Fleiri fréttir

Tilkynnt um nýjan landsliðsþjálfara í dag

Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, sagðist í Morgunútvarpinu á Rás 1 gera ráð fyrir að tilkynnt yrði um ráðningu nýs landsliðsþjálfara í dag.

Eiður kom við sögu í sigri Barcelona

Barcelona vann í kvöld 2-0 sigur á nýliðum Almeiría og skaust fyrir vikið í annað sæti deildarinnar. Thierry Henry kom Börsungum yfir í leiknum og varamaðurinn Leo Messi innsiglaði sigurinn úr vítaspyrnu þegar 10 mínútur voru til leiksloka. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn sem varamaður eftir klukkutíma leik hjá Barcelona.

Liverpool slapp með skrekkinn

Liverpool mátti þakka fyrir að sleppa með eitt stig í dag þegar liðið tók á móti Arsenal á Anfield. Frábærum leik liðanna lauk með 1-1 jafntefli og því eru þau bæði enn taplaus. Arsenal er komið aftur á toppinn í úrvalsdeildinni.

Roma skellti Milan

Roma komst í dag í annað sætið í ítölsku A-deildinni með því að leggja heillum horfið lið AC Milan 1-0 á útivelli. Það var Mirko Vucinic sem skoraði sigurmarkið með skalla. Roma er tveimur stigum á eftir Inter sem gerði markalaust jafntefli við Palermo í dag.

Levy biður stuðningsmenn afsökunar

Daniel Levy, stjórnarformaður Tottenham, sendi frá sér yfirlýsingu á heimasíðu félagsins þar sem hann harmar hvernig staðið var að uppsögn Martin Jol hjá félaginu.

Ramos horfði upp á enn eitt tapið hjá Tottenham

Juande Ramos, nýráðinn stjóri Tottenham, horfði upp á liðið tapa enn einum leiknum í dag þegar það lá 2-1 fyrir Blacburn á heimavelli. Ramos stýrir liðinu í fyrsta skipti í næstu viku, en varð vitni að átakanlega dæmigerðri frammistöðu liðsins í dag.

Bjarni kom ekki til greina

Landsliðsnefnd KSÍ mun koma saman í kvöld eða á morgun þar sem ráðning landsliðsþjálfara verður efst á baugi.

Gautaborg sænskur meistari

IFK Gautaborg varð í dag sænskur meistari í knattspyrnu eftir 2-0 sigur á Trelleborg í lokaumferðinni. Lærisveinar Sigurðar Jónssonar í Djurgarden áttu einnig möguleika á titlinum en töpuðu fyrir botnliði Brommapojkarna 1-0.

Megson fékk stig í fyrsta leiknum með Bolton

Lærisveinar Gary Megson hjá Bolton máttu sætta sig við 1-1 jafntefli við Aston Villa í fyrsta leiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem umdeilt mark tryggði gestunum stig í síðari hálfleik.

Torres byrjar hjá Liverpool

Spænski framherjinn Fernando Torres verður á ný í byrjunarliði Liverpool þegar það tekur á móti Arsenal í stórleik helgarinnar á eftir. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn 2 og hefst klukkan 16:00.

Eiður orðaður við City og Portsmouth

Eiður Smári Guðjohnsen er enn orðaður við félög í ensku úrvalsdeildinni þó hann sé kominn inn í myndina á ný með Barcelona eftir fína frammistöðu í Glasgow á dögunum. Hann er orðaður við Manchester City og Portsmouth í breskum miðlum í dag.

Liverpool á leið í skuldafen?

Breska blaðið News of the World greinir frá því í dag að amerískir eigendur Liverpool gætu verið að sigla félaginu inn í skuldafen upp á hálfan milljarð punda.

Shinawatra tók upp budduna

Thaksin Shinawatra er sagður hafa brugðist skjótt við þegar hann hafði fregnir af því að illa gengi í samningaviðræðum við varnarmanninn Micah Richards hjá Manchester City.

