómaðar þýðingar Dicks á ensku á ljóðum og prósa eftir þetta höfuðskáld Íslendinga. Bard of Iceland er viðamesta og markverðasta bók sem út hefur komið um íslenskt þjóðskáld á erlendu máli og um leið afar áhugavert fræðirit um ljóðaþýðingar. 25.3.2010 04:00
Höfðinglegur Matt Leikarinn Matt Damon skildi eftir bros á andlitum starfsfólks veitingastaðarins Stanton Social í New York um helgina þegar hann skildi eftir þjórfé upp á rúmar 50 þúsund krónur eftir að hann, eiginkonan Luciana og nokkrir vinir höfðu snætt þar. Matt Damon kemst þó ekki í hálfkvisti við Johnny Depp sem gaf starfsfólki á veitingahúsi í Chicago tífalda þá upphæð í fyrra. 25.3.2010 04:00
Austin kemur aftur Einkabarn kanadíska grínistans Mike Myers, Austin Powers, snýr aftur á hvíta tjaldið. Leikstjórinn Jay Roach hefur skrifað undir samning um að leikstýra fjórðu myndinni en væntanlega vita fáir hvort þeir eiga að gráta eða gleðjast yfir þeim tíðindum. Myers hefur undanfarin ár misst „mojo-ið“ sitt ef undanskilið er lítið hlutverk í Inglorious Basterds. 25.3.2010 03:45
Daybreakers: ein stjarna Máttlaus blóðsugumynd sem nær hvorki upp almennilegri spennu né hrolli en tekst ágætlega að svipta vampírurnar öllum sínum sjarma sem hefur tryggt þeim endalausar vinsældir í bíó og bókum. 25.3.2010 00:01
Hélt framhjá Söndru með fleiri en einni konu Fullyrt er í bandaríska tímaritinu US Weekly að Jesse James, hinn ótrúi eiginmaður Söndru Bullcok, hafi haldið fram hjá eiginkonu sinni með fleiri konum en Michelle McGee. „Hún er bara sú fyrsta sem hefur sagt frá þessu opinberlega,“ hefur tímaritið eftir ónafngreindum heimildarmanni. „Þetta var ekki einangrað tilfelli. Honum leiddist þegar Sandra var ekki heima.“ 24.3.2010 18:45
Dennis Hopper skilur við eiginkonuna Leikarinn Dennis Hopper er að skilja við fimmtu eiginkonu sína, Viktoríu Duffy, um þessar mundir. 24.3.2010 16:00
Viltu kaupa alvöru Supermanbúning? Búningur sem Christopher Reeves heitinn klæddist við tökur á Superman myndunum verður boðinn upp í Las Vegas í júní. Fleira eigulegra muna verður falt á uppboðinu, eins og búningurinn sem Mel Gibson klæddist í Braveheart myndinni og sverðið sem hann notaði. Þá verða eyrnalokkarnir sem Kate Winslet klæddist í Titanic einnig til sölu. 24.3.2010 14:00
Cowell gerir kaupmála Idoldómarinn alræmdi Simon Cowell er á leið upp að altarinu með sinni heittelskuðu Mezhgan Hussainy. Eins og alsiða er á meðal stjarnanna hefur hann rissað upp kaupmála svo stúlkan geti ekki hlaupist á brott daginn eftir brúðkaupið með helming eigna hans, sem eru víst töluverðar. 24.3.2010 12:43
Bullock getur ekki fyrirgefið framhjáhaldið Óskarsverðlaunahafinn Sandra Bullock hefur sagt vinum sínum að það sé enginn möguleiki á að hjónabandi hennar og Jesse James verði bjargað. Tímaritið OK segir að leikkonan telji að hún geti ekki treyst Jesse nógu mikið til að grundvöllur sé fyrir framhaldi á sambandi þeirra. Jesse hélt framhjá Bullock með lítt þekktri sýningarstúlku. 24.3.2010 12:22
Claudia á von á stelpu Þýska ofurfyrirsætan Claudia Schiffer á nú von á sínu þriðja barni með kvikmyndaframleiðandanum Matthew Vaughn. Hún kom fram í sjónvarpsþætti í Þýskalandi í gær þar sem hún sagði frá því að í þetta sinn væri stelpa á leiðinni. 24.3.2010 10:56
Meðferðin gengur vel hjá Mark Owen Mark Owen gengur vel í meðferðinni sem hann skráði sig í fyrr í mánuðinum. Take That stjarnan fyrrverandi skellti sér í meðferð eftir að upp komst um framhjáhald hans en hann viðurkennir að hafa haldið við að minnsta kosti tíu konur þrátt fyrir að vera kvæntur Emmu Ferguson. 24.3.2010 10:11
