Fleiri fréttir

Spánverjar lögðu slaka Englendinga

Spánverjar unnu verðskuldaðan sigur á slöku liði Englendinga í vináttuleik í knattspyrnu á Old Trafford í kvöld. Það var varamaðurinn Andres Iniesta frá Barcelona sem skoraði sigurmark spænskra á 63. mínútu og færði Steve McClaren fyrsta tap sitt á heimavelli síðan hann tók við enska liðinu í sumar.

Mikil ólga á Ítalíu í kjölfar lokunar leikvanga

Eins og fram hefur komið í fréttum í dag verður mikill fjöldi leikja í ítalska boltanum á næstunni spilaður fyrir luktum dyrum eftir að öryggisreglur voru hertar gríðarlega á Ítalíu í dag. Kostnaðurinn við hvern dag sem leikjum er frestað er talinn vera um 15 milljónir evra.

Kristjáni meinað að tjá sig um mengunina

Þjálfari knattspyrnuliðs Keflavíkur leitaði sér læknisaðstoðar eftir að hafa fengið sýkingu í augu vegna svifryks í Reykjaneshöll. Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ hyggjast leysa svifryksvandann með ryksugu, en þjálfaranum var bannað að veita viðtal vegna málsins.

Ólympíunefndin hafnar West Ham

Fulltrúar Ólympíunefndarinnar á Englandi hafa lýst því yfir að ekkert verði af samstarfi við West Ham eða önnur knattspyrnufélög um byggingu Ólympíuleikvangsins í London fyrir leikana þar í borg árið 2012, því slíkt gæti orðið til þess að undirbúningur fyrir leikana tefðist og yrði mun kostnaðarsamari en ella.

Ljungberg ætlar að vera áfram hjá Arsenal

Sænski landsliðsmaðurinn Freddie Ljungberg segist staðráðinn í að halda áfram að leika með Arsenal og segist ekki vilja fara frá félaginu þó samningur hans renni út í sumar. Ljungberg hefur verið orðaður við lið eins og AC Milan og Real Madrid.

Ronaldo neitar ekki orðrómum

Portúgalinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United lagði sig lítið fram við að mótmæla þrálátum orðrómi um að hann væri að fara til Spánar eftir leik Portúgala og Brasilíumanna á Englandi í gær.

Bæði lið þurfa á sigri að halda í kvöld

Englendingar og Spánverjar mætast í vináttuleik í knattspyrnu á Old Trafford í Manchester í kvöld og verður leikurinn sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan 20. Bæði lið hafa verið í erfiðleikum í undankeppni EM í síðustu leikjum og þurfa því nauðsynlega að hrista af sér slenið í kvöld.

Roy Keane: Lið San Marino er skelfilegt

Roy Keane, knattspyrnustjóri Sunderland og fyrrum leikmaður írska landsliðsins, blæs á þær klisjur að enginn leikur sé léttur í fótbolta. Írar mæta liði San Mario í undankeppni EM í kvöld og Keane hefur sínar skoðanir á leiknum. "Menn segja að enginn leikur í fótbolta sé auðveldur, en lið San Marino er skelfilegt og írska liðið á að vinna auðveldan stórsigur í kvöld," sagði Keane.

Capello skammaður fyrir að hrósa öfgasinnuðum stuðningsmönnum

Fabio Capello, þjálfari Real Madrid, var tekinn inn á teppi hjá stjórn félagsins í dag þar sem hann var skammaður fyrir að hafa hrósað öfgasinnuðum stuðningsmönnum liðsins, Ultras Sur, fyrir stuðninginn í háðlegu tapi Real fyrir Levante á dögunum.

Aðeins fimm heimavellir í A-deildinni standast kröfur

Aðeins fimm leikvangar í A deildinni á Ítalíu eru sagðir standast hertar öryggiskröfur sem tilkynntar verða þar í landi í dag í kjölfar harmleiksins á leik Catania og Palermo á dögunum. Þetta eru Ólympíuleikvangurinn í Róm, heimavöllur Roma og Lazio, Ólympíuleikvangurinn í Tórínó, heimavöllur Juventus og Torino, Renzo Berbera (Palermo), Luigi Ferraris (Sampdoria) og San Filippo (Messina).

Celtic mætir Milan á tómum San Siro

Ítalska knattspyrnusambandið mun í dag tilkynna úrskurð sinn í öryggismálum eftir óeirðirnar þar í landi sem kostuðu enn eitt mannslífið um daginn, en þegar hefur verið tilkynnt að 11 heimavellir í A-deildinni standist ekk nýja og stranga öryggisstaðla. fyrir luktum dyrum.