Garðar markakóngur

Garðar Gunnlaugsson skoraði mark Norrköping í gær þegar liði tapaði 2-1 fyrir Degergors í lokaumferði sænsku 1. deildarinnar í gær. Garðar skoraði þarna sitt 18. mark í deildinni en lið hans hafði þegar tryggt sér sæti í úrvalsdeild.

Ég er enginn Jose Mourinho

Breska helgarblaðið News of the World hefur það eftir Juande Ramos í dag að hann vilji ólmur fá þá Freddie Kanoute og Daniel Alves til Tottenham frá Sevilla. Þá er hann einnig sagður vilja fá varnarmanninn Julien Scude og markvörðinn Andres Palop til Englands.

Loðnir vítaspyrnudómar kostuðu Juventus

Juventus mistókst að komast upp að hlið Inter á toppi ítölsku A-deildarinnar í gær þegar liðið tapaði 3-1 fyrir Napoli. Tveir umdeildir vítaspyrnudómar tryggðu Napoli sigurinn.

Tottenham mætir harðri gagnrýni

Forseti Sevilla segist ætla að senda knattspyrnuyfirvöldum bréf þar sem fram kemur að Tottenham hafi með ólögmætum hætti sett sig í samband við þjálfarann Juande Ramos á dögunum. Ramos skrifaði undir samning við Tottenham í gær.

Eiður á bekknum

Leikur Barcelona og Almería er nú hafinn í spænska boltanum og er sýndur beint á Sýn Extra. Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk liðsins að þessu sinni.

Liverpool hefur yfir gegn Arsenal

Liverpool hefur yfir 1-0 gegn Arsenal þegar flautað var til hálfleiks í stórleik liðanna á Anfield. Það var fyrirliðinn Steven Gerrard sem skoraði markið strax í upphafi með bylmingsskoti eftir aukaspyrnu.

Geir: Árangurinn er ástæðan

Geir Þorsteinsson segir að ástæðan fyrir því að Eyjólfur Sverrisson hætti sem landsliðsþjálfari sé fyrst og fremst árangur liðsins undir hans stjórn.

Hver er Juande Ramos?

Juande Ramos náði fínum árangri með lið Sevilla síðustu tvö ár en fær nú það verkefni að beina Tottenham á rétta braut eftir skelfilega byrjun á leiktíðinni. Hér fyrir neðan stiklað á stóru yfir feril Ramos.

Ramos tekinn við Tottenham

Juande Ramos var í kvöld ráðinn þjálfari Tottenham og hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Lundúnafélagið. Hann hafði áður gert Sevilla að tvöföldum Evrópumeisturum félagsliða, en enska félagið keypti hann út úr samningi sínum í dag.

Ferguson dásamar Rooney og Tevez

Sir Alex Ferguson fór ekki leynt með ánægju sína yfir samstarfi þeirra Carlos Tevez og Wayne Rooney í dag þegar Manchester United lagði Middlesbrough 4-1.

Við vinnum ekki alla leiki 6-0

Avram Grant segir sigur sinna manna í Chelsea á Manchester City í dag bera þess vitni að hann ætli sér að láta liðið spila skemmtilegan bolta undir sinni stjórn. Sven-Göran Eriksson sagði sína menn hafa gleymt því hvernig á að spila varnarleik.

Green var hetja West Ham

Portsmouth mistókst í kvöld að komast í hóp fjögurra efstu liðanna í ensku úrvalsdeildinni eftir að liðið gerði markalaust jafntefli við West Ham á heimavelli sínum.

Eyjólfur hættur

Stjórn Knattspyrnusamband Íslands samþykkti á fundi sínum í dag, 27. október, að endurnýja ekki ráðningarsamning við Eyjólf Sverrisson, þjálfara A-landsliðs karla í knattspyrnu sem rennur út þann 31. október næstkomandi.

Chelsea valtaði yfir City

Chelsea rótburstaði Manchester City 6-0 á Stamford Bridge í dag og Manchester United vann sannfærandi 4-1 sigur á Middlesbrough á Old Trafford.

