Fleiri fréttir

Arsenal hafnar 20 milljóna punda boði United í Nasri

Arsenal hefur hafnað 20 milljóna punda boði eða sem svarar um þremur og hálfum milljarði íslenskra króna Manchester United í franska miðjumanninn Samir Nasri. Arsenal vill fá 25 milljónir punda fyrir Nasri.

Pepsimörkin: Mörkin og tilþrifin úr 9. umferð

Fimm leikir fóru fram í 9. umferð í Pepsideildinni i fótbolta karla í gær. Mörkin létu ekki á sér standa og í þessari samantekt úr þættinum Pepsimörkin frá því í gær eru öll mörkin sýnd og það er breska hljómsveitin Coldplay sem sér um undirleikinn.

Þorvaldur: Komum ekki boltanum yfir línuna

„Þetta er alltaf jafnt svekkjandi,“ sagði Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, eftir ósigurinn í kvöld. Fram tapaði enn einum leiknum gegn Keflvíkingum, 1-0, í Keflavík í kvöld og er sem fyrr í næsta sæti með tvö stig.

Ólafur: Barnaskapur að spila svona varnarleik

Ólafur Kristjánsson þjálfari Blika var sæmilega sáttur með leik sinna manna í samtali við blaðamann. Hann hafði hann áhyggjur af slælegum varnartilburðum sinna manna en er þó ekki farinn að örvænta þótt stigataflan sýni ekki eins mörg stig og margir Blikar höfðu vonast eftir.

Andri: Mjög sáttur með framlag minna manna

Andri Marteinsson þjálfarin Víkinga var ánægður með leik sinna manna en að sama skapi var hann ekki eins sáttur með úrslit leiksins. Víkingar sem leiddu lengi vel gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks misstu leikinn niður í 2-2 jafntefli þegar skammt lifði leiks.

Viktor: Gaman að skora framhjá Ingvari

Hinn 17 ára Viktor Jónsson sýndi góðan leik með Víkingum í kvöld og skoraði seinna mark sinna manna í leiknum og það gegn sínum gamla þjálfara.

Óli Þórðar: Vorum teknir í kennslustund

„Frá fyrstu mínútu til síðustu var þetta kennslustund í fótbolta. Við komumst yfir þvert gegn gangi leiksins og það var engan vegin sanngjarnt en svona er þetta. Fótbolti getur farið á alla vegu en Stjörnumenn héldu áfram og stútuðu okkur,“ sagði þungur á brún Ólafur Þórðarson þjálfari Fylkis eftir ósigurinn gegn Stjörnunni í kvöld.

Bjarni: Spiluðum frábærlega

Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunnar hitti svo sannarlega naglan á höfuðið þegar hann skipti varnarmanninum Tryggva Sveini Bjarnasyni inná í framlínuna þegar tæpur hálftími var eftir af leiknum gegn Fylki í kvöld. Tryggvi skoraði eftir mínútu og það lagði grunninn að 4-1 sigrinum.

Haraldur: Vannst á návígjunum

Haraldur Björnsson markmaður Vals segir að 3-0 sigurinn á Þór í kvöld hafi verið sanngjarn. Valsmenn komust á topp Pepsi-deildarinnar með sigrinum.

Þorsteinn: Þurfum að vera grimmari

Þorsteinn Ingason fyrirliði Þórs var óánægður með dómara leiksins í kvöld. Hann sagði að þriðja mark Vals hefði ekki átt að standa og að dómgæslan í því hefði klárlega haft áhrif á spilamennsku liðsins.

Halldór: Viljinn og getan okkar megin

Halldór Kristinn Halldórsson átti góðan leik fyrir Val í hjarta Valsvarnarinnar. Hann segir að viljinn hafi verið meiri Valsmegin en liðið lagði Þór 3-0 í kvöld.

Flösku kastað í höfuð Jóns Vilhelms

Ungur stuðningsmaður Þórs var miður sín eftir að flaska sem hann kastaði inn á hlaupabrautina á Þórsvellinum hæfði Jón Vilhalm Ákason Valsmann í ennið. Það blæddi úr Jóni en Valsmenn voru að fagna 3-0 sigrinum á Þór þegar atvikið átti sér stað.

Arnar: Við erum í mikilli krísu

"Við erum svo sannarlega komnir upp við vegg núna,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, leikmaður Fram, eftir tapið gegn Keflavík í kvöld.

Guðmundur: Ómar var frábær í kvöld

„Þetta var rosalega mikilvægt og virkilega langþráður sigur,“ sagði Guðmundur Steinarsson, leikmaður Keflvíkinga, eftir sigur, 1-0, gegn Fram í kvöld.

Willum: Berjumst fyrir lífi okkar í deildinni

„Við erum búnir að vera í allskonar vandræðum í sumar og því var þetta sérstaklega mikilvægur sigur fyrir okkur,“ sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, eftir sigurinn í kvöld.

