Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Inter tapaði fyrir Internacional Ítalíumeistararnir í Inter þurftu að játa sig sigraða í úrslitaleik Dubai bikarsins í kvöld. Inter lék gegn brasilíska liðinu Internacional og tapaði 1-2. 7.1.2008 23:00
Portsmouth hefur keypt sóknarmann frá Sviss Portsmouth hefur keypt sinn fyrsta leikmann í félagaskiptaglugganum. Það er sóknarmaðurinn Danijel Subotic sem er keyptur frá Basel í Sviss. 7.1.2008 22:00
Amauri eftirsóttur Framtíð hins brasilíska Amauri hjá Palermo er í mikilli óvissu. Umboðsmaður leikmannsins segir hann vera í viðræðum við nokkur stórlið 7.1.2008 21:00
Ekki staðfest að Íslendingar ætli að kaupa Southampton Enginn fæst til að staðfesta fréttir enskra fjölmiðla í morgun þess efnis að íslenskir fjárfestar séu að reyna að kaupa enska 1. deildarliðið Southampton fyrir sex milljarða króna. 7.1.2008 19:56
Bolton neitaði tilboði frá Chelsea í Anelka Samkvæmt heimildum BBC þá hefur Bolton hafnað tilboði frá Chelsea í franska sóknarmanninn Nicolas Anelka. 7.1.2008 18:26
Fílabeinsströndin skiptir um þjálfara Þjóðverjinn Ulrich Stielike er hættur sem þjálfari Fílabeinsstrandarinnar nú þegar aðeins tvær vikur eru í Afríkukeppnina. Hann hættir vegna persónulegra ástæðna en sonur hans er í dái. 7.1.2008 17:58
Tékkinn Matejovski semur við Reading Reading hefur keypt tékkneska landsliðsmanninn Marek Matejovski frá Mlada Boleslav. Kaupverðið var ekki gefið upp en Matejovski skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning. 7.1.2008 17:22
Pienaar fær ekki að spila FIFA hefur tilkynnt Everton að félagið verði að láta Steven Pienaar lausan til að hann geti farið í Afríkukeppnina. Everton ætlaði að láta leikmanninn spila gegn Chelsea á morgun. 7.1.2008 17:09
Ásgrímur semur við HK Ásgrímur Albertsson, varnarmaður hjá HK, hefur framlengt samning sinn við félagið til næstu tveggja ára. 7.1.2008 16:32
Lék með HK skömmu fyrir fyllerísferðina til Bolton Í gær sagði Vísir frá sögu Danny Brown sem fyrir tíu árum síðan fór til reynslu hjá Bolton en klúðraði stóra tækifærinu með því að detta ærlega í það. 7.1.2008 16:10
Derby vill fá Thomas Sörensen Botnlið ensku úrvalsdeildarinnar, Derby, mun vera að undirbúa tilboð í danska landsliðsmarkvörðinn Thomas Sörensen. 7.1.2008 15:04
Inter semur við Nike fyrir 7,3 milljarða Samkvæmt Corriere dello Sport mun Inter frá Ítalíu við það að semja við íþróttavörurisann Nike um styrktarsamning upp á 7,3 milljarða króna. 7.1.2008 14:58
Liverpool gæti fengið Havant & Waterlooville í heimsókn Dregið var í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar í dag en þriðja umferðin hófst núna um helgina. 7.1.2008 13:53
Skrtel gæti orðið dýrasti varnarmaður Liverpool frá upphafi Liverpool virðist vera á góðri leið með að klófesta varnarmanninn Martin Skrtel frá Slóvakíu fyrir tæplega 800 milljónir króna eða 6,5 milljónir punda. 7.1.2008 13:12
Hannes fer með til Brasilíu Hannes Þ. Sigurðsson fer með norska úrvalsdeildarliðinu Viking til Rio de Janeiro í Brasilíu þrátt fyrir að hann sé enn að jafna sig eftir árás í miðbæ Reykjavíkur. 7.1.2008 12:48
Íslenskir fjárfestar sagðir vilja kaupa Southampton Samkvæmt frétt í The Daily Mirror á Englandi í dag mun hópur íslenskra fjárfesta leggja fram 6,1 milljarða tilboð í enska B-deildarliðið Southampton. 7.1.2008 12:26
Berbatov vill fá að vera í friði Dimitar Berbatov segist vera orðinn þreyttur á öllum vangaveltum fjölmiðla um framtíð hans hjá Tottenham. 7.1.2008 12:15
