Fleiri fréttir

„Það er allt í lagi að klikka inn á milli og ná ekki alltaf sínum markmiðum“
Snorri Steinn Guðjónsson segir nauðsynlegt að hlutirnir í kringum handknattleikslandsliðið séu krufðir með gagnrýnum augum. Hann var hissa á umræðunni fyrir mót og sér fyrir sér að taka við landsliðinu einn daginn. Þetta kemur fram í viðtali við Snorra í Handkastinu.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Haukar 31-28 | Selfyssingar höfðu betur í háspennuleik
Selfyssingar unnu virkilega sterkan þriggja marka sigur er liðið tók á móti Haukum í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Lokatölur 31-28 og Selfyssingar stökkva úr áttunda sæti og upp í það fimmta.

Róbert: Ekki nógu margir sem hittu á daginn sinn í dag
Róbert Gunnarsson þjálfari Gróttu var vitaskuld sár og svekktur eftir tap hans manna gegn Stjörnunni í Olís-deildinni í kvöld. Stjarnan vann fjögurra marka sigur eftir jafnan leik.

„Eigum að vera með kassann úti og sjálfstraust“
Guðmundur Hólmar Helgason átti frábæran leik fyrir Selfoss er liðið vann mikilvægan þriggja marka sigur gegn Haukum í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Hann skoraði níu mörk fyrir liðið og var sérstaklega ánægður með að Selfyssingar hafi aldrei gefist upp í kvöld.

Umfjöllun og viðtal: Stjarnan - Grótta 31-27 | Stjarnan í fjórða sætið eftir góðan sigur
Í kvöld lék Stjarnan sinn fyrsta leik í 52 daga þegar Grótta kom í heimsókn í 14. umferð Olís-deildarinnar. Lauk leiknum með nokkuð sannfærandi sigri heimamanna. Lokatölur 31-27 og Stjarnan byrjar nýja árið vel.

Janus Daði og Sigvaldi í aðalhlutverkum þegar Kolstad vann stórsigur
Janus Daði Smárason og Sigvaldi Björn Guðjónsson áttu báðir góðan leik fyrir Kolstad sem vann stórsigur í norsku úrvalsdeildinni í dag. Fleiri Íslendingar voru í eldlínunni með sínum liðum.

Gísli skoraði tvö er Magdeburg tryggði sér sæti í undaúrslitum eftir framlengingu
Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði tvö mörk fyrir Þýskalandsmeistara Magdeburg er liðið tryggði sér seinasta lausa sætið í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar í handbolta með naumum eins marks sigri gegn Kiel í dag, 34-35.

Leik ÍR og ÍBV frestað vegna óvissu með siglingar
Leik ÍR og ÍBV í Olís-deild karla sem átti að fara fram í Skógarseli í dag hefur verið frestað.

Telur fjárhagsvandræði stórliðs Kielce alvarlegri en áður
Þórir Ólafsson, þjálfari Selfoss í Olís-deild karla í handbolta og fyrrum leikmaður pólska stórveldisins Kielce, var á línunni í seinasta þætti af hlaðvarpi Seinni bylgjunnar. Þar fór hann meðal annars yfir ástandið hjá sínu fyrrum félagi, en framtíð Kielce er í mikilli óvissu eftir að stærsti styrktaraðili félagsins hætti að styrkja félagið í byrjun þessa árs.

Karabatic skrifar undir nýjan samning og spilar fram á fimmtugsaldurinn
Franski handboltamaðurinn Nikola Karabatic, sem er af mörgum talinn einn allra besti handboltamaður sögunnar, hefur skrifað undir nýjan samning við franska stórveldið PSG.

Teitur og félagar í undanúrslit eftir framlengdan leik
Teitur Örn Einarsson og félagar hans í Flensburg eru komnir í undanúrsli þýsku bikarkeppninnar í handbola eftir eins marks sigur gegn HSG Wetzlar í framlengdum leik í kvöld, 29-28.

