Enski boltinn

Ten Cate rekinn frá Chelsea

NordcPhotos/GettyImages

Þjálfarinn Henk ten Cate hefur verið rekinn frá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea, aðeins fimm dögum eftir að Avram Grant knattspyrnustjóri var látinn taka pokann sinn.

Ten Cate hafði fengið þau skilaboð að hann myndi halda sæti sínu þrátt fyrir uppsögn Grant, en hinn 53 ára gamli þjálfari hafði aðeins verið í starfi sínu síðan í október.

Þessi tíðindi eru talin renna stoðum undir það að Frank Rijkaard sé ekki efstur á blaði forráðamanna Chelsea sem næsti knattspyrnustjóri, því hann starfaði með Ten Cate þegar Barcelona vann Meistaradeildina árið 2006.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×