Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þrír úr aðalliði United spiluðu með varaliðinu í gær Manchester United er nú fljótlega að endurheimta þrjá af lykilmönnum sínum úr meiðslum en í gær spiluðu þeir Alan Smith, Mikael Silvestre og Wes Brown allir 90 mínútur í markalausu jafntefli varaliðs félagsins við Liverpool. Kínverjinn Dong Fangzhou spilaði líka í gær og átti skot í stöng í leiknum, en Alex Ferguson var á meðal áhorfenda. 2.2.2007 14:27
Ledley King meiðist enn Miðvörðurinn og meiðslakálfurinn Ledley King hjá Tottenham verður væntanlega ekki mikið meira með liðinu á leiktíðinni eftir að í ljós kom að hann er með brákað bein í fæti. Síðast í morgun bárust fregnir af því að fyrirliðinn væri að ná heilsu, en þær reyndust heldur betur rangar og nú verður Lundúnaliðið að vera án King amk næstu tvo mánuðina. 2.2.2007 14:19
Bandaríkjamennirnir að eignast Liverpool Liverpool hefur náð samningum við amerísku viðskiptajöfrana George Gillett og Tom Hicks, sem væntanlega munu ganga frá yfirtöku í félaginu eftir helgina. Þeir áttu fund með stjórn Liverpool snemma í þessari viku og voru meginástæða þess að félagið hætti við að eiga viðskipti við DUI. Bandaríkjamennirnir eru sagðir ætla að greiða um 470 milljónir punda fyrir félagið og þar af fari 215 milljónir punda í nýjan leikvang. 2.2.2007 14:14
Óvíst að Owen spili á leiktíðinni Michael Owen segir að vel geti farið svo að hann spili ekkert á þessari leiktíð eftir að hann meiddist alvarlega á hné á HM síðasta sumar. Owen segist fara sér afar hægt í endurhæfingunni og ætlar ekki að taka neina áhættu. 2.2.2007 00:32
Mourinho fær stuðningsyfirlýsingu Forráðamönnum Chelsea virðist vera nóg boðið af endalausu slúðri bresku pressunnar um framtíð knattspyrnustjórans Jose Mourinho hjá félaginu, því í kvöld birti liðið stuðningsyfirlýsingu við stjórann og fullyrt er að hann fari hvergi á næstunni. 1.2.2007 21:20
Gattuso framlengir við Milan Harðjaxlinn Gennaro Gattuso hefur framlengt samning sinn við ítalska stórliðið AC Milan til ársins 2011 og fetaði þar með í fótspor Clarence Seedorf félaga síns, en þeir koma til með að klára ferilinn hjá félaginu. Tveir lykilmanna AC Milan fóru hinsvegar á meiðslalistann í dag. 1.2.2007 21:11
Meiðsli Cole ekki alvarleg Meiðsli enska landsliðsmannsins Ashley Cole hjá Chelsea eru ekki eins alvarleg og óttast var í fyrstu og mun leikmaðurinn ekki þurfa í uppskurð samkvæmt fyrstu niðurstöðum lækna. Cole skaddaði krossband í öðru hnénu í leiknum gegn Blackburn í gærkvöld, en forráðamenn Chelsea eru bjartsýnir á að hann nái heilsu fyrir lok leiktíðar í vor. 1.2.2007 20:41
Magath að taka við Hamburg Þýskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Felix Magath verði ráðinn knattspyrnustjóri botnliðs Hamburg á næsta sólarhring. Þessi tíðindi koma aðeins einum degi eftir að hann var rekinn frá meisturum Bayern Munchen, en mikil uppstokkun hefur verið í þjálfaramálum í þýsku úrvalsdeildinni síðustu daga. 1.2.2007 14:58
Forseti Barcelona hefur ekki áhyggjur af Saviola Joan Laporta, forseti Barcelona, segist ekki hafa áhyggjur af því hvort Argentínumaðurinn Javier Saviola fari frá félaginu í sumar eða ekki, en bætir því við að hann sé afar ánægður með frammistöðu hans í undanförnum leikjum. 1.2.2007 14:35
