Íslenski boltinn

Willum: Berjumst fyrir lífi okkar í deildinni

Stefán Árni Pálsson á Nettóvellinum skrifar
„Við erum búnir að vera í allskonar vandræðum í sumar og því var þetta sérstaklega mikilvægur sigur fyrir okkur,“ sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, eftir sigurinn í kvöld.

„Það hefur verið mikið álag á okkur að undanförnu en leikurinn í kvöld var sá fjórði á níu dögum, því komu ferskar lappir inn í liðið í kvöld og þeir strákar stóðu sig virkilega vel".

 „Við erum búnir að endurskoða öll okkar markmið og núna verðum við bara að vinna í því halda okkur áfram í úrvalsdeildinni. Þegar stigin eru ekki að skila sér þá verð ég sem þjálfari að sýna hópnum að mönnum sé treyst og það skilaði sér í kvöld. Við lékum vel stórann hluta af leiknum í kvöld og Ómar (Jóhannsson) var frábær í markinu“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×