Fleiri fréttir

Íslendingar fljótir að aðlagast nýjum heimkynnum

Katrín Dröfn Guðmundsdóttir, nemandi í þjóðfræði við Háskóla Íslands, og Valý Þórsteinsdóttir spænskufræðingur hafa farið af stað með verkefni sem snýr að Íslendingum búsettum erlendis. Verkefnið nefnist Íslendingar þvers og kruss og munu stúlkurnar taka viðtöl við Íslendinga sem búa erlendis og kanna meðal annars hvernig þeir hafa aðlagast nýrri menningu og hvaða hefðir þeir hafa tekið með sér að heiman.

Íranskar frelsishetjur vilja sjá Sigur Rós

Í kúrdísku heimildarmyndinni Nobody Knows About the Persian Cats eftir Bahman Ghobadi kemur fram að aðalsöngvari einhverrar fremstu indí-sveitar Írans, Take it Easy Hospital, þráir ekkert heitar en að sjá Sigur Rós á sviði á Íslandi. Til að setja þetta í samhengi er rétt að geta þess að indí-rokk og önnur vestræn tónlist er stranglega bönnuð í klerkaríkinu og hljómsveitarmeðlimir þurfa að fara huldu höfði þegar þeir leika tónlist sína á opinberum vettvangi.

Grunge-gaur á HönnunarMars

Hönnunarhátíðin HönnunarMars fer fram í annað sinn dagana 18.-21. mars. Hátíðinni er ætlað að vekja athygli á íslenskum hönnuðum. Aðalgestur hátíðarinnar verður Bandaríkjamaðurinn og grafíski hönnuðurinn David Carson.

Timberlake og frú fóru í frí til Sviss

Hjartaknúsarinn Justin Timberlake ákvað að breyta viðskiptaferð sinni til Sviss í rómantíska helgarferð með kærustu sinni, Jessicu Biel. Timberlake og Biel komu sér fyrir í Genf en Justin var þar sem sendiherra bílaframleiðandans Audi. Svo skemmtilega vildi til að Biel átti 28 ára afmæli um þessa helgi og sáust þau í innilegum faðmlögum á einni af göngugötum borgarinnar. Auk þess ákváðu þau að splæsa í eina sleðaferð í smábænum Verbier og virtust ekki sjá sólina fyrir hvort öðru.

Ekki hættur að drekka

Keith Richards, gítarleikari Rolling Stones, hefur vísað á bug fregnum um að hann sé hættur að drekka áfengi. „Orðrómurinn um að ég sé orðinn allsgáður er stórlega ýktur. Við skulum bara láta þar við sitja,“ sagði Richards í viðtali við tímaritið Rolling Stone. Hann bætir við að ný plata frá Stones sé hugsanlega á leiðinni. „Það kæmi mér ekki á óvart ef við tækjum eitthvað upp seinna á árinu.“ Stór tónleikaferð um heiminn virðist þó ekki vera í undirbúningi. „Það er ekkert víst að við spilum aftur á fótboltaleikvöngum. Kannski prófum við eitthvað nýtt,“ sagði hann.

Sakaður um ritstuld

Kínverski rithöfundurinn Zhou Shaomou hefur höfðað mál gegn James Cameron, leikstjóra stórmyndarinnar Avatar. Hann segir að 80 prósent söguþráðarins í Avatar séu fengin úr vísindaskáldsögu sinni, Tale of the Blue Crows frá árinu 1997 og krefst tæplega tveggja milljarða króna í skaðabætur. „Bókin fjallar um ferðalag sex geimfara til fjarlægrar plánetu þar sem bláar verur ráða ríkjum,“ sagði Zhou. „Í bókinni stendur að ferðalagið hafi tekið sex ár en í mynd Camerons tekur hún fimm ár, níu mánuði og 22 daga. Ég var mjög undrandi þegar ég komst að þessu.“ Það tók Zhou sjö ár að semja bókina og segir hann að yfir tíu milljónir manna hafi lesið hana á Netinu.

Snoop má fara til Bretlands

Bandaríski rapparinn Snoop Dogg hefur unnið fullnaðarsigur í fjögurra ára baráttu sinni fyrir því að fá að snúa aftur til Bretlands. Stjórnvöld í Bretlandi settu honum stólinn fyrir dyrnar eftir átök á Heathrow-flugvelli árið 2006.