Ayala fer til Villarreal í sumar

Argentínumaðurinn Roberto Ayala gengur í raðir Villarreal frá Valencia í sumar og hefur gegngið frá þriggja ára samningi. Hann er 33 ára gamall og þarf einn landsleik til við bótar til að verða landsleikjahæsti leikmaður Argentínu frá upphafi. Ayala hefur verið kjölfestan í sigursælu liði Valencia um árabil, en flytur sig nú um set til smáliðsins í grennd við Valencia.

Svifryksvandinn í Reykjaneshöll leystur með ryksugu

Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ telja sig hafa komist fyrir heilbrigðisvandamál vegna svifriks í Reykjaneshöllinni með því að fjárfesta í sérstakri ryksugu ef marka má frétt á vef Víkurfrétta. Kristján Guðmundsson þjálfari Keflvíkinga var einn þeirra sem fundið höfðu til ónota í augum vegna svifryksmengunar í húsinu. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Solskjær samur við sig

Norski ofurvaramaðurinn Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United segist ekki hafa neinar áhyggjur af því þó Henrik Larsson hafi verið valinn í byrjunarliðið á undan sér á dögunum og segist afar sáttur við sitt hlutskipti hjá félaginu.

Þjálfari Nígeríu reiður

Segja má að gærkvöldið hafi ekki verið kvöld Austin Eguavoen, þjálfara Nígeríu. Lið hans steinlá 4-1 fyrir Gana í æfingaleik á Englandi og tapaði þar með fyrir Gana í fyrsta skipti í 15 ár. Tveir leikmanna nígeríska liðsins sem leika á Englandi voru svo heldur betur í eldlínunni.

Danir nýttu færi sín vel gegn Áströlum

Danir lögðu Ástrala að velli 3-1 í vináttuleik á Loftus Road á Englandi í gærkvöldi þar sem segja má að frammistaða Dana fyrir framan mark andstæðinganna hafi ráðið úrslitum í annars jöfnum leik. Jon Dahl Tomasson skoraði tvö marka Dana og Daniel Jensen eitt, en Brett Emerton minnkaði muninn fyrir Ástrali með marki beint úr aukaspyrnu undir lokin.

Fyrsta tap Brassa undir stjórn Dunga

Brasilíumenn uppskáru sinn fyrsta ósigur í þjálfaratíð Dunga í gærkvöld þegar liðið lá 2-0 fyrir Portúgölum í vináttuleik á Emirates Stadium í Lundúnum. Varamaðurinn Simao Sambrosa og varnarmaðurinn Ricardo Carvalho frá Chelsea tryggðu Portúgölum sigurinn með tveimur mörkum á síðustu átta mínútum leiksins.

Við getum ekki haldið í Torres

Staðan á framherjanum magnaða Fernando Torres hjá Atletico Madrid verður æ skringilegri með hverjum deginum, en nú nokkrum dögum eftir að leikmaðurinn lýsti því yfir að hann vildi alls ekki fara frá félaginu - hefur yfirmaður liðsins nú komið fram og sagt að félagið eigi ekki möguleika á að halda honum í sínum röðum lengur.

Barcelona: Við höfum efni á Ronaldo

Ferran Soriano, varaforseti Barcelona, segir að félagið hafi vel efni á því að kaupa Portúgalann Cristiano Ronaldo frá Manchester United, ekkert sé því til fyrirstöðu ef þjálfarinn Frank Rijkaard hafi áhuga á því og ef verðmiðinn flokkist undir "almenna skynsemi."

Vilja setja Hiddink í fangelsi

Hollenskur saksóknari vill láta stinga knattspyrnuþjálfaranum Guus Hiddink í fangelsi vegna skattsvika og segir hann hafa vikið sér undan stórum fjárhæðum á árunum 2002 og 2003 þar sem hann hafi logið því að hann væri belgískur ríkisborgari. Hiddink er núverandi landsliðsþjálfari Rússa en hefur m.a. verið orðaður við Chelsea.

Joey Barton fékk þurrar móttökur á fyrstu æfingu

Miðjumaðurinn Joey Barton fékk fremur þurrar móttökur þegar hann mætti á sína fyrstu landsliðsæfingu á dögunum ef marka má grein í breska blaðinu Sun í dag. Barton gagnrýndi þá Frank Lampard og Steven Gerrard harðlega fyrir frammistöðu sína á HM í sumar og fékk því ekki sérstaklega hlýjar móttökur frá þeim félögum.

Gillett: Ég verð hengdur ef ég sting upp á samstarfi við Everton

Ameríski auðjöfurinn George Gillett sem keypti Liverpool í dag segir ekki koma til greina að deila nýjum heimavelli með Everton eins og breskir fjölmiðlar héldu fram í dag. Hann segir að sér hafi verið gert það ljóst um leið og hann minntist á vallarmál að hann yrði hengdur ef hann áformaði að deila velli með grönnunum bláklæddu.

