Íslenski boltinn

Birni og Ragnari boðið til Feyenoord

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Björn Bergmann Sigurðarson í leik með ÍA í sumar.
Björn Bergmann Sigurðarson í leik með ÍA í sumar.

Birni Bergmanni Sigurðarsyni og Ragnari Leóssyni hefur verið boðið til æfinga hjá hollenska stórliðinu Feyenoord. Þetta staðfesti Bjarni Guðjónsson í samtali við Vísi.

„Þeim stendur til boða að koma þegar þeim hentar. Það verður þó líklega einhver bið á því að þeir fari til Feyenoord eða einhvers annars liðs þar sem Björn er meiddur,“ sagði Bjarni.

Ekki er vitað hvað sé nákvæmlega að Birni eða þá hvenær hann muni ná bata.  

Björn Bergmann er bróðir Bjarna Guðjónssonar en sá síðarnefndi segir að þeim hafi borist mikið af fyrirspurnum í Björn sem er sextán ára gamall. Hann átti nokkra glimrandi góða leiki með ÍA í sumar og þykir eitt mesta efni á Íslandi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×