Danir hugga Cheryl Cole

Það voru danskir áhorfendur í danska X-Factornum sem voru þeir fyrstu til að sjá enska söngfuglinn Cheryl Cole koma opinberlega fram eftir að stoðirnar hrundu undan hjónabandi hennar og knattspyrnukappans Ashley Cole. Cheryl flúði Bretland eftir að breskir fjölmiðlar grófu upp ástarævintýri eiginmannsins með ókunnugum stúlkum. Nektarmyndir úr símum hans og dónaleg sms-skilaboð voru birt á forsíðum helstu dagblaðanna og að endingu ákvað Cheryl að binda enda á hjónabandið með stuttu smáskilaboði.

Vill taka við af Cowell

Christopher Ciccone, bróðir söngkonunnar Madonnu, hefur sett af stað herferð um að hann taki við af Simon Cowell sem dómari í þáttunum American Idol. Eins og kunnugt er hættir Cowell eftir þessa þáttaröð og snýr sér að X-Factor. „Ég held að fólk myndi taka mikið mark á mér. Ég yrði eina manneskjan við borðið sem hefur búið til poppstjörnu og hjálpað henni að halda sér á toppnum í tuttugu ár. Ég veit hvað þarf til að slá í gegn,“ sagði Ciccone, sem hefur verið systur sinni til halds og trausts í gegnum árin.

Tónleikar í London

Tónlistarkonan Elíza Newman spilar á tvennum tónleikum í London dagana 11. og 16. mars. Fyrri tónleikarnir verða órafmagnaðir á Troy Bar og hinir síðari verða með hljómsveit á Buffalo Bar. Elíza mun spila lög af nýjustu plötu sinni Pie in the Sky sem kom út um síðustu jól og verður gefin út í Bretlandi í vor. Platan var tekin upp í London og á Íslandi með hjálp upptökustjórans Gísla Kristjánssonar. Á henni eru tíu lög, þar á meðal hin vinsælu Ukulele Song For You og Hopeless Case.

Billy elskar Jessicu

Billy Corgan, gítarleikari rokksveitarinnar The Smashing Pumpkins, neitaði að tjá sig um meint ástarsamband sitt og Jessicu Simpson. Hann sagðist hins vegar elska hana. Í samtali við tímaritið Rolling Stone sagði Corgan að þau væru eingöngu vinir. „Fólk er að velta því fyrir sér hvort við höfum farið á stefnumót, hvort ég hafi hætt með henni eða hvort hún hafi hætt með mér. Samband okkar hefur ekkert með það að gera. Stundum finnst fólki bara gott að vera í kringum hvort annað og það koma yfirleitt bara góðir hlutir út úr slíku,“ sagði Corgan og bætti því við að ef fólk þekkti Simpson eins og hann þekkti hana myndi það, án nokkurs vafa, elska hana eins og hann gerir.

40 kg fokin - myndband

Ólafur Ólafsson, tveggja barna faðir hefur lést um hvorki meira né minna en 40 kíló á fimm mánuðum. „Maður var hættur að geta hreyft sig," segir Ólafur í meðfylgjandi myndskeiði en hann borðar í dag almennan heimilismat samhliða æfingum hjá þjálfaranum Garðari Sigvaldasyni sem segir að að mataræðið sé númer eitt, tvö og þrjú.

Boðið að sitja fyrir léttklædd - myndir

„Við höfum þekkst núna í tvö ár og verið í miklu sambandi mest allan tímann. Við höfum alltaf skemmt okkur mjög vel saman. Það skiptir í rauninni ekki máli hvað við erum að gera það er alltaf gaman," segir Kristrún Ösp Barkardóttir fyrirsæta spurð út í samband hennar við fótboltastjörnuna Dwight York.

Eddi Lár gengur til liðs við Gæðablóð

Gítarleikarinn góðkunni Eðvarð Lárusson (Eddi Lár)hefur gengið til liðs við hljómsveitina Gæðablóð. Af því tilefni mun Gæðablóð halda tónleika á Bar 46 á Hverfisgötu í kvöld kl. 22.