Brasilía - Portúgal í beinni á Sýn í kvöld

Vináttuleikur frændþjóðanna Brasilíu og Portúgal verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:50. Þar verður hinn magnaði Cristiano Ronaldo í eldlínunni með Portúgal, en reiknað er með að Adriano verði á ný í framlínu Brassa.

Mörkin hjá Hamburg of lítil

Allt hefur gengið á afturfótunum hjá liði Hamburg í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í vetur og hefur liðið skorað fæst mörk allra í deildinni. Blaðamaður Hamburger Abendblatt hefur fundið lausnina á þessu og segir mörkin á Hamburg Arena einfaldlega vera of lítil.

Ben Foster í byrjunarliði Englendinga

Markvörðurinn Ben Foster frá Manchester United mun spila sinn fyrsta leik fyrir enska landsliðið annað kvöld þegar liðið mætir Spánverjum í vináttuleik. Steve McClaren hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn og gefur Foster, sem spilar sem lánsmaður hjá Watford, tækifæri til að sanna sig milli stanganna.

Ítalski boltinn gæti byrjað á ný á sunnudaginn

Keppni í ítalska boltanum gæti hafist á ný á sunnudag að sögn Luca Pancalli, formanns ítalska knattspyrnusambandsins. Forráðamenn félaga í A og B deildunum þar í landi hafa fundað stíft síðustu daga vegna öryggismála á knattspyrnuvöllum þar í landi í kjölfar þess að lögreglumaður lét lífið í óeirðum á dögunum og ákvörðunar er að vænta á morgun.

Guti: Beckham á að spila

Miðjumaðurinn Guti hjá Real Madrid segir að leikmaður á borð við David Beckham eigi að vera inni á vellinum að spila með liðinu í stað þess að húka uppi í stúku og fullyrðir að hann tali fyrir munn allra leikmanna Real í þessu sambandi.

Bayern: Ekki í viðræðum við Mourinho

Forráðamenn Bayern Munchen sendu frá sér yfirlýsingu í gærkvöld þar sem það var tekið skýrt fram að félagið væri ekki enn komið í formlegar viðræður við þjálfara til að taka við liðinu á næstu leiktíð, en Ottmar Hitzfeld hefur enn sem komið er aðeins samþykkt að stýra því út leiktíðina.

Kanar kaupa Liverpool

Bandarísku auðjöfrarnir George Gillett og Tom Hicks eru að kaupa enska knattspyrnuliðið Liverpool. Stjórn Liverpool samþykkti í dag yfirtökutilboð upp á 174 milljónir punda. Gillett á fyrir íshokkíliðið Montreal Canadiens en Hicks á íshokkíliðið Dallas Stars. Þeir borguðu fimmþúsund pund á hlut og yfirtóku skuldir fyrir 45 milljónir punda. Heildarverðmæti samningsins er því 219 milljónir punda.

Ákvörðunar að vænta á morgun

Ítölsk íþróttamálayfirvöld munu ákveða á morgun hvort leika eigi knattspyrnu þar í landi fyrir luktum dyrum. Útför lögreglumannsins sem lést við skyldustörf á leik Catania og Palermo á föstudag var haldin í gær.

Middlesbrough kaupir Woodgate

Real Madrid hefur tilkynnt að félagið hafi náð samkomulagi um formlega sölu á enska landsliðsvarnarmanninum Jonathan Woodgate til Middlesbrough. Woodgate hefur spilað sem lánsmaður á Englandi á leiktíðinni og hefur náð að vinna sér sæti í enska landsliðinu á ný. Hann er 27 ára gamall en hefur átt við þrálát meiðsli að stríða í nokkur ár.

Ronaldo á að fara til Barcelona

Luiz Felipe Scolari, landsliðsþjálfari Portúgala, segir að Cristiano Ronaldo hjá Manchester United ætti að fara frá liðinu og ganga í raðir Barcelona á Spáni. Ronaldo hefur verið frábær með United í vetur, en "Stóri-Phil" segir tíma kominn á breytingar hjá hinum 22 ára gamla vængmanni.

Heiðar í liði vikunnar á Sky

Heiðar Helguson var kjörinn í úrvalslið vikunnar af sérfræðingum Sky sjónvarpsstöðvarinnar eftir frammistöðu sína með Fulham um helgina, en hann skoraði fyrsta mark Fulham í dýrmætum sigri liðsins á Newcastle. Heiðar fékk 9 í einkunn og var sagður hafa gert varnarmönnum Newcastle lífið leitt frá fyrstu mínútu.

