Leiktíðin á Englandi í hnotskurn 29. maí 2008 19:09 John Terry átti líklega klúður ársins AFP
Leiktíðin 2007-08 var viðburðarík í ensku knattspyrnunni. Vísir hefur nú tekið saman upprifjun á helstu viðburðum leiktíðarinnar frá ágúst á síðasta ári til dagsins í dag. Hér verður stiklað á stóru yfir helstu tíðindi sem báru á góma, stóru sigrana og töpin, gleðina og sorgina. 15. ágúst - Roy Keane setur tóninn Roy Keane, stjóri Sunderland, setti tóninn fyrir sína menn og komandi leiktíð í ensku úrvalsdeildinni þegar hann hraunaði yfir leikmenn sem honum þótti sýna stjörnustæla þegar hann bauð þeim að koma og spila fyrir Sunderland. "Við eigum víst að vera að skoða einhverja stjörnuleikmenn, en þeir eru dúkkulísur í mínum augum. Þeir vilja ekki koma hingað af því konurnar þeirra vilja geta farið út að versla í fínu búðunum í London," sagði Keane. Hann lauk svo tímabilinu með því að taka hárblásturinn á leikmenn sem hann sagði hafa "hætt" í síðasta leiknum á tímabilinu af því þeir hefðu þegar tryggt Sunderland veru sína í deildinni. Toppmaður, Keane. 17. ágúst - Tottenham ræðir við Juande Ramos Forráðamenn Tottenham fóru afar illa að ráði sínu og létu nappa sig í viðræðum við Juande Ramos, þjálfara Sevilla. Tottenham byrjaði leiktíðina afleitlega og tapaði m.a. fyrir Sunderland - við litla hrifningu stuðningsmanna. 28. ágúst - Antonio Puerta deyr á knattspyrnuvellinum Knattspyrna er oft sögð leið áhorfenda til að losna frá raunveruleikanum í 90 mínútur, en sú var ekki raunin þegar hinn 22 ára gamli varnarmaður fékk á Spáni hjartaáfall í miðjum leik og lést á sjúkrahúsi nokkrum dögum síðar. Til að bæta gráu ofan á svart átti kona hans von á barni þeirra skömmu síðar. Puerta var því miður ekki eini knattspyrnumaðurinn sem lést á tímabilinu, því þeir Phil O´Donnel hjá Motherwell lést síðar á árinu. Clive Clarke hjá Leiceister fékk hjartaáfall á vellinum, en lifði það af. 19. september - Jose fer frá Chelsea Jose Mourinho hleypti nýju blóði inn í ensku úrvalsdeildina. Hann kom sá og sigraði - og var farinn jafn skyndilega. Mourinho tók frakkann sinn fræga og yfirgaf Chelsea, þar sem jafntefli gegn Rosenborg í Meistaradeildinni gerði útslagið í sambandi hans við forráðamenn félagsins. 20. september - Avram Grant tekur við Ráðning Avram Grant kom mörgum í opna skjöldu, en Roman Abramovich var ekki lengi að fá vini sínum að taka við Chelsea eftir að Mourinho hætti. Enginn maður var gagnrýndur meira en Grant í vetur, enda þurfti hann að fylla stórt skarð þess "Einstaka." Ætlunarverkið tókst "næstum því" 17. október - Englendingar tapa fyrir Rússum Enska landsliðið var undir gríðalegri pressu alla undankeppni EM. Liðið þurfti aðeins stig í Moskvu til að tryggja sér farseðilinn á EM og var yfir í hálfleik. Allt kom fyrir ekki og enskir heimtuðu höfuð landsliðsþjálfarans. 