Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Djass fyrir austan Djasshátíð Egilsstaða á Austurlandi, ein elsta sérhæfða tónlistarhátíðin utan Reykjavíkur, er nýhafin. Hátíðin varð til fyrir tuttugu árum í sumarblíðu á Egilsstöðum og varð að veruleika sumarið 1988. Síðan hefur hún fest sig í sessi þótt frumkvöðullinn, Árni Ísleifsson, hafi á tíðum látið hafa eftir sér að nú skorti hann þrek til að halda hátíðinni áfram. 28.6.2007 07:00
Bon Jovi snýr aftur Hljómsveitin Bon Jovi er komin á topp bandaríska Billboard-vinsældalistans í fyrsta sinn síðan 1988, eða í nítján ár. Nýjasta plata sveitarinnar, Lost Highway, seldist í tæpum 290 þúsund eintökum sína fyrstu viku á lista. Frá því mælingar hófust árið 1991 hefur sveitin aldrei selt jafnmikið í fyrstu vikunni í heimalandi sínu. 28.6.2007 06:45
Pálmi slasaður eftir hestaferð „Hann er bara að vakna eftir aðgerðina núna. Þetta fór sem betur fer ekki verr,“ segir Sigurlaug Halldórsdóttir, kona Pálma Gestssonar leikara. Pálmi slasaði sig í hestaferð í byrjun vikunnar og var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur á þriðjudag. Leikarinn góðkunni var í níu daga hestaferð með erlendum ferðamönnum á Norðausturlandi, var reiðmaður með 70 hrossa stóði. 28.6.2007 06:45
Bláir skuggar í Hafnarborg Norski málarinn Kjell Nupen opnar sýningu á málverkum og grafíkverkum í Hafnarborg í Hafnarfirði í dag. Sýningin er farandsýning sem hefur göngu sína hér en fer síðan til þriggja annarra safna: Safnsins á Haugum í Vestfold í Noregi, Safns trúarlegrar listar og Kastrupgaard-safnsins í Danmörku. Ferðalagið er styrkt af norska sendiráðinu í Kaupmannahöfn og Norræna menningarsjóðnum. 28.6.2007 06:30
The Lodger endurgerð Þögul mynd Alfreds Hitchcock frá árinu 1927, The Lodger, verður endurgerð í Hollywood á næstunni. The Lodger fjallar um dularfullan mann sem leigir herbergi á heimili Bunting-fjölskyldunnar á sama tíma og raðmorðingi hrellir íbúa London. 28.6.2007 06:30
Fishburne tryggir sér Alkemistann Bandaríski kvikmyndaleikarinn Laurence Fishburne mun leikstýra kvikmyndaútgáfu af hinni ofurvinsælu bók Paul Coelho, Alkemistinn. Allar líkur eru á því að Fishburne muni einnig koma að handritsskrifum en málið ku vera á upphafsreit. Alkemistinn er einhver vinsælasta bók allra tíma og hefur setið á toppi metsölulista um allan heim og verið þýdd á yfir fimmtíu tungumál. 28.6.2007 06:00
Balkanskt tempó Þjóðlagahljómsveitin Narodna Musika heldur tónleika á Café Cultura í Alþjóðahúsinu við Hverfisgötu í kvöld. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaferðalagi hljómsveitarinnar um Ísland. 28.6.2007 06:00
Á toppnum í Bretlandi Rokkdúettinn The White Stripes fór beint á toppinn á breska vinsældarlistanum með nýjustu plötu sína Icky Thump. Þetta er betri árangur en sveitin náði með síðustu plötu sinni, Get Behind Me Satan, því hún komst hæst í þriðja sætið á listanum. Síðast fór The White Stripes beint á toppinn í Bretlandi með plötunni Elephant sem kom út fyrir fjórum árum. 28.6.2007 06:00
Á stefnumót Einn af þeim rúmlega áttatíu hönnuðum sem eiga verk á sýningunni Magma/Kvika á Kjarvalsstöðum er grafíski hönnuðurinn Ámundi Sigurðsson en hann verður með hádegisleiðsögn um sýninguna kl. 12 í dag. 28.6.2007 05:00
Möndlumjólk á morgunkornið Sólveig Eiríksdóttir eldar kynstrin öll af gómsætum grænmetisréttum fyrir Völu Matt í kvöld í þætti hennar Matur og lífsstíll. „Solla himneska, eins og maður kallar hana þar sem hún rekur fyrirtækið Himnesk hollusta, er ótrúlega hugmyndarík og sniðug þegar kemur að spennandi uppskriftum,“ segir Vala. 28.6.2007 05:00