Eto´o: Næ ekki fullum styrk fyrr en eftir eitt ár

Kamerúninn Samuel Eto´o sneri aftur úr meiðslum með liði Barcelona í gær þegar hann lék síðustu fimm mínúturnar í daufu jafntefli Börsunga við Osasuna. Spænskir fjölmiðlar spá því að hann verði jafnvel í byrjunarliði Barcelona í næsta leik þegar meistararnir mæta Santander næsta laugardag, en leikmaðurinn segir sig eiga langt í land með að ná bata.

Kahn: Örvænting í vörninni hjá Bayern

Markvörðurinn Oliver Kahn segir að örvænting ríki í varnarleik Þýskalandsmeistara Bayern Munchen og segir að gríðarlegar breytingar verði að eiga sér stað innan liðsins ef það eigi að tryggja sér Evrópusæti í deildinni í vor. Bayern steinlá 3-0 fyrir Nurnberg um helgina og situr nú í fjórða sæti deildarinnar.

Capello ætlar að halda ótrauður áfram

Ítalski þjálfarinn Fabio Capello hjá Real Madrid ætlar ekki að láta niðurlægjandi tap liðsins gegn Levante í gær hafa áhrif á sig og segist fullviss um að liðið geti náð að gera fína hluti í vor. Tap Real í gær var hið fjórða í síðustu fimm leikjum og stuðningsmenn Real létu vel í sér heyra eftir vonbrigðin í gær.

Rooney verður í enska hópnum

Wayne Rooney verður í enska landsliðshópnum sem mætir Spánverjum í vináttuleik á miðvikudagskvöldið, en framherjinn Andrew Johnson hefur dregið sig úr hópnum vegna ökklameiðsla. Leikurinn fer fram á Old Trafford í Manchester og verður sýndur beint á Sýn.

O´Shea ætlar að rukka inn bónusinn fyrir að halda hreinu

Írski varnarmaðurinn John O´Shea fékk það erfiða hlutverk að þurfa að standa í marki Manchester United síðustu tíu mínúturnar í sigri liðsins á Tottenham á útivelli. O´Shea viðurkenndi að hann hefði verið ansi taugaveiklaður þegar hann spilaði í fyrsta sinn sem markvörður í ensku úrvalsdeildinni.

United valtaði yfir Tottenham

Manchester United jók í dag forskot sitt á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í sex stig á ný eftir sannfærandi 4-0 sigur á lánlausu liði Tottenham á White Hart Lane í dag. Tottenham hélt í við toppliðið allt til loka fyrri hálfleiks þegar Cristiano Ronaldo kom United yfir úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur - en eftir það var leikurinn eign þeirra rauðu.

Everton-menn ósáttir við ummæli Benitez

Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, er í litlu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Everton í dag eftir að hann lét þau ummæli falla í gær að Everton væri smálið. Framkvæmdastjóri Everton segir Benitez vera einn um sínar skoðanir.

United hefur yfir gegn Tottenham

Manchester United hefur yfir 1-0 gegn Tottenham á White Hart Lane þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni. Það var hinn magnaði Cristiano Ronaldo sem skoraði mark United úr vítaspyrnu skömmu fyrir leikhlé.

Óvæntur sigur AZ á PSV

Grétar Rafn Steinsson og félagar í AZ Alkmaar í Hollandi gerðu sér lítið fyrir og lögðu meistara PSV Eindhoven á útivelli í hollensku deildinni í dag 3-2. Grétar Rafn spilaði allan tímann í liði AZ, sem minnkaði forskot PSV niður í sex stig á toppi deildarinnar.

Jafnt hjá Arsenal og Middlesbrough

Middlesbrough og Arsenal skildu jöfn 1-1 í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Yakubu kom Boro yfir úr vítaspyrnu og var Philippe Senderos hjá Arsenal vikið af velli í kjölfarið. Arsenal náði hinsvegar að jafna eftir skyndisókn á 77. mínútu og þar var að verki Thierry Henry.

Heiðar skoraði fyrir Fulham

Chelsea náði í dag að minnka forskotið á Manchester United niður í þrjú stig á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 1-0 útisigri á Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Charlton. Heiðar Helguson var á skotskónum hjá Fulham í sigri á Newcastle og West Ham tapaði enn einum leiknum.

Everton og Liverpool skildu jöfn

Grannliðin í Liverpool gerðu markalaust jafntefli í einvígi sínu á Anfield í dag. Everton varðist vel gegn Liverpool og þó þeir rauðu hafi verið með yfrburði í leiknum, náðu þeir ekki að tryggja sér sigur. Mark var dæmt af Craig Bellamy og Tim Howard sá vel við Peter Crouch, en besta færi leiksins átti Andrew Johnson hjá Everton, en hann lét Reina í marki Liverpool verja frá sér.

Sjá næstu 50 fréttir