Torres: Ég hefði auðveldlega geta farið til Chelsea Framherjinn Fernando "El Nino" Torres hjá Atletico Madrid segir að hann hefði auðveldlega geta gengið í raðir Chelsea í janúarglugganum ef sig hefði langað að fara frá uppeldisfélagi sínu á Spáni. Það hafi hinsvegar ekki komið til greina fyrir sig. 1.2.2007 14:29
Pearce tekur við U-21 árs liði Englendinga Stuart Pearce hefur verið ráðinn þjálfari U-21 árs liðs Englendinga samhliða því að stýra liði Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. Fyrsti leikur Pearce verður vináttuleikur liðsins við Spánverja í næstu viku og svo er Evrópumótið á dagskránni í sumar. 1.2.2007 13:46
Mourinho hefur miklar áhyggjur af Cole Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur miklar áhyggjur af hnémeiðslunum sem Ashley Cole varð fyrir í leiknu gegn Blackburn í gær, en Cole lagðist skyndilega í grasið í miklum sársauka án þess að nokkur kæmi við hann. Hann gengur undir ítarlega læknisskoðun í dag. 1.2.2007 13:42
Stjórnarformaður Leicester City segir af sér Andrew Taylor, stjórnarformaður enska knattspyrnuliðisins Leicester City, hefur sagt af sér eftir því sem greint er frá á vef breska ríkisútvarpsins. Þar eru ástæður þess ekki tilgreindar en sagt að afsögnin hafi ekki áhrif á fyrirhuguð kaup Serbans Milans Mandaric á félaginu. 1.2.2007 10:37
Arsenal í úrslit deildarbikarsins Tottenham þurfti enn og aftur að sætta sig við tap gegn erkifjendum sínum í Arsenal þegar liðin mættust öðru sinni í undanúrslitaviðureignum sínum í deildarbikarnum á Englandi. Arsenal þurfti þó framlengingu að þessu sinni en vann 3-1 og samanlagt 5-3. Liðið mætir Chelsea í úrslitum. 31.1.2007 22:35
Auðvelt hjá toppliðunum Manchester United og Chelsea unnu bæði sannfærandi sigra í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar fjórir leikir voru á dagskrá. Chelsea lagði Blackburn 3-0, Man Utd burstaði Watford 4-0, Newcastle lagði Aston Villa 3-1 og þá skildu Bolton og Charlton jöfn 1-1 þar sem Hermann Hreiðarsson stóð í vörn Charlton. 31.1.2007 22:02
Pires ákvað að fara eftir úrslitaleikinn Franski miðjumaðurinn Robert Pires hefur nú gefið út af hverju hann ákvað að yfirgefa Arsenal á síðustu leiktíð og ganga í raðir spænska liðsins Villarreal. Hann segir Arsene Wenger hafa komið af fjöllum þegar hann tilkynnti honum ákvörðun sína. 31.1.2007 18:15
West Ham kaupir Matthew Upson Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham gekk í kvöld frá kaupum á miðverðinum Matthew Upson frá Birmingham fyrir 6 milljónir punda, en sagt er að kaupverðið gæti hækkaði í 7,5 milljónir punda háð leikjafjölda hans hjá nýja félaginu. Upson hefur skrifað undir fjögurra og hálfs árs samning við Íslendingaliðið og er sjötti leikmaðurinn sem gengur í raðir þess síðan Alan Curbishley var ráðinn knattspyrnustjóri. 31.1.2007 18:07
Michael Ball kominn aftur til Englands Fyrrum landsliðsmaðurinn Michael Ball gekk í dag í raðir Manchester City frá hollenska liðinu PSV Eindhoven. Ball er 27 ára gamall bakvörður og hefur áður spila með Everton og Glasgow Rangers, en hann spilaði á sínum tíma einn landsleik undir stjórn Sven-Göran Eriksson. 31.1.2007 17:30