Tónleikar The Rapture - fimm stjörnur Það voru nýstirnin í hljómsveitinni Motion Boys sem hituðu upp fyrir The Rapture á Nasa á þriðjudagskvöldið. Motion Boys er mikið hampað þessa dagana og þess vegna gaman að fá tækifæri til að sjá hvernig sveitin spjarar sig á tónleikum. 28.6.2007 04:00
Kim Larsen væntanlegur til Íslands Danski tónlistarmaðurinn Kim Larsen og hljómsveit hans Kjukken heldur tónleika í Vodafonehöllinni hinn 24. nóvember. 28.6.2007 03:00
Fiskréttur flugmannsins Egill Ibsen Óskarsson starfar sem flugmaður en hefur mikinn áhuga á myndlist og mat og eyðir frístundum sínum í að rækta þessi áhugamál. 28.6.2007 00:01
Misheppnuð typpastækkun veldur sjálfsmorði Yfirvöld í Kambódíu vöruðu í gær þarlenda karlmenn við því að reyna heimatilbúnar aðferðir til typpastækkana. Þetta var gert í kjölfar þess að maður framdi sjálfsmorð í kjölfar misheppnaðrar typpastækkunar. 27.6.2007 16:59
Heimsmeistari í kappáti með gigt í kjálka Heimsmeistari í kappáti gæti misst titilinn vegna gigtar - í kjálkanum. Hinn 29 ára Takeru Kobayashi stefndi á sjöunda sigur sinn í pulsuátkeppni sem fer fram 4. júlí ár hvert í Brooklyn. Hann líður hins vegar svo miklar kvalir vegna gigtarinnar að hann á í vandræðum með að opna munninn. 27.6.2007 15:02
Glímukappi myrðir eiginkonu sína og barn Glímukappinn Chris Benoit kyrkti konu sína, kæfði sjö ára son sinn og kom biblíu fyrir við hlið líka þeirra áður en hann hengdi sig í snúru í lyftingatæki á heimili sínu í Fayettville í Georgíu. Benoit var fertugur kanadískur ríkisborgari, og þekktur sem ,,The Canadian Crippler" í fjölbragðaglímuheiminum. 27.6.2007 13:31
Goldie heldur tónleika á NASA Þann 14. júlí næstkomandi mun tónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Goldie koma fram á Breakbeat.is klúbbakvöldi á NASA. Heimsókn Goldie er liður í kynningaferð fyrir nýjustu breiðskífu hans, Malice in Wonderland, sem kom út fyrir skömmu undir listamannsnafninu Rufige Kru. 27.6.2007 13:05
Angelina Jolie hló í fæðingunni Margar konur öskra, veina eða gráta á meðan þær fæða börn. Ekki Angelina Jolie. Á meðan dóttir hennar Shiloh Nouvel var tekin með keisaraskurði á sjúkrahúsi í Namibíu fékk hún hláturskast. Og Brad Pitt náði því öllu saman á myndband. 27.6.2007 12:30
Krá verður sendiráð og sleppur við reykingabann Uppfinningasamur bareigandi á Bretlandi hefur fundið leið framhjá reykingabanni sem tekur gildi þar á sunnudaginn. Bob Beech hefur gert krá sína, Wellington Arms, í Southampton að sendiráði fyrir Redonda, pínulítla óbyggða eyju í Karabíska hafinu, um 35 sjómílur frá Antigua. 27.6.2007 10:42
Aukatónleikar Sinfoníuhljómsveitarinnar og Dúndurfrétta Uppselt er á tónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar og Dúndurfrétta í Laugardalshöll á föstudag, þar sem sveitirnar flytja eitt þekktasta verk rokksögunnar, The Wall eftir Pink Floyd. Vegna þessa hefur verið ákveðið að bæta við aukatónleikum fimmtudaginn 28. júní klukkan 19:30. 27.6.2007 10:00
Led Zeppelin íhugar endurkomu Þrír eftirlifandi meðlimir hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Led Zeppelin eru sagðir íhuga að koma saman á ný. Hugmyndin er að koma fram saman á einum tónleikum síðar í sumar. Tónleikarnir verða haldnir til heiðurs Ahmet Ertgun, stofnanda Atlantic Records, en hann lést á síðasta ári. Ertgun þessi vann mikið með Zeppelin á sínum tíma og vilja hljómsveitarmeðlimirnir votta honum virðingu sína með því að stíga aftur á svið í þetta eina skipti. 27.6.2007 06:45