Hera fær ókeypis Eurovision-myndband „Nemendur og starfsfólk felldu eiginlega bara tár yfir þessum fréttum, að Hera gæti ekki gert tónlistarmyndband og ákváðu bara að ráðast í gerð slíks myndbands,“ segir Elísabet Bjarkardóttir, framkvæmdastjóri Kvikmyndaskóla Íslands. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær þá ákváðu þau Hera Björk og Örlygur Smári að gera ekki myndband við Eurovision-framlag Íslands, Je ne sais quoi, eins og háttur hefur verið á undanfarin tólf skipti. Ástæðan var einfaldlega peningaleysi. En nú hafa nemendur Kvikmyndaskólans ákveðið að koma Heru til hjálpar og gera eitt stykki tónlistarmyndband frítt. 24.3.2010 08:00
Friðrik Þór flottur í New York Íslenska heimildarmyndin A Mother’s Courage eftir Friðrik Þór Friðriksson var frumsýnd í höfuðstöðvum bandaríska sjónvarpsrisans HBO í New York á mánudagskvöldið. Spjallþáttastjórnandinn Rosie O‘Donnell stal eilítið senunni. 24.3.2010 07:30
Allt í mínus hjá Mínus „Þetta er svakalegt! Það brennur allt til grunna sem maður kemur við! En við áttum síðasta tóninn þarna,“ segir Krummi í Mínus. Hljómsveitin hélt síðustu tónleikana í Batteríinu á föstudagskvöldið. Tónleikastaðurinn brann sem kunnugt er í gærmorgun. Mínus-menn skildu bassa- og gítarmagnara eftir í kjallaranum og hluta af trommusettinu því morguninn eftir tónleikana flaug bandið til Kaupmannahafnar og spilaði þar á laugardagskvöldið. 24.3.2010 07:00
Raggi Bjarna með stórsveit Stórsöngvari íslenskrar dægurtónlistar, Ragnar Bjarnason, snýr aftur til upphafs síns á tveimur tónleikum með Stórsveit suðurlands þegar hann syngur með sveitinni lög úr söngbók big-bandsins á tónleikum á Selfossi í kvöld og í Iðnó annað kvöld. 24.3.2010 06:00
Magnús sem álfur í allra síðasta sinn Nú styttist í mikla sýningu fyrir alla fjölskylduna en á laugardag leggur Latibær undir sig Laugardalshöllina. Hefur undirbúningur að Latabæjarhátíðinni staðið í langan tíma og verður öllu til tjaldað en fullyrt er að á hátíðinni komi Magnús Scheving fram í síðasta sinn sem íþróttaálfurinn. Staðfest er hverjir leika hinar landsþekktu persónur úr Latabæ: 24.3.2010 05:45
Systkini spila döbb Hljómsveitin Ojba Rasta er níu manna döbb-hljómsveit sem spilar á Bakkusi í kvöld. Í bandinu eru fjögur alsystkini, Unnur, Valgerður, Gylfi og Arnljótur Sigurðarbörn. Gylfi og Arnljótur hafa líka spilað með Berndsen. „Við byrjuðum að spila tökulög fyrst en svo nenntum við því ekki, nú er allt frumsamið,“ segir Arnljótur. „Þetta er þykkt, hefí, hægt og kraftmikið. Mikið brass og smá bíómyndaáhrif á köflum.“ 24.3.2010 05:00
Lýtalæknir heldur tónleika Þórdís Kjartansdóttir, sem er eini kvenkyns lýtalæknirinn á Íslandi, heldur sína fyrstu tónleika hér á landi á Café Rosenberg á föstudagskvöld. Þar ætlar hún að syngja létta og ástríðufulla djasstónlist með frönsku ívafi. 24.3.2010 04:15
Tónleikar til styrktar SÁÁ Styrktartónleikar fyrir SÁÁ verða haldnir á fimmtudagskvöld í Vonarsalnum í Efstaleiti. Fram koma Kristján Jóhannsson, Raggi Bjarna, Egill Ólafsson, Þorgeir Ástvaldsson, Íris Guðmundsdóttir og Geir Ólafsson. „Það væri æðislegt ef allir þeir sem vettlingi geta valdið myndu koma,“ segir Geir og bætir við að það sé mikill heiður að fá að vinna með þeim tónlistarmönnum sem koma þarna fram. Miðasala á tónleikana, sem hefjast klukkan 20, fer fram í Von. 24.3.2010 04:00
Dafnis og Klói eftir Ravel Á morgun verður hljómurinn fagur þegar Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri mætir með Hamrahlíðarkóra sína í Háskólabíó og tekur þátt í tónleikum vikunnar með Sinfóníunni. 24.3.2010 04:00