Drogba ætlar að fara í sumar Didier Drogba hefur enn einu sinni lýst því yfir að hann ætli að fara frá Chelsea. Hann segist ætla að fara til annars félags í lok tímabilsins. 7.1.2008 10:29
Mourinho sagður hafa áhuga á Liverpool Jose Mourinho hefur verið orðaður við fjölda liða að undanförnu og hefur Liverpool bæst í þann hóp. 7.1.2008 10:14
Ráðning Capello kemur Blatter á óvart Sepp Blatter segir að ráðning Fabio Capello í stöðu þjálfara enska landsliðsins hafi komið sér mikið á óvart. 7.1.2008 09:34
Pienaar spilar með Everton á morgun David Moyes stjóri Everton ætlar að nota Suður-Afríkumanninn Steven Pienaar í leiknum gegn Chelsea í undanúrslitum ensku deildabikarkeppninnar á morgun. 7.1.2008 13:32
Skilur ekki vinnubrögð Tottenham Franski bakvörðurinn Pascal Chimbonda hjá Tottenham segist furða sig mjög á vinnurbrögðum forráðamanna félagsins sem eru búnir að kaupa hægribakvörð í janúarglugganum og fengu neitun frá öðrum til. 6.1.2008 22:30
Real með sjö stiga forskot Real Madrid hefur nú sjö stiga forskot á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir góðan 2-0 sigur á Zaragoza í kvöld. Robinho og Nistelrooy skoruðu mörkin og tryggðu að Real er með 100% árangur á heimavelli sínum Bernabeu. Liðið mátti þó þakka fyrir frábæra markvörslu Iker Casillas á tíðum gegn sprækum gestunum. 6.1.2008 20:49
Newcastle þarf að mæta Stoke aftur Newcastle náði aðeins markalausu jafntefli við Stoke City í lokaleik dagsins í enska bikarnum. Leikurinn var sannarlega ekki mikið fyrir augað, en segja má að gestirnir hafi sloppið vel með jafntefli og fá tækifæri til að gera betur á heimavelli. 6.1.2008 20:28
Rooney er hetja Norski framherjinn John Carew hjá Aston Villa skorar á Fabio Capello að byggja leik enska landsliðsins upp í kring um framherjann Wayne Rooney eftir að hann varð vitni að frábærri innkomu hans í sigri Manchester United á Villa í gær. 6.1.2008 19:30
Manucho ekki kominn með atvinnuleyfi Angólamaðurinn Manucho Goncalves sem keyptur var til Manchester United á dögunum er enn ekki kominn með atvinnuleyfi á Englandi. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við United skömmu fyrir jól eftir að hafa staðið sig vel á reynslutíma sínum hjá félaginu. 6.1.2008 18:25
Burnley spilaði mjög vel Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir leik Burley-liðsins í dag hafa komið sér mikið á óvart og hrósaði andstæðingum sínum í hástert eftir 2-0 sigur Arsenal í dag. 6.1.2008 18:13
Luton krækti í bónusleik á Anfield Liverpool náði ekki að tryggja sér sæti í fjórðu umferð enska bikarsins í dag þegar liðið varð að gera sér að góðu 1-1 jafntefli gegn Luton. Viðureign liðanna á þessu stigi keppninnar fyrir tveimur árum var í meira lagi söguleg og ekki vantaði upp á dramatíkina að þessu sinni. 6.1.2008 17:57
Arsenal áfram eftir sigur á Burnley Arsenal er komið í fjórðu umferð enska bikarsins eftir 2-0 útisigur á Jóhannesi Karli Guðjónssyni og félögum í Burnley í dag. 6.1.2008 16:36
Lehmann ákveður sig á næstu dögum Markvörðurinn Jens Lehmann hjá Arsenal mun gera upp hug sinn á allra næstu dögum um hvort hann verður áfram hjá Arsenal eða gengur í raðir síns gamla félags Dortmund í Þýskalandi. 6.1.2008 14:25
Beckham elskar Arsenal Arsene Wenger segist vilja gera allt sem í hans valdi stendur til að æfingasvæði Arsenal breytist ekki í sirkus í kjölfar þess að David Beckham er nú við æfingar hjá félaginu. 6.1.2008 14:07
Ég fór á fyllerí, Eiður fór að sofa Breska blaðið Sun birti skemmtilegt viðtal við knattspyrnumanninn Danny Brown um helgina þar sem hann rifjar upp hvernig stór mistök eyðilögðu stóra tækifærið hans fyrir áratug. 6.1.2008 13:29
