Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þróttur fær breskan sóknarmann frá Færeyjum Þróttur hefur samið við breskan sóknarmann, Sam Malsom, en hann hefur undanfarin tvö ár verið meðal bestu leikmanna B36 í Færeyjum. Malsom er 21. árs og tekur þátt í sinni fyrstu æfingu í kvöld. 17.7.2009 15:48
Arnar orðinn leikmaður Vals - Bjarki líklega eftir helgi Valsmenn hafa sent frá sér fréttatilkynningu en Arnar Gunnlaugsson er orðinn leikmaður liðsins. Bjarki bróðir hans mun svo væntanlega vera orðinn formlega leikmaður Vals eftir helgi. 17.7.2009 15:17
Meiðsli Atla Viðars ekki eins slæm og talið var Atli Viðar Björnsson, sóknarmaður FH, meiddist í Evrópuleiknum gegn Aktobe í vikunni. Í fyrstu var talið að hann yrði frá í tvær vikur vegna þessara meiðsla. 17.7.2009 14:36
Margrét Lára var búin að bíða í 521 mínútu eftir marki Margrét Lára Viðarsdóttir var aftur á skotskónum með íslenska kvennalandsliðinu í sigrinum á Englandi í gær. Þetta var 44. landsliðsmark hennar í 52 leikjum en jafnframt það fyrsta síðan að hún skoraði í sigurleiknum á móti Írlandi 30. október í fyrra. 17.7.2009 14:30
Allt getur gerst - Ronaldo skoraði tvö skallamörk í sama leiknum Brasilíumaðurinn Ronaldo skoraði tvö mörk í 4-3 sigri Corinthians á Sport í brasilíska meistaramótinu í nótt en Ronaldo hefur nú skorað 16 mörk í 24 leikjum síðan að hann kom til baka eftir hnémeiðsli í mars. Ronaldo varð fyrir meiðslunum sem leikmaður AC Milan. 17.7.2009 14:00
Fjórir íslenskir fulltrúar í nefndum UEFA - Geir í dómaranefnd UEFA Framkvæmdastjórn UEFA kom saman í byrjun þessa mánaðar og skipaði í nefndir á vegum sambandsins og eru fjórir Íslendingar nú í nefndum Knattspyrnusambandsins Evrópu. 17.7.2009 13:45
Del Piero semur á ný við Juventus Samkvæmt Gazzetta dello Sport hefur ítalski landsliðsframherjinn Alessandro Del Piero náð samkomulagi við Juventus um framlengingu á samningi sínum við félagið til ársins 2011. 17.7.2009 13:15
Cristiano Ronaldo: Ég hefði aldrei farið til City Cristiano Ronaldo, fyrrum leikmaður Manchester United, segir það aldrei hafa komið til greina að hann færi yfir til Manchester City eins og fyrrum félagi hans í sóknarlínu United, Carlos Tevez. 17.7.2009 12:30
Orðið ljóst hvað bíður KR og Fram ef þau komast áfram Nú er nýbúið að draga í þriðju umferð í undankeppni Evrópudeildar UEFA en þar eru tvö íslensk lið, KR og Fram, í flottum málum eftir glæsilega leiki í fyrri leik annarrar umferðar í gærkvöldi. Fram færi til Skotlands og KR færi Sviss eða Andorra, omist þau áfram í næstu viku. 17.7.2009 11:47
Manchester United kaupir 21 árs sóknarmann frá Molde Manchester United er ekki hætt að kaupa leikmenn eins og stjórinn Alex Ferguson talaði um á dögunum því liðið keypti í dag 21 árs sóknarmann frá norska liðinu Molde, Mame Biram Diouf. Það hefur reynst United vel að sækja sóknarmenn til Molde en liðið keypti Ole Gunnar Solskjaer frá norska liðinu árið 1996. 17.7.2009 11:30
Lærisveinar Guðjóns unnu úrvalsdeildarlið Wigan Crewe vann 1-0 sigur á Wigan í æfingaleik í gærkvöldi en Crewe spilar í ensku C-deildinni á meðan Wigan er í ensku úrvalsdeildinni. Nýi stjóri Wigan, Roberto Martinez, byrjaði því ekki vel en okkar maður Guðjón Þórðarson getur verið ánægður með frammistöðu sinna manna. 17.7.2009 11:00