26. október - Jol rekinn frá Tottenham Vandræði Tottenham héldu áfram og fréttir af fundi forráðamanna félagsins með Juande Ramos á Spáni voru í fréttunum á hverjum degi. Jol var kallaður "Dead Man Walking" og ekki af ástæðulausu - hann fékk loks að taka pokann sinn eftir, eða raunar fyrir, tap Tottenham fyrir Getafe á White Hart Lane. Allir á vellinum vissu að Jol hefði verið rekinn nema hann sjálfur. Mikill klassi yfir forráðamönnum Lundúnafélagsins þarna eða hitt þó heldur. Steve McClaren mundar regnhlífina fræguNordicPhotos/GettyImages 17. nóvember - Ísraelar gerðu Englendingum greiða Rússum nægði að leggja Ísraela til að tryggja sér sæti á EM, en ísraelska liðið gerði Englendingum risastóran greiða með því að vinna leikinn 2-1 og skyndilega nægði enska liðinu jafntefli heima gegn Króötum í lokaleiknum til að komast á EM. Steve McClaren hljóp inn á klósett á lokamínútum leiksins því hann þoldi ekki spennuna í stofunni heima hjá sér. 21. nóvember - EM draumur Englendinga úti Enska landsliðið tapaði fyrir Króötum á heimavelli í dramatískum leik og þar með var EM draumurinn orðinn að martröð. Úrslitin leiddu það í ljós sem allir á Englandi vissu - að McClaren myndi ekki gera nokkurn skapaðan hlut með landsliðið. Hann setti sjálfur eftirminnilegan svip á leikinn með rauðu regnhlífinni sinni. 28. nóvember - Harry handtekinn Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, var einn fimm einstaklinga sem handteknir voru í tengslum við meinta spillingu í enska boltanum. Lögregla réðist inn á heimili hans um miðja nótt með slúðurblöðin í eftirdragi og náðu þau myndum af honum og konu hans. Harry var ekki kærður og hlaut síðar uppreisn æru. Þannig. 13. desember - Eggert hættir hjá West Ham Eggert Magnússon hætti störfum sem stjórnarformaður West Ham eftir aðeins eitt ár í starfi. Hann seldi jafnframt 5% hlut sinn í West Ham Holding. Björgólfur Guðmundsson tók við stöðu Eggerts og keypti hlut hans. 14. desember - Capello ráðinn Eftir stormasamar vikur og viðtöl ákvað enska knattspyrnusambandið að fara í andstæða átt og réði ítalskan harðjaxl sem kunni ekki að bjóða góðan daginn á ensku. Jose Mourinho var fyrsti kostur, en hann afþakkaði. Byltingin undir Capello er hafin á Englandi. 11. janúar - Chelsea kaupir Anelka frá Bolton Þessi viðskipti áttu strangt til tekið eftir að hafa frekar slæm áhrif á bæði lið. Bolton gat ekki keypt mark eftir að Anelka fór, en fékk auðvitað frábæran framherja í til að fylla skarð Anelka á formi.... Grzegorz Rasiak(!) Anelka sat lengst af á tréverkinu hjá Chelsea, en náði að koma inn sem vararmaður í framlengingu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar, klúðra víti og færa Manchester United Evróputitilinn. Fín 15 milljón punda fjárfesting. 16. janúar - Keegan snýr aftur Sam Allardyce var rekinn frá Newcastle eftir að liðinu hafði gengið skelfilega. Flestir sögðu að Sammi hefði verið betur geymdur hjá Bolton, en stuðningsmenn Newcastle fóru heljarstökk af gleði þegar "messías" var mjög óvænt fenginn til að taka við liðnu á ný. Honum gekk reyndar ekki mikið betur en Samma, en liðið slapp þó nokkuð örugglega við fall - sem var líklega ágætt á miðað við hræðilega spilamennsku liðsins á köflum í vetur. 