Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Í mál við Móses Nágrannar leikarans Charltons Heston hafa höfðað mál á hendur honum vegna aurskriðu sem rann niður hæðina frá húsi hans í miklum rigningum fyrir tveim árum. Nágrannarnir segja að skriðan hafi skemmt eign þeirra og rýrt endursöluverð hennar. Þeir vilja fá áttatíu milljónir króna í bætur. 8.1.2007 11:21
Skilnaður Magna kemur aðdáendum í opna skjöldu Aðdáendur Magna Ásgeirssonar geta vart á heilum sér tekið yfir að yfirlýsing frá honum birtist í DV í gær um sambandsslit Magna og unnustu hans, Eyrúnar Haraldsdóttur. 6.1.2007 00:01
Umhyggjusöm eiginkona Eiginkona bandarísks lögreglumanns hefur viðurkennt að hafa blandað hassi út í kjötbollur sem hún gaf honum að borða, í þeirri von að hann félli á lyfjaprófi, og yrði rekinn úr starfi. 4.1.2007 10:40
Þreyttur á uppsagnarbréfum „Þetta er alveg óþolandi. Ég er búinn að fá nóg af þessum uppsagnarbréfum. Ég get svo svarið það. Þriðja skiptið á einu ári,” segir Andri Freyr Viðarsson útvarpsmaður en hann hefur verið annar umsjónarmaður Capone útvarpsþáttarins á X-Fm sem vakið hefur nokkra athygli á undanförnum árum og mánuðum. 3.1.2007 18:00
Ætar að láta mála sig nakta Britney Spears er nú óðum að komast í fyrra form eftir að hafa alið tvö börn. Hún er orðin svo hreykin af vexti sínum að hún hefur í hyggju að gera nakinn líkama sinn ódauðlegan í málverki. 3.1.2007 18:00
Vill fréttir af syninum Yoyhane Bonda, faðir malavíska drengsins sem Madonna ættleiddi á dögunum, vill fá að spyrja söngkonuna hvernig syni hans reiðir af en veit ekki hvernig hann getur haft samband við hana. „Ég er ekki með símanúmerið hennar eða heimilisfang. 3.1.2007 17:30
Varði vekur athygli Tónlistarmaðurinn Hallvarður Ásgeirsson, eða Varði eins og hann er kallaður, hefur gefið út sína fyrstu plötu sem nefnist Lífsblómið. Á plötunni blandar Varði saman sígildri tónlist og svokölluðu „doom metali“ eða myrkrametali. 3.1.2007 17:00
Urban aftur í meðferð Keith Urban, eiginmaður Nicole Kidman, er farinn aftur í meðferð eftir að hafa verið með fjölskyldunni í Ástralíu yfir jólin. Urban skráði sig í áfengismeðferð hjá Betty Ford-stofnuninni í Kaliforníu í október í fyrra en fékk að verja jólunum með fjölskyldunni en til Sydney hafði hann ekki komið síðan hann og Kidman gengu í það heilaga þar á síðasta ári. 3.1.2007 16:45
Tilfinningarík tónlist Hjörleifur Valsson fiðluleikari og Antonía Hevesi píanóleikari koma fram á hádegistónleikum í Hafnarborg á morgun. Yfirskrift tónleikanna er „Ljúflingslög“ en að sögn Antoníu verður leitast við að hafa andrúmsloftið rólegt og afslappandi og munu þau flytja íslensk sönglög í útsetningu Atla Heimis Sveinssonar tónskálds ásamt lögum eftir Vivaldi og Mozart. 3.1.2007 16:15
Hringvegurinn er hið endanlega vegaferðalag Íslenski hringvegurinn er hið endanlega vegaferðalag að mati Mark Sundeen greinarhöfundar hjá The New York Times. Grein hans var níunda mest senda ferðagreinin með tölvupósti frá heimasíðu blaðsins fyrir árið 2006. 3.1.2007 16:00
Söngleikurinn Um miðja nótt Á gamlárskvöld var frumsýndur nýr danskur söngleikur, Midt om natten. Midt om natten var hljómplata sem kom út þann 24. nóvember 1983 og er mest selda plata í sögu Danmerkur. Talið er að hún finnist enn á meira en tíunda hverju heimili í Danmörku. 3.1.2007 15:45