Getur þú hjálpað að selja MOTTU-næluna? - myndir

Mottu-marsinn hefst með miklum glans en nú þegar hafa safnast tæpar 2,4 milljónir í áheitum fyrir hugrakka skeggkappa. Sífellt bætist í hópinn og eru á sjöunda hundrað manna búnir að skrá sig og um 150 hópar. Ekki er þó nauðsynlegt að láta sér spretta skegg til að styðja við átakið en á morgun, laugardag, verður mottunælan seld til styrktar átakinu. Krabbameinsfélagið leitar eftir þinni aðstoð við að selja næluna - en þörf er á sjálfboðaliðum um allt land til að selja skeggnæluna fyrir baráttuna gegn krabbameini í körlum. Hvað er einn dagur í þágu góðs málefnis? Þeir sem hafa áhuga á að láta gott af sér leiða geta leitað nánari upplýsinga á vefnum www.krabb.is. Auglýsingar átaksins hafa vakið mikla athygli að undanförnu, en þær má sjá hér og hér. Meðfylgjandi má sjá skemmtilegar myndir af hópum sem taka þátt í átakinu.

Missti 40 kg á 5 mánuðum

Í kvöld strax að loknum fréttum Stöðvar 2 hittum við Ólaf Ólafsson, tveggja barna föður sem lést hefur um hvorki meira né minna en 40 kíló á fimm mánuðum. Þá fræðumst við um Facebook ást og hittum Simma og Jóa sem eru á fullu við að undirbúa veitingastaðinn Fabrikkuna í Borgartúni þar sem þeir sjálfir munu þjóna til borðs en raunveruleikaþættir um opnun staðarins eru í bígerð og verða sýndir á Stöð 2.

Opnunarpartí á Laugavegi - myndir

Volcano Icelandic Design flutti formlega á Laugaveg 40 þar sem vörur Volcano Design eru fáanlegar sem og vörur fleiri hönnuða sem eiga það sameiginlegt að framleiða allar vörur sínar á Íslandi. Á meðfylgjandi myndum sem teknar voru í formlegu opnunarteiti í gær má sjá að allir gestirnir voru áberandi glaðir.

Reynsluboltar vilja feitt djobb hjá RÚV

„Ég get staðfest það, ég er búinn að sækja um,“ segir Björn Þórir Sigurðsson, markaðsstjóri Morgunblaðsins, sem sækist eftir stöðu dagskrárstjóra hjá Ríkissjónvarpinu en auglýst var eftir umsækjendum fyrir skömmu.

Vill vinna aftur með Degi Kára

Bandaríski leikarinn Paul Dano, sem leikur annað aðalhlutverkanna í nýjustu mynd Dags Kára Péturssonar, The Good Heart, segist vel geta hugsað sér að leika aftur fyrir hann.

101 í tveimur bindum

„Þetta er óneitanlega mjög sérstakt en kápan fangar kjarnann í bókinni," segir Hallgrímur Helgason en ein af hans þekktustu bókum, 101 Reykjavík, er komin út í Kóreu. Bókin er gefin út í tveimur bindum, enda tæpar sex hundruð síður að lengd á kóresku og var hún þýdd upp úr þýsku útgáfunni.

Samba á Skólavörðustíg

Heitra og framandi strauma gætir nú á Skólavörðustígnum þar sem veitingahúsið Brasilía var opnað fyrir skömmu. Í kvöld klukkan 21 ætlar brasilíska söngkonan Jussanam Dejah að halda tónleika þar við undirleik píanóleikarans Agnars Más Magnússonar.

Aida sviðsett

Aida – Ástarþríhyrningurinn fer á svið í Íslensku óperunni í kvöld kl. 20. Þetta eru sviðsettir tónleikar þar sem öll helstu ein- og samsöngsatriði óperunnar Aidu eftir Verdi verða flutt.

Vill búa til sjónvarpsefni

Sarah Palin, fyrrverandi forsetaframbjóðandi og ríkisstjóri í Alaska, er að framleiða raunveruleikaþætti, samkvæmt nýjustu fréttum vestan hafs. Sarah hefur fundað með Mark Burnett, sem er risi í bransanum og maðurinn á bak við Survivor og The Apprentice, og vill framleiða þætti sem gerast í heimaríki hennar, Alaska.