Fyrsti sigur kvennalandsliðsins á Englandi í sögunni Íslenska kvennalandsliðið vann sögulegan sigur á því enska í Colchester í gærkvöldi þegar stelpurnar okkar unnu sanngjarnan 2-0 sigur á níundu bestu knattspyrnuþjóð heims samkvæmt styrkleikalista FIFA. Þetta var í fyrsta sinn frá upphafi sem Ísland vinnur England en besti árangurinn fyrir leikinn var eitt jafntefli í níu leikjum. 17.7.2009 10:00
Inter Milan og Barcelona ræða um skipti á Ibrahimovic og Eto’o Ítalska liðið Inter Milan og spænska liðið Barcelona er nú komin í viðræður um að skipta á leikmönnum. Forseti Inter, Massimo Moratti, hefur staðfest þetta við fjölmiðla. Svíinn Zlatan Ibrahimovic færi þá til Inter sem í staðinn fengi þá Samuel Eto’o og Aleksandr Hleb í staðinn. 17.7.2009 09:30
Hótel Manchester United sprengt upp - hætt við að fara til Indónesíu Manchester United er hætt við að fara til Indónesíu í Asíuferð sinni eftir sprengjuárás á hótelið sem leikmenn enska úrvalsdeildarliðsins áttu að gista á í Jakarta. United var búið að panta fjölda herbergja á Ritz-Carlton hótelinu aðfaranótt sunnudags og mánudags. 17.7.2009 09:00
Pardew að taka við Southampton Alan Pardew er að taka við knattspyrnustjórn Southampton en þessu greinir BBC frá. Southampton er í C-deild enska boltans og var nálægt því að fara í greiðslustöðvun. 16.7.2009 23:30
Baldur: Leikskipulagið gekk frábærlega upp Mývetningurinn Baldur Sigurðsson skoraði fyrra mark KR í 2-0 sigrinum á Larissa í Evrópudeild UEFA á KR-velli í kvöld. 16.7.2009 22:31
Björgólfur: Allir voru að skila sínu Framherjinn Björgólfur Takefusa átti frábæra innkomu í 2-0 sigri KR gegn Larissa í kvöld og skoraði seinna mark Vesturbæinga í uppbótartíma venjulegs leiktíma. 16.7.2009 22:30
Umfjöllun: Nánast fullkominn leikur hjá KR-ingum Bikarmeistarar KR unnu frækinn 2-0 sigur gegn gríska félaginu Larissa í Evrópudeild UEFA á KR-velli í kvöld. Skipulagður varnarleikur, barátta og góð liðsheild skóp sigurinn fyrir Vesturbæinga sem fara út með gott veganesti fyrir seinni leikinn í Grikklandi. 16.7.2009 22:00
Sigurður Ragnar: Erum lið sem erfitt er að vinna Íslenska kvennalandsliðið vann í kvöld glæsilegan sigur á því enska í æfingaleik sem fram fór í Colchester á Englandi. Ísland vann 2-0 með mörkum frá Hólmfríði Magnúsdóttur og Margréti Láru Viðarsdóttur. 16.7.2009 21:58
Kvennalandsliðið vann England í kvöld Íslenska kvennalandsliðið vann 2-0 sigur á Englandi í vináttulandsleik Colchester í Englandi í kvöld. Hólmfríður Magnúsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir skoruðu mörk íslenska liðsins í sitthvorum hálfleiknum. 16.7.2009 21:00
Arnar og Bjarki skrifa undir við Val á morgun Samkvæmt áreiðanlegum heimildum munu Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir skrifa undir samninga við Val á morgun. Í gær var tilkynnt að þeir væru hættir sem spilandi þjálfarar 1. deildarliðs ÍA. 16.7.2009 20:24
Hleb á leið til Inter í skiptum fyrir Maxwell? Barcelona staðfesti á opinberri heimasíðu félagsins í gærkvöld að samkomulag hefði náðst við Inter vegna fyrirhugaðra félagsskipta Maxwell til Spánar. 16.7.2009 19:30
Framarar gerðu 1-1 jafntefli í Tékklandi Framarar náðu flottum úrslitum í fyrri leik sínum gegn Sigma Olomouc í Evrópudeild UEFA í kvöld. Leikurinn endaði með jafntefli 1-1 en síðari leikurinn verður hér heima í næstu viku. 16.7.2009 18:51
Benitez ætlar að gefa Voronin tækifæri á að sanna sig Knattspyrnustjórinn Rafa Benitez hjá Liverpool hefur enn trú á því að framherjinn Andriy Voronin geti staðið sig í ensku úrvalsdeildinni með Liverpool. 16.7.2009 18:45