Spears að brotna saman Britney Spears var sögð hafa fallið í yfirlið á nýárssamkomu sökum of mikillar drykkju en hún var borin út af skemmtistað í Las Vegas að sögn sjónarvotta. 3.1.2007 15:30
Snow Patrol söluhæst Hljómsveitin Snow Patrol átti mest seldu plötu síðasta árs í Bretlandi. Platan, sem nefnist Eyes Open og er fjórða plata sveitarinnar, seldist í 1,2 milljónum eintaka. 3.1.2007 15:15
Gavin Portland heldur útgáfutónleika Á morgun, fimmtudaginn 4. janúar, heldur rokksveitin Gavin Portland útgáfutónleika sína á Grand Rokk. Tónleikarnir hefjast klukkan 22:00. 3.1.2007 14:46
Queen besta breska hljómsveitin Ofurhljómsveitin Queen er besta breska hljómsveitin að mati hlustenda BBC Radio 2. Alls bárust tuttugu þúsund atkvæði og skutu Freddie Mercury og félagar hljómsveitum á borð við Rolling Stones, Bítlana, Take That og Oasis ref fyrir rass. Hlustendur voru beðnir um að gefa hljómsveitum einkunn fyrir mikilvæga þætti og nægir þar að nefna texta- og lagasmíðar, framkomu á tónleikum og útgeislun. 3.1.2007 13:30
Prúðbúin á nýársfagnaði í lídó Mikill nýársfagnaður var haldinn í veislusalnum Lídó þar sem fjöldi prúðbúins fólks lét sig ekki vanta til að fagna árinu 2007. 3.1.2007 13:00
Petty ekki á leiðinni að hætta Hinn virti rokkari Tom Petty ætlar alls ekki að setjast í helgan stein, þrátt fyrir að fréttir þess efnis hafi víða birst á síðasta ári. Tímaritið Rolling Stone fullyrti til að mynda í júlí að Petty ætlaði að gefa rokkið upp á bátinn, en hann þvertekur fyrir það. 3.1.2007 12:45
Óperan blómstrar á Dokkeyju Óperuunnendur á Íslandi eiga styst með að skjótast erlendis til að njóta óperulistarinnar – í það minnsta þangað til Íslenska óperan setur Rake Progress eftir Stravinsky á svið 9. febrúar - Flagara í framsókn kalla þeir við Ingólfsstrætið verkið. 3.1.2007 12:30
Opnar skóla Spjallþáttastjórnandinn Oprah Winfrey hefur opnað stúlknaskóla í Jóhannesarborg í Suður-Afríku. Winfrey gaf fyrrum forseta Suður-Afríku, Nelson Mandela, loforð fyrir sex árum um að opna skóla og nú er hann orðinn að veruleika. 3.1.2007 12:15
Logi leitar að nýjum Meistaraefnum „Það er kominn fiðringur,” segir Logi Bergmann Eiðsson, stjórnandi spurningaþáttarins Meistarinn, en þátturinn fer í loftið í lok janúar. Á laugardaginn geta Íslendingar þreytt inntökuprófið fyrir þáttinn á fjórum stöðum á landinu; í Reykjavík og á Ísafirði, Akureyri og Egilsstöðum. 3.1.2007 12:00
Kylie ákaft fagnað Hin smávaxna ástralska söngkona Kylie Minogue gat ekki hafið söng fyrir fagnaðarlátum áhorfenda sem ætlaði aldrei að linna þegar hún söng nýja árið í garð á Wembley Arena. Alls mættu tólf þúsund aðdáendur söngkonunnar og stóð Kylie klökk á sviðinu þegar þeir tóku á móti henni með þessum hætti. 3.1.2007 11:45
Kate og Pete sögð hafa gift sig á Taílandi Samkvæmt fréttum bresku slúðurpressunnar eru ofurfyrirsætan Kate Moss og Pete Doherty nú gift en talið er að þau hafi látið pússa sig saman á eyjunni Phuket sem tilheyrir Taílandi á gamlárskvöld. Bresku blöðin hafa lengi fylgst með þessum ólíkindatólum og samlífi þeirra, enda er Doherty nú á skilorði fyrir ólöglega vörslu fíkniefna en Moss nýkomin úr meðferð frá Bandaríkjunum. 3.1.2007 11:45
Jón fékk pening Árleg úthlutun úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins var á gamlársdag og fékk Jón Kalman Stefánsson hana að þessu sinni. Jón hlaut sem kunnugt er íslensku bókmenntaverðlaunin fyrr á árinu enda er hann margra verðlauna maklegur: Jón hóf feril sinn sem ljóðskáld en hefur um langt árabil stundað sagnabúskap og sent frá sér fjölda eftirminnilegra sagna. 3.1.2007 11:00