22. janúar - Tottenham 5 Arsenal 1 Fyrsti sigur Tottenham á grönnum sínum á öldinni fór langt með að bjarga ömurlegri leiktíð hjá þeim hvítklæddu í Norður-Lundúnum. Þessi bikarsigur Tottenham verður lengi í minnum hafður og óförum Arsenal í leiknum best lýst á "slagsmálum" Nicklas Bendtner og Emmanuel Adebayor í miðjum leik. Afdrifaríkasta tækling ársins 7. febrúar - Leikur 39 Áform Richard Scudamore, framkvæmdastjóra ensku úrvalsdeildarinnar um 39. leikinn í úrvalsdeildinni voru slegin út af borðinu eftir gríðarleg mótmæli frá forráðamönnum liðanna. Scudamore vildi maka krókinn með því að spila leiki á erlendri grundu, en var skotinn niður. Kemur næst. 16. febrúar - Barnsley skellir Liverpool Leiktíðin í ár var leiktíð öskubuskuliðanna í bikarnum. Liverpool lenti í bullandi vandræðum með utandeildarliðið Havant & Waterlooville í fjórðu umferð bikarkeppninnar og tapaði fyrir Barnsley á heimavelli þrátt fyrir að komast yfir. Ekki góðir tímar fyrir þá rauðu. 23. febrúar - Fótbrot Eduardo England logaði í deilum eftir að Martin Taylor tæklaði Eduardo harkalega með þeim afleiðingum að hann fótbrotnaði á grafískan hátt. Arsene Wenger heimtaði að mönnum eins og Taylor yrði sparkað út úr fótboltanum. Ljótt atvik sem verður lengi í minnum haft, en tækling Taylor var í sjálfu sér fjarri því að vera sú ljótasta sem sást á knattspyrnuvellinum í vetur. 24. febrúar - Tottenham deildarbikarmeistari Bylting Juande Ramos á White Hart Lane byrjaði á því að allir fitukeppirnir í liðinu voru teknir af frönskum og djúpsteiktum fiski og settir í megrun. Jonathan Woodgate skoraði sigurmark Tottenham gegn Chelsea í úrslitaleik og stimplaði sig inn í hjörtu stuðningsmanna. Fyrsti bikar Tottenham á öldinni var í húsi, en hann nægði ekki til að fela þá staðreynd að Tottenham var lélegasta góða liðið á Englandi í vetur. Liðið var í raun nær því að vera í fallbaráttu en að komast inn á hinn eftirsótta topp fjögur. 4. mars - Arsenal vinnur á San Siro Arsenal og AC Milan skildu jöfn á Emirates í fyrri leiknum í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en krakkarnir hans Wenger stóðust prófið og sigruðu á San Siro. Arsenal var þarna á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, en eftir þetta var allt niður á við hjá Wenger og félögum. 8. mars - Portsmouth slær United út úr bikarnum Hermann Hreiðarsson og félagar gerðu sér lítið fyrir og slógu meistara Manchester United út úr bikarnum á Old Trafford. Sjaldgæft víti var dæmt á heimamenn í United og það nægði lærisveinum Harry Redknapp til að leka í undanúrslitin. Liðið kláraði svo keppnina með sigri á Cardiff í úrslitaleik. Ekki er hægt að segja að leið Portsmouth í úrslitin hafi verið sú erfiðasta sí sögunni - en menn klára það sem fyrir þá er lagt. 8. mars - Barnsley-ævintýrið heldur áfram. Barnsley byrjaði á því að skella Liverpool út úr keppninni og Chelsea var næsta fórnarlambið í fjórðungsúrslitunum. Kayode Odejayi skoraði fyrsta mark sitt fyrir Barnsley síðan í september og markvörðurinn Luke Steele (nei, þetta er ekki sviðsnafnið hans) varði eins og berserkur. 26. mars - Beckham spilar 100. leikinn David Beckham var meira í fréttunum fyrir nærfataauglýsingar og meiðsli en að spila knattspyrnu á síðasta tímabili en með baráttu sinni og vilja náði hann að tryggja sér 100. landsleikinn sinn fyrir Englendinga. Liðið tapaði leiknum gegn Frökkum í París á marki sem David James gaf þeim með áhugaverðum tilburðum í enska markinu. 