Ys og þys á götum Austin „Þetta gekk stórvel, það var gerður góður rómur að spilamennskunni okkar,” segir Davíð Þór Jónsson tónlistarmaður. Hann spilaði á fernum tónleikum með söngkonunni Ólöfu Arnalds á SWSX-tónlistarhátíðinni í Texas. Davíð segir allt hafa verið krökkt af áhugafólki um góða tónlist en í ár rakst hátíðin á við kvikmyndahátíð sem haldin var vikuna áður og var að ljúka þegar gítarleikarar og aðrir tónlistarmenn hófu innreið sína. 24.3.2010 03:45
Mottuþema í Nauthólsvík á morgun Á morgun verður mottuþema á Ylströndinni í Nauthólsvík en þá fá allir þeir sem skarta hári á efri vör heitan drykk í boði ÍTR að loknu sjósundi. 23.3.2010 18:45
Madonna flytur til Lundúna Þokkagyðjan Madonna ætlar að flytja til Lundúna í sumar vegna nýrrar myndar sem hún er með í bígerð. 23.3.2010 16:00
Eins árs afmæli Pósthússins - myndir Pósthúsið vínbar hélt upp á eins árs afmæli sitt um síðustu helgi. Í tilefni af afmælinu var blásið til veislu á Pósthúsinu og fastagestum staðarins boðið upp á léttar veitingar. Sveinn Eyland, annar eiganda staðarins, segir að vel hafi verið mætt og stemningin hafi verið góð. 23.3.2010 15:59
Unglingar í Hagaskóla halda góðgerðardag Þann 24. mars, miðvikudaginn, næstkomandi verður haldinn góðgerðardagur í Hagaskóla. Húsið er opið fyrir almenning frá klukkan 16:00 til 19:00. Markmiðið er að safna peningum fyrir tvenn góðgerðarsamtök. 23.3.2010 14:20
Cheryl Cole eyðilögð eftir skilnaðinn við Ashley Cheryl Cole er alveg eyðilögð eftir skilnaðinn við Ashley Cole í síðasta mánuði. Ástæðan er helst sú að Cheryl var farin að gera sig reiðubúna til þess að eiga börn með Ashley. 23.3.2010 12:00
Heigl féll fyrir kossafimi Kutcher Leikkonan Katherine Heigl er yfir sig hrifin af Ashton Kutcher en þau léku nýverið saman í myndinni Killers. Hún segir að kossar Kutchers séu ótrúlegir. Heigl hefur áður knúsað Hollywood-fola á borð við Gerard Butler, Justin Chambers og James Marsden en hún hefur viðurkennt að enginn þeirra jafnist á við Kutcher, sem er reyndar hamingjusamlega giftur Demi Moore eins og lesendur þekkja. 23.3.2010 10:19
Steindi Jr. í framboð fyrir VG „Þetta byrjaði með því að ég vildi fá fótboltamark aftur á Varmárvöllinn. Við strákarnir spiluðum mikið á þetta mark, en svo var það bara tekið. Það var rosalega vont. Þegar það var hringt í mig og mér boðið sæti á lista, þá var mér hugsað til marksins og sagði bara já takk,“ segir Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr. Hann er í þriðja sæti á framboðslista Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs í Mosfellsbæ. 23.3.2010 09:00
Enginn peningur til fyrir Eurovision-myndbandi í ár „Það er einfaldlega ekki til peningur fyrir slíku. Þannig er allavega staðan í dag. En það getur alltaf breyst þótt ég eigi ekkert von á því,“ segir Hera Björk Þórhallsdóttir, fulltrúi Íslands í Eurovision. Ekkert myndband verður gert við framlag Íslands, Je ne sais quoi, eins og gert hefur verið síðustu tólf skiptin sem Ísland hefur keppt. Myndbönd hafa verið framleidd alveg síðan Anna Mjöll söng Sjúbbídú árið 1996 eftir því sem Fréttablaðið kemst næst. 23.3.2010 08:30
Eldgosið eyðilagði heimsmetstilraun Eldgosið við Fimmvörðuháls eyðilagði aðra af tveimur heimsmetstilraunum svissneska flugmannsins Riccardo Mortara. Mortara hugðist slá met ævintýramannsins Steves Fossett með því að fljúga hringinn í kringum hnöttinn á innan við 67 klukkustundum. 23.3.2010 07:30