Ísland skotspónn rússneskra grínara? „Rússneskir auðjöfrar hafa fengið Mariu Carey, Justin Timberlake og Whitney Houston til að skemmta sér um borð í flugvélinni Flying Titanic. Um 125 manns munu borða og skemmta sér á glæsilegum veitingastað inni í flugvélinni en förinni mun vera heitið til Íslands þar sem þeirra bíður íshöll. 3.1.2007 10:30
Fékk rúman milljarð fyrir giggið Breski söngvarinn George Michael fékk einn komma einn milljarð króna fyrir að fljúga til Rússlands um áramótin og syngja í nýársfagnaði ónefnds rússnesks milljarðamærings. Send var einkaþota eftir söngvaranum sem flutti hann á búgarð Rússans, ásamt tuttugu manna hljómsveit. 3.1.2007 10:11
Hatturinn passar ennþá Fjórða myndin um fornleifafræðinginn ævintýragjarna, Indiana Jones, er væntanleg í kvikmyndahús í maí á næsta ári. 3.1.2007 10:00
Fannst látin í bíl Kona sem braust inn á heimili bítilsins George Harrison á Hawaii árið 1999, fannst látin í blóði drifnum bíl í Kaliforníu, rétt fyrir jólin. Innbrotið var einni viku áður en ráðist var á Harrison á heimili hans í Lundúnum, og hann stunginn í brjóstið. 3.1.2007 09:56
Oprah opnar stúlknaskóla í Afríku Sjónvarpskonan Oprah Winfrey opnaði í gær stúlknaskóla í Suður-Afríku og uppfyllti þarmeð loforð sem hún gaf Nelson Mandela fyrir sex árum. Fjölmargar Hollywood stjörnur voru viðstaddar opnunina, ásamt Mandela og eiginkonu hans. 3.1.2007 09:43
Fólk syngur með í hjartanu Frumraun Þóru Einarsdóttur sópransöngkonu með Sinfóníuhljómsveit Íslands var á Vínartónleikum þeirra fyrir tólf árum. Hún endurtekur nú leikinn og stígur á svið á fernum tónleikum því ekki má minna vera - svo vinsæll er þessi menningarviðburður. 3.1.2007 09:30
Cleese ódýrari en Orkuveituauglýsingin Auglýsing Kaupþings með breska stórleikaranum John Cleese vakti mikla athygli á gamlárskvöld enda frumsýnd á eftirsóttasta tímanum í íslensku sjónvarpi, var síðasta auglýsingin fyrir Áramótaskaup Ríkissjónvarpsins. 3.1.2007 09:00
Bað fatafellur afsökunar Ungstirnið Lindsay Lohan hefur beðið allar fatafellur heimsins afsökunar eftir að upp komst að hún kallaði þær hórur í tölvupósti sem lak til fjölmiðla. Bréfið skrifaði Lohan í desember eftir að hafa sótt námskeið í súludansi í þeim tilgangi að æfa sig fyrir hlutverk nektardansmeyjar. 3.1.2007 08:30
Á að mæta í réttarsal Söngvarinn George Michael á að mæta fyrir dómara hinn 11. janúar fyrir umferðarlagabrot. Söngvarinn var handtekinn í október eftir að hann leið ofurölvi út af í bifreið sinni og hindraði umferð á gatnamótum í London. Honum var sleppt úr haldi gegn tryggingu. Lögreglan hafði áður veitt söngvaranum viðvörun fyrir að hafa kannabisefni í fórum sínum fyrir tæpu ári. Í apríl síðastliðnum ók hann á þrjá kyrrstæða bíla á bílastæði. 3.1.2007 08:00
Óttaðist að meiða Judi Cate Blanchett óttaðist að hún myndi vinna Judi Dench mein í slagsmálaatriði í myndinni Notes on a Scandal. Í atriðinu skellir Blanchett hinni 72 ára gömlu Dench upp við vegg. 3.1.2007 07:45
Vill meira kúldur, knús, partí og pjús á Alþingi „Pjúsari nýtur unaðssemda hins tænivædda heims,“ segir Lára Stefánsdóttir kennari, sem skipar þriðja sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningar í vor og er jafnframt æviráðinn forseti íðilstjórnar Pjúsarafélags Íslands. 2.1.2007 16:00