Valencia nálægt því að brjóta ökklann aftur

Antonio Valencia leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Manchester United komst nálægt því að endurtaka meiðslin sem ullu því að hann var frá stóran hluta síðasta tímabils. Valencia meiddist á ökkla í markalausu jafntefli Ekvador gegn Paragvæ.

Íslenska kvennaliðið í B-riðil

Íslenska kvennalandsliðið í golfi hafnaði í 14. sæti á Evrópumóti landsliða en mótið fer fram í Austurríki. Liðið fer því í B-riðil.

Örlög Bin Hammam ákvörðuð í lok júlí

Siðanefnd FIFA mun hittast 22-23. júlí og ákvarða örlög Mohammed Bin Hammam. Hann er sakaður um að hafa borið og reynt að bera fé á hendur formanna knattspyrnusambanda í karabíska hafinu á fundi í Trínidad í upphafi maí.

Inter vann kapphlaupið við Arsenal um Alvarez

Argentínska knattspyrnufélagið Velez Sarsfield hefur greint frá því að Ricardo Alvarez sé á leiðinni til Inter. Félögin hafa komist að samkomulagi um kaupverð sem er 10 milljónir punda eða sem nemur tæpum tveimur milljörðum íslenskra króna.

Silverstone breytt fyrir tæpa 5.2 miljarða

Silverstone brautarstæðinu í Bretlandi hefur verið breytt fyrir 28 miljónir sterlingspunda á milli ára, eða fyrir 5.196 milljarða íslenskra króna. Búið er að reisa ný mannvirki fyrir aðstöðu keppnisliða, sem verður notuð í fyrsta skipti af Formúlu 1 liðum í breska kappakstrinum um helgina.

Umfjöllun: Stjarnan valtaði yfir Fylki

Stjarnan vann öruggan 4-1 sigur á Fylki á Stjörnuvelli í kvöld. Þó öll mörk Stjörnunnar hafi komið síðustu 25 mínútur leiksins virtist fátt benda til annars frá upphafi að Stjarnan myndi sigra því yfirburðir liðsins á vellinum voru miklir gegn Fylkisliði sem lék líklega sinn slakast leik í sumar.

Fjölnir mætir liðum frá Búlgaríu, Danmörku og Noregi

Í dag var dregið í riðla í undankeppni Futsal Cup, Evrópukeppninnar í innanhússknattspyrnu. Fjölnir mætir BGA Futsal frá Danmörku, Vegakameratene frá Noregi auk MFC Varna frá Búlgaríu sem eru gestgjafar riðilsins.

Umfjöllun: Jafntefli í Víkinni

Íslandsmeistarar Breiðabliks fóru í heimsókn í Fossvoginn í gærkvöldi og mættu Víkingum í Stjörnugrófinni í níundu umferð Pepsídeildar karla. Leikar fóru 2-2 í einum fjörugasta leik sumarsins. Bæði lið léku blússandi sóknarleik og skemmtu sér og þeim sem á horfðu.

Umfjöllun: Keflvíkingar höfðu betur í botnslagnum

Keflvíkingar unnu langþráðan og mikilvægan sigur, 1-0, gegn botnliði Fram í Pepsi-deild karla suður með sjó í kvöld. Eina mark leiksins gerði Arnór Ingvi Traustason þegar um hálftími var eftir af leiknum.

Umfjöllun: Flugeldasýning hjá FH-ingum

FH-ingar vöknuðu af værum svefni í kvöld er þeir völtuðu yfir Grindavík, 7-2, í hreint út sagt ótrúlegum knattspyrnuleik. Spilamennska FH minnti á gamla góða FH-liðið en Grindvíkingar voru andlega fjarverandi.

Guðjón Þórðarson áminntur - BÍ/Bolungarvík fær sekt

Guðjón Þórðarson þjálfari BÍ/Bolungarvíkur hefur verið áminntur af Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ vegna ummæla hans að loknum leik Vestfirðinga gegn Þrótti Reykjavík þann 26. júní síðastliðinn. Knattspyrnudeild BÍ/Bolungarvíkur var sektuð um 25 þúsund krónur vegna ummælanna.

Umfjöllun: Valsmenn á toppinn

Valsmenn tylltu sér á topp Pepsi-deildar karla í kvöld með góðum sigri á Þór norðan heiða. Lokatölur voru 3-0 fyrir Val sem gefur þó ekki rétta mynd af gangi leiksins. Umdeilt mark afgreiddi Þórsara.

Charlie Adam á leið í læknisskoðun hjá Liverpool

Skoski miðvallarleikmaðurinn Charlie Adam er í þann mund að ganga til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool. Á heimasíðu Liverpool kemur fram að leikmaðurinn sé á leiðinni til Bítlaborgarinnar þar sem hann mun semja um persónuleg kjör og gangast undir læknisskoðun.

Savic til City - Arsenal vildi hann ekki

Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City heldur áfram að styrkja varnarlínu liðsins. Stefan Savic, tvítugur Svartfellingur, hefur samið við félagið til fjögurra ára. Hann reyndi fyrir sér hjá Arsenal á síðasta ári en Arsene Wenger sá ekki ástæðu til þess að bjóða honum samning.

