Fleiri fréttir

Beckham fyrirliði á ný

David Beckham verður fyrirliði enska landsliðsins á nýjan leik er það mætir Trinídad og Tóbagó í vináttulandsleik á morgun.

Emre á leið til Fenerbahce

Eftir því sem fram kemur á heimasíðu Fenerbahce hefur félagið komist að samkomulagi við Newcastle um kaup á tyrkneska miðvallarleikmanninum Emre Belozoglu.

Redknapp hefur áhuga á Dunne

Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, hefur staðfest áhuga sinn á varnarmanninum Richard Dunne, fyrirliða Manchester City.

Barton saklaus í leigubílamáli

Joey Barton, leikmaður Newcastle, var úrskurðaður saklaus af ákærum að hafa valdið skemmdum í leigubíl í mars síðastliðnum.

Ferdinand kominn á sölulista?

Breska blaðið Daily Mirror fullyrðir í dag að varnarmaðurinn Anton Ferdinand hafi verið settur á sölulista hjá West Ham.

Scolari hefur ekkert heyrt frá Chelsea

Luiz Felipe Scolari, landsliðsþjálfari Portúgala, segist ekki hafa heyrt í forráðamönnum Chelsea varðandi knattspyrnustjórastöðuna hjá félaginu. Hann segist einbeita sér að fullu á að undirbúa lið sitt fyrir EM.

Gerrard vill ólmur fá Barry

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segist ólmur vilja fá landsliðsfélaga sinn Gareth Barry til félagsins frá Aston Villa í sumar.

Hættir Sven í næstu viku?

Sky fréttastofan segist hafa heimildir fyrir því að Sven-Göran Eriksson verði sagt upp störfum hjá Manchester City í næstu viku.

Bostock á leið til Tottenham

Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham er nú við það að landa hinum 16 ára gamla miðjumanni John Bostck frá Crystal Palace. Bostock er yngsti leikmaður sem komið hefur við sögu í leik með Palace eftir að hafa komið við sögu hjá liðinu aðeins 15 ára gamall í fyrrahaust.

Giovani búinn að semja við Tottenham

The Sun segir í dag að Giovani Dos Santos sé þegar búinn að semja við Tottenham og að hann fari þangað frá Barcelona fyrir tólf milljónir punda.

Mikael Forssell til Hannover 96

Finnski sóknarmaðurinn Mikael Forssell hefur samið við þýska úrvalsdeildarliðið Hannover 96 til næstu fjögurra ára.

Man City að missa Dunne

Allar líkur eru á því að Richard Dunne sé á leið frá Manchester City eftir að hann hafnaði nýju samningstilboði frá félaginu.

John Arne Riise á leið frá Liverpool

Dagblaðið The Liverpool Echo heldur því fram í dag að John Arne Riise verði seldur frá Liverpool nú í sumar en hann á eitt ár eftir af samningi sínum.

Enska knattspyrnusambandið vill skoða frekar 6+5 regluna

Enska knattspyrnusambandið sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem sambandið lýsir yfir vilja til að skoða frekar tillögu Sepp Blatter, forseta FIFA, um að takmarka fjölda erlendra leikmanna í byrjunarliði evrópskra knattspyrnufélaga.

Torres fær væna launahækkun

Eftir því sem enskir fjölmiðlar segja í dag mun Fernando Torres fá myndarlega launahækkun hjá Liverpool.

Chelsea staðfestir áhuga sinn á Scolari

Talsmaður portúgalska knattspyrnusambandsins hefur staðfest að Chelsea hafi beðið um leyfi til að ræða við landsliðsþjálfarann Luiz Felipe Scolari.

Tottenham nær ekki inn á topp fjögur

Martin Jol, fyrrum stjóri Tottenham og nýráðinn stjóri Hamburg í Þýskalandi, hefur ekki mikla trú á að Lundúnaliðið nái að brjótast inn á topp fjögur í ensku úrvalsdeildinni.

Leiktíðin á Englandi í hnotskurn

Leiktíðin 2007-08 var viðburðarík í ensku knattspyrnunni. Vísir hefur nú tekið saman upprifjun á helstu viðburðum leiktíðarinnar frá ágúst á síðasta ári til dagsins í dag.

Calderon gefst upp - í bili

Ramon Calderon, forseti Real Madrid, hefur viðurkennt ósigur í viðleitni sinni til að fá Cristiano Ronaldo til Real frá Manchester United.

Ten Cate rekinn frá Chelsea

Þjálfarinn Henk ten Cate hefur verið rekinn frá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea, aðeins fimm dögum eftir að Avram Grant knattspyrnustjóri var látinn taka pokann sinn.

Ashton sagður þrefaldast í launum

Enska dagblaðið Daily Star staðhæfði í morgun að Dean Ahston hafi skrifað undir nýjan samning við Íslendingafélagið West Ham og að hann muni þrefaldast í launum.