Tvö fyrirtæki slást um Star Trek „Ég get ekkert tjáð mig um þetta mál,“ segir Jón Bjarni Guðmundsson hjá Saga Film. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins ríkir nú kapphlaup milli Saga Film og Pegasusar um tökur á nýjustu Star Trek-myndinni. 27.6.2007 05:00
Nhi og bau Víetnamski tónlistarmaðurinn Ngo Hong Quang kynnir hlustendum nýjan hljóðheim á tónleikum í Iðnó í kvöld. Quang útskrifaðist frá Tónlistarháskólanum í Hanoi vorið 2006 eftir tólf ára nám á hefðbundin víetnömsk hljóðfæri. 27.6.2007 04:30
Paris brosir breitt Hótelerfinginn Paris Hilton brosti sínu blíðasta er hún yfirgaf fangelsið sem hún hafði mátt dúsa í frá því í upphafi mánaðarins þar til henni var sleppt úr haldi rétt fyrir miðnætti í fyrradag. Hilton hafði þá afplánað 23 daga af 45 daga dómi en vegna góðrar hegðunar og plássleysis í fangelsinu var hún látin laus fyrr en áætlað var. 27.6.2007 03:30
Tvennir tónleikar Þingeyska gleðisveitin Ljótu hálfvitarnir, sem nýlega gaf út sína fyrstu plötu, heldur tvenna útgáfutónleika á næstunni. Fyrri tónleikarnir verða í Borgarleikhúsinu á laugardag en hinir síðari í Ýdölum í Aðaldal viku síðar. 27.6.2007 03:30
Damon frumsýnir óperu Nýtt verk Damons Albarn verður frumsýnt í Manchester á morgun. Verkið er sungið á mandarín-tungu og spilað er undir á glerharmonikku. Ópera eftir popparann Damon Albarn verður frumsýnd í Manchester á Englandi á morgun. 27.6.2007 03:30
Kynjamyndir á Korpúlfsstöðum Hópur þrettán myndlistarmanna og hönnuða sem hafa vinnustofur sínar á Korpúlfsstöðum opna gáttir sínar þessa vikuna og bjóða listunnendum og öðrum forvitnum gestum að kíkja á verk sín. Hópurinn kennir sig við „KorpArt“. 27.6.2007 02:30
Jagúar gefur út nýtt lag Nýtt lag með hljómsveitinni Jagúar, You Want Me, er komið í spilun. Lagið verður að finna á fjórðu plötu sveitarinnar sem var tekin upp í Danmörku síðasta vetur. Er hún væntanleg í ágúst. 27.6.2007 02:15
Heimboð Bjarkar einber uppspuni Breska götublaðið Daily Star birti í gær frétt sem fór eins og eldur í sinu um netið en þar var íslenska söngkonan Björk Guðmundsdóttir sögð hafa boðið poppstjörnunni Britney Spears að hafa afnot af heimili sínu í Reykjavík. Þar að auki var greint frá því að Björk hefði sent henni dagbókarbrot frá þeim tíma sem hún bjó í Lonon og átti í svipuðum vandamálum og Britney hefur glímt við auk bréfs þar sem íslenska stórstjarnan gefur henni góð ráð. 27.6.2007 02:00
Cruise í vanda Þýsk yfirvöld hafa meinað Tom Cruise að taka upp senur í nýjustu kvikmynd hans á grundvelli trúarskoðana Cruise. Samstarfskona Cruise segir trúarbrögð leikarans ekkert hafa með myndina að gera. 27.6.2007 02:00
Flestir fá borgað undir borðið „Ég gef allt mitt upp til skatts. Hvað ég tek svo fyrir þetta er síðan bara samkomulag og snýr að umfangi og öðrum þáttum,“ segir Bjarni Arason, söngvarinn góðkunni. Eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær eru þó nokkrir íslenskir söngvarar margbókaðir í brúðkaup þann 07.07.07 en þá verður væntanlega slegið nýtt met í því að gefa fólk saman frammi fyrir Guði og mönnum. Söngvarar á borð við Diddú og Bjarna voru til að mynda fjórbókaðir þennan dag en sá sem reyndist vera kóngurinn í þessum fræðum var Páll Óskar Hjálmtýsson; hann var bókaður í sjö brúðkaup. 27.6.2007 02:00
Bullock í rómantík Thomas Haden Church er í viðræðum um að leika á móti Söndru Bullock í rómantísku gamanmyndinni All About Steve. Bullock leikur snjallan krossgátufræðing sem verður yfir sig ástfanginn að myndatökumanni sjónvarpsstöðvarinnar CNN eftir aðeins eitt stefnumót. 27.6.2007 02:00
Sizemore í steininn Leikarinn Tom Sizemore hefur verið dæmdur í sextán mánaða fangelsi eftir að fíkniefni fundust í bíl hans. Þar með braut hann skilorð sitt eftir að hafa áður verið handtekinn með fíkniefni í fórum sínum. 27.6.2007 02:00