Piltalandsliðið tapaði gegn Belgíu

Íslenska landsliðið í handknattleik karla skipað leikmönnum 19 ára og yngri tapaði gegn Belgíu 20-14 í lokaleik riðlakeppninnar á Opna Evrópumótinu í Gautaborg í dag. Tapið þýðir að íslensku piltarnir komast ekki upp úr riðlinum og spila um 9-15. sætið á mótinu.

Ari verður aðstoðarmaður Hrafns hjá kvennaliði KR

Ari Gunnarsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks KR í körfuknattleik kvenna. Hrafn Kristjánsson verður áfram aðalþjálfari liðsins og Guðmundur Daði Kristjánsson er styrktarþjálfari. Ari skrifaði undir samning til tveggja ára hjá KR en hann hefur mikla reynslu af þjálfun eftir að hafa þjálfað mfl. lið Hamars og Vals á undanförnum árum.

Hermann semur við Portsmouth til eins árs

Hermann Hreiðarsson mun skrifa undir nýjan eins árs samning við enska knattspyrnufélagið Portsmouth. Steve Cotterill knattspyrnustjóri Portsmouth er hæstánægður með að fá Hermann aftur til félagsins og segir að Eyjamaðurinn skrifi líklegast undir innan 48 klukkustunda.

HM kvenna: Bestu myndirnar frá mótinu frá AFP

Heimsmeistaramótið í fótbolta kvenna stendur nú yfir í Þýskalandi. Riðlakeppninni lýkur í með fjórum leikjum og er hart barist um sæti í átta liða úrslitum keppninnar. Í myndasyrpunni eru valdar myndir frá ljósmyndurum AFP frá keppninni.

Valsmenn geta tyllt sér í efsta sætið - fimm leikir í Pepsideildinni

Fimm leikir fara fram í kvöld í Pepsi-deild karla í fótbolta þegar 9. umferð hefst. Umferðinni lýkur ekki fyrr en 21. júlí þegar KR tekur á móti ÍBV. Leikur Stjörnunnar gegn Fylki hefst kl. 20.00 í kvöld og verður hann í beinni útsendingu á Stöð 2 sport. Samantektarþátturinn Pepsimörkin er á dagskrá kl. 22.00 á Stöð 2 sport þar sem farið verður yfir öll helstu atvikin úr leikjum kvöldsins.

Þjóðverjar sýndu styrk sinn gegn Frökkum á HM kvenna

Þjóðverjar eru til alls líklegir á heimsmeistaramóti kvennalandsliða í fótbolta eftir 4-2 sigur liðsins í gær gegn Frökkum. Þjóðverjar unnu alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni og mæta liði Japan í 8-liða úrslitum. Frakkar höfðu fyrir leikinn í gær aðeins fengið á sig 2 mörk í síðustu 14 leikjum og sóknarleikur Þjóðverja var beittur i gær. Um 46.000 áhorfendur mættu á leikinn en heimamenn hafa sýnt keppninni mikinn áhuga.

Nasri á leiðinni til Manchester City?

Það er nóg að gerast í herbúðum Manchester City og samkvæmt enskum fjölmiðlum hafa forráðamenn liðsins náð samningum við franska leikmanninn Nasri sem hefur leikið með Arsenal undanfarin misseri. Kaupverðið er sagt vera um 19 milljónir punda eða 3,5 milljarðar kr.

Framtíð Modric hjá Tottenham er óljós - Chelsea vill fá hann

Samkvæmt frétt Sky Sports þá mun Luca Modric leikmaður Tottenham funda með forráðamönnum liðsins í dag en hann hefur óskað eftir því að félagið taki tilboði Chelsea sem vill fá króatíska landsliðsmanninn í sínar raðir. Modric er 25 ára gamall og hann hefur staðið undir væntingum hjá Tottenham frá því hann var keyptur frá Zagreb árið 2008.

Molde í efsta sæti undir stjórn Ole Gunnar Solskjær

Ole Gunnar Solskjær fyrrum leikmaður Manchester United hefur byrjað gríðarlega vel sem þjálfari norska úrvalsdeildarliðsins Molde. Solskjær tók við liðinu í vetur eftir að hafa náð frábærum árangri sem þjálfari varaliðs Manchester United. Molde er sem stendur í efsta sæti deildarinnar að loknum 15 umferðum en á síðustu fjórum árum hefur það lið orðið norskur meistari sem var í efsta sæti á þessum tímapunkti í deildinni.

Aston Villa hafnaði tilboði Liverpool í Stewart Downing

Stewart Downing leikmaður Aston Villa er eftirsóttur og forráðamenn Aston Villa hafa því sett háan verðmiða á enska landsliðsmanninn. Enskir fjölmiðlar greinar frá því í dag að Liverpool hafi boðið 15 milljónir punda eða rétt um 2,7 milljarða kr. í leikmanninn en því tilboði hefur Aston Villa hafnað.

Sjá næstu 50 fréttir