Enski boltinn

Hættir Sven í næstu viku?

NordcPhotos/GettyImages

Sky fréttastofan segist hafa heimildir fyrir því að Sven-Göran Eriksson verði sagt upp störfum hjá Manchester City í næstu viku.

Eriksson hefur verið orðaður við stöðu landsliðsþjálfara hjá Mexíkó, en eigandi City hafði áður gefið út að framtíð Svíans myndi ekki ráðast fyrr en í kring um miðjan næsta mánuð.

Sagt er að Eriksson muni fá um milljón punda í starfslokasamning en nú þykir nokkuð víst að hann muni hætta hjá City eftir aðeins 11 mánuði í starfi. Þá þykir nokkuð óvíst hvað verður um aðstoðarmenn hans Derek Fazackerley og Stefano Marrone.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×