Fleiri fréttir

Allen og Inglethorpe taka við Tottenham

Stjórn Tottenham staðfesti í morgun fréttir gærkvöldsins þar sem fram kom að félagið hefði sagt þeim Martin Jol og Chris Houghton upp störfum. Flestir miðlar eru á því að það verði Juande Ramos hjá Sevilla sem taki við enska liðinu, en þó ekki fyrr en næsta sumar.

Eiður Smári: Ég vil ekki fara

Eiður Smári Guðjohnsen sagði í viðtali við spænska fjölmiðla í kvöld að hann hefði engan áhuga á að fara frá Barcelona.

Jol var rekinn

Tottenham sendi í kvöld frá sér tilkynningu þar sem sérstaklega var tekið fram að Martin Jol hafi verið rekinn úr starfi sínu sem knattspyrnustjóri.

Vieira frá út árið

Inter Milan fékk í kvöld þær slæmu fréttir að Patrick Vieira yrði frá keppni út þetta ár. Hann er nýbúinn að jafna sig á öðrum meiðslum.

Jol kvaddi með tapi

Tottenham tapaði í kvöld fyrir Getafe, 2-1, á heimavelli sínum í UEFA-bikarkeppninni. Þetta var kveðjuleikur Martin Jol knattspyrnustjóra Tottenham.

Jol hættur hjá Tottenham

Martin Jol sagði starfi sínu lausu sem knattspyrnustjóri Tottenham fyrir leik liðsins gegn Getafe í UEFA-bikarkeppninni í kvöld.

Leikmaður Stoke laus úr fangelsi

Vincent Pericard hefur verið sleppt lausum úr fangelsi en hann var í ágúst síðstliðnum dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi.

Brann tapaði á heimavelli

Brann tapaði í kvöld fyrir þýska úrvalsdeildarliðinu HSV í fyrst umferð riðlakeppni UEFA-bikarkeppninnar, 1-0, á heimavelli.

Vågner: Mjög hissa á landsliðsþjálfaranum

Yfirmaður knattspyrnumála hjá Álasundi skilur ekki af hverju Haraldur Freyr Guðmundsson hefur ekki hlotið náð fyrir augum Eyjólfs Sverrissonar landsliðsþjálfara.

Hjálmar áfram hjá Fram

Hjálmar Þórarinsson hefur samið við Fram til næstu tveggja ára. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Fram í dag.

Knattspyrnumenn í raunveruleikasjónvarp

Spænska liðið Granada 74 sem leikur í annari deild hefur gert samning við sjónvarpsstöð um að gera raunveruleikasjónvarpsþátt í kring um liðið.

Lippi gefur kost á sér á ný

Marcello Lippi hefur nú gefið það út að hann sé tilbúinn að fara að þjálfa á ný eftir að hafa tekið sér frí í rúmlega eitt ár. Hann stýrði síðast landsliði Ítala til sigurs á HM síðasta sumar.

Gáttaðir á skrifum Nettavisen

Ólafur Örn Bjarnason hjá Brann staðfestir í samtali við Vísi að ummælin sem höfð voru eftir honum í Nettavisen í gær varðandi íslenska landsliðið séu stórýkt og gróflega tekin úr samhengi.

Eggert vill spila í Bandaríkjunum

Eggert Magnússon, stjórnarmaður hjá West Ham, segir að það gæti orðið ensku úrvalsdeildinni til framdráttar að spila leiki í Bandaríkjunum.

Minna ofbeldi á Ítalíu

Meiðsli stuðningsmanna vegna ofbeldis á knattspyrnuleikjum á Ítalíu hafa dregist saman um 80% síðan á síðustu leiktíð, eða síðan hertar öryggisreglur þar í landi tóku gildi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá knattspyrnusambandinu þar í landi í dag.

Guðni hefur mátulega trú á Megson

Guðni Bergsson, fyrrum leikmaður Bolton á Englandi, segist vera nokkuð hissa á ráðningu Gary Megson til félagsins. Í bloggi sínu hér á Vísi segir hann að Megson eigi erfitt starf fyrir höndum til að fá stuðningsmennina á sitt band.

Megson tekinn við Bolton

Gary Megson var nú í hádeginu ráðinn sem knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Bolton. Hann hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við félagið og tekur við af Sammy Lee sem var rekinn á dögunum.

1,7% stuðningsmanna Bolton vildu Megson

Nú þykir líklegt að Gary Megson verði ráðinn sem næsti stjóri Bolton í ensku úrvalsdeildinni eftir að hann fékk sig skyndilega lausan frá Leicester til að fá að ræða við úrvalsdeildarfélagið. Stuðningsmenn Bolton eru lítt hrifnir af þessu.

Ísraelar spila alvöru Football Manager

Getur lið náð árangri með 8,000 þjálfara? Þessari spurningu verður fljótlega svarað í Ísrael þar sem hugmyndin á bak við tölvuleikinn Football Manager hefur nú verið færð í áþreifanlegan búning.

Þjálfari Rosenborg hættur

Rosenborg vann einn eftirminnilegasta sigur í sögu félagsins í gær þegar það skellti spænska stórliðinu Valencia 2-0 í Meistaradeildinni. Þjálfarinn Knut Tørum virðist hafa ákveðið að hætta á toppnum því hann sagði af sér eftir leikinn.