„Auðvelt að leggjast á hliðina og fá sér eina snuddu og vorkenna sjálfum sér“
HK tapaði í dag fyrir Selfossi í hálfgerðum úrslitaleik um sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð. Lauk leiknum með 13 marka sigri Selfoss 18-31 og sá lið HK aldrei til sólar í leiknum.

Umfjöllun og viðtal: HK - Selfoss 18-31 | Risasigur í botnslagnum
Í dag fór fram algjör úrslitaleikur í fallbaráttunni í Olís-deildinni þegar lið Selfoss mætti í Kórinn og lék gegn HK. Leiknum lauk með stórsigri Selfoss. Lokatölur 18-31 í afar óspennandi leik.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Fram 31-28 | Stjarnan áfram með í toppslagnum
Stjarnan vann sigur á Fram í Olís-deild kvenna í handknattleik í dag. Þetta er þriðji sigur Stjörnunnar á Fram í vetur en með sigrinum nær Stjarnan að halda í við topplið Vals og ÍBV.

Góður leikur Arons í sigri í toppslagnum
Aron Pálmarsson átti góðan leik fyrir lið Álaborgar þegar liðið vann góðan sigur á GOG í toppslag dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í dag.

Umfjöllun: KA - Hörður 32-31 | Dagur og Ólafur drógu KA-vagninn yfir línuna
Dagur Gautason og Ólafur Gústafsson skoruðu samtals 24 mörk þegar KA sigraði Hörð með minnsta mun, 32-31, í mikilvægum fallslag í Olís-deild karla í dag.

Elín Jóna varði á ögurstundu í mikilvægum sigri
Ringköbing, lið Elínar Jónu Þorsteinsdóttur, vann mikilvægan sigur á Ajax í danska handboltanum í dag.

Stefnir í áhorfendamet þrátt fyrir að enn sé tæpt ár í leikinn
Þrátt fyrir að enn séu 342 dagar í fyrsta leik Evrópumótsins í handbolta sem fer fram í Þýskalandi á næsta ári er nú þegar búið að selja um það bil 40 þúsund miða á leikinn. Það er því nokkuð öruggt að áhorfendamet verði slegið á leiknum, enda eru enn 10 þúsund miðar lausir.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Haukar 27-26 | Toppliðið þurfti að hafa fyrir hlutunum
Topplið Vals þurfti að hafa fyrir hlutunum er liðið tók á móti Haukum í Olís-deild kvenna í handbolta í kvöld. Eftir jafnan og spennandi leik unnu Valskonur að lokum nauman eins marks sigur, 27-26.

„Ekki mjög þægilegt en þetta er eitthvað sem er löngu ákveðið með stjórn og leikmönnum“
Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, segir að sitt lið hafi ekki átt skilið að vinna leik sinn gegn Haukum í Olís-deild kvenna í kvöld. Valur, sem er á toppi Olís-deildarinnar, vann ansi nauman sigur á liðinu sem er í fimmta sæti.

„Ég var svo ánægður með þessa hugmynd að ég ákvað að prófa þetta“
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, gat leyft sér að brosa eftir mjög svo sannfærandi sigur gegn FH í Olís-deildinni í dag. Valur með forystuna allan leikinn og vann að lokum átta marka sigur í miklum markaleik, 44-36.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - FH 44-36 | Valssigur aldrei í hættu í áttatíu marka leik
Íslandsmeiastarar Vals unnu öruggan átta marka sigur er liðið tók á móti FH í stórleik fjórtándu umferðar Olís-deildar karla í handbolta í kvöld, 44-36.

Kristján Örn markahæstur er PAUC tryggði sér sæti í undanúrslitum
Kristján Örn Kristjánsson var markahæsti leikmaður PAUC er liðið vann nokkuð öruggan fjögurra marka sigur gegn Nimes í átta liða úrslitum frönsku bikarkeppninnar í handbolta í kvöld, 38-34.

Heitustu liðin fyrir áramót mætast í kvöld og Arnar Daði fór yfir málin með Gaupa
Toppliðin Valur og FH mætast í kvöld í fyrsta stórleiknum í Olís deild karla í handbolta eftir HM-frí.