Auðjöfrar frá Dubai hættir við Liverpool Viðskiptajöfrarnir hjá Dubai International Capital hafa dregið sig út úr viðræðum við stjórn Liverpool um fyrirhugaða yfirtöku á félaginu. Fréttir herma að samningaviðræður hafi verið komnar langt á leið en í dag ákváðu forráðamenn DIC að draga sig út úr viðræðum og báru því við að þeir væru ekki tilbúnir til að ofgreiða fyrir félagið. 31.1.2007 16:20
Zlatan ekki í hóp Svía Zlatan Ibrahimovic er ekki í leikmannahópi Lars Lagerback sem mætir Egyptum í Kaíró í næsta mánuði, þrátt fyrir að vera búinn að ná sáttum við þjálfarann. Freddy Ljungberg er ekki heldur í sænska hópnum að þessu sinni. Lagerback segist hafa rætt við Zlatan og segir leikmanninn hafa gefið þau svör að hann vildi ekki vera í hópnum að svo búnu, en hann hefur ekki spilað með Svíum síðan hann var settur í bann fyrir að brjóta reglur sænska liðsins í sumar. 31.1.2007 14:45
Xavi staðfestir áhuga Manchester United Miðjumaðurinn knái Xavi hjá Barcelona hefur staðfest að Manchester United hafi verið í reglulegu sambandi við umboðsmann sinn. Hann tekur það fram að hann sé samningsbundinn Barcelona og ítrekar að ef United hafi raunverulegan áhuga, verði félagið að setja sig í samband við forráðamenn Barcelona. 31.1.2007 14:29
Magath rekinn frá Bayern Munchen Það er ekki tekið út með sældinni að vera knattspyrnustjóri Bayern Munchen, en þýskir fjölmiðlar greina frá því nú eftir hádegið að félagið hafi rekið þjálfarann Felix Magath úr starfi í kjölfar lélegs gengis liðsins í undanförnum leikjum. Magath hafði stýrt liði Bayern til sigurs í deild og bikar bæði árin sín hjá félaginu. Það verður fyrrum þjálfari liðsins, Ottmar Hitzfeltd, sem tekur við það sem eftir lifir leiktíðar. 31.1.2007 13:59
Bale fer hvergi Hinn 17 ára gamli og eftirsótti Gareth Bale verður hjá Southampton út leiktíðina. Bale hafnaði tækifæri til að ganga í raðir Tottenham eftir að Southampton samþykkti 10 milljón punda tilboð í leikmanninn á dögunum og ljóst er að hann fer ekki frá félaginu fyrr en í fyrsta lagi í sumar. Bale á 18 mánuði eftir af samningi sínum. 31.1.2007 13:55
Arsenal ætlar að sækja í kvöld Varnarmaðurinn Kolo Toure hjá Arsenal segir að sókn verði besta vörnin í kvöld þegar liðið tekur á móti Tottenham í síðari leik liðanna í enska deildarbikarnum. Fyrri leiknum á White Hart Lane lauk með jafntefli 2-2 og verður síðari leikurinn sýndur beint á Sýn í kvöld. 31.1.2007 12:10
Mascherano fær leyfi til að ganga til liðs við Liverpool Allt útlit er fyrir að að argentínski miðjumaðurinn Javier Mascherano gangi til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Liverpool eftir að alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, gaf honum sérstakt leyfi til þess að fara frá West Ham. 31.1.2007 10:44
Eiður markalaus í 455 mínútur Útlitið er ekkert alltof bjart fyrir okkar mann hjá Barcelona. Eiður Smári hefur ekki skorað í síðustu átta leikjum sínum, á sama tíma hefur Javier Saviola skorað 8 mörk og samkeppnin er jafnframt að harðna. 31.1.2007 00:01
Ívar skoraði í sigri Reading Ívar Ingimarsson var á skotskónum hjá Reading í kvöld þegar liðið lagði Wigan 3-2 í ensku úrvalsdeildinni. Wigan komst í 1-0 í leiknum en Ívar jafnaði með góðum skalla eins og sjá má á myndinni hér til hliðar. Þá tapaði West Ham enn einum leiknum. 30.1.2007 21:50