Íslenskur kvikmyndavetur

Kvikmyndagerðarmenn bíða nú eftir fyrstu úthlutun Kvikmyndasjóðs eftir að ríkisstjórnin ákvað að skera niður starfsemi Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Laufey Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Kvikmyndamiðstöðvar, segir íslenska kvikmyndagerð búa við algjörlega nýtt landslag.

Keith Harris meðal gesta

Umboðsmaður Stevie Wonder var -meðal ræðumanna á fræðslukvöldi Útóns í Norræna húsinu. Fjöldi íslenskra tónlistarmanna var meðal gesta.

Kærastan kúgar Johnny

Þegar Angelina Jolie og Brad Pitt léku saman í kvikmyndinni Mr. and Mrs. Smith stal hún honum frá Jennifer Aniston. Núna er Angelina Jolie að fara að leika í The Tourist með Johnny Depp og kærastan hans er ekki sátt.

Vel mætt á frumsýningu Dags Kára

The Good Heart var frumsýnd í Háskólabíói á miðvikudagskvöld. Stóri salurinn fylltist af spenntum kvikmyndaáhugamönnum sem flestir virtust sáttir við útkomuna. Frumsýningarpartí var svo haldið á Íslenska barnum og þar var gleðin sannarlega við völd.

Ekta íslenskt þorrablót í London

Þorrablót Íslendingafélagsins í London verður haldið á laugardagskvöld. Ekkert þorrablót var haldið í fyrra en nú hefur ný stjórn verið kosin í Íslendingafélaginu og áherslurnar að sama skapi breyst. „Það féll niður í fyrra en árin þar áður hafa þetta verið nokkur hundruð manna viðburðir. Það eru til sögur af því að fólk hafi verið að fljúga frá Íslandi til að koma á þorrablótið," segir Friðþjófur Þorsteinsson, formaður Íslendingafélagsins.

Morðingjarnir flýja

Morðingjarnir halda útgáfutónleika á Batteríinu í kvöld fyrir hina frábæru plötu, Flóttinn mikli. Platan er þriðja breiðskífa tríósins og hefur fengið glimr­andi dóma hjá poppskríbentum landsins, og komst platan meðal annars á sex plötu úrvalslista tónlistarsjóðsins Kraums fyrir jól.

Bannaður á Óskarnum

Hætt hefur verið við grínatriði sem Sacha Baron Cohen ætlaði að sýna á Óskarsverðlaunahátíðinni á sunnudagskvöld. Ástæðan er ótti við að leikstjórinn James Cameron móðgist.

Segir Noel ofmetinn

Liam Gallagher segir að bróðir sinn Noel sé ofmetnasti maður allra tíma. Oasis, hljómsveit þeirra bræðra, lagði sem kunnugt er upp laupana í ágúst í fyrra eftir að áralöng spenna þeirra í millum varð óþolandi. Noel hætti í bandinu en Liam er handviss um að bróðir sinn sé ofmetinn.

Gera mynd eftir Hughes

Fyrirtækið Paramount Pictures hefur keypt réttinn á handriti eftir kvikmyndagerðarmanninn John Hughes, sem lést í fyrra.

Solla og Vala Matt: Magnað múslí nammi

Í kvöld í þættinum Ísland í dag verður hollustukokkurinn snjalli Solla Eríks með snilldar uppskrift að hollu sælgæti sem hægt er að gæða sér á með góðri samvisku. Upplagt að taka með sér í vinnuna eða skólann. Geggjað gott og dúndur hollt eins og allt sem Solla býr til. 5 dl haframjölsmúslí m/lífrænu súkkulaði 1 dl agave sýróp 1 dl hnetusmjör ½ dl kókosolía ½ dl kakóduft smá vanilluduft

Topp # 6 í mottusöfnun - myndir

Tæplega 500 karlar hafa nú skráð sig í einstaklingskeppni í mottuáskorun átaksins Karlar og krabbamein og 120 lið í hópakeppnina. Nú þegar hefur safnast yfir ein og hálf milljón í áheitum og hækkar sú upphæð með hverri mínútunni sem líður. Fjölmargir karlar eru því að safna mottum um þessar mundir og má ætla að sjaldan eða aldrei hafi jafn margir verið að rækta efri vörina af jafn miklu kappi. Hægt er að leggja átakinu lið með ýmsum hætti en meðal annars er verið að óska eftir sjálfboðaliðum um land allt fyrir landssöfnunina nú um helgina – en áhugasamir geta farið á vefinn krabb.is og leitað sér nánari upplýsinga um það. Sá sem hefur safnað mestum áheitum við lok fjórða keppnisdags er Guðmundur Karl Sigurdórsson á Selfossi. Meðfylgjandi eru myndir af þeim körlum sem tróna í efstu 6 sætunum.