23. apríl - Ronaldo er mannlegur Cristiano Ronaldo átti frábæra leiktíð á Englandi, en vítaspyrnan sem hann klúðraði gegn Barcelona hefði geta komið í bakið á honum. Sömu sögu er að segja um spyrnu hans í úrslitaleiknum í Meistaradeildinni, en það kom ekki að sök. 26. apríl - Teddy hættur Teddy Sheringham lék sinn síðasta leik á ferlinum, en hann var reyndar ekki mjög ánægjulegur. Lið hans Colchester tapaði heima fyrir Stoke fyrir framan 6,300 áhorfendur og hinn 42 ára gamli markaskorari ákvað að segja þetta gott eftir ótrúlegan feril. Sömu sögu var að segja af Dion Dublin hjá Norwich, en hann var nú "ekki nema" 39 ára gamall. 26. apríl - Fulham snýr við blaðinu Stundum geta nokkrar mínútur snúið við heilu tímabili og sú varð raunin hjá lærisveinum Roy Hodgson í Fulham þennan örlagaríka dag. Liðið var 2-0 undir gegn Man City en náði að vinna 3-2 og hóf þar með dramatískan endasprett sem tryggði liðinu áframhaldandi veru í úrvalsdeildinni. Sigrar á Birmingham og Portsmouth fylgdu í kjölfarið. 27. apríl - Ronaldo bestur, aftur Hvað er hægt að segja um Cristiano Ronaldo sem er ekki þegar búið að segja? Einfaldlega besti knattspyrnumaður heims á árinu 2007-08. Skoraði 42 mörk sem vængmaður og fór fyrir liði Manchester United sem vann tvennuna. Ronaldo var aftur valinn leikmaður ársins af samtökum knattspyrnumanna og blaðamönnum. 29. apríl - Sven-Sápan Þau tíðindi leka út að Sven-Göran Eriksson verði látinn fara frá Manchester City. Það hefur enn ekki verið staðfest, en Sven hefur verið orðaður mikið við mexíkóska landsliðið. City átti frábæra byrjun undir hans stjórn í haust, en slakaði á um miðbik tímabils og var svo brandari undir lokin. 8-1 tap fyrir Middlesbrough á lokadeginum er nóg til að velgja stólinn undir hvaða stjóra sem er, en stóll Eriksson var þegar orðinn heitur. 60 milljón punda maðurinn Dean WindassNordicPhotos/GettyImages 4. maí - Stoke í alvöruna Gamall draumur íslenskra Stoke-geggjara rættist loksins þegar liðið tryggði sér sæti á meðal þeirra bestu. Það verður að teljast harla ólíklegt að liðið geri mikil læti í úrvalsdeildinni á næsta tímabili, en þeir sem lögðu aura í Stoke-ævintýrið á sínum tíma geta nú átt von á smá sárabótaraurum í kassann. 11. maí - Derby - Verst í heimi! Derby County rúllaði upp öllum helstu metum í úrvalsdeildinni með hörmulegri frammistöðu í vetur - og raunar nokkrum metum í sögu efstu deildar. Liðið var brandari í vetur og afraksturinn einn sigur og átta jafntefli. Fjármálin eru hinsvegar komin í fín mál hjá Paul Jewell og félögum og því er leiktíðin ekki eintómur grátur hjá félaginu. 21. maí - Terry á punktinum "Stórar stelpur gráta ekki" sagði í frægu amerísku dægurlagi, en stórir strákar mega sannarlega gráta. Sérstaklega ef þeir fá tækifæri til að tryggja liði sínu langþráða Evrópudollu, en renna á rassinn í vítinu sem hefði tryggt sigurinn og brenna af. Aumingja John Terry. Hann er stór strákur. Hann kemst yfir þetta. Mundu bara að prófa að skalla næst, John. 24. maí - Grant rekinn Tölfræði Avram Grant hjá Chelsea var litlu síðri en tölfræði Jose Mourinho, en það er erfitt að fara í frakka þess "einstaka." Mourinho sagði það sjálfur að það væru bara aulabárðar og undirmálsmenn sem teldu það góðan árangur að "vinna næstum því" titla. Hvað hefði gerst ef Terry og/eða Anelka hefðu skorað úr vítunum sínum í Moskvu? 