Ómar Ingi fór í aðgerð og verður lengi frá
Ómar Ingi Magnússon, íþróttamaður ársins undanfarin tvö ár, verður ekki með Magdeburg á næstunni í þýska handboltanum.

Olís-stöðutékk: Álag á Val, vonir í Eyjum og leiðin liggur vestur
Olís-deild karla hefst fyrir alvöru um helgina eftir HM-hléið en þá fer 14. umferðin fram. En hvernig er staðan á liðunum einum og hálfum mánuði eftir síðasta leik þeirra. Vísir fór yfir stöðuna á liðunum tólf.

Fimmtíu bestu: Síðasta púslið, markamaskína úr Breiðholtinu og Robert Horry handboltans
Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 30.-26. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í handbolta á þessari öld.

„Mig var farið að langa aftur heim“
Aðalsteinn Eyjólfsson, sem þjálfað hefur Kadetten Schaffhausen í Sviss með góðum árangri, hefur gert tveggja ára samning við þýska liðið Minden. Hann vildi komast aftur „heim“ eftir þriggja ára veru í Sviss.

Orri og félagar stálu sigri gegn Arendal
Orri Freyr Þorkelsson og félagar hans í norska meistaraliðinu Elverum unnu dramatískan eins mark sigur gegn Arendal í norsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 31-32.

Vann alla leikina en fær ekki að þjálfa suður-kóresku stelpurnar áfram
Danski handboltaþjálfarinn Kim Rasmussen fær ekki nýjan samning sem þjálfari suður-kóreska kvennalandsliðsins í handbolta þrátt fyrir gott gengi.

Losuðu sig við þjálfarateymið eftir vonbrigðin á HM
Króatía olli vonbrigðum á HM karla í handbolta í janúar með því að enda í 9. sæti og nú hefur nýr landsliðsþjálfari verið kynntur til sögunnar.

Aðalsteinn tekur við Minden
Aðalsteinn Eyjólfsson tekur við þýska félaginu Minden í sumar. Hann hefur þjálfað Kadetten Schaffhausen í Sviss undanfarin tvö ár.

Fimmtíu bestu: Hetja úrslitanna 2002, Valdi Gríms 2.0 og þeir sem tóku frægustu vítaköstin
Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 35.-31. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í handbolta á þessari öld.

Svaf ekki í viku vegna verstu meiðsla sem hann hefur lent í
Róbert Aron Hostert, leikmaður Íslands- og bikarmeistara Vals, segir að meiðslin sem hann glímir nú við séu þau verstu sem hann hafi upplifað.

Góður leikur Aldísar Ástu dugði ekki
Aldís Ásta Heimisdóttir átti góðan leik í liði Skara í efstu deild sænska handboltans í kvöld. Það dugði þó ekki til þar sem lið hennar Skara mátti þola tveggja marka tap á útivelli gegn Skuru.

Samningi Lovísu í Noregi rift
Lovísa Thompson, landsliðskona í handbolta, mun ekki klára tímabilið með Tertnes í Noregi en samningi hennar þar var rift þar sem hún er að glíma við meiðsli og er frá keppni.

Harpixið getur verið til vandræða í handboltanum eins og sást í gær
Gróttumenn voru nálægt því að taka stig á móti Íslands- og bikarmeisturum Vals í gærkvöldi í fyrsta leik Olís deildar karla í fimmtíu daga.

Seinni bylgjan: Er ÍBV langbesta liðið í deildinni?
Seinni bylgjan velti upp nokkrum spurningum nú þegar þriðji og síðasti hluti deildarkeppni Olís deildar kvenna í handbolta er framundan.

Fimmtíu bestu: Gleðigjafinn, veröld sársaukans og kjarnorkuverið úr Krikanum
Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 40.-36. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í handbolta á þessari öld.

Lið Hauks klárar tímabilið en framtíðin óráðin
Pólska stórliðið Kielce, sem Haukur Þrastarson leikur með, mun klára tímabilið en ákvörðun um framtíð þess verður tekin í mars.