Maccarone farinn til Siena Ítalski framherjinn Massimo Maccarone hefur gengið í raðir Siena í heimalandi sínu, en hann fer þangað á frjálsri sölu frá liði Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni. Maccarone hefur undirritað samning til ársins 2010 en Boro greiddi á sínum tíma 8,15 milljónir punda fyrir hann árið 2002, sem var félagsmet á þeim tíma. 30.1.2007 18:39
Aghahowa semur við Wigan Nígeríski framherjinn Julius Aghahowa hefur fengið atvinnuleyfi á Englandi og er því genginn í raðir úrvalsdeildarfélagsins Wigan. Aghahowa er 24 ára gamall og hefur verið í herbúðum Shakhtar Donetsk í næstum sjö ár. Hann hefur skorað 14 mörk í 32 landsleikjum fyrir nígeríska landsliðið. 30.1.2007 16:07
Ronaldo loksins farinn til Milan AC Milan náði nú rétt í þessu samkomulagi við Real Madrid um kaup á brasilíska framherjanum Ronaldo og mun landi hans Ricardo Olivera fara til Spánar í staðinn. Talið er að Ronaldo hafi kostað ítalska félagið um 8 milljónir evra, en Olivera fer sem lánsmaður á Bernabeu út leiktíðina. Félögin hafa þráttað um kaupin síðan í síðustu viku. 30.1.2007 15:57
West Ham vísar fréttum um kauptilboð í Bent á bug Talsmaður West Ham hefur gefið það út að fréttir af 18 milljón punda kauptilboði félagsins í framherjann Darren Bent hjá Charlton séu uppspuni. "West Ham hefur ekki gert tilboð í Darren Bent, enda hafa þau skilaboð verið send út úr herbúðum Charlton að hann sé ekki til sölu," sagði í fréttatilkynningu frá félaginu. 30.1.2007 15:52
Svartsýnir á að halda Montella Forráðamenn Fulham viðurkenna að ólíklegt verði að teljast að félagið haldi ítalska framherjanum Vincenzo Montella lengur en út tímabilið eftir að hann sló í gegn í fyrstu leikjum sínum með Fulham og hefur skorað fjögur mörk í þremur leikjum. 30.1.2007 15:15
Zlatan gefur kost á sér í landsliðið á ný Framherjinn sterki Zlatan Ibrahimovic hefur á ný gefið kost á sér í sænska landsliðið í knattspyrnu, en hann hefur verið úti í kuldanum síðan á síðasta ári þegar hann braut útivistarreglur liðsins og fór í fýlu við landsliðsþjálfarann Lars Lagerback. 30.1.2007 13:59
Charlton neitaði risatilboði West Ham í Darren Bent Charlton hefur neitað 18 milljón punda kauptilboði West Ham í enska landsliðsframherjann Darren Bent og hefur knattspyrnustjórinn Alan Pardew nú sagt að hann sé ekki til sölu. Pardew hafði áður sagt að félagið myndi íhuga að selja hann ef gott tilboð kæmi í janúar og vitað er af áhuga fjölda liða á framherjanum knáa, eins og West Ham, Aston Villa og Tottenham. 30.1.2007 13:37
Liverpool að landa ungum Spánverja Liverpool er nú við það að ganga frá lánssamningi við 18 gamlan spænskan miðjumann, Francis Duran, frá liði Malaga sem leikur í annari deildinni á Spáni. Duran spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Malaga á dögunum og ef hann gengur frá samningi við enska liðið, verður það með möguleika á að ganga frá formlegum kaupsamningi á næsta ári. 30.1.2007 12:25
Ledley King verður ekki með gegn Arsenal Ledley King, fyrirliði Tottenham, verður ekki með liði sínu í síðari leiknum við Arsenal í deildarbikarnum í vikunni vegna ristarmeiðsla. Forráðamenn félagsins óttast að hann gæti verið ristarbrotinn en hann hefur ekki spilað síðan um jólin. 30.1.2007 12:23