Dýrasta verkið á 8,3 milljónir Málverkið „Pip and Nina“ eftir Svavar Guðnason var slegið hæstbjóðanda á rúmar 8,3 milljónir króna hjá uppboðshúsinu Christie‘s í London í gær. Annað verka Svavars var selt á 4,8 milljónir á sama uppboði. 27.6.2007 02:00
Níu ára strákur kynnir myndasögubók „Ég hef samið myndasögur frá því ég var sex ára,“ segir Hugi Garðarsson myndasöguhöfundur sem mætti á Fréttablaðið til að kynna myndasögubók sína, Jóa gulrót og brækur réttlætisins. 27.6.2007 01:15
The Verve koma saman á ný Breska hljómsveitin The Verve hyggst koma aftur saman eftir beiskan aðskilnað fyrir átta árum. Þetta tilkynnir söngvari hljómsveitarinnar, Richard Ashcroft, í yfirlýsingu á heimasíðu sinni. 26.6.2007 15:36
Staðfestu rétt dæmds nauðgara til kláms Dæmdir kynferðisafbrotamenn í Svíþjóð mega skoða klámblöð að vild. Þetta segja þarlendir dómstólar, sem komust að þeirri niðurstöðu að sænsku fangelsismálastofnuninni væri ekki stætt á því að neita dæmdum nauðgara um klámblöðin hans. 26.6.2007 13:08
Moore er of feitur til að fjalla um heilbrigðismál Dýraverndunarsamtökin PETA eru ekki hrifin af Michael Moore og nýjustu mynd hans ,,Sicko", sem fjallar um heilbrigðiskerfið í Bandaríkjunum. Þau segja hinn frjálslega vaxna leikstjóra ekki í neinni aðstöðu til að fjalla um heilbrigðismál, þegar hann sé sjálfur afar óheilbrigður. 26.6.2007 12:04
Brasilísk skutla týndi naflanum Sérlega duglegur grafískur hönnuður, harðákveðinn í að fjarlægja hverja einustu misfellu af líkama brasilískrar fyrirsætu, máði nafla hennar af mynd sem birtist í Playboy tímaritinu. 26.6.2007 11:43
Vildi fá kostnað vegna tilhugalífsins bættann Hryggbrotinn kærasti ætlaði ekki að láta vaða yfir sig á skítugum skónum, og fór í mál við unnustu sína fyrrverandi til að fá kostnað vegna rómantískra helgarferða, gjafa og ófrjósemisaðgerðar bættann. 26.6.2007 11:30
Hyggst hlæja í eigin aftöku Maður í Texas sem á að lífláta í dag vill deyja hlæjandi. Vinur Patrick Knight auglýsti eftir bröndurum á Myspace og bárust hundruðir tillagna. Knight hyggst svo lesa einn þeirra áður en hann verður líflátinn með eitursprautu. Talskona fangelsisyfirvalda, Michelle Lyons, sagði að hann vildi hafa létta stemningu við aftökuna. 26.6.2007 11:00
Barnsmóðir 50 Cent sættir sig ekki við klink Ein og hálf milljón á mánuði er ekki nóg til að ala upp barn og halda heimili. Að minnsta kosti vill barnsmóðir 50 Cent, Shaniqua Tompkins, meina það en rapparinn greiðir mánaðarlega 1.5 milljónir í meðlag með syni sínum. 26.6.2007 10:34
Bannað að mynda vegna trúarbragða Tom Cruise Þýskaland bannaði framleiðendum myndar um tilraun til að ráða Adolf Hitler af dögum að mynda á svæðum þýska hersins vegna þess að Tom Cruise, stjarna myndarinnar, er meðlimur vísindakirkjunnar. 26.6.2007 10:01
Evan beint á toppinn Gamanmyndin Evan Almighty fór beint í efsta sæti norður ameríska aðsóknarlistans um síðustu helgi. Náði myndin þó aðeins inn rúmlega helmingi af aðsóknartekjum forvera síns, Bruce Almighty. 26.6.2007 08:45
Nýstárleg hljóð og spánnýtt verk Tónlistarhópurinn Aton stendur í stórræðum þessa dagana. Hópurinn kom fram á tvennum tónleikum á tónlistarhátíðinni Við Djúpið á Ísafirði í síðustu viku og vinnur þessa dagana að fyrstu plötu sinni sem væntanleg er síðar á árinu. Höfundar verka á fyrirhugaðri plötu eru meðal annars Hlynur Aðils Vilmarsson, Hugi Guðmundsson, Steingrímur Rohloff og Guðmundur Steinn Gunnarsson. Verkin eru samin á tímabilinu 1999-2006. 26.6.2007 08:00