Capello ánægður með Terry

Fabio Capello ætlar að gefa leikmönnum Manchester United og Chelsea í enska landsliðinu frí frá æfingaleiknum við Trínídad á fimmtudaginn. Hann var sáttur við frammistöðu enska landsliðsins í 2-0 sigrinum á Bandaríkjamönnum á Wembley í kvöld.

Englendingar lögðu Bandaríkjamenn

Englendingar lögðu Bandaríkjamenn 2-0 í vináttuleik þjóðanna á Wembley í kvöld. John Terry og Steven Gerrard skoruðu mörk enska liðsins sem vann verðskuldaðan sigur.

Luke Moore til WBA

Framherjinn Luke Moore gekk í dag í raðir West Brom frá Aston Villa fyrir um 3,5 milljónir punda. Moore var á lánssamningi hjá WBA síðustu mánuði og hefur nú gengið formlega í raðir félagsins.

Ferguson og Queiroz sluppu

Sir Alex Ferguson og aðstoðarmaður hans Carlos Queiroz sluppu við refsingu vegna ummæla sína um dómara eftir að Manchester United féll úr bikarkeppninni gegn Portsmouth í vor.

McBride farinn frá Fulham

Bandaríski landsliðsmaðurinn Brian McBride hefur tilkynnt forráðamönnum Fulham að hann ætli að fara frá félaginu í sumar. McBride á að baki yfir 150 leiki og 40 mörk fyrir Lundúnaliðið. Hann er tíundi leikmaðurinn sem fer frá Fulham eftir að liðið náði að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni í vor.

Dos Santos orðaður við Tottenham

Mexíkóska undrabarnið Giovani dos Santos gæti verið á leið til Tottenham á Englandi. Sky fréttastofan greinir frá þessu í kvöld.

United hótar að kæra Real Madrid

Forráðamenn Manchester United hafa nú hótað að kæra kollega sína hjá Real Madrid á Spáni vegna sífelldra yfirlýsinga spænskra tengdum vængmanninum Cristiano Ronaldo.

Ancelotti sagður hafa fundað með Abramovich

Ítalska dagblaðið La Repubblica greinir frá því í dag að þeir Roman Abramovich, eigandi Chelsea, og Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri AC Milan, hafi fundað í Sviss.

Terry fyrirliði Englands á morgun

John Terry verður fyrirliði enska landsliðsins á morgun er það tekur á móti Bandaríkjamönnum í vináttulandsleik á Wembley.

Deschamps segist vera á óskalista Chelsea

Didier Deschamps sagði í útvarpsviðtali að hann væri einn þriggja eða fjögurra knattspyrnustjóra á óskalista Chelsea sem rak Avram Grant nú um helgina.

Hetjunum fagnað í Hull

Yfir 100.000 stuðningsmenn Hull fylltu götur bæjarins í dag til að hylla hetjurnar sínar. Hull komst upp í úrvalsdeildina um helgina og keyrði um á þaklausum strætisvagni í dag.

Hiddink myndi hafna Chelsea

Umboðsmaður hollenska knattspyrnustjórans Guus Hiddink segir að hann myndi hafna Chelsea ef honum yrði boðin staða knattspyrnustjóra hjá félaginu.

Mourinho útilokar að taka við Chelsea

Jose Mourinho hefur útilokað að taka aftur við liði Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Portúgalinn staðfesti þetta í samtali við Sky í kvöld, en hann hefur verið orðaður við sitt gamla félag í breskum miðlum undanfarið líkt og margir af færustu stjórum heims.

Eriksson að taka við landsliði Mexíkó?

Sven-Göran Eriksson er kominn langt á leið með að samþykkja að taka við mexíkóska landsliðinu í knattspyrnu. Sky fréttastofan hefur þetta eftir fjölmiðlum þar í landi í kvöld. Talið er víst að Eriksson muni láta af störfum hjá Manchester City á næstu dögum eða vikum.

Grant orðaður við Manchester City

Breska blaðið Times greinir frá því í dag að eigandi Manchester City sé að íhuga að bjóða Avram Grant að taka við liði sínu. Grant var rekinn frá Chelsea í gær, en talið er að Sven-Göran Eriksson, sitjandi stjóri City, sé orðinn ansi valtur í sessi.

Queiroz er inni í myndinni

Carlos Queiroz kemur vel til greina sem eftirmaður Sir Alex Ferguson þegar Skotinn lætur af störfum innan næstu þriggja ára. Þetta staðfesti framkvæmdastjóri Manchester United í samtali við BBC í dag.

Wenger vongóður um að landa Nasri

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir líklegt að félagið nái að landa kaupunum á franska landsliðsmanninum Samir Nasri áður en EM í knattspyrnu hefst í næsta mánuði.

Doncaster í B-deildina

Doncaster Rovers vann sér í dag sæti í ensku B-deildinni með því að leggja Leeds United að velli 1-0 í úrslitaleik í umspili ensku 1. deildarinnar.

Sjá næstu 50 fréttir