Shinawatra lofar að opna budduna

Thaksin Shinawatra, eigandi Manchester City, hefur staðfest að Sven-Göran Eriksson muni fá þá peninga sem hann þarf til að kaupa leikmenn í janúarglugganum. Shinawatra er ánægður með störf Svíans í haust.

Hicks styður Benitez

Tom Hicks, annar aðaleigandi Liverpool, hefur lýst yfir stuðningi sínum við Rafa Benitez knattspyrnustjóra þrátt fyrir annað tap liðsins í röð í Meistaradeildinni í gærkvöldi.

Drogba: Chelsea hentar Ballack illa

Didier Drogba virðist ekkert ætla að slaka á í yfirlýsingum sínum í blaðaviðtölum og í dag lýsir hann því yfir í viðtali við Sun að Michael Ballack hefði frekar átt að ganga í raðir Manchester United eða Arsenal frekar en Chelsea.

Losaðu þig við Berbatov

Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, hefur skorað á kollega sinn Martin Jol hjá Tottenham að losa sig við framherjann Dimitar Berbatov úr liðinu.

Grant: Góð afmælisgjöf fyrir Roman

Avram Grant fagnaði því að hans menn í Chelsea spiluðu góðan fótbolta gegn Schalke í kvöld og óskaði líka Roman Abramovic til hamingju með afmælið.

Benitez: Við komumst áfram

Rafael Benitez er handviss um að sínir menn komist áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar þó svo að liðið sé aðeins með eitt stig eftir þrjá fyrstu leikina í riðlakeppninni.

Kristinn dæmir í Rússlandi

Kristinn Jakobsson mun dæma viðureign Spartak Moskvu og Bayer Leverkusen á Luzhniki-leikvanginum eftir tvær vikur.

Liverpool á botni A-riðils

Liverpool er nú á botni A-riðils Meistaradeildarinnar eftir tap fyrir Besiktas í Tyrklandi í kvöld, 2-1.

Jón Þorgrímur heldur áfram

Jón Þorgrímur Stefánsson sagði í samtali við Vísi að hann hyggðist spila áfram í Landsbankadeildinni næsta ár en hann hugleiddi um tíma að hætta.

Grétar ekki með AZ á morgun

Grétar Rafn Steinsson verður ekki með AZ Alkmaar sem mætir Zenit St. Petersburg í UEFA-bikarkeppninni á morgun vegna meiðsla.

Umboðsmaður: Sverrir er sjóðheitur

John Vik, umboðsmaður Sverris Garðarssonar, mælir með því að norska úrvalsdeildarliðið Viking bíði ekki of lengi með að taka ákvörðun um Sverri.

Bale ekki alvarlega meiddur

Táningurinn Gareth Bale hjá Tottenham er ekki jafn alvarlega meiddur og óttast var eftir að traðkað var á ristinni á honum í leiknum gegn Newcastle á mánudagskvöldið. Bale missir þó af Evrópuleik liðsins gegn Getafe annað kvöld.

FH-ingar höfðu enga trú á mér

Auðun Helgason skrifaði í dag undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Fram. Auðun ætlar sér stóra hluti hjá Safamýrarliðinu næsta sumar. Hann harmar að FH-ingar skuli hafa misst trúna á sig.

Auðun skrifar undir hjá Fram

Knattspyrnumaðurinn gamalreyndi Auðun Helgason gekk í dag til liðs við knattspyrnufélagið Fram. Auðun hefur leikið með FH undanfarin ár. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við Reykjavíkurfélagið. Þetta var tilkynnt rétt í þessu á blaðamannafundi.

Komdu til Inter

Argentínski framherjinn Hernan Crespo hefur skorað á fyrrum félaga sinn Didier Drogba hjá Chelsea að ganga í raðir Inter Milan á Ítalíu.

Megum ekki gera fleiri mistök

Norski varnarmaðurinn John Arne Riise segir Liverpool ekki mega við því að gera fleiri mistök ef það ætli sér að komast upp úr riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Liðið á fyrir höndum erfiðan leik gegn Besiktas í Istanbul í kvöld.

Þetta lið á mikið inni

Arsenal fór hamförum í 7-0 sigri sínum á Slavia Prag í Meistaradeildinni í gær, en Arsene Wenger knattspyrnustjóri segir liðið enn ekki komið nálægt því að ná sínu besta.

Skotar aldrei ofar á lista FIFA

Skoska landsliðið í knattspyrnu er í 13. sæti á styrkleikalista FIFA sem birtur var í morgun og hefur aldrei verið ofar á listanum frá því hann var fyrst birtur árið 1993.

Hækkar um sæti þrátt fyrir afleitan árangur

Íslenska landsliðið í knattspyrnu hefur hækkað um eitt sæti á FIFA listanum góða þrátt fyrir afleitan árangur í síðustu leikjum. Liðið situr nú í 79.-80. sæti listans á meðan síðustu andstæðingar okkar Liechtensteinar hafa hoppað upp um 23 sæti á listanum og eru í sæti 199.

Gagnrýna Eyjólf harðlega

Þrír af íslensku landsliðsmönnunum í knattspyrnu gagnrýna Eyjólf Sverrisson landsliðsþjálfara harðlega í grein sem norska netmiðilinn Nettavisen birtir í dag um ástandið á íslenska landsliðinu.

Sjá næstu 50 fréttir