Íslenski boltinn

Guðmundur: Ómar var frábær í kvöld

Stefán Árni Pálsson á Nettóvellinum skrifar
„Þetta var rosalega mikilvægt og virkilega langþráður sigur,“ sagði Guðmundur Steinarsson, leikmaður Keflvíkinga, eftir sigur, 1-0, gegn Fram í kvöld.

„Við vorum bara búnir að vinna einn bikarleik eftir fríið og því var þessi sigur sérstaklega mikilvægur“.

„Við náðum ekki alveg að fylgja leikskipulaginu í byrjun leiks en komum sterkir til baka í síðari hálfleiknum og það dugði. Í kvöld var varnarleikur okkar mjög góður með markmann fyrir aftan sig sem var frábær og það skilaði sigrinum“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×