Djöflasýrubeikon auglýsir úlpur

„Fyrir einhverja hundaheppni gátum við selt gamalt lag í North Face-auglýsingu í Japan og fengum nógu mikið af peningum til að gera heila plötu. Og þetta er hún," segir Bogi Reynisson í hljómsveitinni Bacon Live Support Unit um plötuna Rodentmaster sem er nýkomin út. „Þessi kona hafði bara samband. Hún hafði heyrt lagið Powerprest - ég veit ekkert hvernig hún heyrði það, líklega á ferðalagi hérna - og vildi endilega fá að nota það. Og við bara, já já, endilega."

Gott hjarta Dags Kára frumsýnt

Loksins, loksins, kynnu einhverjir að hugsa því á föstudaginn verður kvikmynd Dags Kára, The Good Heart, frumsýnd. Myndarinnar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu enda Dagur Kári einn fremsti kvikmyndagerðarmaður okkar Íslendinga. Töluvert hefur verið skrifað um The Good Heart en upphaflega stóð til að þeir Tom Waits og Ryan Goosling myndu leika aðalhlutverkin í þessari mynd. En sökum þess að ekki tókst að samræma dagskrá þeirra var fallið frá þeirri hugmynd.

Vonar að „Dude“ fái Óskarinn

Fjórða árlega Big Lebowski-hátíðin verður haldin laugardagskvöldið 13. mars í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. Samnefnd gamanmynd um hinn lata keiluspilara „The Dude“ og vandræði hans kom út 1998 og síðan þá hefur myndast í kringum hana hálfgerður sértrúarsöfnuður, bæði hér heima og erlendis.

Flytur lög Leonards Cohen

Tónlistarmaðurinn og rithöfundurinn Valur Gunnarsson heldur tónleika á Café Rosenberg á sunnudagskvöld þar sem hann syngur lög kanadíska söngvaskáldsins Leonards Cohen.

Lok, lok og læs á Grand Rokki

„Þangað til maður fréttir annað þá lítur út fyrir að við þurfum að færa keppnina,“ segir Gunnar F. Árnason, sem stendur fyrir spurningakeppninni Drekktu betur á Grand Rokki á föstudögum. Menningarknæpunni Grand Rokki var fyrirvaralaust lokað á þriðjudagskvöld. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins var staðnum lokað að kröfu leigusala. Það hefur ekki fengist staðfest og ekki náðist í Þorstein Þórsteinsson veitingamann í gær.

Derek Zoolander vaknar til lífsins

Einhver heimskasta persóna hvíta tjaldsins er án nokkurs vafa fyrirsætan Derek Zoolander en þessi kvikmynd Ben Stiller varð að hálfgerðu kult-fyrirbæri því gagnrýnendur voru ekkert ýkja hrifnir þótt áhorfendur hafi oft velst um af hlátri yfir asnastrikum Zoolanders og vina hans.

Virtur leikhúsfrömuður á sýningu hjá Vesturporti

Joseph Melillo, einn af forsvarsmönnum BAM-leikhússins í New York, er væntanlegur til Íslands á morgun. Hann hyggst sjá tvær sýningar af Fást með Vestur­porti í Borgarleikhúsinu, skoða landið og hitta leikhópinn. Vestur­port er að fara með aðra sýningu, Hamskiptin, til New York í nóvember til að sýna í BAM-leikhúsinu og svo gæti farið að Fást yrði einnig sett upp í þessu virta leikhúsi.

Nóg pláss á Kanadamarkaði

„Ég held að það sé alveg pláss fyrir okkur tvo á markaðnum. Við fögnum þessu öllu saman,“ segir Bjarni Einarsson, annar af eigendum bruggverksmiðjunar Ölvisholts.

Sjá næstu 50 fréttir