Vill bíl í afmælisgjöf „Það væri gaman að fá bíl í afmælisgjöf,“ segir Jón Gnarr, en hann á fertugsafmæli í dag. „Bíllinn minn er orðinn gamall og ónýtur, þannig að ef einhver gæfi mér bíl væri það mjög gaman. Ég á samt ekkert von á því. Þegar ég var lítill voru alltaf vörutalningar 2. janúar, svo að ég fékk bara bensínstöðvadót í afmælisgjöf.“ 2.1.2007 15:30
Vandmál með Wii Nýlega var opnuð heimasíðan www.wiihaveaproblem.com, en hún heldur utan um öll þau slys sem eigendur leikjatölvunnar Nintendo Wii lenda í, en þau eru mörg. 2.1.2007 15:00
Skilnaðurinn frágenginn Jessica Simpson og fyrrverandi eiginmaður hennar Nick Lachey hafa loksins gengið frá skiptingu eigna sinna. Þar með er skilnaður þeirra loks frágenginn. Simpson, sem er 26 ára, og Lachey, 33 ára, gengu í hjónaband árið 2002 og komu fram í MTV-raunveruleikaþættinum Newlyweds sem sýndur hefur verið hér á landi. 2.1.2007 14:30
Ronnie í ræktina Gamli rokkhundurinn Ronnie Wood kom eiginkonu sinni Jo í opna skjöldu þegar hann skellti sér í ræktina með henni og einkaþjálfaranum hennar. Ronnie, sem er gítarleikari Rolling Stones, hefur sem kunnugt er löngum átt í vandræðum með áfengis- og eiturlyfjaneyslu en honum þótti ekkert tiltökumál að hreyfa sig aðeins á dögunum. 2.1.2007 14:00
Ríki Bítillinn gramsar í ruslinu Bítillinn Sir Paul McCartney er einn af auðugustu mönnum Bretlands. Þrátt fyrir það finnst honum hreinasta synd að eyða peningunum sínum í rándýra antíkmuni. McCartney hefur þess í stað oft fundið sér stofustáss sem annað fólk hefur hent út í tunnu. Hann segist hafa fundið nokkra gullmola undanfarið, til að mynda seglbát. 2.1.2007 13:30
Óljós framtíð System of a Down Það hefur lítið heyrst frá bandarísku rokksveitinni System of a Down síðustu mánuði. Sveitin sendi frá sér tvær vinsælar plötur árið 2005 en frá því um mitt síðasta ár hefur bandið verið í pásu. Liðsmenn sveitarinnar segjast ekki hafa tekið ákvörðun um að hætta, en tónlistarleg framtíð þeirra sé óljós. 2.1.2007 13:00
Ný týpa sem er alltaf hress Tónlistarmaðurinn Davíð Þór Jónsson þykir með skemmtilegri mönnum og er uppátækjasamur með eindæmum. Þessa dagana fóstrar hann nýja persónu innra með sér. 2.1.2007 12:45
Neitaði að læra leiklist Justin Timberlake neitaði að fara í leiklistartíma til að undirbúa sig fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Alpha Dog. Þess í stað ákvað hann að notast alfarið við þá þjálfun sem hann fékk sem krakki. Söngvarinn kunni leikur mann sem ásakaður er um að myrða táninga. 2.1.2007 12:30
Klæðist gúmmíi í rúminu Það er ekki óvenjulegt að leikarar í Hollywood fái að halda einhverjum leikmunum eða búningum eftir þegar á tökum á myndum er lokið. 2.1.2007 12:15
Hótar vinkonu lífláti Breska söngkonan Kerry Katona, fyrrverandi eiginkona Westlife-söngvarans Brians McFadden, hefur hótað áður bestu vinkonu sinni Michelle Hunter lífláti. Hunter hefur ekki verið vinsæl hjá Katona eftir að hún sagði frá eiturlyfjanotkun söngkonunnar. 2.1.2007 12:00
Harry prins hættir að reykja Stórrreykingamaðurinn Harry Bretaprins hefur ákveðið að hætta að reykja nú um áramótin. Harry, sem er 22 ára, er þekktur fyrir að reykja um það bil pakka af sígarettum á hverju kvöldi. Þessi ákvörðun hans er talin munu gleðja Karl föður hans mikið, en Karl hefur ætíð verið mikið á móti reykingum sonar síns. 2.1.2007 11:45