Eurosport-menn töldu FH-liðið vera frá Færeyjum Stórsigur Aktobe á FH vakti athygli fréttastofu Eurosport sem fjallaði um leikinn á fréttastöð sinni, Eurosport 2, í gærkvöldi og í nótt. Það er ekkert óvenjulegt við að nema að þar var alltaf talað um að Aktobe hafi farið í góða ferð til Færeyja en ekki til Íslands. 16.7.2009 18:00
Vålerenga vill kaupa Kristján Örn frá Brann - er ekki til sölu Landsliðsmaðurinn Kristján Örn Sigurðsson shefur spilað vel með Brann í norsku úrvalsdeildinni á tímabilinu og er af mörgum talinn vera einn besti miðvörður deildarinnar. TV 2 greinir frá því að Vålerenga hafi mikinn áhuga á að kaupa Kristján frá Brann. 16.7.2009 17:30
Hægt að hlusta á nýja FH-lagið á netinu - "FH fyrir alla" FH-ingar eru kannski ennþá að sleikja sárin eftir slæma útreið í Evrópukeppninni í gær en liðið tapaði þá 0-4 fyrir Aktobe frá Kasakstan. Þeir ættu að geta tekið gleði sína með því að hlusta á nýja FH-lagið sem var kynnt á leiknum í gær. 16.7.2009 17:00
Andri Steinn samdi við Fjölni Andri Steinn Birgisson hefur skrifað undir samning við Fjölni eins og búist var við. Samningurinn er út tímabilið en Andri yfirgaf herbúðir norska neðrideildarliðsins Asker fyrir skömmu. 16.7.2009 17:00
Barcelona ekki eitt um að hafa áhuga á Poulsen Meistaradeildarmeistarar Barcelona eru sterklega orðaðir við miðjumanninn Christian Poulsen hjá Juventus en næsta víst er talið að danski landsliðsmaðurinn yfirgefi herbúðir Tórínóborgarfélagsins í sumar eftir komu Brasilíumannsins Felipe Melo. 16.7.2009 16:30
Zlatan fékk ekki tíuna í Inter - hann tók hana Sænski framherjinn og hrokagikkurinn Zlatan Ibrahimovic verður áfram hjá ítölsku meisturunum í Inter þótt að mörg stórlið hafi sýnt markahæsta leikmanni ítölsku deildarinnar áhuga. Það er þó eitt sem breytist hjá Zlatan því hann spilar ekki lengur í treyju númer átta. 16.7.2009 16:00
Aquilani ekki á leiðinni til Liverpool Umboðsmaður ítalska landsliðsmannsins Alberto Aquilani hjá Roma segir nákvæmlega ekkert hæft í þeim sögusögnum í ítölskum og breskum fjölmiðlum síðustu daga um að leikmaðurinn sé á leiðinni til Liverpool. 16.7.2009 15:30
John Terry fer með Chelsea-liðinu til Bandaríkjanna John Terry, fyrirliði Chelsea, hefur verið orðaður við Manchester City á síðustu dögum en forráðamenn Chelsea hafa alltaf svarað því með að hann sé ekki til sölu. Terry hefur ekki tjáð sig sjálfur um málið en hann er nú á leiðinni til Bandaríkjanna í keppnisferð með Chelsea. 16.7.2009 15:00
Tap hjá stelpunum - tvö sænsk mörk á síðustu fimmtán mínútunum Íslenska 19 ára landslið kvenna tapaði 1-2 á móti Svíþjóð í öðrum leik sínum á Evrópumótinu í Hvíta-Rússlandi í dag en liðið gerði markalaust jafntefli í fyrsta leiknum á móti Noregi. Íslenska liðið var yfir allt þar til á 76. mínútu leiksins. 16.7.2009 14:45
Arsenal á höttunum eftir serbnesku undrabarni Knattspyrnustjórinn Arsene Wenger hjá Arsenal er samkvæmt heimildum Sky Sports fréttastofunnar búinn að bjóða serbneska undrabarninu Veljko Batrovic til æfinga hjá Lundúnafélaginu. 16.7.2009 14:00
Middlesbrough staðfestir sölu Downing til Aston Villa Enska b-deildarfélagið Middlesbrough hefur staðfest að vængmaðurinn Stewart Downing sé á leiðinni til Aston Villa eftir að félögin tvö náðu saman um kaup á enska landsliðsmanninum. 16.7.2009 13:30