Líkti brottrekstrinum við framhjáhald

Breska blaðið Sun segir að Martin Jol hafi orðið mjög reiður út í stjórnarformann Tottenham þegar hann var rekinn frá félaginu í fyrrakvöld. Ekki vegna þess að hann var rekinn - heldur vegna vinnubragða stjórnarinnar.

Jimenez tekur við Sevilla

Spænska knattspyrnufélagið Sevilla gekki í morgun frá ráðningu Manuel Jimenez í stöðu þjálfara eftir að Juande Ramos sagði af sér í gær. Talið er víst að Ramos gangi í raðir Tottenham á Englandi á næstu dögum. Jimenez stýrði áður ungmennaliði Sevilla.

Pennant verður frá í tvo mánuði

Vængmaðurinn Jermaine Pennant hjá Liverpool verður líklega frá keppni í um tvo mánuði eftir að í ljós koma að hann er með brákað bein í hægri sköflungi. Hann hefur fundið fyrir meiðslum þessum allt tímabilið en endurhæfing hefur engan árangur borið til þessa.

United hefur yfir gegn Boro í hálfleik

Nú er kominn hálfleikur í leikjunum sem hófust klukkan 14 í ensku úrvalsdeildinni. Manchester United hefur yfir 2-1 gegn Middlesbrough á Old Trafford þar sem Nani náði forystu fyrir United með stórbrotnu skoti, Aliadiere jafnaði fyrir Boro, en Wayne Rooney kom heimamönnum yfir á ný.

Hermann átti að taka við fyrirliðabandinu

Fótbolti.net segir frá því í kvöld að Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari hafi beðið Hermann Hreiðarsson um að taka við stöðu landsliðsfyrirliða af Eiði Smára Guðjohnsen.

Ramos hættur hjá Sevilla

Juande Ramos hefur sagt starfi sínu lausu hjá Sevilla og því virðist fátt því til fyrirstöðu að hann geti tekið við Tottenham á Englandi eins fram hefur komið í fjölmiðlum í dag.

Birni og Ragnari boðið til Feyenoord

Birni Bergmanni Sigurðarsyni og Ragnari Leóssyni hefur verið boðið til æfinga hjá hollenska stórliðinu Feyenoord. Þetta staðfesti Bjarni Guðjónsson í samtali við Vísi.

Edgar Davids: Jol varð að víkja

Edgar Davids, fyrrum leikmaður Tottenham, segir að ekkert hafi geta komið í veg fyrir að landa sínum Martin Jol yrði sparkað frá Tottenham. Árangur liðsins hafi hreinlega verið óásættanlegur.

Enn ein þrennan á Anfield?

Stórleikur helgarinnar í enska boltanum er án efa viðureign Liverpool og Arsenal á Anfield. Ef marka má söguna gæti farið svo að hér yrði um markaleik að ræða, en viðureignir Liverpool og Arsenal hafa leitt af sér flestar skoraðar þrennur í sögu úrvalsdeildarinnar.

Hargreaves spilar um helgina

Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves er nú tilbúinn í slaginn með Manchester United eftir erfiða baráttu við meiðsli og kemur til með að spila með liði sínu gegn Middlesbrough um helgina. Þetta staðfesti Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri í dag.

Dreymir um að taka við Tottenham

Juande Ramos lýsti því yfir í viðtali við spænska miðla í morgun að hann væri spenntur fyrir að taka við Tottenham. Forráðamenn Sevilla vilja ekkert segja um mögulega brottför þjálfarans til Englands, en leikmenn Sevilla hafa áhyggjur af ástandinu.

Þéttur pakki á Sýn um helgina

Það verður mikið um að vera á sjónvarpsstöðinni Sýn um helgina þar sem íþróttaáhugamenn ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Enn er slúðrað um Kaka

Brasilíski miðjumaðurinn Kaka hjá AC Milan segist alls ekki útiloka að spila með Real Madrid í framtíðinnni, en bendir á að það sé forseta félaganna að taka slíkar ákvarðanir.

Sjá næstu 50 fréttir