24. maí - Hull í úrvalsdeildina. Það eru ekki nema fimm ár síðan Hull-borg var kölluð "mesta krummaskuð Englands" en er nú engu að síður að eignast úrvalsdeildarlið í fyrsta skipti. Hinn síungi Dean Windass skoraði sigurmark liðsins í umspilsleik gegn Bristol City. Hinum 39 ára gamla Windass verður seint ruglað saman við David Beckham eða Winston Churchill, en 60 milljón punda mark hans fyrir Hull hefur einfaldlega umturnað sögu borgarinnar. 25. maí - Grátlegt hjá Leeds Leeds afrekaði það að komast í umspil í ensku C-deildinni eftir að hafa farið í greiðslustöðvun og byrjað leiktíðina með 15 stig í mínus. Liðið mætti grönnum sínum í Doncaster í umspili en varð að játa sig sigrað. Fyrir nokkrum árum var Leeds að spila í meistaradeildinni á meðan Doncaster var í utandeildinni. Svona er fótboltinn. Leeds á þó eflaust aðeins eftir að eflast við mótlætið. Byggt á samantekt Times
Enski boltinn Mest lesið Dómarinn fékk gult spjald og glotti Fótbolti Sakaður um viljandi árekstur: „Bara séð svona í leikjum og go-kart“ Formúla 1 „Þetta mark átti ekki að telja“ Íslenski boltinn „Verður ekkert frí í þessu landsleikjahléi“ Fótbolti Ósáttur Davíð Smári: Einn maður sem eyðileggur leikinn Íslenski boltinn „Erum með sjö stigum meira en á sama tíma í fyrra“ Íslenski boltinn Leik lokið: Breiðablik - Víkingur 3-1 | Allt í hnút á toppnum Íslenski boltinn Gísli Þorgeir meiddist enn á ný á öxl Handbolti „Gott veganesti inn í kærkomið frí“ Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikur á Kópavogsvelli, Formúla 1 og margt fleira Sport Fleiri fréttir Rauðu djöflarnir staðfesta kaup á Cunha Hispurslaus Amorim mun reynast Man United vel Arsenal í viðræðum við Leipzig vegna Šeško Walker í vandræðum og verður ekki áfram hjá City Tottenham lætur fimm fara og festir fyrstu kaup sumarsins Fyrrum aðstoðarmaður Klopp aðstoðar Guardiola á næsta tímabili Ungu strákarnir björguðu andliti Man United í Hong Kong „Auðveld ákvörðun“ þegar hann heyrði af áhuga Liverpool Enn hærra metboð frá Liverpool Trent með á HM og Liverpool fær væna summu Skrifar undir fimm ára samning við Liverpool Fyrirliði Man. Utd íhugar alvarlega risatilboð frá Sádi-Arabíu Kaupa Delap og eru í viðræðum við Sancho Enginn labbaði meira en verðandi leikmaður Man United Arsenal að sækja miðjumann þó það sárvanti framherja Henry segir að Arsenal hafi ekki staðið undir væntingum United niðurlægt í Malasíu Leita til Liverpool að nýjum kollega Hákonar Stuðningsmenn Chelsea köstuðu glösum og stólum í Póllandi „Án Meistaradeildarinnar þurfum við ekki stóran leikmannahóp“ Forstjóri Liverpool þakkar stuðningsmönnum sem hjálpuðu hver öðrum Niðurbrotinn Klopp í sjokki Man City vilja Reijnders áður en HM félagsliða hefst Settu met í töpum en spila í Meistaradeild Evrópu Wirtz vill bara Liverpool og metupphæð komin á borðið Bein útsending: Englandsmeistaratitlinum fagnað í Liverpool Allt klárt fyrir fyrstu kaup Man. Utd í sumar Lokaumferðin í enska: Newcastle hélt Meistaradeildarsætinu Garnacho ekki í hóp Ætlar að biðja stuðningsmennina afsökunar eftir lokaleikinn Sjá meira