Brúðkaup í september Idol-dómarans Simons Cowell og Mezhgan Hussainy er fyrirhugað í september. Athöfnin, sem verður smá í sniðum, verður haldin skammt frá heimili móður Cowells í Austur-Sussex á Englandi. 23.3.2010 06:00
Langar að eignast dóttur Söngkonuna Gwen Stefani langar að eignast dóttur en óttast að hún sé orðin of gömul til að standa í frekari barneignum. Hin fertuga Stefani á hinn þriggja ára Kingston og 19 mánaða Zuma með breska rokkaranum Gavin Rossdale. 23.3.2010 05:30
Villi og Andrea kósí saman „Ég mátti velja mér listamann til að koma fram með og ég valdi Andreu Gylfadóttur, enda er hún í gríðarlegu uppáhaldi hjá mér,“ segir Vilhelm „Naglbítur“ Anton Jónsson. Villi og Andrea koma fram nú á miðvikudagskvöldið á fimmtu Fuglabúrs-tónleikum FTT og Reykjavík Grapevine. 23.3.2010 04:45
Glæsileg tískuhelgi að baki Um helgina var haldin fyrsta raunverulega „tískuvikan“ í Reykjavík en hún átti sér stað á hátíðinni Reykjavík Fashion Festival sem var haldin í tengslum við Hönnunarmars. Á föstudags- og laugardagskvöld sýndu tuttugu og tveir íslenskir fatahönnuðir hönnun sína í gömlu kaffiverksmiðju Ó. Johnson & Kaaber við Sætún þar sem færri komust að en vildu. Sýningarnar þóttu heppnast mjög vel í þessari glæsilegu umgjörð og nokkur fjöldi erlendra blaðamanna og tískumógula voru á svæðinu til að fylgjast með nýjustu straumunum í hinum vaxandi íslenska tískuheimi. Ljósmyndari Fréttablaðsins mætti á RFF á föstudagskvöldið og myndaði þessa smekklegu gesti. - amb 23.3.2010 04:45
Vara eða samtal Á fimmtudaginn frumsýnir Áhugaleikhús atvinnumanna þriðja örverk sitt um áráttur, kenndir og kenjar. Verkið sem ber heitið MARS er 10 mínútna hugleiðing um líðandi stund og er sýnt í beinni útsendingu á www.herbergi408.is, frá ÚTGERÐ, Hugmyndahúsi háskólanna, sem er nýtt gjörningarými við Grandagarð 16. Sýningin er hluti af tólf verka röð sem mynda eina heild og verða sýnd í einu lagi í lok desember og verður þá eins konar annáll ársins 2010. 23.3.2010 04:30
Til heiðurs Cohen Aðrir tónleikarnir á skömmum tíma til heiðurs kanadíska söngvaskáldinu Leonard Cohen verða haldnir á Rosenberg í kvöld. 23.3.2010 04:15
The Lovely Bones: tvær stjörnur Áhrifamikil og sorgleg skáldsaga er kaffærð í tölvugrafík og klisjulegu myndmáli. 23.3.2010 00:01
Gauragangur: fjórar stjörnur Löng en ekki langdregin, dúndursýning en tímalaus. Ætti að falla unglingum í geð á hvaða aldri sem er. 23.3.2010 00:01
Fjórða barn Camerons á leiðinni David Cameron, leiðtogi breska Íhaldsflokksins, og eiginkona hans Samantha, eiga vona á sínu fjórða barni í september. Þingkosningar fara fram í Bretlandi að öllum líkindum í maí og benda skoðanakannanir til þess að staða íhaldsmanna sé góð. Því verður Cameron hugsanlega orðinn forsætisráðherra þegar barnið kemur í heiminn. 22.3.2010 19:56
Tökur á Hangover 2 hefjast í nóvember Tökur á myndinni Hangover 2 munu hefjast þann 1. nóvember næstkomandi, er haft eftir leikstjóranum, Todd Phillips, á vefnum Digital Spy. 22.3.2010 16:00
Brooke Shields spókaði sig í Kaupmannahöfn Leikkonan Brooke Shields tók flugið til Kaupmannahafnar í síðustu viku og spókaði sig á meðal frænda okkar. Tilgangurinn var fyrst og fremst sá að kynna sér hvernig pelsar eru hannaðir. 22.3.2010 14:00
Pete Doherty grunaður um að hafa orðið stúlku að bana Dópistinn, söngvarinn í Babysamble og vitleysingurinn Pete Doherty, var handtekinn um helgina grunaður um að hafa útvegað Robin Whitehead fíkniefni sem drógu hana til dauða í janúar. Robin var 27 ára gömul þegar hún lést en hún var að gera heimildarmynd um líf Pete. Meðal annars um ástarsambandið sem hann átti við ofurfyrirsætuna Kate Moss. 22.3.2010 12:02