Davids farinn til Ajax Miðjumaðurinn Edgar Davids er genginn í raðir Ajax í heimalandi sínu frá Tottenham í ensku úrvalsdeildinni og hefur hann skrifað undir 18 mánaða samning við fyrrum félaga sína. Davids varð þrisvar hollenskur meistari með gullaldarliði Ajax á tíunda áratugnum þar sem liðið náði einnig frábærum árangri í Evrópukeppnunum. 30.1.2007 12:17
Margrét Lára hætt hjá Duisburg Landsliðskonan Margrét Lára Viðarsdóttir hefur fengið sig lausa frá þýska úrvalsdeildarliðinu Duisburg og ber við persónulegum ástæðum. Margrét staðfesti þetta í viðtali á fréttavefnum sudurland.is í morgun en vildi ekkert gefa upp um ástæður ákvörðunar sinnar, en segir þetta hafa komið snögglega upp. 30.1.2007 11:42
Tottenham staðfestir áhuga á táningnum Bale Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham hefur staðfest að það sé á höttunum eftir Gareth Bale, vinstri bakverði Southampton sem Manchester United sýndi einnig áhuga. 30.1.2007 11:02
Ívar skoraði fyrir Reading Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fjórum sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Staðan er jöfn 1-1 í leik Reading og Wigan og þar var það Ívar Ingimarsson sem skoraði mark Reading. Sheffield United hefur yfir 2-0 gegn Fulham og markalaust er hjá Portsmouth - Middlesbrough og í leik West Ham og Liverpool. 30.1.2007 20:49
Ashton lengur frá en áætlað var West Ham varð fyrir áfalli í dag þegar í ljós kom að það tekur sóknarmanninn Dean Ashton lengri tíma en áætlað var að jafna sig eftir fótbrot frá því í sumar. Sinar og vöðvafestingar í kringum ökklann sem brotnaði hafa ekki gróið rétt og þarf Ashton á sprautumeðferð að halda. 29.1.2007 21:24
Ferguson bannar Ronaldo að tjá sig um Real Madrid Cristiano Ronaldo vill með engu móti tjá sig um áhuga Real Madrid á sjálfum sér, en spænska stórliðið hefur ekki farið leynt með aðdáun sína á leikmanninum og er sagt reiðubúið að borga allt að 40 milljónir punda fyrir hann. Ástæðan fyrir þagnarbindindi Ronaldo er skipun frá Sir Alex Ferguson. 29.1.2007 20:58
Charlton hafnaði tilboði West Ham í Hermann Sky Sports fréttastofan í Englandi sagði frá því í dag að Charlton hefði hafnað rúmlega 300 milljóna tilboði West Ham í íslenska varnarmanninn Hermann Hreiðarsson. Eggert Magnússon og Alan Curbishley þekkja vel til Hermanns og hæfileika hans - Curbishley frá stjóratíð sinni hjá Charlton og Eggert frá starfi sínu hjá KSÍ. 29.1.2007 19:21
Magath: Við höfum saknað Hargreaves Felix Magath, þjálfari Bayern Munchen, segir að Owen Hargreaves hafi verið sárlega saknað á miðju þýska liðsins upp á síðkastið en fjórir mánuðir eru síðan enski landsliðsmaðurinn fótbrotnaði. Hann er hins vegar byrjaður að æfa á fullum krafti að nýju og gæti leikið sinn fyrsta leik eftir meiðslin gegn Bochum á morgun. 29.1.2007 19:00
Mourinho hló að meiðslum Shevchenko Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hló sig máttlausan þegar úkraínski framherjinn Andrei Shevchenko var tæklaður harkalega niður af varnarmanni Nottingham Forest í leik liðanna í ensku bikarkeppninni í gær. Myndir náðust af Mourinho hlæjandi þegar Shevchenko lá sárkvalinn í grasinu. 29.1.2007 17:00