Lærir ensku í fjóra tíma á dag Nú styttist í að Fabio Capello taki formlega til starfa sem landsliðsþjálfari Englendinga, en fyrsti leikur hans með liðið er æfingaleikur við Svisslendinga á Wembley þann 6. næsta mánaðar. 6.1.2008 09:45
Rafa verður rekinn Rafa Benitez, stjóri Liverpool, gæti þurft að taka pokann sinn strax í næsta mánuði ef illa fer gegn Inter í Meistaradeildinni. Þetta hefur News of the World eftir nánum vini spænska stjórans. 6.1.2008 09:45
Defoe að semja við Tottenham? Breska blaðið News of the World fullyrðir að framherjinn Jermain Defoe hjá Tottenham sé við það að skrifa undir nýjan fimm ára samning við félagið sem muni greiða honum 40,000 pund í vikulaun með öllum bónusum. 6.1.2008 07:30
Ferguson: Ég hefði þegið annan leik Sir Alex Ferguson var mjög ánægður með lærisveina sína í Manchester United eftir 2-0 sigurinn á Aston Villa í bikarnum í dag. Tvö mörk á lokamínútunum tryggðu Rauðu Djöflunum sigurinn í leik sem virtist ætla að enda með jafntefli. 5.1.2008 22:15
Keisarinn biðlar til Mourinho "Keisarinn" Franz Beckenbauer, forseti Bayern Munchen, segist muni taka Jose Mourinho opnum örmum hjá félaginu þegar Ottmar Hitzfeld hættir þjálfun í sumar. 5.1.2008 21:45
Eiður tekinn af velli í hálfleik Barcelona vann tilþrifalítinn 2-0 sigur á Mallorca í spænsku deildinni í knattspyrnu í kvöld. Rafael Marques kom Börsungum á bragðið á 63. mínútu eftir bragðdaufan fyrri hálfleik og Samuel Eto´o innsiglaði sigurinn með marki í lokin. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona en var tekinn af velli í hálfleik. 5.1.2008 20:52
Bílasalinn bjargaði deginum Dramatíkin í enska bikarnum endurspeglaðist skemmtilega í leik Swansea og utandeildarliðsins Havant/Waterlooville í dag þegar liðin skildu jöfn 1-1. 5.1.2008 20:07
United áfram í bikarnum Manchester United varð í kvöld síðasta liðið til að tryggja sér sæti fjórðu umferð enska bikarsins þegar liðið vann 2-0 útisigur á Aston Villa í fremur bragðdaufum leik á Villa Park. Það voru Christiano Ronaldo og varamaðurinn Wayne Rooney sem skoruðu mörk United á síðustu 10 mínútum leiksins. 5.1.2008 19:14
Eiður í byrjunarliði Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona sem sækir Mallorca heim í spænsku deildinni í kvöld en hann er sýndur beint á Sýn klukkan 19:10. 5.1.2008 18:57
Úrvalsdeildarliðin fengu að kenna á því Enska bikarkeppnin í knattspyrnu er jafnan vettvangur óvæntra úrslita og á því varð engin breyting í dag þegar fjögur lið úr efstu deild fengu skelli gegn minni spámönnum. 5.1.2008 17:11
Saviola orðaður við Bolton Spænskir fjölmiðlar halda því fra mað Bolton hafi gert Real Madrid kauptilboð í argentínska framherjann Javier Saviola, fari svo að Nicolas Anelka verði seldur í janúar. Það er spænska blaðið Marca sem greindi frá þessu og segir enska félagið vera tilbúið að greiða 7 milljónir punda fyrir framherjann stutta. 5.1.2008 16:34
Ferguson ætlar ekki að versla í janúar Sir Alex Ferguson hefur nú skvett köldu vatni á fréttir fjölmiðla á Englandi og segir Manchester United ekki ætla að kaupa leikmenn í janúar. Félagið hefur verið orðað sterklega við framherjann Dimitar Berbatov hjá Tottenham. 5.1.2008 16:25
Mikið slúðrað um Chelsea Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea er mikið í slúðurblöðunum á Englandi og víðar í dag. Þannig er því haldið fram að Nicolas Anelka sé á leið til Lundúnaliðsins frá Bolton á næstu dögum og bent á að það sé ástæða þess að hann sé ekki í liði Bolton í bikarnum í dag. 5.1.2008 16:11