Inter búið að kaupa fyrirliða brasilíska landsliðsins Ítölsku meistararnir í Internazionale frá Mílanó eru búnir að ná samkomulagi við Bayern Munchen um að kaup á Lucio sem er fyrirliði brasilíska landsliðsins. Lucio átti eitt ár eftir að samningi sínum við Bayern en hann hefur spilað undanfarin fimm ár í Munchen. 16.7.2009 12:30
Adebayor vill hugsa málið - hefur áhyggjur af viðbrögðunum heima fyrir Emmanuel Adebayor er ekki tilbúinn að ganga frá félagsskiptum sínum frá Arsenal yfir í Manchester City þrátt fyrir að allt sé tilbúið - atvinnuleyfi, kaupverð og samningur. Ástæðan er að Tógómaðurinn hefur áhyggjur af því hvaða áhrif þetta muni hafa á orðspor hans heima fyrir. 16.7.2009 12:00
David Moyes er ekki tilbúinn að selja Lescott David Moyes, stjóri Everton, ætlar að gera sem í sínu valdi stendur til þess að halda Joleon Lescott á Goodison Park. Manchester City hefur mikinn áhuga á enska landsliðsmanninum og það hefur verið talað um 20 milljón punda tilboð í kappann. Það spillir ekki fyrir sögusögnunum að Lescott býr á Manchester-svæðinu. 16.7.2009 11:30
Eiður Smári er til sölu fyrir fimm milljónir punda - á leið til West Ham? Það lítur allt úr fyrir að Barcelona vilji losa sig við Eið Smára Guðjohnsen. Eiður hefur fengið skýr skilaboð frá þjálfaranum að hann eigi ekki mikla möguleika á að fá að spila mikið og nú hefur íþróttastjórinn Txiki Begiristain gefið það út að íslenski landsliðsmaðurinn sé til sölu fyrir fimm milljónir punda eða um rúman milljarð íslenskra króna. 16.7.2009 10:30
Capello segir Beckham verða að spila í Evrópu ætli hann á HM David Beckham hefur nú uppljóstrað það að Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga, hafi sagt við hann að hann verði að spila í Evrópu ætli hann sér að vera með á HM í Suður-Afríku næsta sumar. 16.7.2009 10:00
Benitez: Þurfum fullkomið tímabil til þess að vinna titilinn Rafael Benitez, stjóri Liverpool, viðurkennir það að Liverpool-liðið þurfi að eiga nánast fullkomið tímabilið ef þeim á að takast að vinna enska meistaratitilinn í fyrsta sinn síðan 1990. Liverpool endaði í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en hefur aldrei fengið jafnmörg stig síðan enska úrvalsdeildin var stofnuð 1992. 16.7.2009 09:30
Gylfi skoraði fyrsta mark Reading á undirbúningstímabilinu Gylfi Þór Sigurðsson byrjaði undirbúningstímabilið vel með Reading í gærkvöldi en hann skoraði fyrsta mark liðsins í 5-1 sigri á Didcot Town. Gylfi er kominn aftur í herbúðir Reading eftir að hafa verið lánaður til Crewe á síðasta tímabili. 16.7.2009 09:15
Sigurður Ragnar valdi Þóru í markið gegn Englandi Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir vináttulandsleikinn á móti Englandi í kvöld. Þar vekur athygli að Þóra Björg Helgadóttir er í markinu og að Blikinn Erna Björk Sigurðardóttir er í hægri bakverðinum. 16.7.2009 09:00
Markalaust í hálfleik hjá KR og Larissa Fyrri hálfleikur hefur verið tíðindalítill hjá KR og Larissa í Evrópudeild UEFA á KR-velli í kvöld og staðan enn markalaus þegar flautað var til hálfleiks. 16.7.2009 20:00
Sverrir: Við áttum engin svör við þeirra leik „Stundum verður maður bara að játa sig sigraðan og reyna að draga einhvern lærdóm af þessu. FK Aktobe sundurspilaði okkur hreinlega í síðari hálfleik og við áttum engin svör við þeirra leik,“ segir Varnarmaðurinn Sverrir Garðarsson í leikslok á Kaplakrikavelli eftir 0-4 tap FH gegn FK Aktobe í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. 15.7.2009 23:00